Borgarnes vs Akranes - stríð?

MósaíkSá bækling hjá Míu systur nýlega um alls kyns námskeið sem verða haldin á Vesturlandi í vetur.

Þótt ég sé í klíkunni (hélt ég) hjá nýbökuðu ömmunni í Borgarnesi og einum af skipuleggjendum þá sá ég að ekkert mósaíknámskeið verður haldið á Skaganum, bara í Borgarnesi! Hefði líka kosið indverskt matreiðslunámskeið, það verður líka í Borgarnesi. Hmmmm

Fátt eftir handa okkur Skagamönnum nema þá helst íslenska fyrir byrjendur! Tek það fram að ég fletti bæklingnum hratt, kannski leynist þarna kjarneðlisfræði í framkvæmd, lúdó fyrir lengra komna, gardínuhekl fyrir enn lengra komna, fiskeldi, fluguhnýtingar og annað spennandi, best að fá bæklinginn lánaðan hjá Míu. Hef eflaust fleygt mínum í ógáti.

 

 ------------------ 000 ---o-O-o---000 --------------------

 

Fyrir hádegiEftir hádegiPólverjarnir eru farnir, rigningin fældi þá á brott (já, Þröstur). Annars rignir ekki í augnablikinu en bleytan gerði þeim erfitt fyrir að spartla, eða líma, eins og þeir kölluðu það. They will be back, þessar elskur. Nema Borgnesingar steli þeim af mér!

Ég komst að því í dag að pólsk tónlist er verulega skemmtileg.  Kannski tilviljun ... en þegar svona dramatískur Opruh-legur umræðuþáttur á pólsku stöðinni hófst þá fóru strákarnir! Ekki þó fyrr en þröskuldurinn var silfurklæddur og búið að hylja „svampinn“ undir svalaglugganum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Sko Gurrí. Það hefur nefnilega borið soldið á því að Borgnesingar dulbúnir sem Pólverjar hafa herjað á Skagann, sérstaklega neðri Skaga, þar sem búa mestmegnis einstæðar mæður eða konur í sambýli með kisum, og boðið hina ýmsu aðstoð. Er alveg handviss um að þetta hafa ekki verið ekta Pólverjar, fyrst þeir flúðu nokkra rigningardropa.

Það er nóg af námskeiðum hér, á Skaganum. T.d er áformað að halda námskeið í skyrtustauningu, kaffilögun, þorskhausaþurrkun og dúkastrekkjun. Og svo má ég til með að minnast á kappleik í strandblaki kvenna sem stefnt er á að halda á langasandi þann 16 desember n.k. Skráning fer fram hjá Gísla bæjó. Þar keppa fiskverkakonur úr HB-Granda Akranesi og HB-Granda Reykjavík. Það lið sem vinnur fær að ráða hvort Grandi flytji á skagann eður ei.

Bestu kveðjur af Efri-Skaga

Þrölli.....

Þröstur Unnar, 15.9.2007 kl. 17:14

2 Smámynd: Elín Arnar

Ó NEI! Pólverjarnir farnir! Hvað gera konur þá??? 

Elín Arnar, 15.9.2007 kl. 19:19

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Verð bara að nota Jónas betur, Elín, láta hann ryksuga tvöfalt í dag! Eina kvikindislega sem mér dettur í hug ... heheheh

Þessi námskeið hljóma spennandi, Þröstur. Segggggðu mér eitt, hvort er himnaríki á efri Skaga eða neðri Skaga? Er það kannski mitt á milli? Hef aldrei verið viss á þessu, enda var ég flutt nauðug héðan 13 ára.   

Guðríður Haraldsdóttir, 15.9.2007 kl. 19:28

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ofsalega erum við Reykvíkingar að missa af miklu Mér líst vel á Lúdó fyrir lengrakomna. 

Laufey Ólafsdóttir, 15.9.2007 kl. 19:52

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Himnaríki mundi líklega teljast á efri Skaga, held að það skiptist c.a við Skaganesti. Þó er það á mörkunum að mínu mati.

Þröstur Unnar, 15.9.2007 kl. 20:44

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí ertekki í lagi?

Þó heimilisfangið sé Skagi.

Þú hangir með mönnum

þó þeir séu í önnum

og skilur þá gnístir í tönnum

Leirburðarnefndin

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 21:39

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jenný, algjör snilld! Þú kannt sko að yrkja! Ekki dirfast að kalla þetta leirburð!

Guðríður Haraldsdóttir, 15.9.2007 kl. 22:19

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Lekar svalir og konukvalir

eiga samleið með köttum

sem elska rjóma og rækjur

Lekandi svalir

og þúsund  pólskir hvalir

geta verið fyrirmyndar krækjur

fyrir konu sem á kaffivél, uppþvottavél og hækjur.

Maðna það er ljót að hún leiddi þá aldrei í gildru

þá má segja að hún hafi klætt sig vel.

Þetta er nútíma ljóð sem fylgir engum reglum enda er ég sannfærð um að reglur séu misjafnar. Spurjið bara hæstaréttadómarana.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 22:35

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Meðan það er ljóst.......púkinn vikrar ekki!!!! Lýgur og lýgur um aða allt sé rétt stafsett. Svik!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 22:37

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sko!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 22:37

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha katrín fríkaði út. Íslenska fyrir byrjendur... fyrir Katrínu

Jóna Á. Gísladóttir, 15.9.2007 kl. 23:37

12 Smámynd: krossgata

Verður svona svalasilfur ekki hált í frosti?

krossgata, 16.9.2007 kl. 01:26

13 Smámynd: Jens Guð

  Er ekki boðið upp á námskeið í skrautskrift?

Jens Guð, 16.9.2007 kl. 05:43

14 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk fyrir skemmtilega færslu og frábær komment hér á síðunni þinni Gurrí.

 Nei það er ekkert skrautskriftarnámskeið Jens! Ert þú ekki eina manneskjan á Íslandi sem stundar það?

Edda Agnarsdóttir, 16.9.2007 kl. 07:49

15 identicon

Það er perluskartgripanámskeið hér á miðvikudagskvöldið.  Drífum í perla nokkrar jólagjafir handa saklausum ættingjum sem hafa þá sannkölluð perlujól, sbr. vinsælu handklæðajólin þín og svuntujólin mín hér um árið...

Míasystir (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 10:06

16 Smámynd: Heiða  Þórðar

Það er bara allt að ske í sveitinni.....innlitsknús.

Heiða Þórðar, 16.9.2007 kl. 10:44

17 Smámynd: www.zordis.com

Það er á hreinu að ég flyt á skagann þegar ég flyt á klakann .... En söngnámskeið eða bara teskeiðabeygingarnámskeið .... 

www.zordis.com, 16.9.2007 kl. 11:03

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þið eruð ekkert eðlilega fyndin! Hehhehehe! Katrín, Moggablogg verður sent beint á púkanámskeið! Alveg væri ég til í námskeið í skrautskrift á Skaganum. Og að læra að beygja teskeiðar, það væri nú skemmtilegur samkvæmisleikur. Veit ekki, Krossgata, hvort silfurþröskuldurinn verður háll, det kommer bare i ljus! Reyni það á kisunum fyrst, múahahahhaha!

Guðríður Haraldsdóttir, 16.9.2007 kl. 11:26

19 Smámynd: Rebbý

alltaf fjör á skaganum    verð að fara að skoða hann betur, sérstaklega þar sem ég frétti af fleiri og fleiri álitlegum einstæðum mönnum sem búa þarna

Rebbý, 16.9.2007 kl. 11:46

20 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Rebbý, ég vil bara benda þér á að ég hef ákveðið forskot á þig með Þröst þar sem hann er nágranni minn ... hef þó aldrei hitt hann ... ekki örvænta, held að einhver hellingur af sætum gaurum sé samt eftir til að velja úr.  

Mía, ég er alveg til í að koma á perlunámskeið með þér! 

Guðríður Haraldsdóttir, 16.9.2007 kl. 13:19

21 identicon

Ég er alveg til í að skifta við þig á indverska matreiðslunámskeiðinu og spænskunámskeiðinu sem ég er búin að skrá mig á Skaganum.

Ég bý í Borgarnesi.

Ps.Bið að heilsa Tomma frænda.

Heiða (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 14:39

22 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hhehehe, ókei, Heiða, ég skila því. Ohhh, ef ég ætti bíl þá færi ég hiklaust á mósaík eða indverskt til Borgarness. Það er nú svo sem ekki langt á milli, vantar bara strætó fyrir mig.

Guðríður Haraldsdóttir, 16.9.2007 kl. 19:09

23 Smámynd: Guðrún Vala Elísdóttir

þúrt alveg í klíkunni, en afhverju minntir þú mig ekki á mósaík námskeiðið?  Komdu á konur og ISLAM þriðjudagskvöld í Borgarnesi.   Á ég að biðja einhverja Pólverja að sækja þig?  Proze bardzo, Gurrí jest fajna kobieta i brakowa kilku polski ludzi i jeden samochodem.....

Guðrún Vala Elísdóttir, 16.9.2007 kl. 23:08

24 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, elskan. Hlakka bara til að fara á mósaík næsta haust (á Akranesi ...) Býst við að verða að vinna á þriðjudagskvöldið en takk samt. Ertu orðin svona góð í pólsku? Vá!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.9.2007 kl. 07:54

25 Smámynd: Agný

Gurrý ..þú verður bara að flytja í Borgarnes ..næstu nágrannar mínir eru 30 polverjar...tell your friends...
 En þeir hafa fjári hátt þegar þeir labba á pöbbinn ..heiman og heim aftur ..fram hjá útidyrunum mínum...Mitt hús er þannig í sveit sett...Svo fást orðabækur á íslensku/pólsku og vice /werse...alllavega í Borgarnesi Knús

Agný, 18.9.2007 kl. 03:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 141
  • Sl. sólarhring: 300
  • Sl. viku: 2436
  • Frá upphafi: 1461968

Annað

  • Innlit í dag: 123
  • Innlit sl. viku: 2063
  • Gestir í dag: 117
  • IP-tölur í dag: 117

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Garðyrkja og útivera
  • Veðrið á miðvikudaginn
  • Há og grönn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband