20.6.2007 | 08:41
Rómantík í morgunsárið ...
Elskan hann Tommi sat undir stýri í morgun og var með Rás 2 á. "Góða ferð, góða ferð, góða ferð," söng einhver annar en Ingibjörg í BG, við Tommi héldum jafnvel að þetta væri Eyvi. Rómantíkin hélt áfram því næsta lag var Söknuður með Roof Tops og svo hélt ég að ég yrði ekki eldri þegar Zeppelin fóru að syngja ómþýtt Babe I´m gonna leave you ... Fólkið í strætó var farið að vanga aftur í, ég lygndi bara aftur augunum en á rómantískan hátt. Ef ég geng einhvern tíma út þá gerist það í strætisvagni og verður Rás 2 að kenna.
Í millitíðinni, eða skömmu fyrir Zeppelin, gerðist reyndar sá æsispennandi atburður að farþegarnir í Skagastrætó þurftu að skipta um rútu á Kjalarnesinu. Ég klökknaði þegar ég sá endurfundi Tomma og rútunnar sem beið okkar, enda er hann oftast á þeim bíl. Tommi klappaði á mælaborðið, tautaði falleg ástarorð og svei mér ef allir farþegarnir fengu ekki eitthvað í augað ...
Mig grunar að Magga mágkona (systir Tomma) píni Gest Einar til að spila rómantíska tónlist í útvarpinu til að við Tommi verðum skotin hvort í öðru og hún fái loks alvörumágkonu. Held að hún verði að sætta sig við rútu sem mágkonu ... ansi flotta og þægilega rútu sem kann þó ekki að búa til gott kaffi!
Engin Karítas var í brekkunni í Mosó og Tommi ákvað að hún hefði sofið yfir sig, ég giskaði á að skólarnir væru bara búnir, en Karítas er yfirmaður í grunnskóla í 112 Rvík. Tommi sagði að dóttir hennar væri algjör eftirmynd hennar, hann hefði haldið einu sinni þegar hann kom á stoppistöðina í Háholti að Karítas væri þar á hnjánum ... en sá svo að þetta var barnið hennar.
Mikil hátíð ásatrúarmanna verður á morgun, enda sólstöður, og hef ég rökstuddan grun um að mannfórnir verði færðar, að vænum höfðingja verði slátrað eða eitthvað ... ef marka má það sem Tommi hefur gefið í skyn.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Ferðalög, Lífstíll, Tónlist, Trúmál og siðferði, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 212
- Sl. viku: 641
- Frá upphafi: 1505932
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 516
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Ég get svarið það, ekki þurr þráður á mér eftir lesturinn. Grét svo svakalega vegna allra laganna sem þú taldir upp. Rás 2 er greinilega hættuleg og getur komið konu í vandræði.
Hver er á myndinni?
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.6.2007 kl. 09:36
Aha, maður getur sko lent í alvarlegum vandræðum undir áhrifum svona tónlistar ... argggg. Þetta dúllulega fólk sér um morgunþátt Rásar 2, Hrafnhildur og Gestur Einar ... þau eru mjög skemmtileg!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 20.6.2007 kl. 09:57
Ég spyr bara - Gurrí - hvar væri ég ef ég hefði ekki bloggið þitt til að lesa og koma mér svona nokkurnveginn heilbrigðri á geði - í gegnum daginn!
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 20.6.2007 kl. 10:08
Þú ert alltaf skemmtileg maður fer í gott skap þegar að ég les bloggið þitt.
Kristín Katla Árnadóttir, 20.6.2007 kl. 10:30
Gurrí mig vantar meilið þitt, þarf að forwarda á þig svolitlu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.6.2007 kl. 13:26
Hæhæ, vildi bara kvitta fyrir innlitið og láta þig vita að myndir og ferðasaga er komið inn á síðu frændanna
Kveðjur,
H. og co.
Heiðdís frænka (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 13:50
Eyvi var það örugglega heillin, lagið á plötunni hans og STebba frá því fyrir sl. jól, ef ég man rétt!
'ojá, rómantík milli manns og Motorrútu verður seint fullgrátin hahahah!
Magnús Geir Guðmundsson, 20.6.2007 kl. 14:18
Meil himnaríkis er gurri@mi.is, ef það er stórt keðjubréf með krúttlegum myndum (sem ég trúi aldrei að þú myndir gera mér) þá er ég með stærra pósthólf í vinnunni gurri@birtingur.is kannski bara betra að fá póst þangað!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 20.6.2007 kl. 15:09
En ég skil bara ekki af hverju þú skellir þér bara ekki á hann Tomma. Ég meina, þú þekkir greinilega fjölskyldu hans þannig að þú þarft ekki að óttast að mægjast neinum vitleysingum (eða hvað?). Ég vil fá að vita af hverju þú streitist á móti og góð rök.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 20.6.2007 kl. 16:16
Ég er komin með eitthvað í augað sjálf, hvurslags er þetta eiginlega, ég er ruggandi hérna fram og tilbaka sjálf... Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt, vinan, hlakka til þess að koma heim, við verðum að mæla okkur mót á kaffihúsi eða eitthvað...
Bertha Sigmundsdóttir, 20.6.2007 kl. 16:38
Skella mér bara á hann Tomma ... þekki fjölskyldu hans ... well, elskan hún Magga (mágkona) er bloggvinur (með IP-tölu) og ég hef aldrei séð hana. Held að við Tommi séum bæði of ung til að binda okkur, ég segi það satt! Lífið er rétt að hefjast og hvað heldur þú að hann nenni að þvo af mér sokkana þegar hann getur verið í golfi eða mannfórnum!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 20.6.2007 kl. 17:01
Sokkazvottur er eftirsóknarverdur í tilhugalífinu! Zad er ordid eftirsóknarvert ad komast í straetó med zér kossar út um allt, í straetó!
www.zordis.com, 20.6.2007 kl. 19:17
Elskan mín, ég held þú hafir hitt naglann á höfuðið rétt eina ferðina enn; þið eruð alltof ung til að binda ykkur. Takk fyrir skeifulosandi bloggfærslu sem endranær !
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.6.2007 kl. 20:40
Gudmundur! Ertu búinn ad fara í brúsebadid eins og ég .... Hreynar meyjar og sveinar! Best ad vara sig eins og Gudmundur!
www.zordis.com, 20.6.2007 kl. 22:43
Einhver snilldar náungi (Kristinn Pálsson heitir hann) sem er með tónlistarþátt á rás 2 á sunnudagskvöldum rústaði næstum fyrir mér Baby I'm gonna leave you með því að flytja það í upprunalegri gerð The Plebs. Hérna er þátturinn ennþá: http://dagskra.ruv.is/ras2/?file=3591 og þetta var reyndar alveg í anda Rásar 2, ekkert nema snilldar músík og mikil rómantík, nema í þessari útgáfu af laginu reyndar.
Þetta var einmitt eitt af lögunum (,rétta" útgáfan með Zeppelin) sem ég setti á disk handa konu sem við þekkjum báðar, hin voru m.a. There must be 50 ways to leave your lover, If you've gotta go go now, Goodbye my love, hún skildi hintið!
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 20.6.2007 kl. 23:03
Hef aldrei séð fólk vanga í strætó. Hefði viljað vera þarna
Jóna Á. Gísladóttir, 20.6.2007 kl. 23:56
Getið þið Tommi ekki bara gert einfaldan díl. Ef þið eruð ekki gengin út og dáin úr hamingju með einhverjum öðrum þegar þið eruð seventy something að þá vilji hann kannski þvo sokkana þína og þú að klóra honum bak við eyra eins og ketti? Hann verður hættur að keyra þig í vinnuna enda þú hætt að vinna og svo getið þið setið á svölunum og þú sagt honum frá öllum leynigröfu og kafbáta elskhugunum sem voru í lífi þínu þegar þú varst enn of ung til að bindast?
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.6.2007 kl. 07:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.