Stinnur rass á tíu dögum - byrjuð með námskeið

Sjúkrahús AkranssÞegar háæruverðugur heimiliskötturinn Tomma hoppaði EKKI upp í baðvaskinn sekúndubrotum áður en ég ætlaði að bursta tennurnar vissi ég að þetta yrði góður dagur! Það sannaðist líka strax þegar strætó kom ... með hinn Tomma undir stýri.  Ekki bara það, heldur var engin kerling í sætinu mínu!!! Ég gat teygt úr veika fætinum og að auki spjallað við Tomma. Veit ekki af hverju óskalög sjúklinga komu til tals en Tommi sagði okkur Sigþóru, sem sat hinum megin við ganginn, frá frægri kveðju sem barst þættinum eitt árið. Þar fengu allir á Sjúkrahúsi Akraness, hjúkkur, læknar og annað starfsfólk bestu kveðjur NEMA kokkurinn og sjúkraþjálfarinn. Heheh, þarf að segja Betu þetta þegar ég leggst næst á pyntingabekkinn hjá henni.

Hver þarf tækjasal ...Svakalegur munur er á mér eftir þessi tvö skipti hjá henni. Þar sem enginn klípur mig í rassinn reglulega (sorglega lítil kynferðisleg áreitni á þessum vinnustað og í strætó) þá geri ég það bara sjálf ... en ég uppgötvaði í gærkvöldi að ég er komin með þessa líka fínu rassvöðva og er með stinnan rass eins og súpermódel. Bara eftir tæplega tveggja vikna labb upp brekkuandskotann, frá Vesturlandsvegi og upp í Lyngháls. Ég vissi að vöðvarnir væru þarna einhvers staðar ... bara í afslöppun og með aðstoð Betu tókst mér að fara að labba og stinna mig alla upp. Svo borða ég ekki brauð eða sykur eða neitt slíkt þessa dagana ... orðin hundleið á bjúg til 15 ára eftir óverdós af pensilíni ... Held að ég þurfi bráðlega að fara að kaupa mér slæðu og sólgleraugu til að fá frið fyrir æstum mönnum. Það hefur oft komið sér vel að vera með sokkið andlit af bjúg til að fá frið, t.d. ef ég labba framhjá þar sem árshátíð lögreglumanna fer fram eða haustfagnaður hrossatemjara eða jafnvel bingó í Vinabæ.

Eitt nýtt fyrir íslenskunörda: Nú skrifum við Óskarsverðlaun með stóru Ó-i og líka heiti stjörnumerkjanna. Snilldarprófarkalesararnir mínir láta mig alltaf vita af breytingum vegna sjúklegs áhuga míns á stafsetningu. Geri vissulega stundum villur á blogginu og þarf að fjötra mig fasta einhvers staðar til að leiðrétta ekki ... en eins og Anna vinkona http://annabjo.blog.is/blog/annabjo/entry/250035 segir á síðu sinni að bloggið sé ritað talmál ... ég er svo sammála því, held að ég myndi ekki nenna að blogga ef ég velti hverju orði fyrir mér! Engist samt stundum yfir skorti á kommu eða smáorði eða setningaskipan osfrv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hehehhe, var nú að djóka með áreitnina ... yrði ekki mjög hress ef einhver karl færi að káfa á mér ... myndi koma honum beinustu leið á slysó. Það má samt alveg flauta ...

Guðríður Haraldsdóttir, 29.6.2007 kl. 11:22

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

núúúú.. varstu barrrra að djóka?  Sammála þessu með ritað talmál. Maður myndi aldrei senda texta eins og þá sem maður birtir á blogginu, frá sér ef ætti að birta hann á prenti. Skrýtið en svona er það nú bara.

Jóna Á. Gísladóttir, 29.6.2007 kl. 11:29

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er þetta sem er svo skemmtilegt við bloggið, að geta slett og slarfað án þess að fremja harakiri úr skömm.  Er svo sammála Önnu.  En maðurinn hérna með grátkarlinn er að dissa þig elskan á sinni síðu, hann er ástfanginn af þér upp fyrir haus og vantar athygli frá þér.

Smjúts

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2007 kl. 12:05

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hmmm, ég er að reyna að láta mér líka illa við svampdrusluna en það gengur ekki vel. Bara einn grátkall fékk mig til að flissa í morgun ... og líka þegar hann laug að alþjóð (hann er sko með þeim efstu á vinsældalistanum) að ég væri alltaf að reyna að gera hann að bloggvini mínum og hann vildi ekki samþykkja mig. Fannst þetta drepfyndið (af því að þetta er svo ósvífið) en get ekki ímyndað mér að nokkur trúi mér þótt ég hafi reynt að skammast í svampinum fyrir að plata svona. Fnussss!

Guðríður Haraldsdóttir, 29.6.2007 kl. 12:22

5 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

heh, ég breyti miskunnarlaust, allavega sjái ég innsláttarvillu hjá mér. Þoooli það ekki.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 29.6.2007 kl. 14:41

6 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Það er ekki amarlegt að vera með svona stinnan rass, Gurrí mín, hvaða karlmaður er bara heppinn að fá að klípa í hann... Það er alveg með ólíkindum að þú sért einhleyp, hvað er að þessum köllum, sjá þeir ekki frábæra konu þegar þeir komast í kynni við þig?????? Ein hneyksluð í Kaliforníu

Bertha Sigmundsdóttir, 30.6.2007 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 185
  • Sl. sólarhring: 276
  • Sl. viku: 1727
  • Frá upphafi: 1460660

Annað

  • Innlit í dag: 171
  • Innlit sl. viku: 1395
  • Gestir í dag: 167
  • IP-tölur í dag: 167

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband