Leyndarmál síðustu viku opinberað!

Hver man ekki eftir sögunniÉg fyrirleit mágkonu mína“? úr lífreynslusögudálki Vikunnar? Ein vinkona mín sagði mér þá sögu og ég breytti bara nöfnunum. Þessi vinkona mín mátti horfa upp á tilvonandi mágkonu sína kyssa ókunnan mann sama kvöldið og hún var kynnt fyrst fyrir tengdafjölskyldunni. Endirinn kemur reyndar skemmtilega á óvart ... Einn ávöxturinn út úr því sem gerðist í sögunni í raunveruleikanum er þekktur, rithöfundur og allt! Þori ekki að segja meira ...

Það kemur oft fyrir að ég þarf að verja lífsreynslusögurnar og sannfæra fólk um sannleiksgildi þeirra. Margir halda nefnilega að þetta séu þýddar eða frumsamdar sögur úr dönsku eða norsku blöðunum.Ég gerði lítið annað á meðan. Hver nennir að lesa sögur um t.d. Norðmenn?

shakespearePA_449x600Well, jæja, get loksins opinberað það sem ég var að gera í síðustu viku og var svona mikið leyndó.

Ég varð meira að segja að senda Jennýju okkar allra tölvupóst um málið til að hún dæi ekki úr forvitni.

Frá og með deginum í dag (eða á morgun eða hinn) má ég kalla mig rithöfund, skáld eða jafnvel hirðskáld. Sjúr, alla vega tók ég saman 50 "gamlar" og vel valdar lífsreynslusögur úr Vikunni sem nú koma út í kilju upp á 250 síður. Elskan hún Steingerður almáttugur skrifaði 18 þeirra á sínum tíma og ég hinar. Mágkonusagan er auðvitað með í bókinni.

 Ég vona innilega að þetta slái í gegn svo að ég verði frægur rithöfundur/skáld/hirðskáld þá þori ég kannski að fara að skrifa í alvörunni og senda frá mér bók sem Amy Engilberts spákona sagði tvisvar með löngu millibili að ég myndi skrifa. Kannski átti hún bara við Nafnabók Vikunnar (2005) í fyrra skiptið og Lífsreynslusögubók Vikunnar í það seinna.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Bravó!

Komin í Ritsmiðaklúbbinn til mín líka til viðbótar Kaffibandalaginu haha!

En innilega til lukku með bókina!

Magnús Geir Guðmundsson, 2.7.2007 kl. 15:24

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takkkkk, ég var að fá hana í hendurnar og hún er æðisleg! Heitir 50 sannar, íslenskar lífsreynslusögur. Jón Óskar og Elín framkvæmdastjóri báðu mig um að árita eintökin sín. Ég roðnaði, slíkur var heiðurinn!

Guðríður Haraldsdóttir, 2.7.2007 kl. 15:31

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sigga Kling spáði mér því sama.  Þe hvorki meira né minna en frægð vegna bóka minna.  Bíð spennt.  Á meðan, til hamó með bók.  Geturrueggisentkvikindiðípóstkröfu ha?

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2007 kl. 16:03

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er eflaust allt hægt, mín kæra! Senda bara heimilisfang og´svona í vinnupóstinn, gurri@birtingur.is. Ef þú átt lífsreynslusögu láttu hana fljóta með ... við breytum bara nöfnum og sona.  

Er farin að kvíða því að fara heim og hafa kannski enga tölvu. Verð að gá hvort hann nágranni minn sé heima eða bara grípa einhvern nördalegan ungling, þeir eru mestu snillingarnir. (Nördanafnbótin er hrós hjá mér, merkir gáfur)

Guðríður Haraldsdóttir, 2.7.2007 kl. 16:19

5 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Hjartanlegar hamingjuóskir til þín, elsku Gurrí mín. Hvenær mun bókin koma út? Mig langar sko til þess að fá eitt stykki eintak, það er gaman að sjá að lífið leikur við þig, þú átt það svo sannarlega skilið, þú ert góður penni, og frábær kona.

Ég kem heim í næstu viku, sendu mér endilega símanúmerið þitt á emailið mitt, svo að við getum kannski mælt okkur mót, ég verð í Rvk þann 10, 11, 16, og 17. Vonandi getum við fengið okkur einn kaffibolla eða eitthvað svoleiðis... Til lukku með þetta aftur, elskan, frábærar fréttir

Bertha Sigmundsdóttir, 2.7.2007 kl. 16:57

6 identicon

Nú fatta ég hvaða eiginhandaáritun ég var að biðja um.  Þarna sérðu, þú hefðir ekki einu sinni þurft nema hugmynd að bók, þá hefði ég umsvifalaust beðið um átógraf!!  Til svo mikillar lukku með bókina! VEIT hvað hún er frábær án þess að hafa lesið svo mikið sem staf. Knúsaðu svo Tomma frá henni Týramísú

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 2.7.2007 kl. 17:18

7 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Óska þér innilega til hamingju, Gurrí mín! Þetta er bara upphafið. Ég bíð svo eftir sannfræðilegri æviskáldsögu þinni -- þar áttu eftir að fara í loftköstum og skrifa bók sem veldur hlátrasköllum!

Ha det bra!

Siggi Hreiðar

Sigurður Hreiðar, 2.7.2007 kl. 20:13

8 identicon

Til hamingju. Ef sögurnar (eða skáldsagan) sem þú frumsemur verður jafn skemmtileg og bloggin þú stefnir þú í metsölubók.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.7.2007 kl. 21:29

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Til hamingju mín kæra. Þetta hlýtur að vera aldeilis frábær tilfinning (ég græn af öfund). Verður ekki útgáfupartí. Útgáfu-bloggvinapartí kannski.  

Jóna Á. Gísladóttir, 2.7.2007 kl. 21:48

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Einu sinni fyrir ca átta árum var ég beðin um leyfi að vikan fengi að birta lífsreynslusögu frá mér, fram að því hafði ég litið á þetta sem skáldskap en breytti um skoðun eftir þetta, sagan mín hét jólastress, kannski verður hún í bókinni??

Huld S. Ringsted, 2.7.2007 kl. 22:13

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jólastress er reyndar ekki í þessarri bók, Huld, en hver veit hvað finnst þegar leitað verður betur. Ég fann flestar sögurnar inni í tölvunni minni og Steingerður á alveg 36% af bókinni. Þetta hefur verið eitt vinsælasta efnið í Vikunni árum saman og því þótti góð hugmynd að gefa þetta út í einni bók. Ef viðtökur verða góðar kemur út önnur seinna, það finnst mér alla vega líklegt. 

Guðríður Haraldsdóttir, 2.7.2007 kl. 22:20

12 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Vá, mín bara orðin RITHÖFUNDUR!! Til hamingju!

Vilborg Valgarðsdóttir, 2.7.2007 kl. 22:20

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Elsku Siggi minn Hreiðar, ekki vissi ég af þér í bloggheimum! Ég á sko eftir að heimsækja þig oft! ... og Jóna, það er alveg spurning um að halda bloggvinaútgáfuteiti við tækifæri, kannski 12. ágúst, smella saman tveimur stórviðburðum, 49 ára afmæli og bók! 

Guðríður Haraldsdóttir, 2.7.2007 kl. 22:22

14 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hæ Gurrí! Mikið rosalega óska ég þér til hamingju með útkomuna (og þagmælskuna). Og að fiska Sigurð Hreiðar á síðuna þína er auðvitað bara eðlileg afleiðing ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 2.7.2007 kl. 22:39

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju!!!!

og líka með Sigga Hreiðar......?

Hrönn Sigurðardóttir, 2.7.2007 kl. 22:58

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk !

Steig mín fyrstu spor í blaðamennskunni einmitt hjá Sigga Hreiðari. Ég vann á skrifstofunni hjá DV og Siggi ritstýrði Vikunni. Hann hafði trú á stelpunni! Ég fékk að skrifa nokkrar greinar og þýða draumaráðningargrein sem gerði þetta enn meira spennandi. Það var ekki fyrr en tíu árum seinna sem mér tókst að koma mér í skóla og læra þetta og komst þá í draumadjobbið. Takk, elsku Siggi minn. Þetta var að rifjast upp fyrir mér. Skemmtileg tilviljun að Vikan sé vinnustaðurinn núna! 

Guðríður Haraldsdóttir, 2.7.2007 kl. 23:13

17 Smámynd: Þröstur Unnar

Þetta er nátturulega hrein snilld, að fara hringinn og grafa upp lífssögur.

Var það Svampurinn sem kom í heimsókn, að fá þig til að hætta að blogga?

Hvaða skóla fórstu í til að læra að ritmennsku?

Þröstur Unnar, 2.7.2007 kl. 23:22

18 Smámynd: Þröstur Unnar

Þessi færsla átti nefnilega ekki að fara hér, heldur næstu á eftir.

Þröstur Unnar, 2.7.2007 kl. 23:25

19 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Svampurinn, bloggóvinur minn? Onei, hann Gary söngvari með Rick Wakeman var grafinn upp til að fá mig að hætta að blogga um ástina í lífi mínu, Röddina. 

Ég fór í hagnýta fjölmiðlun í Háskóla Íslands. Mjög, mjög skemmtilegt ár!  

Guðríður Haraldsdóttir, 2.7.2007 kl. 23:41

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Alltaf svo gott að eiga þannig menn að. Þyrfti að vera einn á hverjum vinnustað!

Hrönn Sigurðardóttir, 3.7.2007 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 35
  • Sl. sólarhring: 272
  • Sl. viku: 1577
  • Frá upphafi: 1460510

Annað

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 1258
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband