22.8.2007 | 08:45
Spjall í morgunsárið
Það var ansi hreint kúl að koma hér í hlað í morgun á stórum og voldugum trukki. Verst að engin vitni voru að því. Fyrir utan það að spæla prófarkalesarana með því að vera fyrst í hús var náttúrlega mjög þægilegt að þurfa ekki að ganga másandi upp súkkulaðibrekkuna.
Forsaga: Í Mosó horfði ég hugsandi á eftir Prentmets-stráknum sem stefndi gangandi á Prentmets-trukkinn og sagði við Tomma: "Það hefði nú verið sniðugt að sníkja far með honum, hann vinnur í húsinu við hliðina á mér en ég er líklega búin að missa af honum." Tommi átti ekki orð. Hann fleygði mér út úr strætó, ég hljóp á eftir manninum og sagði afsakandi að Tommi hefði skipað mér að reyna að fá far hjá honum. Maðurinn þorði ekki að neita fyrst ég nefndi Tomma, hver hefur ekki heyrt um mannfórnir hjá ásatrúarmönnum ...
Reyndi að vera ekki óþolandi kjaftagleið á leiðinni í flotta trukknum, sumir hata kjaftæði á morgnana, en ég vildi heldur ekki sitja steinþegjandi eins og einhver fýlupúki. Við vorum því frekar þögul en dægurmálin bar þó aðeins á góma. s.s. hlýnun loftslags í heiminum, fiskeldi í Téténíu, hvernig best er að þrífa kattasandskassa, barnauppeldi, kjúklingauppskriftir, helvítis klásusinn í læknisfræði, íslensk textagerð um ást, hver verður mögulega næsti forseta Bandaríkjanna, líka hver verður næsti forseta Íslands, áhrif orðsins femínistar á suma karlmenn, áhrif kaffis á heilann og mögulegur máttur þess gegn elliglöpum og gleymsku, ég sagði honum styttri gerð harmsögu ævi minnar og fékk lengri gerð harmsögu hans (hann er miklu yngri), nýjusta svæfingartæknin hjá tannlæknum, áhrif stjórnmálamanna á tískuvitund ungra manna í Sjálfstæðisflokknum á árunum 1950-1953 og sitthvað fleira ... eða hefðum gert ef við þekktumst eitthvað.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 55
- Sl. viku: 634
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 512
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Maður þyrfti semsagt frí í vinnunni, eða jafnvel vetrarfrí til að lenda á alvöru spjalli við þig.
Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 08:59
Hmmm, ég gæti hafa fært ogggu pínu ponsu í stílinn ... en já, þú þarft minnst ársfrí frá vinnu.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 09:01
Ertu að "play hard to get" við Tomma. Ég skil vel að hann hafi hent þér út úr strætó..... Og nú ertu kannski búin að koma trukkabílstjóranum í lífshættu. Hvar er ábyrgðartilfinning þín kona? En kannski dugar þetta til að vekja Tomma til lífsins - kannski erum við að fara að upplifa hið íslenska Bold.... Ég vil heyra Tomma hlið á málinu..
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 22.8.2007 kl. 09:32
Rétt hjá þér að vera ekki að kæfa manninn með spjalli svona seint á morgnanna. En tískuvitund ungra manna í Sjálfstæðisflokknum á árunum 1950-1953 er mál málanna þessa dagana og verður að ræða.
Smjúts
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 09:45
Þótt ég dái og dýrki Tomma þarf ég ekki að giftast honum, hver segir að maður eigi að vera vondur við vini sína. Ég hef líka mikinn áhuga á tengdadóttur minni og stefni að því að stela henni af syni mínum Sinfjötla sem þó er ekki blóðskyldur mér. Síðar mun ég sölsa undir mig fyrirtæki hennar og þá getur hugsast að við Tommi giftumst ef Sigþóra hefur ekki sölsað hann undir sig í millitíðinni!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 09:51
Er hann á lausu? hver er aldurinn?? skoða málið vel.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 11:01
Þetta er barn, Ásdís mín, á svipuðum aldri og erfðaprinsinn. Þótt Brooke í boldinu sé fyrirmynd mín í lífinu þá er ég ekki í tengdasonunum ... kannski af því að ég á ekki dóttur. Tommi er á réttum aldri, á lausu, sætur og skemmtilegur, það er ekki málið, við erum bara bæði talsvert of ung til að binda okkur. Hræðumst auk þess tengdaforeldra.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 11:25
Hmmmmm...þessar kerlur fyrirmyndir þínar í Boldinu myndu ekki láta það sitja neitt fyrir sér að byrja með tengdadætrum sínum held ég.....Þú gætir þá alveg kallað með sæmd hvern morgun sem þú rennur í hlaðið á vinnunni þinni.. hæ og hó hér kemur Trukkalessan!!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 11:50
ofsalega finnst mér þú hugrökk að setjast svona inn í bíl hjá manni sem þú þekkir ekki neitt. Ekki út af því að ég haldi að hann sé sækó or anything... bara einmitt þetta... að halda uppi samræðum... eða kannski ekki.
Jóna Á. Gísladóttir, 22.8.2007 kl. 13:27
Það er nú ekki auðvelt að fara að tala við bláókunnugan mann umm
Kristín Katla Árnadóttir, 22.8.2007 kl. 13:48
Æðislegt!!!!!
Kæri bloggvinur.
Karl Tómasson, 22.8.2007 kl. 15:06
oft er auðveldara að tala við ókunnuga....
Þessi speki var í boði Hrannar
Hrönn Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 16:39
... og þið komuð hvenær til Akureyrar? En samt mjög pent að kæfa ekki manninn svona í morgunsárið og rétt tæpa svona á dægurmálum.
krossgata, 22.8.2007 kl. 17:33
ætlaði einmitt að fara að spyrja hvert Prentmet og Birtingur væru flutt
ekkert mál að spjalla við ókunnuga .... eignumst ekki vini öðruvísi.
Rebbý, 22.8.2007 kl. 19:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.