5.9.2007 | 10:04
10 bestu og verstu bloggarar að mati Mannlífs
Alltaf gaman að koma í vinnuna þegar allt er fullt af nýútkomnum blöðum. Ég opnaði Mannlíf á síðu 28 þar sem fjallað er um bloggara, 10 bestu og 10 verstu. Átta karlar í 10 bestu og sjúkkitt, þeir eru líka í meirihluta í hinum flokknum, eða sex talsins. Ég geng út frá því að Mengella og Hnakkus séu karlar (og það ansi skemmtilegir).
Nanna Rögnvaldar komst á topp 10 (betra gengið) ... en svo er fólk þvílíkt hakkað niður í vonda topp tíu. Alveg nýt ég þess að sjá það þar sem ég komst ekki einu sinni á blað, djö ...
Stebbi okkar kemst á blað, Ellý líka, Jón Axel, Egill Helga, Jónína Ben, Sóley og Katrín Anna ... En ég er hætt, ætla ekki að taka alveg alla spennu frá lesendum Mannlífs. Svo var Bleikt og blátt að koma, vægast sagt afar kynæsandi blað, á forsíðu er viðtal við konu sem segir að hótelherbergi geri sig gra.. (RITSKOÐAÐ). Já, og Golfblaðið en þar er viðtal við Skagadrenginn Birgi Leif Hafþórsson ... ekki vissi ég að hann væri frá Akranesi, það hlaut nú samt að vera. Svo var náttúrlega Vikan að koma í hús! Hún er vissulega langflottust, eins og allir vita, aukablað með 70 uppskriftum úr Danska kúrnum, ryksuguvélmenni í krossgátuverðlaun ofl. ofl. ... Ég ritstýrði þessu blaði af því að ritstjórinn minn fór í sumarfrí ... held að það hafi bara tekist ágætlega.
Hlakka til að fara í mat í kvöld til manneskju sem er á bloggaralista Mannlífs. Það er ekki Hnakkus, ekki Mengella ...
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 695
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 595
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Og auglýsingin er í boði?????
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 10:19
Vikan er alltaf flottust.Verð að kíkja líka á Mannlíf.
María Anna P Kristjánsdóttir, 5.9.2007 kl. 10:24
Ég verð að kaupa mannlíf ég er svo forvitinn.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2007 kl. 10:48
og hvað ætlar Jónína að elda? Færðu stólpípu á eftir
Jóna Á. Gísladóttir, 5.9.2007 kl. 10:57
Var Jenný ekki á listanum?? gott myndbandið í færslunni hér á undan.
Ásdís Sigurðardóttir, 5.9.2007 kl. 11:05
Jónína, elda??? Hnuss, hún er í bestu eða verstu bloggers ...
Mér gramdist að "þurfa að "auglýsa Mannlíf þegar Vikan er sko best, en ég fylltist áhuga þegar ég sá þessa misheppnuðu grein um bloggara, þar sem engin okkar kemur við sögu, urrrrrr, að ég bjóst við að ykkur fyndist þetta spennó líka, í alvöru Jenný. Þori ekki lengur að blogga mikið um ferðir mínar, fékk sjokk um daginn þegar Dúa dró mig sundur og saman í háði fyrir það
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 11:06
mannlíf, kaupa mannlíf...
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 5.9.2007 kl. 11:36
Já hótelherbergi gera mig líka granna
Hrönn Sigurðardóttir, 5.9.2007 kl. 12:12
Hahahhaha, góð!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 12:13
Gurrí, stundum tekur maður hlutina nærri sér og jafnvel þó það sé ekki ástæða til. Ég upplifði þessa hermufærslu bara krúttlega, vegna þess að hún ýkti stílinn þinn og mér fannst það bara skemmtilegt. Þú ert skemmtilegur bloggari og það er ekkert við stílinn sem hægt er að gera lítið úr. En auðvitað getur maður tjáð sig þegar ekki er um mann sjálfan að ræða. En sem sagt þá upplifði ég þetta sem skemmtilega paródíu á þín bráðskemmtilegu skrif. Segi það og meina það. Smjúts frá mér.
Og hvað er að þessu Mannlifsliði? Meirihlutinn karlar í bestu bloggarasætunum? Skemmtilegustu bloggararnir erum við stelpurnar og það vita allir og ég er ekki að grínast.
Knús og klemm.
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 13:25
Mér finnst svona (ó)vinsældar listar vera lítið augnayndi.. þetta nefnilga getur sært suma sem lenda á óvinsældarlistanum og við eigum ekki að gera svoleiðis..
Björg F (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 13:29
Sammála henni Björgu, við erum ekki eins töff öll og við viljum vera láta. Hef ósjaldan grenjað vegna ógætilegra orða.
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 13:40
Jenný, æ, sorrí, ég notaði bara Dúu, eins og hún mig, það gerðist nefnilega ekkert á leiðinni hjá okkur Ástu og Birki. Bara hviss bang, komin í vinnuna!!! Takk samt fyrir fögur orð í minn garð.
Ég var líka hissa þegar ég sá karlameirihlutann á topp-listunum því að mér finnst þeir ekkert standa upp úr. Margir mjög skemmtilegir en líka konur. Þarna þurfum við að reyna að ná jafnrétti, stelpur!!! Náði að skammast aðeins út í einn álitsgjafann, Jakob Bjarnar ... SEM VAR AÐ BYRJA AÐ VINNA Í DAG Á MANNLÍFI SEM BLAÐAMAÐUR. Skúbb? Hver veit ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 13:58
Essskan þó það nú væri að Vikan ER BEST. Koddu með blogglistann fyrir okkur sem eru fjarri góðu gamni
Knús á þig frá Heljarþröm í Himnaríki....
www.zordis.com, 5.9.2007 kl. 14:24
Geri það fljótlega, Zordís mín. Í síðasta lagi um helgina, þó það nú væri.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 14:43
Takk, Dúa mín!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 14:55
ég er algerlega sammála Björgu og Jenný. ég er yfirleitt hlutlaus um tímarit og alveg sama en núna styð ég Vikuna
halkatla, 5.9.2007 kl. 15:14
Vá, rómverskur riddari!!! Velkominn Hörður minn! Vér höldum áfram að skrifa ... heheheheh
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 15:34
Ég gæti boðið ykkur upp á kúrs í matargerð ef þið hafið áhuga !
Mér líður best við eldavélina elskurnar og ég er sammála að stundum bloggar maður tóma þvælu. Um daginn var ég að kenna krökkum að blogga og hélt að ég hefði sett inn á dragt en guð minn góður þetta kom allt inn í belg og biðu og ég miður mín. Ekki kaupi ég Baugsmiðilinn Mannlíf og þarf ekki að óttast að mér sé hælt fyrir eitt eða neitt í þeim pappír. Ég er svo fegin að getað bloggað á moggablogginu bæði í góðu og í vondu skapi.
Guðríður þú mátt alls ekki hætta að skrifa! Vertu bara þú sjálf og þá nær bloggið tilgangi sínum. kær kveðja, Jónína Ben
Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 17:00
Ég gæti boðið ykkur upp á kúrs í matargerð ef þið hafið áhuga !
Mér líður best við eldavélina elskurnar og ég er sammála að stundum bloggar maður tóma þvælu. Um daginn var ég að kenna krökkum að blogga og hélt að ég hefði sett inn á dragt en guð minn góður þetta kom allt inn í belg og biðu og ég miður mín. Ekki kaupi ég Baugsmiðilinn Mannlíf og þarf ekki að óttast að mér sé hælt fyrir eitt eða neitt í þeim pappír. Ég er svo fegin að getað bloggað á moggablogginu bæði í góðu og í vondu skapi.
Guðríður þú mátt alls ekki hætta að skrifa! Vertu bara þú sjálf og þá nær bloggið tilgangi sínum. kær kveðja, Jónína Ben
Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 17:05
Ég gæti boðið ykkur upp á kúrs í matargerð ef þið hafið áhuga !
Mér líður best við eldavélina elskurnar og ég er sammála að stundum bloggar maður tóma þvælu. Um daginn var ég að kenna krökkum að blogga og hélt að ég hefði sett inn á dragt en guð minn góður þetta kom allt inn í belg og biðu og ég miður mín. Ekki kaupi ég Baugsmiðilinn Mannlíf og þarf ekki að óttast að mér sé hælt fyrir eitt eða neitt í þeim pappír. Ég er svo fegin að getað bloggað á moggablogginu bæði í góðu og í vondu skapi.
Guðríður þú mátt alls ekki hætta að skrifa! Vertu bara þú sjálf og þá nær bloggið tilgangi sínum. kær kveðja, Jónína Ben
Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 17:05
Mér finnst allt í lagi að einhver setji saman lista yfir þau blogg sem hann heldur að séu best (við vitum að það er ekki endilega samálit allra) en að setja saman lista yfir verstu blogginn er bara óþokkaskapur. Fólk bloggar af því að það hefur gaman af því og hvers vegna þarf að vera að særa það að óþörfu. Maður angrar engan með blogginu sínu (ef maður vill angra þá fer maður á bloggsíður annara og er með skítkast.)
VIðurkenni samt að ég vil gjarnan sjá þennan lista og af því að ég er í sömu stöðu og Hörður, Mannlíf fæst ekki í Kanada, þá verð ég að treysta á bloggvini mína til að fá íslenska slúðrið.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 5.9.2007 kl. 17:27
Já við útlendingarnir verðu svo oft útundan í slúðrinu og alemnnilegum fréttum og erum oftast úti á túni í svona merkilegum umræðum eins og fara fram á síðum magasínanna íslensku. Þurfum listann takk til að geta hneykslast og sopið hveljur með ykkur hinum.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 17:53
Ég veit auðvitað ekki um krakkana sem þú ert að kenna á tölvur Jónína en votta það hér að Vala hefur verið óþekkur bloggnemandi frá 6 ára aldri. Henni hefur tekist að gera móður sína svo óvinsæla í bloggheimum, að hún læðist með veggjum (jeræt). Ég vona að Dúa hafi ekki lykilorðið af málefnunum liggjandi á glámbekk (roðn) því þá endar hún sem alein kona.
Skrifað í fíflagangi og bríaríi ásamt dashi af svefngalsa "alvegaðlekaniðurúrþreytukall".
Smjúts
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 20:35
Hm. meinti einkamálum.
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 20:37
Magnað að lesa margt hér inni en ég sé að þegar ég er ekki inni á stjórnborðinu, skrifa svar fer svo inn á stjórnborðið kemur svarið mitt 3x!! Hvað er það sérfræðingar. Jú ég þarf víst ekki að kenna mínum börnum að blogga þau frekar mér en ég er í starfi sem kennari í skóla fyrir börn með miklar sérþarfir. Þau eru dugleg á tölvur og langar að læra að blogga. Held samt að ég sleppi því að reyna að kenna þeim það á föstudögum þegar allir eru uppgefnir.
Ég skora á ykkur að kenna fötluðum, það er svo gríðarlega gefandi. Áður var ég með sérkennsluna í Breiðholtsskóla og það er gaman að sjá að einhverjir þaðan eru að gera það mjög gott í lífinu. Einn þeirra sem sagður var vonlaus er einn aðalmaðurinn í bankaútrásinni. Hann hefur stundum samband við mig og þakkar mér þolinmæðina.
Það er allt of fáir á Íslandi sem eru í sjálfboðavinnu inn í svona skólum og stofnunum. Getum við stelpurnar ekki ýtt undir það t.d. ? Staðið saman um að rétta hjálparhönd minnimáttar börnum ?
Dúa ég fíla ekki húmorinn þinn. Sorrý!
Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 21:15
What Jónína......Dúa er aðal húmoristinn okkar hér
Svo erum við ekki "allar" stelpur.
Þröstur Unnar, 5.9.2007 kl. 21:20
Jónína, ég get nú ekki orða bundist án þess að ég ætli að fara að eiga einhver samskipti við þig hér að ráði inni á annara manna bloggsíðum. Þú ert dugleg að koma með komment hefur gert það hjá mér en þú veitir öðrum ekki þann möguleika á þinni síðu. Mér finnst þetta ekki mjög lýðræðislegt hjá þér mín kæra og hvað varðar hana Dúu, þá finnst mér hún með skemmtilegri konum. Illa upp alin, en skemmileg.
Úje
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 21:27
Maður fer í sakleysi sínu í matarboð og það bara verður allt vitlaust! Best að blogga um matarboðið og athuga hvort það komi ekki krassandi umræður í kjölfarið!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 21:32
Af því að Dúa er umræðuefnið hér þá játa ég að það tók mig dálítinn tíma að ná húmornum hennar. Það er þannig stíll á honum. Framan af hélt ég að konan væri hálf vönkuð. En einn góðan veðurdag opnuðust mér allar gáttir himins og ég fattaði húmorinn hennar. Eftir það þykir mér Dúa vera snilld.
Jens Guð, 5.9.2007 kl. 21:38
Ha Nú
Halla Rut , 5.9.2007 kl. 21:43
Gurrí ég var að bilast úr hlátri við tilhugsunina um þig, blásaklausa í matarboði og við farandi hamförum hér. ROFL hvað mér fannst það skemmtilegt en ég er nottla biluð. Ég fatta ekkert hvað vélstýran er að meina með mannlífsbloggarana, en það kemur auðvitað til af því að ég er ekki búin að sjá fokkings snepilinn.
Jens, þú ert krútt og snilld, loksins þegar ég fattaði ÞIG
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2007 kl. 21:48
Hehhehe, ég mun borða við tölvuna hér eftir, ekki spurning!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 22:44
Já, mikið er lífið skemmtilegt guðríður, en ef þú í alvöru byrjar á kaffidrykkju með afgangaáti frá afmæli yfir tölvunni, þá spái ég henni óvægu andláti vegna klísturs og annara krambúleringa!
En ég kom inn fyrr í kvöld og skrifaði fína athugasend, en þá gerðist það sem gerist aldrei hér, netþjónsvilla gerði vart við sig! En eitt man ég úr færslunni, að það væri nú ljótt af Guðmundi að koma svona upp um kvinnuna sína!
Magnús Geir Guðmundsson, 5.9.2007 kl. 23:45
Það væri gaman að sjá þennan lista, ætlar þú að setja hann herna upp Gurrí?
Marta B Helgadóttir, 6.9.2007 kl. 00:04
Ef maður finnur enga skemmtilega bloggfærslu getur amk alltaf skemmt sér yfir kommentunum!!
Jónína fílar ekki Dúu-húmor! Bömmer
Heiða B. Heiðars, 6.9.2007 kl. 11:20
Ég keypti Mannlíf eftir að hafa gluggað aðeins í það í sjoppu, bara þrælgott blað en ég vildi óska að allir bloggarar læsu ritstjórnargrein Þórarins Þórarinssonar "Orðræða vitleysinganna", en ég er ekki að tala um þig Gurrý eða alla sem hafa kommenterað hér.
En þar sem ég vinn ekki á blaðinu, né þekki nokkra einustu sálu á því blaði, á ekki hlutabréf í útgáfunni, hef ekki einu sinni tekið í höndina á ritstjóranum og á engra hagsmuna að gæta, segi ég bara alveg ókeypis (eða í boði einhvers); kíkið á leiðarann og hvetjið aðra bloggara til að lesa hann.
Benedikt Halldórsson, 6.9.2007 kl. 16:50
Svakalega er mikið fjör hérna, eins og gott eldhúspartý (en reyklaust)
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.9.2007 kl. 17:03
Það er eitt varðandi umfjöllun um bloggara. Það er þegar fjallað er um bloggara eins og þeir séu einsleitur hópur. Bloggarar eru jafn ólíkir og nálgun þeirra jafn ólík og þverskurður þjóðfélagsins.
Blogg sumra er þeirra dagbók. Þeir blogga um það sem á dag hvern drífur. Segja frá sér og sínum nánustu.
Aðrir blogga um pólitík.
Enn aðrir safna bröndurum. Birta 1 - 2 brandara á dag.
Sumir safna myndböndum af Youtube. Birta 1 - 2 myndbönd á dag.
Sumir semja eina vísu á dag og birta hana á blogginu.
Þannig mætti áfram telja.
Jens Guð, 7.9.2007 kl. 08:22
... og sumir bulla eins og ég
Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.9.2007 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.