Stórskemmtilegt Suðurland í miklum vindgangi

Haust í bústaðFimmtudagurinn fór í að verða föstudagur því okkur stráksa var boðið í ferðalag þann dag, eða í ferð sem gæti orðið að sjóferð til Eyja daginn eftir. Við komum heim núna í kvöld eftir tvær nætur í bústað en samt er ekki mánudagur á morgun! Græddum sem sagt heilan dag með þessari lævísi. Stefnan hafði verið tekin á Vestmannaeyjar, í dagsferð í gær, föstudag, en vegna veðurs og vindáttar (suðvestan) fannst okkur réttara að fresta för, sem reyndist rétt, einhverjar ferðir féllu niður því ófært var í Landeyjahöfn, sennilega vegna ölduhæðar.

 

Sólheimar í Grímsnesi urðu fyrir valinu í gær, fínasta heimaræktað og -brennt kaffi þar, ég keypti ilmandi góða handsápu og nokkur póstkort. Við hittum Ólaf okkar og spjölluðum við hann, sáum að það var verið að rampa allt upp þarna og það var alveg þörf á því, sagði Ólafur okkur. Góður bíltúr þrátt fyrir rok og rigningu.

Búðin í Reykholti

 

Á leiðinni til baka í bústaðinn stoppuðum við í Reykholti. Fórum inn í Bjarnabúð þar sem allt fæst. Íbúfen, Húsblanda frá Kaffitári, skóflur, mergjuð olía á stífa og verkjaða vöðva og svona þúsund aðrir nauðsynjahlutir. Á afgreiðsluborðinu lágu súrmjólkur- og mjólkurfernur með miðum á þar sem á stóð: Hverabakað brauð Ernu í fernu. Systir mín gat ekki stillt sig um að kaupa eitt svona rímað brauðstykki en í ísskápnum í bústaðnum átti hún til þetta fína smjör og kringlóttan Havarti-ost. Fyrirhugað var kósíkvöld þar sem átti að horfa saman á mynd um séfferhundinn Max.

Við heimkomu fengum við okkur rúgbrauð með smjöri og osti og nutum þess mjög, enda hvað er betra en hverabakað rúgbrauð með íslensku smjöri og klikkaðslega góðum útlenskum osti? Líklega voru það tvær sneiðar á mann og svo var lagst í leti í sveitasælunni, ég las frekar ofmetna ástarsögu sem ég keypti fyrir nokkrum vikum og kemst ekkert áfram með og hinir fundu sér eitthvað enn skemmtilegra að gera. 

Um áttaleytið fór rúgbrauðið að „gefa“ ... úr öllum áttum, eins og maður segir pent um vindgang. Ögn seinna skruppu allir nema ég, fjórir sem sagt, í heita pottinn og mig grunar staðfastlega að um tíma hafi hann breyst í kröftugan nuddpott ... if you know what I mean ... Ég fór inn í herbergið mitt, opnaði gluggann til öryggis, og lokaði dyrunum, en ég er bara of mikil dama til að ... þið vitið, eins og einhver óhemja, svo það voru óþarfar ráðstafanir.

Stráksi hefur alist upp á miklu tepruheimili síðan í mars 2017 svo ég veit hreinlega ekki hvað hann hefur haldið um þennan fret-sumarbústað gærkvöldsins en hann hefur samt verið ansi brosleitur síðan og margir stórgóðir prumpbrandarar bæst í safn Himnaríkis. Mæli ekki með miklu rúgbrauðsáti í sumarbústað, svona í alvöru talað. Vegna tækniörðugleika urðum við að horfa á The Italian Job sem við höfðum svo sem séð áður en hún var samt skemmtileg, Max bíður þar til í næstu Kópavogsferð.

 

Hjá Hafinu bláaÍ dag ókum við um Suðurland, heimsóttum „Stokkseyrarbakka“ á leið okkar til Hveragerðis þar sem átti að snæða snemmbúinn kvöldverð. Mikið var gaman að heimsækja þessa fallegu bæi sem S og E eru og í sjoppunni á Stokkseyri fengum við okkur góðan ís. Þar sveif á mig stórhuggulegur maður. -Þekkirðu mig virkilega ekki? En ef ég segi þér að vinkona þín sé háöldruð stóra systir mín? Og þegar hann hafði loks sagt fullt nafn sitt bar ég kennsl á hann og var virkilega fegin því að hafa ekki spurt hvort við hefðum kannski verið saman í skóla ... Hann er áratugum yngri en ég en samt orðinn of gamall til að birta fæðingarár sitt á Facebook (ég gáði), og of ungur til að vera skítsama, eins og mér. Jamm, Alfreð, skemmtilegi bróðir hennar Elfu vinkonu sem er hreint ekkert háöldruð. Um leið og hann sagði nafn sitt, rann einhver slæða frá andliti hans og ég þekkti hann - auðvitað! Við höfum svo sem ekki hist neitt reglulega, aðallega sést í gegnum ljósmyndir, en samt, Gurrí þó!

Hundarnir og flest þeirra tvífættu fóru í hressandi gönguferð rétt hjá Hafinu bláa. Þar voru sjáanlegar leifar ölduróts gærdagsins í fjarska. Sjá mynd.  

Í Hveragerði borðuðum við strangheiðarlegan* mat. 

*Skýring: Allt í lagi-matur, frekar gamaldags, og á allt í lagi-verði, það er strangheiðarlegur matur, held ég. Svo héldum við áleiðis heim. Hilda skilaði okkur í Mjóddina og innan skamms birtist leið 57.

Hress bílstjóriUndir stýri sat nýr bílstjóri, ég forvitnaðist um heimaland hans og hann tjáði mér að hann væri hreinræktuð vampíra. -Aha, frá Rúmeníu, sagði ég hrifin. -Þú veist sem sagt, sagði hann og hló blóðsugulegum hlátri á meðan ég fann augntennur mínar titra.

Ungur strákur kom í vagninn rétt fyrir brottför.

Til að bílstjórinn gæti rukkað hann um rétt gjald sagði hann: - Akranes!

- Are you sure? spurði bílstjórinn steinhissa.

- Hmmmmm, heyrðist í móðgaðri Skagakonu í annarri sætaröð til hægri (mér). Ég veit ekki hvort strákurinn skildi brandara bílstjórans, mér fannst hann harla góður - ég held að bílstjórinn hafi svo ekki skilið minn brandara (hummið mitt).  

 

Svo kl. 19.59 stillti bílstjórinn útvarpið hátt sem gladdi stráksa sérlega mikið (ég hefði frekar viljað Skálmöld) og ók sem leið lá til Akraness. Það var sturlað dásamlegt að koma heim til fagnandi kattanna. Nýja rúmið mitt var ekki draumur, eins og ég hafði óttast, heldur blákaldur (hrósyrði) og geggjaður veruleiki sem ég hlakka til að njóta næstu áratugina. Þegar ég vaknaði eftir þessa fyrstu og einu nótt sem ég hef sofið í því, (þó með næturgest) fannst mér næsta morgun eins og stoðkerfi mitt hefði styrkst og eldgömul meiðsl* væru þegar á undanhaldi (*skýring: að sofna í sófa sem var 1,60 m á lengd og ég 1.70 m, og reyna í svefni að rétta úr mér þar til eitthvað lét undan og það var ekki sófinn).

Kemur í ljós í fyrramálið eða einhvern næstu morgna hvort þetta er og verður svona mikil breyting ... ég tel að svo verði.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 50
  • Sl. sólarhring: 346
  • Sl. viku: 1929
  • Frá upphafi: 1454803

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1567
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Bakklóra
  • Snorri og Patrik
  • Vifta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband