Gráðugur banki og góð gestakoma

Göngugarpar við sandinnHringdi í þjónustuver bankans míns um daginn til að spyrja hvað væri til ráða ef ég væri búin að gleyma leyniorðinu í Netbankann. Konan spurði mig lymskulega um reikningsnúmer og sagðist síðan ekki geta hjálpað mér, heldur átti ég að fara í útibúið á Akranesi og fá þar nýtt leyniorð. Mundi svo leynóið ... Þegar ég kíkti í Netbankann minn áðan sá ég að fyrir þetta símtal og ekkihjálp þurfti ég að greiða 65 krónur sem dragast af reikningum mínum. Ekki mikill peningur kannski en frekar ósiðlegt af svona forríku fyrirtæki að rukka mann aukalega fyrir lásí símtal. Ekki gefa upp bankanúmerið ykkar eða kennitölu nema þið vitið að þið fáið einhverja aðstoð, bara upp á prinsippið.

 Hilda systirHilda systir og Lóa, vinkona okkar, komu í aldeilis dásamlega heimsókn í kvöld. Þær byrjuðu reyndar á því að fara í 40 mínútna gönguferð meðfram Langasandinum. Náði mynd af þeim þar sem þær hófu gönguna, ómeðvitaðar um leynilega myndatöku út um glugga himnaríkis.

Á meðan þær nutu ferska loftsins og hreyfingarinnar var ég í óðaönn að útbúa gúmmulaði fyrir þær. Bjó til samloku úr tortillum, smurði með sterkri Taco-sósu, setti líka rifinn ost og rjómaostsslettur á milli og steikti beggja megin á pönnu, skar svo niður í fjóra bita.

Lóa pæjaÞær emjuðu af sælu yfir þessu þegar þær komu móðar og másandi úr gönguferðinni. Það sem fólk leggur á sig fyrir hreyfingu og hreint loft. Ég fékk heilmikla hreyfingu líka og var með alla glugga galopna, sé lítinn mun á þessu. Heimsóknin var mjög notaleg og skemmtileg.

Tók mynd af þeim stöllum í sófanum í bókaherberginu þar sem þær lágu í bókmenntum. Þær þóttust eitthvað vera of þreytulegar og sjúskaðar fyrir myndatöku en ég hlustaði ekki á slíkt bull.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Haaa??? Varstu rukkuð fyrir símtalið???? Þetta hef ég nú aldrei heyrt um áður...... best að kíkja í netbankann!

Eva Þorsteinsdóttir, 3.6.2007 kl. 02:24

2 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

ég var rukkuð þrisvar fyrir debetkort sem bankinn týndi...toppið það

Brynja Hjaltadóttir, 3.6.2007 kl. 02:28

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bankar á Íslandi eru... segi það ekki nema inni í fataskáp.  Hurru þú stundar hreyfingu eins og ég.  Fylgist reglulega með hreyfingu fólks fyrir utan gluggana mína.

Rosalega ertu búin að vera bloggin í dag. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2007 kl. 02:29

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hmm, já, hef verið ofsa bloggin í dag, enda mörg ævintýrin ... skip, þyrlur, bankasvik, baðferð með ketti, heimsókn ... stundum gerist allt á einum degi. 

Ótrúlegt, Brynja, hvernig er þetta hægt? Vona að þú hafir fengið leiðréttingu á þessu.

Guðríður Haraldsdóttir, 3.6.2007 kl. 03:06

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sjúr!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 3.6.2007 kl. 03:22

6 Smámynd: www.zordis.com

Ósvífni  zetta med bankann en yndisleg heimsóknin!  Sumir dagar eru betri en adrir!  Best ad opna alla glugga og grillast í hitanum zví ekki nennir kona ad hreyfa sig í zessari hlýju!

www.zordis.com, 3.6.2007 kl. 07:36

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Je dúdda mía hvað ég öfunda þig af útsýninu og að vera svona nálægt sjónum. Mitt útsýni er samt rosalega fallegt, bara ekki af sjónum.

Jóna Á. Gísladóttir, 3.6.2007 kl. 08:47

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ehh...Gurrí mín einhver verður að borga trilljónahagnaði og eftirlaunasjóði snillinganna sem sjóða saman svona sniðugar peningamaskínur...mala gull úr hverjum vasa. Og ef þú hringir til mín gullið mitt..kannski bara til að fá heimilisfangið mitt svo þú getir sent mér eitthvað sætt t.d,....þá kostar það 7 pund og fimmtíu sem þú millifærir bara á reikninginn minn..ok? Ofsalega ertu með unglegar tær!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.6.2007 kl. 11:02

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég mundi bara geyma  aurana undir koddanum. Er það ekki góð lausn.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.6.2007 kl. 11:24

10 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Bankar eru frábærir - í því að finna leiðir til að plokka pening út úr blásaklausu fólki. T.d. ef maður er ekki með helv**** auðkennislykilinn á sér og þarf að komast inn í heimabankann þá er maður rukkaður um 6 krónur sem er að vísu ekki mikill peningur en bankarnir eru pottþétt að græða feita summu á þessu. Safnast þegar saman kemur.

Björg K. Sigurðardóttir, 3.6.2007 kl. 13:07

11 identicon

Mér finnst nýja lúkkið á systur þinni alveg ógó flott.

Ég er frekar hlynntari hreyfingu eins og þú fékkst með opna gluggana að útbúa gúmmulaði í eldhúsinu heldur en að vera flengjast eftir langasandinum þverum og endilöngum.  Mikið skemmtilegra

Sigga (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 24
  • Sl. sólarhring: 439
  • Sl. viku: 1048
  • Frá upphafi: 1459556

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 831
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DollyParton
  • Jason-Statham
  • 12. ágúst sko

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband