26.9.2022 | 11:55
Enn ein björgunartilraunin ...
Fyrir nokkrum árum skrifaði ég grein um svefn og fannst svolítið sniðug ein aðferðin sem ég fann um hvernig gott væri að sofna hratt og vel, aðferð sem kennd er hermönnum sem hafa eiginlega ekki efni á því að liggja andvaka, eins og sagði í þeirri grein. Hún er fólgin í því að liggja á bakinu tilbúin til að fara að sofa, sem sagt, og byrja á því að slaka á í höfðinu, finna slökuna færast yfir, síðan hálsinn, þá aðra höndina, síðan hina, líkamann og að síðustu fæturna. Síðan á maður að finna í hugskoti sínu dásamlegan stað, ímyndaðan eða alvöru (ég enda alltaf hálfsofandi í kósí hengistól í hálftómri stofunni í Himnaríki - ímyndaðri). Mjög oft næ ég að sofna fljótlega upp úr því. Majór Gurrí ...
Að ná að slaka á er auðvitað algjör snilld en ég hef oft ætlað mér að læra alvöruslökun sem var vissulega í boði þegar hér á Akranesi var hægt að fara í rope-jóga (sakn). Hnén á mér þola ekki venjulegt jóga eftir slysið um árið (2008?) En um daginn, fyrir kannski viku, sá ég á netinu auglýstar ókeypis íslenskar hugleiðsluæfingar og setti inn netfangið mitt til að fá þær sendar í pósti. Vissulega hef ég ekki gefið mér tíma til að prófa þær frekar en visst námskeið á netinu sem krefst bara korters á dag og ég er búin að borga fyrir, nei, ég safna bara póstunum og ætla að gera seinna.
Svo fóru hugleiðslu-ekki-kaupin að vinda upp á sig. Fínasta tilboð um að kaupa lengri hugleiðslur, allt mjög eðlilegt, en svo í gær fékk ég póst: Guðríður, ertu tilbúin til að fyrirgefa? Fyrirgefa hvað? hugsaði ég sjokkeruð, móðgaði hugleiðslukonan mig kannski í hugleiðslunum sem hún hélt ranglega að ég væri búin að hlusta á og var að biðja mig afsökunar á því? Eða les hún bloggið mitt og upplifði að ég væri enn brjáluð út í Íslenska hollustu fyrir að taka Fasta af markaði, safann sem hélt í mér lífinu? Ég fékk þó á tilfinninguna að þetta væri fjöldapóstur til allra sem hefðu látið freistast af ókeypis hugleiðslum, og nú ætti aldeilis að taka okkur í gegn. Allir lúrðu á einhverju sem þeir væru fúlir yfir og nýi gúrúinn okkar ætlaði svo sannarlega að hjálpa okkur við að fyrirgefa og eflaust að takast á við margt fleira. Hentar örugglega einhverjum en ég upplifði þetta bara sem ónæði. Svo ég las ekki lengra, heldur fjarlægði mig af póstlistanum, hef engan tíma í svona eða áhuga og mun heldur ekki prófa þessar ókeypis hugleiðslur fyrst þær voru bara tæki til að komast að mér og bjarga sál minni. Ég var búin að gleyma því að fæst er ókeypis í veröldinni og þessi kona bara að búa sér til atvinnu - og svo óheppin að lenda á grömpí kerlingu eins og mér.
Ég hef áður lent í líkamlegri björgunartilraun og svaraði könnun á Facebook um hvað ég fengi mér í morgunverð en það reyndist vera dulbúin Herbalife-auglýsing og nokkuð ónæði sem fylgdi í kjölfarið.
Ég mun seint fyrirgefa þennan fyrirgefningarpóst, hann fer beint í minnisbankann með morgunverðarvenju-blekkingunni og Fasta-skortinum ...
Við skruppum saman nágrannakonurnar á Galito á föstudaginn. Stráksi kom auðvitað með og átta ára sonur hennar.
Við skiptumst alveg í tvennt; stráksi og hún fengu sér steikarsamloku (með salati) og við sonur hennar völdum okkur sushi, hann með frönskum! Ég var yfir mig hrifin af þessu vali drengsins, þekki ungt fólk yfir þrítugt sem er enn of ungt til að gefa sushi séns, en ungi smekkmaðurinn hafði þó, að sögn móður hans, engan áhuga á sushi á meðan hann bjó úti í Úkraínu þar sem það kostaði svo miklu minna, þrefalt minna.
Á leiðinni út í Galito mættum við strák með ís og ég lofaði að bjóða strákunum upp á slíkt eftir matinn, enda í leiðinni.
Má bjóða ykkur eftirréttaseðil? spurði yndislega stúlkan á Galito eftir matinn. Nei, takk, við ætlum að kaupa ís í sjoppunni, sagði stráksi, alltaf hreinskilinn. Um leið sagði ég eitthvað á þá leið: Nei, takk, við erum pakksödd eftir þennan góða mat. Svitlana er orðin svo góð í íslensku að hún skildi þetta og flissaði. Nú hafa sumir fengið kennslustund í því að særa ekki starfsfólk á veitingahúsum með óþörfum upplýsingum.
Myndin/sjálfan hér ofan sýnir okkur fjórmenningana og Snata á Galito. Með flottari sjálfum sem ég hef tekið. Ef myndin prentast vel má sjá Krónuna, Pennann, bókasafnið, Subway, Íslandsbanka, Lindex, Omnis og tónlistarskólann í baksýn. Og fullt af bílastæðum ...
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 4
- Sl. sólarhring: 40
- Sl. viku: 473
- Frá upphafi: 1526950
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 403
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.