Hátíðarstemmning og óvæntar heimsóknir

Mikið er klassísk tónlist vel við hæfi á svona lötum sunnudegi. Er að hlusta á „bland í poka“ af frábæru, æðislegu, dásamlegu ókeypis tónlistarsíðunni minni:  http://radioblogclub.com/open/43879/figaro/Marriage%20Of%20Figaro og er komin í sannkallað hátíðaskap. AkraneskirkjaEf tónlistin væri örlítið jólalegri færi ég að skreyta. Sumir myndu segja að gott væri að fara í messu til að öðlast frið í hjarta og slíkt en hjartafriðurinn er svo sem til staðar og auk þess er kirkjan í hinum enda bæjarins ... og innanbæjarstrætó gengur bara virka daga. Mér finnst reyndar gaman að fara í kirkju og hlusta á fallega tónlist. Ég elti mömmu iðulega í messur og á kóræfingar í gamla daga hér á Skaga. Kórinn hérna þykir og hefur alltaf þótt ansi góður og sendi frá sér geislaplötu fyrir nokkrum árum. Þar heyrði ég í fyrsta skiptið Ave Maria eftir Eyþór Stefánsson frá Sauðárkróki. Sama árið sungu Karmel-systurnar í Hafnarfirði það líka inn á plötu. Held að það sé uppáhalds Ave Maríað mitt! Verst að það finnst eflaust ekki tóndæmi á Netinu.

Formúlan fer svolítið inn um annað augað og út um hitt í þessarri sunnudagsstemmningu himnaríkis. Það væri kannski ekkert galið að fara að klæða sig. Fólk er nefnilega farið að stunda það að mæta óvænt! Glerhallarmenn í hádeginu í gær og Ellý í gærkvöldi.

Hver ætli hringi bjöllunni í dag? Get ég hugsanlega verið róleg þegar bjallan hringir og ég kannski nýkomin í bað? Verð ég jafnvel að breyta kaffidrykkjuvenjum mínum til að verða ekki gripin glóðvolg við drykkju ... í baði?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sunnudagar eru eins og þú. Yndislegir

Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2007 kl. 13:14

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Laugardagar eru eins og ég.  Betri

Án gríns er það ekki óþolandi að fólk skuli KOMA bara sí svona?  'Eg meina án boðskorts og alles? Hm....

Smjúts

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.9.2007 kl. 13:25

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Neinei Jenný, það er allt í lagi. Það verður bara að þola að maður komi til dyranna eins og maður er klæddur.......

Djúp?

Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2007 kl. 13:30

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það getur verið pirrandi þegar maður er búin að plana eitthvað annað. Væri samt alveg til í að planið breyttist, alltaf gaman að fá góða heimsókn ... ef fólkið bara hringdi á undan sér. Myndi aldrei fórna heimsókn fyrir DVD-mynd eða bók. Finnst bara tillitssemi ef fólk lætur vita. Alla vega í flestum tilfellum. Í gær var allt í lagi að fá Glerhöllina og Ellýju, bara mjög fínt. Var meira að tala um svona almennt. Ef sjaldséður gestur myndi birtast óvænt hjá mér í dag þætti mér bara vont að eiga ekkert með kaffinu! Gestinum væri kannski sama, ekki mér!

Guðríður Haraldsdóttir, 16.9.2007 kl. 13:43

5 Smámynd: krossgata

Jamm, mér finnst einmitt afar mismunandi gott eða slæmt að fá óvæntar heimsóknir.  En talandi um klassíska tónlist þá man ég að það er langt síðan ég hef hlustað á slíkt.  Ætla því að dusta rykið af einni ágætri þynnu og hlusta, Árstíðirnar eftir Vivaldi í flutningi Nigel Kennedy.  Takk fyrir óvæntu og líklega ómeðvituðu áminninguna. 

krossgata, 16.9.2007 kl. 13:48

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Klassíkin er himnesk og óvæntar heimsóknir djöfullegar. Eftir að ég flutti hinagð yfir hafið hef ég vanist þeim sið að fólk boðar komu sína og aðeins örsjaldan sem það gerist að það droppi óvænt inn. Áður þegar við bjuggum á íslandi var heimilið eins og opin umferðarmiðstöð og maður bara lifði með því. En núna þegar ég hef vanist þessu þá vil ég hafa þetta svona..að mestu leyti. Hef samt alveg umburðarlyndi og þolinmæði fyrir hinu óvænta!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.9.2007 kl. 14:26

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Krossgata, þú getur líka klikkað á linkinn hjá mér í færslunni og færð þá nokkur góð lög sem þú getur hlustað á í allan dag í eilífðarspilun bara. Þetta er búið að rúlla á hjá mér síðan 10 í morgun.

Já, Katrín, það óvænta getur verið skemmtilegt ... en ekki alltaf.

Guðríður Haraldsdóttir, 16.9.2007 kl. 14:34

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Sorry.. eftir að lesa um karlmannsveiðandi svalir, g-streng og votar varir hef ég bara engan áhuga á hátíðarstemningu og formúlu!!

Heiða B. Heiðars, 16.9.2007 kl. 14:50

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heiða mín, djarfar færslur eru bara í annað til þriðja hvert skipti!

Guðríður Haraldsdóttir, 16.9.2007 kl. 15:01

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Haha! En ég hefði nú dáðst meira af svölunum þínum ef ég hefði vitað að þær hefðu svona mikið aðdráttarafl:)

Heiða B. Heiðars, 16.9.2007 kl. 15:33

11 identicon

Radioblogclub er aðal hjá yngri dótturinni. Þangað fer ég líka þegar ég heyri nafn á einhverju lagi en man ekki hvernig það hljómar. Maður finnur bókstaflega allt þar ef það tilheyrir á annað borð tónlist.

Ég sé að klukkan er rúmlega 13 þegar þú skrifar, ég á kannski ekki að opinber það en ég er enn í sloppnum  EN það er nú einu sinni sunnudagur

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 15:55

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Kannski ekki mjög djörf færsla, en mér finnst nú eigi djúpt undirliggjandi, örla á erotískum litum í henni, að ég tali nú ekki um í sumum athugasendunum,léttklæddar fegurðardísir svífa hér um hver um aðra þrvera og eru bara alls ófeimnar við það!

Magnús Geir Guðmundsson, 16.9.2007 kl. 16:27

13 Smámynd: www.zordis.com

Ave Marían hjá Diddú hljómar nú á geislanum, hreint yndisleg!

www.zordis.com, 16.9.2007 kl. 18:04

14 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Auðvitað eru bara allar dísir allsberar heima að baða sig og blogga á sunnudögum. Hélt að það væru allir meðvitaðir um það. Hvernig eiga sunnudagar öðruvísi að vera????

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.9.2007 kl. 18:06

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

mér þykir ofsalega gaman að fá óvænta svona drop-in heimsókn. Ef eitthvað stendur til sem ég get ekki breytt (eða vil ekki breyta) þá segi ég það bara. Ég aftur á móti legg það í vana minn að hringja á undan mér þegar ég ætla að droppa einhvers staðar inn.

Munurinn liggur í því að mjög sjaldgæft er að fólk droppi inn á meðan að það er afar algengt hjá flestum mínum vinkonum að fá svona óvæntar heimsóknir. ég vil ekki meina að það sé út af því að ég sé svo afspyrnu leiðinlegt. Frekar vegna þess að auðvitað er fjölskylda Bretans ekki hér og ég á næstum enga. Og vinkonur mínar eru svo uppteknar við að taka á móti gestum. hahahaha

Jóna Á. Gísladóttir, 16.9.2007 kl. 18:29

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hef sko ekki nennt að klæða mig í dag, valsa bara um á joe boxer og læt mér líða vel. Les og borða namm.Have a nice weekend.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.9.2007 kl. 20:09

17 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

eru sunnudagar ekki einmitt til þess að slaka á og njóta tilverunnar :)    en ég hef það nú fyrir vana að hringja á undan mér þegar ég skelli mér í heimsókn, Gurrí mín þegar mér dettur í hug að kanna leikni þina í kaffiuppáhellingu, þá LOFA ég að bjalla áður

nenni ekki upp í himnaríki ef engin er heima nema Jónas

Guðrún Jóhannesdóttir, 16.9.2007 kl. 21:03

18 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Jahá, þið segið það. Einu sinni þegar ég var ung, fögur og fljót að hugsa, þá vantaði ýmislegt í mig, merkilegt nokk, og sjálfsmynd mín beið hnekki ef ég fékk ekki svona 4- 5 færslur í gestabókina á dag. Og svona 5 - 10 símtöl. Ég myndi ekki lifa þetta af í dag. Og sjálfsmyndin er nokkuð óhagganleg, jafnvel þó ég heyri ekki í nokkurri lifandi manneskju í dag eða tvo. Eiginlega finnst mér núorðið bara ágætt að hafa heimsóknir skilulagðar fyrirfram og sem minnst óvæntum droppinnum.  Svona getur nú austur orðið vestur og suður norður, þó maður sé ekki í Ástralíu.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.9.2007 kl. 21:23

19 Smámynd: Svava S. Steinars

Flottar veiðisvalir !  Engir karlar komið á mínar svalir enn -  að vísu leka þær ekki.  Hinsvegar lekur vaskurinn sem ég var að láta gera við aftur, viðgerðin entist í um 2 vikur   Grrrrrrrrrrrrrrrr !

Svava S. Steinars, 17.9.2007 kl. 00:56

20 Smámynd: Jens Guð

  Gaman að þú skulir minnast á Ave Maríu eftir Sauðkrækinginn Eyþór Stefánsson.  það er þó ekki besta Ave Marían.  Sú besta er á jólaplötiu með Joan Baez.

  Ég er fæddur og uppalinn í kirkjunni á Hólum í Hjaltadal.  Þar var pabbi meðhjálpari og fastur liður á uppvaxtarárunum var að fara í messu þar á sunnudögum.  Og borða á eftir nýbakaðar vöfflur hjá Emmu Hansen,  prestsfrú, og súkkulaðitertu.  Það var reyndar miklu skemmtilegra en messuhaldið í kirkjunni. 

  Eitt sinn - er ég var 10 ára - mætti ríkisútvarpið með græjur til að hljóðrita messuna.  Þegar messuhald hófst kom bobb í bátinn.  Drynjandi undirtónn truflaði upptökuna.  Tæknimenn útvarpsins hlupu út og suður til að reyna að útiloka þennan drynjandi undirtón.  Þeir eltu allar leiðslur út og suður.  Án árangurs.  Þá brugðu þeir á það ráð að setja "filtera" á græjurnar og yfirkeyra "diskantinn".  "Diskantinn" er skæra hljóðið en undirtónninn sem drundi undir var bassi.

  Jæja,  messan var hljóðrituð og send út í ríkisútvarpinu næsta sunnudag. Sándið var mjög asnalegt.  Það var eins og messan hafi verið hljórituð í tómri járntunnu. 

  Þegar messu lauk hljóp ég út úr kirkjunni til að fá mér vöfflur og súkkulaðitertu hjá Emmu prestsfrú.  Um leið og ég hljóp út uppgötvaði ég hvað olli bassadrununni.  Ég stóð nefnilega á bassapedal (fótstigi) orgelsins til að fylgjast með orgelleiknum.  Stóð alla messuna út í gegn á dýpsta bassatóni fótstigsins. 

Jens Guð, 17.9.2007 kl. 02:23

21 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vá, þvílík saga!!! Það sem þú hefur ekki á samviskunni, Jens. Ég get alveg emjað úr hlátri yfir sumu sem hefur komið fyrir þig og held að ævisaga þín yrði afskaplega skemmtileg aflestrar!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.9.2007 kl. 07:52

22 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Jens, snilld, tóm snilld :D

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 17.9.2007 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 385
  • Sl. viku: 1893
  • Frá upphafi: 1455285

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 1535
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Útlitið í Mjódd í dag
  • Elsku Geiri frændi
  • Jysk

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband