Óvæntur næturgestur - ævintýrarúmið

Fína rúmiðUnaðslegt var að leggjast til svefns í gær, á nýja rúminu sem kom seinnipartinn í gær. Líklega hafði ég sofið í klukkutíma, aldrei þessu vant sofnaði ég fyrir miðnætti, þegar barn í nálægri blokk gerði sig tilbúið til að koma í heiminn. Foreldrarnir höfðu verið handvissir um barnið fæddist á meðan þriggja ára stóri bróðir væri í leikskólanum eða um helgi. Einmitt.

Allir bloggvinir mínir vita núorðið hversu mikilvægt ég tel að fólk sé með plan B, alltaf í öllu, en slíkt hefur farið mjög svo dvínandi í þjóðfélaginu með tilkomu tækni sem er dásamleg en getur klikkað. Þegar t.d. lyfjagáttin bilaði fyrir einhverjum mánuðum, skildi ég ekki uppnámið, væri ekki hægt að nota handskrifaða lyfseðla ... en það hefur ekki verið mögulegt mjög lengi, allt komið á netið. Svo ef Pútín (já, ég legg hann í einelti) ákveður að ráðast á innviði okkar erum við ótrúlega viðkvæm fyrir því og allt færi í kaldakol (svo segja tölvunarséníin sem ég þekki). Nú, þegar á að hætta víða með peningaseðla gegn svartri vinnu og þvætti, gagnast kortin lítið ef rafmagn og net fer. Ég gæti auðvitað borgað með kossi í Einarsbúð en efast um að það gengi alls staðar upp.

Hjónin samþykktu með vissri vantrú á nauðsyn þess, að ég yrði plan B, sem sagt ef barnið gerði sig líklegt til að koma á asnalegum tíma, eins og um nótt sem myndi bara alls ekki gerast. Faðirinn hafði samband, einmitt um eittleytið í nótt, ég vaknaði við lágvært bling! og hafði fimm mínútur til að búa mig undir komu tilvonandi stóra bróður. Ég kveið því mest að kettirnir gerðu drenginn ofurspenntan en hann var ósköp góður og alveg til í að lúlla í nýja, fína rúminu hennar Gurríar. Við sofnuðum þó ekki fyrr en eftir tvo tíma. Kettirnir voru bæði hneykslaðir og hissa á þessari innrás sem lyktaði samt alls ekkert illa, komu og þefuðu og lögðust svo til svefns inni í stofu. Ég vaknaði annað slagið með tærnar á drengnum uppi í munninum á mér, fingurna í eyrunum á mér, fætur hans í hryggnum á mér og annað slíkt en hann fór nú samt ekki að slá fyrir alvöru til mín fyrr en um sjöleytið í morgun, allt í svefni samt. Ég var furðanlega hress, og hann líka um hálfníu í morgun svo við vorum samferða stráksa út rétt fyrir níu, hann var að fara í skólann (fær að sofa út á fimmtudögum). Ég hafði hringt í leikskólann áður því vanalega er mæting klukkan átta en við vorum bæði frekar þreytt ... fullur skilningur ríkti á því. 

 

Félagar í morgunÉg rataði nokkurn veginn á Vallarsel, leikskólann hans, en kunni ekkert á hliðið þar svo við biðum bara róleg eftir næsta foreldri sem kom 14 sekúndum seinna. Það reyndist vera ungur og hress maður sem starði hissa á mig, var með barn en ekki kunnug flóknu opnunarathöfninni sem þurfti til að komast inn, en þegar ég sagði honum að barnið hefði orðið stóribróðir í nótt og ég væri nágranninn sem passaði, lyftist á honum brúnin og hann kenndi mér á galdralásinn sem var svo ekkert flókinn. 

 

Næsta verkefni var að finna deild barnsins ... stór leikskóli, en alls staðar var hjálpsamt fólk sem vissi hvert guttinn átti að fara. Það ríkti mikil ró inni á deildinni hans þrátt fyrir fjölda barna og almennt annríki, það segir rosalega mikið um gæði starfsins, heyrði ég eitt sinn sálfræðing tala um.

 

Já, þetta var ævintýraleg nótt og ekki grunaði mig að ég fengi félagsskap fyrstu nóttina í nýju rúmi. RB-rúmið fær tíu, ég svaf vel, þannig séð, og bakið hefur verið ótrúlega gott í dag. Ég gekk vissulega löturhægt með drenginn á leikskólann en frekar hratt heim og bakið kvartaði ekkert. Veit vonandi á gott. En eftir þessa nótt er ég orðin ansi fráhverf því að giftast enn einu sinni. Kostir þess að sofa ein í rúmi eru mér nú algjörlega ljósir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 16
  • Sl. sólarhring: 477
  • Sl. viku: 1241
  • Frá upphafi: 1460065

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 984
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DollyParton
  • Jason-Statham
  • 12. ágúst sko

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband