21.9.2022 | 14:40
Tábrotin Kamilla og mögulega upplognar matarhefðir
Nýliðin vika fór ekki bara í spekulasjónir um furðulegt veðurfar á Íslandi miðað við árstíma, samanburð á milli ára í gegnum Facebook-myndir mínar, heldur fór athyglin að miklu leyti á Elísabetu II. drottningu og hinstu ferð hennar, nánast hvert skref afkomenda hennar og tengdabarna og tengdabarnabarna-barnabarna. Klökknaði eins og fleiri þegar kistan fór fram hjá uppáhaldshesti hennar, hundunum, og þegar sekkjapípuleikarinn hennar blés sína kveðju.
Mér finnst Kamilla ekkert drottningarleg, sagði Hilda um síðustu helgi bara til að eyðileggja stemninguna. Ég móðgaðist ekki beint en sagði kannski óþarflega hvasst: Hún er tábrotin, slasaði sig rétt fyrir lát drottningar. Það hlýtur að vera erfitt að bera sig tignarlega með brotna tá. Ef systir mín skammaðist sín duldi hún það vel.
Daginn eftir útförina var nákvæmlega ekkert um drottninguna á Sky News svo ég fór að hlusta á tónlist við vinnuna og pirrast enn og aftur út í YouTube-tónlistarveituna fyrir að stoppa alltaf eftir nokkur lög og spyrja Viltu halda áfram? Ef ég borga mánaðargjald slepp ég kannski við það en veit það samt ekki. Já, mig langaði nú bara að vita hvernig afkomendum liði eftir þessa ótrúlegu daga, hvort Karl III. myndi flytja í höllina og leyfa pasta og hvítlauk sem mamma hans bannaði ... en þetta kemur allt í ljós með tímanum. Annars rakst ég á sitt af hverju skrítið þegar ég las ýmsar fréttir um Windsor-fjölskylduna sem allt var morandi af á Facebook. Því hefur verið haldið blákalt fram að allur skelfiskur sé harðbannaður innan veggja halla og kastala bresku hefðardúllanna. Svo renndi ég hratt yfir viðtal við fyrrum hirðkokk sem var spurður hvað fjölskyldan snæddi nú á aðfangadag (mig langaði bara að fá hugmyndir). Ég man ekki allt en get ekki gleymt því að eitt af fíniríinu var salat sem er ýmist með humri eða rækjum! Hmmm. Kannski er einhverju logið upp á þetta fólk. Hver veit nema Meghan sé ekki sá djöfull í mannsmynd sem Piers Morgan vill meina ... bara dæmi. Mér finnst matseðillinn hjá Hildu systur reyndar áhugaverðari þótt gott salat hljómi alltaf vel en hún er með ofnæmi fyrir skelfiski ... það er t.d. lamb og önd, tvær tegundir af kartöflum (hvítlauks og brúnaðar), hrísgrjónasalat a la London, tvær sósusortir og svo eitthvað vegangómsæti.
Eftir þessa royal-rússibanareið síðustu daga hef ég ákveðið að útgöngulagið í útför minni verði Útfararmarsinn (nr. eitt?) eftir Beethoven og eins gott að allir þrammi í takt. Og ef útför mín fer einhverra hluta vegna fram frá Westminster Abbey langar mig að biðja fréttafólk að hætta að segja: West-MINI-ster, (vestur-ráðherra) en að sjálfsögðu gera þetta alls ekki allir. Sá eða heyrði auglýsingu frá íslenskri húsgagnaverslun um WestminIster-stóla til sölu svo sennilega hefur þetta fengið að grassera óáreitt um hríð hér á landi, eins og orðið ungAbarn. Í gær eða fyrradag mátti heyra eitthvað á þessa leið í sjónvarpinu: Næst á dagskrá er þátturinn Líf ungbarna þar sem fjallað verður um líf ungabarna ...
Sá húsgagnasmið kvarta sáran á netinu yfir því að kista drottningar hefði verið hulin með fána, en hún var smíðuð úr enskri eik (sjaldgæft) og eflaust mikil völundarsmíð. Ég er ekki sú besta í að gúgla svo ég gat ekki bjargað þessu, eins og um árið þegar bárust fréttir af eldgamalli tertusneið úr brúðkaupi Karls og Díönu, einhver hafði geymt hana og fréttafólkið nennti ekki að gúgla mynd af múmíu-tertusneiðinni, það gerði ég og birti hér á þessu bloggi og var sú eina. Lata fólkið birti nú bara mynd af Díönu og Karli.
Kakan seldist á 1.850 pund sem gerir tæplega 300 þúsund kr. íslenskar. Kakan sem ég fann á sínum tíma, eða mynd af henni, var ekki sú sem myndin er af hér (ávaxtakaka greinilega), svo mögulega voru fleiri svona tertusöludæmi í gangi. Jæks.
Samt, þetta veður ... Sumir vilja meina að þrá mín eftir almennilegu haustveðri hafi á einhvern hátt lækkað hitastig á landinu nú þegar september á bara viku eftir! og valdið roki og rigningu. Anna vinkona gleðst yfir því að það verði vorveður til jóla, skv. Einari veðurfræðingi. Hvar er Siggi stormur núna? Annars kvarta ég ekki, þetta er ljómandi fínt og mig langar sannarlega ekki í snjó og hálku.
Ef vinir mínir og vandamenn sætta sig við góðan storm annað slagið (og tilheyrandi brim) er ég alveg sátt við milt vorveður til jóla, eða bara langt fram yfir áramót - jafnvel enn lengur. Mæli svo um og legg á.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 1
- Sl. sólarhring: 39
- Sl. viku: 619
- Frá upphafi: 1506064
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 509
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Þetta á auðvitað að vera "Yes, minister" en ekki "West-mini-ster" - Myndband
Þorsteinn Briem, 21.9.2022 kl. 20:36
Þarna kemur lausnin ... svooo auðvelt að rugla þessu saman. ;)
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.9.2022 kl. 14:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.