Nýr heimilisvinur kominn til að vera

VinirJónatan kíkti aftur í heimsókn á svalirnar og er hér með orðinn heimilisvinur hér. Ætli hann borði brauð? Líklega bara hvað sem er. Hann verður pottþétt í fæði hér í vetur. Mér finnst svo fyndið hvað hann hefur gaman af því að stríða kisunum. Um leið og hann sér hreyfingu hjá mér þá flýgur hann á brott, enda hefur hann enga ástæðu til að treysta mannfólkinu. Mávar hafa aldrei pirrað mig, kannski af því að ég hef oft þurft að verja ketti fyrir fólki sem finnst t.d. smáfuglarnir rétthærri. Þótt ég pirrist yfir skordýrakvikindum, eins og geitungum, þá er ég að verða svo þroskuð að ég sætti mig við þau ... í Reykjavík. Hér í himnaríki gera fiskiflugur sig heimakomnar og á meðan þær stinga ekki þá eru þær hjartanlega velkomnar.

Hér var sko sofið út í dag og þótt ég vaknaði um tíuleytið lék ég á sjálfa mig og sneri á hina hliðina, múahahhaha! Vaknaði svo ekki almennilega fyrr en elskan hún Steingerður hringdi. Líklega kíkir hún í heimsókn á morgun, enda orðið allt of langt síðan hún hefur komið. Sakna hennar enn sárlega af Vikunni en samgleðst henni með velgengnina hjá h-blaði.

Jæja, best að ná Tomma inn af svölunum, hann bíður lævíslega eftir hr. Jónatan en hefur ekkert í hann, fer sér bara að voða ef ég passa hann ekki. Er að hugsa um að horfa á eina DVD-mynd eða svo. Sit allt of sjaldan í leisígörl, eins og hún er þægileg.  Myndin af  vinunum var tekin áðan. Kubbur sat utan linsunnar og hugsaði sinn gang.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: krossgata

Manni hefur skilist að skordýrin séu nauðsyn í lífskeðjunni, en ég man þá tíð að fólk þreifst ágætlega á Íslandi án geitunga.  Mér finnst það eigi að útrýma þeim.

krossgata, 25.8.2007 kl. 16:57

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Er þetta ekki bara hann Jónatan Livingstone???? Ekki skrítið að sá vitringur sæki á svalirnar hjá þér Gurrí mín!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.8.2007 kl. 17:04

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

VAr einmitt með það sama í huga og frú Snæhólm, gæti allavega verið komin út af þeim fræga nafna sínum?

En ein heimskuleg spurning, hvað lesa menn í þessu H-blaði? Man nefnilega ekki eftir að hafa heyrt á það minnst!

Magnús Geir Guðmundsson, 25.8.2007 kl. 17:35

4 Smámynd: www.zordis.com

Nýjasta gæludýrið á Skaganum er Mávur og sá allra heitasti er Hr. Jónatan.    Smúts til dig ....

Undursamlegt alveg hreint!

www.zordis.com, 25.8.2007 kl. 18:07

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mér líst vel á Jónatan

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2007 kl. 18:50

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Hvar er kjellingin, heldurru að mávaskarinn hafi étið heimilisfólkið?

Þröstur Unnar, 25.8.2007 kl. 21:28

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Algjör töffari þessi Jónatan,  gaman að eignast fleiri dýr á heimilið 

Ásdís Sigurðardóttir, 25.8.2007 kl. 21:42

8 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Það er fjörugt líf á þínum svölu

Halldór Sigurðsson, 25.8.2007 kl. 22:21

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert að verða í minnihluta á heimilinu Gurrí mín, Muhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2007 kl. 23:28

10 Smámynd: Svava S. Steinars

Ættir kannski að bjóða honum grillsteik líka ?  Eitt af því sem nefnt var af almenningi sem réttlæting fyrir mávafjöldamorðunum var að þeir stælu steikum af grillum í Grafarvogi.

Svava S. Steinars, 25.8.2007 kl. 23:50

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Klárt er að köttur þessi er ofalinn af sterakreótíninuu í Whiskas & Livíngstone veit það...

Steingrímur Helgason, 26.8.2007 kl. 01:39

12 Smámynd: Hugarfluga

Hugarfluga, 26.8.2007 kl. 03:35

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, hann syngur sko. Örlítið hás er þessi elska. Ég setti fiskstykki á svalirnar í gærkvöldi og það er horfið, vona að það hafi verið hinn hugaði Jónatan sem fékk það. Nú er bara að fara að grilla ... og leyfa honum að stela ... Svona dekrar maður nú við gæludýrin sín, sem eru að 2/3 uppfull af sterakreótín ... eins og Steingrímur segir, eða kettina.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.8.2007 kl. 11:02

14 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Lífið er skemmtilegt!

Edda Agnarsdóttir, 26.8.2007 kl. 12:17

15 identicon

Gurrí mín þú veist að mávar eru rottur.....með vængi........hefði ekki trúað að þú tækir að þér solleiðis heimilisdýr......

Magga (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 44
  • Sl. sólarhring: 258
  • Sl. viku: 1269
  • Frá upphafi: 1460093

Annað

  • Innlit í dag: 40
  • Innlit sl. viku: 1008
  • Gestir í dag: 40
  • IP-tölur í dag: 39

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DollyParton
  • Jason-Statham
  • 12. ágúst sko

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband