Piparsveinaklúbburinn PASS á Akranesi

PASS á AkranesiEinn úr PASSÉg komst að því í strætó á heimleiðinni að hér á Skaga er starfrækt félag piparsveina. Það heitir PASS. Veit að essin standa fyrir Single Swingers. Um tíma voru 20 swingerar í klúbbnum en helmingur þeirra sveik víst lit á tímabili og náði sér í einhverjar kjéddlíngar. Nokkrir hafa komið til baka en að sögn Tomma eru nokkrir enn fastir í hnappheldunni og þurfa ábyggilega að sofa í bílskúrnum.

Þegar við nálguðumt Skagann sagði Tommi:  „Kríurnar eru farnar.“  Þá vorum við að keyra fram hjá stað undir Akrafjalli þar sem viðgengist hefur kríuvarp um langa tíð ... Kríuvarp er einnig nálægt golfvellinum. „Einu sinni skaut ég golfkúlunni of langt. Hún fór m.a. yfir skurð sem ég fetaði mig varlega yfir til að ná henni. Heilu flugsveitirnar af kríum í árásarhug réðust á mig. Ég hljóp hraðar en Ben Johnson á sterum undan þeim og þaut í loftinu yfir skurðinn til að bjarga mér,“ sagði Tommi sem nú þarf að kveðja golfið þangað til næsta sumar. Golfskálinn sem María í Skrúðgarðinum hefur rekið í sumar hlýtur að fara að loka og þá fer maður að hitta þessa elsku oftar.      

Amber með Rick og barn frænku sinnarMikið drama var í boldinu í dag. Ridge gerir úrslitatilraun til að ná Forrester-tískuhúsinu úr höndum móður sinnar með því að hóta henni því að hann muni stofna nýtt tískuhús með Brooke (núverandi stjúpmóður sinni, oft fyrrum eiginkonu og barnsmóður). Stefanía er hörð og ætlar að selja einkaleyfið á kynþokkafullri línu Brooke, enda hatar hún konuna sem hefur í tvígang stolið frá henni eiginmanninum og gifst sonum hennar nokkuð reglulega, alla vega Ridge nokkrum sinnum. Eric hittir Stefaníu skömmu síðar og hún segir honum frá þessu nýja útspili Ridge og Brooke, hvort hann viti hvað nýja/gamla eiginkonan sé að bralla. Þegar Eric fer til Brooke er hún í vinalegum faðmlögum við Ridge og þá lauk akkúrat þættinum. Af Bridget er það helst að frétta að Nick, barnsfaðir hennar og fyrrum næstum ástmaður móður hennar (Brooke), reynir stíft að fá hana til að treysta sér aftur. Síðustu þætti hefur honum lítt orðið ágengt. Annað mikilvægt: Hvar er Amber? Við Gunna Pollý hljótum að hafa misst af einhverju rosalegu!  Stelpan er týnd. Hér á myndinni er hún með fv. manni sínum, Rick, syni Brooke og Erics. Amber heldur á barni frænku sinnar sem hún lét lengi sem væri hennar eigið barn. Fyrir löngu bloggaði ég um þá sorgarsögu. Blóðmóðir barnsins var svona hjólhýsapakk sem breyttist mjög hratt í guðdómlega veru sem allir elskuðu og syrgðu sárt þegar hún lést úr dularfullum, bráðdrepandi sjúkdómi (hún fékk betra hlutverk). Deacon, blóðfaðir barnsins elskaði Amber og reyndi mikið að ná henni frá Rick. Síðar kvæntist hann Bridget en þau skildu þegar hann barnaði tengdamóður sína, Brooke. Æ, heimurinn er svo lítill. Ég veit ekkert hvað varð um Deacon og barnið. Held þó að Amber sé ekki hjá þeim. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já hvar er Amber það er spurning  þetta er nú meyri draman

Kristín Katla Árnadóttir, 22.8.2007 kl. 19:36

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góð mynd af Tomma.....

Hrönn Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 19:37

3 Smámynd: Gunna-Polly

já segi það ég er hugsjúk af áhyggjum af þessu , hvar er stúlkukyndin er hún kanski að dansa á súlustað í kóóóópaaaavogi með Leoncie?

Gunna-Polly, 22.8.2007 kl. 19:50

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Úps, hvernig sækir maður um í PASS? Bara að spökulera

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 19:53

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheheh, Þröstur, ertu nógu HOT fyrir PASS?

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 19:58

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 20:01

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 20:02

8 Smámynd: Þröstur Unnar

kommentin telja,,,,,,,,,,,,ehaggi?

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 20:02

9 Smámynd: krossgata

Swingers.... mér skildist alltaf að það væri notað um makaskipti *klórar-sér-í-höbbðinu-kall*.  Voða er maður eitthvað lítið inn í þessum málum.  Hvað hefur þetta kríuvarp viðgengist þarna lengi og ætlar enginn að taka á þessu?  *vandlætingarfullur-kall*

krossgata, 22.8.2007 kl. 20:07

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hélt það sama, Krossgata ... Þetta kríuvarp hefur örugglega viðgengist þarna um aldir alda, krírunar eru svo heimaríkar. Enginn þorir að gera nokkuð í málinu, ekki einu sinni hugrakka víkingasveitin okkar á Skaganum, hvað þá herdeildin Hörkutól.

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 20:16

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvað stendur PA fyrir?  Uni mér ekki hvíldar fyrr en það er komið á hreint.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 21:12

12 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Þröstur!

Þú ert efni í formann í PASS!

Hálfnað verk þá hafið er!?

Ásgeir Rúnar Helgason, 22.8.2007 kl. 21:12

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Pöblik assosíeisjón kannski?

Þröst sem formann! Styð það! Svo lauma ég mér á fundina og tæti soldið í körlunum, múahahahhaha! 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 21:21

14 Smámynd: Þröstur Unnar

Gúlp......Gurrí þú ert agaleg. Vil frekar vera áhangandi meðlimur.

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 21:26

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Úps, sorrí ... auðvitað! Góða skemmtun á fundunum. Hvernig ætli þeir fari fram? Heilsteikt naut á teini etið, talað illa um konur, bróderað, talað vel um konur, kakó drukkið, fundi slitið. 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 21:36

16 Smámynd: Karl Tómasson

Óttalegt bull er þetta alltaf í þér Gurri.

Ég var einu sinni í hljómsveit sem hét Pass og hún spilaði einu sinni á Akranesi.

Þú ert nú ljóti penninn.

Karl Tómasson, 22.8.2007 kl. 21:39

17 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heyrðu þarna Kalli Tomm, ertu að safna bloggóvinum núna? Hahahahah! Hann Tommi sagði mér þetta og hann lýgur aldrei! Ekki eyðileggja gleði mína yfir nýuppgötvuðum piparsveinaklúbbi, fullum að hot gæjum!!! Það var kannski til hljómsveit með þessu nafni en það er sko líka til piparsveinaklúbbur! 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 21:41

18 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

ég fór nokkrum sinnum á böll með hljómsveit sem hét pass í gamla daga...örugglega annað band..

Brynja Hjaltadóttir, 22.8.2007 kl. 22:01

19 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það var örugglega ÆÐISLEG hljómsveit, hét ekki sætasti gæinn Kalli?

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 22:03

20 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ertu ekki búin að kíkja inn í nútímann á Boldinu og sjá hvernig staðan er?? á hvaða tíma nærðu að horfa á þættina, mér finnst þú alltaf annaðhvort vera að vinna eða í strætó.  Hér á Selfossi er hópur manna svona um og yfir þrítugt og hafa doldið verið í lambakjötinu ég kalla þá nú bara perrana.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 22:22

21 Smámynd: Karl Tómasson

Brynja, þessi hljómsveit stal líka nafninu okkar. Rétt eins og Gurri, næst flottasti bloggari landsins, eins og staðan er í dag.

Óttalegt bull er þetta alltaf í þér í þessum bloggheimum..

Karl Tómasson, 22.8.2007 kl. 22:28

22 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Swingers eru hjón sem skiptast á mökum til að eiga kynmök. Piparsveinafélagið á Skaganum er doldið skrítið finnst mér..en maður veit aldrei hvað getur gerst á svona afskekktum stöðum þar sem flestir kynnast í strætó..ha?'

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 22:28

23 Smámynd: Þröstur Unnar

Tommi, af hverju spilaði hljómsveitin þín ekki aftur á Akranesi ?

Ásdís, um þrítugt ertu lambakjöt og nú eru allir perrar.

Katrín, það gerist nebblega ýmislegt í smábæjunum veit ég, þó ég hafi nú sjaldan séð strætó öðruvísi en með börn og gamalmenni innbyrðis.

Gurrí mín eina, krúsídúlluþrumufleygs þakkir fyrir að halda mér á blogginu. Finnst þér ekki allt í lagi þó að ég noti bloggið þitt til að rífast í þínum bloggvinum?

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 22:40

24 Smámynd: Þröstur Unnar

Æi þú heitir víst Kalli Tomm en ekki Tommi Kall, sorrí kúturinn.

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 22:43

25 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Allir að vera góðir við Kalla! Þú líka, Þröstur!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 22:48

26 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðríður Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 23:00

27 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Bold and the beautiful... endalaus flækja í allar áttir... mikið óskaplega hlýtur höfundur handrits þessa þátta að vera sorglegur :(

Rannveig Lena Gísladóttir, 22.8.2007 kl. 23:23

28 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég ætlaði einmitt að segja það sama og Dúa. Hvernig er hægt að vera Swinger og vera einhleypur. Það kalla ég nú að komast í klúbb á fölskum forsendum.

Þröstur ég tók líka upp á því allt í einu að kalla Kalla, Tomma. Veit ekki afhverju. Vá hvað þetta var skrýtin setning.

Jóna Á. Gísladóttir, 22.8.2007 kl. 23:27

29 Smámynd: Karl Tómasson

Þetta eru allt tómir bjálfar á þessu Mogga bloggi, ég er hættur og ætla að snúa mér eitthvað allt annað.

Karl Tómasson, 22.8.2007 kl. 23:36

30 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já og skelltu á eftir þér dýrðargúkkulaðikallinn minn, Kalli Tomm.

Bang.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 23:49

31 Smámynd: Svava S. Steinars

OMG !  Hvernig er hægt að horfa á Boldið ??? Heilinn á mér fer í hnút við lýsingar þínar.  Yikes !

Svava S. Steinars, 22.8.2007 kl. 23:54

32 Smámynd: Svava S. Steinars

Það styttist í að hægt sé að bjóða í heimsókn í íbúðina, með kaffi og kökum ! I'll keep you posted

Svava S. Steinars, 23.8.2007 kl. 00:09

33 identicon

boldið er orðið svolítið meiri flækja heldur en t.d. nágrannar sem ég hef verið að horfa á stríðum straumum undanfarnar vikurnar... ætli það sé hægt með boldið líka ??  en gaman að sjá jack wagner í þessum blessuðu þáttum og miða hann við melrose place sem var og hét

Hulda (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 01:02

34 Smámynd: Jens Guð

  Við þurfum að átta okkur á því að á Skaganum er eitthvað sóðalegra í gangi en í Reykjavík.  Eitthvað sem þarf virkilega að passa sig á. 

Jens Guð, 23.8.2007 kl. 01:56

36 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

OMG, OMG ... ÞETTA ER Af síðunni sem Nanna fann: Meet Adult FriendFinder members near Reykjavík — Over 20 Million Members

NANNA!!! Hvers konar Sódómu-Gómorru hef ég lent í hér á Skaganum?  ... og ég sem hélt að  þetta væri sætur, lítill piparsveinaklúbbur! Ekki skrýtið þótt mikið sé byggt hér á Skaganum, or shall we call it Near Reykjavík.

Guðríður Haraldsdóttir, 23.8.2007 kl. 09:31

37 identicon

Hahaha, ég veit ekki hvað ég á að segja sko.

Ég þarf að fara að horfa á sköllótta og fallega en ég veit bara ekki á hvaða dögum þeir eru sýndir..

Guðrún B. (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 09:58

38 Smámynd: Rebbý

Heyrðu Gurrí - ég verð að fara að flytja út fyrir borgarmörkin ... singlesklúbbur á Skaganum (ekki varð ég vör við þá þegar ég kom að djamma þarna síðast) sem reyndar er eitthvað dúbíus og eins á Selfossi
Hvað er ég að rembast í Reykjavíkinni ...

Rebbý, 23.8.2007 kl. 10:01

39 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

hehehehehehehehehe

Guðríður Haraldsdóttir, 23.8.2007 kl. 10:13

40 identicon

alltaf gaman að lesa bloggið þitt mín kæra ...dísus hvað ég er búnað vera að missa af í bóld ... þarf greinilega að lesa meira hjá þér og catch up

knús

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 12:46

41 Smámynd: Ingibjörg R Þengilsdóttir

Rosaleg skrif - ég dáist að því hvað ykkur getur dottið í hug (í alvöru) haldið bara áfram það er svo gaman að lesa þetta- og svo fer ég skellihlæjandi aftur að vinna.

Keypti annars ágæta bók um daginn sem heitir "Lífsreynslusögur" úr Vikunni skrifaðar af þér Gurrí - ég er hálfnuð að lesa hana og þykir hún nokkuð merkileg- margar sögur vel sagðar og vel skrifaðar.  Og ég vissi ekki að þessar sögur væru úr raunveruleikanum þannig að hann getur greinilega verið dálítið bitur á köflum.

En Boldið slær þetta allt út að mér þykir á neikvæðan máta- mér þykja sögurnar úr Vikunni skemmtilegri- þær nefnilega taka sig til og klárast.

Með kveðju og takk fyrir góða bók

Ingibjörg Þ 

Ingibjörg R Þengilsdóttir, 23.8.2007 kl. 13:06

42 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

vá yfir 20 milljónir meðlima....

...vissi ekki að það byggju svona margir uppá Skaga.....

Hrönn Sigurðardóttir, 23.8.2007 kl. 15:32

43 Smámynd: Ólöf Anna

hvar ættli fundirnir þeirra séu haldnir. Ég meina hvar kemuru 20miljon gröðum piparsveinum fyrir near reykjavík.

bara smá pæling

Ólöf Anna , 23.8.2007 kl. 18:58

44 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það komast alla vega 70 fyrir í himnaríki. Hér er stórt íþróttahús, eiginlega tvö. Ekkert mál!

Guðríður Haraldsdóttir, 23.8.2007 kl. 19:50

45 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Viltu kíkja á mitt blogg og hjálpa til (aftur) ?? Please!!

Heiða B. Heiðars, 23.8.2007 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 602
  • Sl. viku: 2451
  • Frá upphafi: 1457320

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2037
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Elsku Tommi
  • Elsku Tommi
  • Mamma hjúkka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband