Stórborgarstemmning í dag

AkranesEftir sjúkraþjálfunina í hádeginu fór ég í apótekið og keypti laxerolíu. Það kom „ahh, þessi með harðlífi“-svipur á afgreiðslukonuna þannig að ég flýtti mér að segja henni frá dásemdum laxerolíunnar í sambandi við vöðvabólgu, bæði setja hana í baðvatnið og líka bera hana á herðarnar eða hvar sem mann verkjar. Ekki vil ég ganga undir nafninu „Konan með harðlífið“! Það var nóg að vera kölluð „Mafíuforinginn“ á Króknum í gamla daga. Það var ekki vegna glæpa minna, heldur hippalegs útlits, rétt náði í rassinn á hippatímabilinu og hermdi þetta eftir stóru systur á meðan Hilda sýndi sjálfstæði og gekk í terlínbuxum sem þá voru í tísku.

Courtney LambKeypti Skessuhorn í bókabúðinni og tók strætó heim, það kostar bara 100 kall og maður verður ekki fyrir bíl á meðan. Ég gat alveg eins verið í New York að lesa New York Times, mér leið þannig. Svo fékk ég far heim að dyrum himnaríkis „til að þú sólbrennir ekki,“ sagði góði bílstjórinn. Fjöldinn í strætó eykst stöðugt. Ég hringlaði oft ein í litla vagninum í fyrra, nú vorum við t.d. fimm í og erum oft fleiri. Mikið vona ég að strætóinn fari að ganga um helgar, er viss um að einhverjir myndu þigga að skreppa með strætó úr Grundahverfinu niður í Skrúðgarð í kaffisopa. Svo væri hægt að labba heim ... eða alla vega hálfa leið.  

Ef ég fann mun á mér síðast eftir sjúkraþjálfunina þá er hann enn meiri núna. Beta píndi mig og kvaldi eftir að hafa svæft mig í hitasængum og –teppum í smástund. Ég haltra t.d. ekki lengur út úr strætó, heldur hoppa og skoppa, eins og sætu lömbin. Aldeilis sjón að sjá!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

ég verð bara að segja þér sögu í tilefni af þessari færslu; seinast þegar ég fór í apótek í Reykjavík þá var ég eini kúnninn í búðinni, en svo kemur fræg manneskja inn akkúrat þegar ég fór að afgreiðsluborðinu, sem ég nafngreini að sjálfsögðu ekki. Ég lenti í að standa við hliðina á henni við afgreiðsluborðið - og hún var einmitt að kaupa sér magalyf, he humm, við niðurgangi. Hún leit á mig einsog ég væri djöfllinn sjálfur fyrir að vera þarna, og meiraðsegja ég var vandræðaleg. En þetta getur nú gerst fyrir alla

halkatla, 26.6.2007 kl. 14:12

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí mín farðu nú að koma út úr skápnum með laxerolíuna.  Audda þarf maður stundum smá hjálp með magann.  Híhí.  Heilar fimm manneskjur í strætó.  Váááá

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 14:41

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta er lítill strætó, þarna kélling! Virkar margt þegar fimm manns eru inni í honum. Myndi nota eitthvað allt annað en laxerolíu fyrir mallakút!

Halkatla, þurfti manneskjan virkilega að lýsa öllu fyrir afgreiðslumanneskjunni? Arggg! Ég hefði bara beðið um eitthvað stemmandi og þóst vera að kaupa fyrir mömmu ... heheheh. Djók. Skrýtið hvað sumar vörur eru "skammarlegri" en aðrar. Þegar strákurinn minn fékk lús fyrir 25 árum hringdi ég á undan mér í apótekið og bað um að lyfið yrði sett í brúnan bréfpoka, fannst þetta skelfilega skammarlegt! Vann um tíma í apóteki og fékk ungan strák til mín sem spurði um það sem allir strákar kaupa. Ég sagði nokkrum sinnum HA? Hræðilegt, hann var bara að kaupa smokka, greyskinnið! 

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 14:49

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, já eins og litlu lömbin, en þú ert nú ekkert lamb að leika við, fröken G!

Magnús Geir Guðmundsson, 26.6.2007 kl. 15:53

5 identicon

VERÐ að fá að vita NÁKVÆMLEGA

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 16:34

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hvað viltu vita nákvæmlega, heillin mín?

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 16:38

7 identicon

Tæknivandamálin þín hafa greinilega flust í mína tölvu - Gurrí- hvað gerðirðu! - ég held samt áfram ótrauð: Sem sagt: VERÐ að vita NÁKVÆMLEGA hvernig mafíuforinginn var klæddur, get ekki beðið - náði nefnilega líka í rassinn á hippatímabilinu. Mamma, sem vann í búð, faldi sig inni á lager þegar ég mætti í búðina í afrópelsinum, götóttum og rifnum  

P.S. Sástu hvað ég er búin að setja í spilarann minn - bara fyrir þig - knús

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 16:39

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Var með ljónsmakka, gekk í Álafossúlpu, gallabuxum niðurmjóum með hekluðum dúllum á hnjánum og stundum var ég í vinnuskyrtu. Vá, hvað ég hef verið flott! Hætti í landsprófi í Vörðuskóla af því að ég var svo hrædd við Erlend Jónsson kennara sem lagði mig í einelti, fannst mér, með setningum á borð við: "Guðríður, helltu úr þinni andlegu ruslatunnu og segðu okkur hvað andlag er!" Svo tók ég landsprófið á Króknum ári seinna. Við vorum við bara tveir hippar í skólanum, Óli Matt og ég. Heilsumst enn úti á götu. 

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 16:46

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, ég sá lagið og mun sko hlusta á það reglulega í bloggheimsóknum til þín.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 16:46

10 identicon

ekkert smá flott! en SKAMM á þennan kennara - svona fólk á bara að sleppa því að kenna!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 17:30

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þessi kennari virti bara þá krakka sem rifu kjaft við hann ... eitthvað sem ég var ekki alin upp við að mætti gera! Eins og ég var góð í íslensku!

Það var frábært að fara á Krókinn og fá góða kennslu, kennurunum var sko ekki sama ef við lærðum ekki heima. Mikil viðbrigði að flytja frá Akranesi, 13 ára, úr vernduðu umhverfi og í borgina þar sem allt var stærra og erfitt að fóta sig. Held að það hafi hreinlega bjargað okkur systkinunum á margan hátt að Hjalti föðurbróðir okkar var skólastjóri í Austurbæjarskóla. Hann hvatti mig m.a. að halda mig við Áslaugu, sessunaut minn, sem vinkonu og það hef ég gert síðan. Hún er frábær vinkona í blíðu sem stríðu! 

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 17:48

12 Smámynd: www.zordis.com

Eins og lamb ad vori!  Er haegt ad vera frískari!  Ég nota olívuolíu á allt og hún er í senn graedandi sem naerandi .....

www.zordis.com, 26.6.2007 kl. 18:50

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Fannst við hæfi að birta mynd af Courtney Lamb hægra megin af því að mér leið eins og lambi að vori. Ólífuolía er æði, fín í bað líka en það er eitthvað verkjastillandi og bólgueyðandi í laxerolíunni, held ég. Hún virkar alla vega!

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 19:06

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gurrí litla lipurtá

Jóna Á. Gísladóttir, 26.6.2007 kl. 21:32

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hlakka til ´skan!

Arna, vona að laxerolían virki vel á þig og þína! Ég er eiginlega alveg bit yfir þessari virkni.  

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 21:32

16 Smámynd: krossgata

Iss, piss, maður labbaði þetta í mínu ungdæmi.  Það eru vart nokkrar veglengdir þarna til að tala um, nema maður búi út við Ásfell.  En þetta var auðvitað í þá daga sem maður óð snjóinn upp að hálsi í skólann þó fellibyljir geysuðu.

krossgata, 26.6.2007 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 272
  • Sl. sólarhring: 366
  • Sl. viku: 2222
  • Frá upphafi: 1456975

Annað

  • Innlit í dag: 251
  • Innlit sl. viku: 1906
  • Gestir í dag: 244
  • IP-tölur í dag: 241

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Gardínukettir
  • Ostapítsa með sultu
  • Náttborð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband