Spennandi lækningaaðferðir og trúarrit himnaríkis

Á Langasandinum fyrr í dagÞað var nú bara sól og blíða þegar ég kom á Skagann í dag en skömmu síðar skall á klikkað haglél. Öldurnar gleðja sem aldrei fyrr með fallegum skvettum. Erfðaprinsinn er eitthvað slappur, eiginlega bara veikur, og reynir ákaft að lækna sig með því að horfa á hryllingsmynd um morðóðar vúdúdúkkur. Athyglisverð aðferð. Þegar ég segi að drengurinn sé fullkominn þá er ég ekki að tala um kvikmyndasmekk hans.

 --------        -----------         -----------          ------------

Þessi þyrfti nú að komast í þvottavélGott var að komast snemma heim, enda vaxandi höfuðverkur að plaga frúna. Er að hugsa um að lækna hann með nuddtæki á herðar, hitakremi, góðri bók og já, ekki má gleyma: Himalaya-kristal sem ég legg á ennið og kyrja nokkrar möntrur á meðan ég skelli götóttri árunni í þvottavél.

 -------        ----------          ----------

Á morgunElskan hann Elli keyrði strætó heim á Skaga og það var sannarlega heimilislegt að sjá hann loksins. Heilmikil umferð var á leiðinni, enda fyrsti vetrardagur á morgun og því síðasti séns fyrir fólk að fara í tjaldútilegu í sumar.
Ég mun ekki pakka niður léttu sumarkjólunum mínum fyrr en á miðnætti í kvöld. Hér á bæ er trúað heitt á almanak Þjóðvinafélagsins og þótt því sé breytt og það endurútgefið á hverju ári breytir það engu fyrir mig. Því skjátlast t.d. aldrei í sambandi við hluti á borð við flóð og fjöru eða sólarupprás og sólarlag. Í himnaríki verður sem sagt sumar þangað til almanakið segir mér að kominn sé vetur ... og hananú! Mikið verður annars gott að fá trefil og vettlinga með út á stoppistöð á mánudaginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

frábært að geta skellt árunni í þvottavél :) og góða farðu vel með kristalinn hehehehe. Heyrði ekki þetta viðtal,  ég er nú svosem ekki neinn sérlegur "Solluaðdándi" en hún hefur sannarlega ýtt við okkur með hollum og góðum mat stelpan,  það má hún eiga.

Sumir eru nú bara þannig innréttaðir að þeim finnst best að hlægja á annarra kostnað og þá sennilegast af því að þeir öfunda viðkomandi dálítið

Góða helgi frú Guðríður Himnaríkisfrú

jólaleg myndin hérna til hliðar hjá þér, af húsinu í snjónum

Guðrún Jóhannesdóttir, 26.10.2007 kl. 18:36

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Heim í heilu lagi, gott að vita það. Það er þá bara slökun um helgina í Himnaríki ekki satt?? Vona að prinsinum batni.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.10.2007 kl. 19:03

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert að æsa upp í mér jólabarnið í hvert sinn sem ég voga mér hér inn.  Annars vona ég að höfuðverkurinn sé á undanhaldi og prisinn í góðum bata

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.10.2007 kl. 19:58

4 identicon

Hæ dúllan mín mikið var notalegt að heyra í þér í gær þegar þú varst að hugsa til mín í regni og roki hangandi á staurnum hjá Shell á Vesturlandsveginum. Já það hefur sko verið gott fyrir þig að komst snemma heim í dag þó það væri föstudagur. EG fékk sko far með honum KIdda heitir hann það ekki annars ???? hahahahahahhaaa jú ég held það Heimir skilaði mér snemma og vel í morgun saknaði þín þurfit að sitja frekar aftarlega að mér fannst þurfti að biðja Hlina að kalla í Heimi svo að hann mydi eftir mér að sjálfsögðu gerði hann það þessi elska. Sakna Tomma HVAR ER TOMMI ?????????

Sjáumst

Sigþóra Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 20:25

5 identicon

Sjáumst á mánudaginn með trefil og í GAMMASÍUM eða eru það GAMMÓSÍUR ?????

Hafðu

Sigþóra Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 20:27

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Sko, elsku Gurrí. Það er líka misviðrasamt hér í höfuðborg lýðveldisins. Ég hafði ekki fyrr makað á mig faktor 40, smokrað bikiníinu á rétta staði (= rúlla brjóstum og rasskinum inní doppóttar dulur...), sett upp DG gleraugun og tóbaksklútinn á hausinn og lagzt út í 40 stiga hita (næstum, sko), en að ég þurfti að hlaupa inn með regnhlífina og setja niður sólhlífina á svölunum, svo hún fyki ekki til Færeyja, - en semsé, það var komin norðaustan landátt með hraglanda og hviðum.  Ójá, svona getur þetta verið.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 26.10.2007 kl. 23:11

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég dreg nú upp þvottapoka fyrir aðferðarfræði drengsins.  Það er ekkert hollt fyrir hann að þurfa að hanga í þessari ásköpuðu regnroknepju innann um verulega ófrítt kvenfólk frá skipaskaga alla daga.

Viltu virkilega að drengurinn verði þunglyndari ?   Er þér einhver spurn um kví hann velur sér kvikmyndir af þessu tagi ?

S

Steingrímur Helgason, 27.10.2007 kl. 01:53

8 identicon

Hæ hæ Gurra!

Rakst á síðuna þína gaman að skoða.

sendi kveðju til allra Kær kveðja Lísa á Akureyri

Lísa sí unga (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 11:26

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Vona að áran sé hrein og heil og hausverkurinn hafi liðið í burtu yfir nóttina. Knús til þín á fallegum laugardegi

Jóna Á. Gísladóttir, 27.10.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 75
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 1955
  • Frá upphafi: 1493563

Annað

  • Innlit í dag: 61
  • Innlit sl. viku: 1578
  • Gestir í dag: 60
  • IP-tölur í dag: 60

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mia_litla
  • Eftirlaunaaldurinn
  • Hirðrafvirkinn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband