Flokkar: Sjónvarp, matur og drykkur, bækur

LaugardagskvöldTónlistarveislan í gær kom í veg fyrir að ég gæti klárað að horfa (hlusta) á boldið en það hefur heilmargt gerst að undanförnu. Barn Bridget fæddist of snemma og dó og í sorginni hefur Bridget loks áttað sig á því að Nick er bara með henni vegna barnsins. Nú gerir hún í því að ýta honum í fang móður sinnar, Brooke. Felicia, sem er að deyja úr krabbameini, var búin að sjá fyrir sér að Nick, sem reyndist vera faðir barnsins hennar, og Bridget tækju að sér Nicholas litla sem myndi þá alast upp með Nichole litlu (sem dó). Bjargvættur Taylor, sem ég man aldrei hvað heitir, átti villta ástarnótt með Feliciu níu mánuðum áður en Nicholas litli fæddist vill láta athuga hvort hann sé mögulega faðir Nicholasar. Felicia má ekki heyra á það minnst. Lengra var ég nú ekki komin. Veit ekki hvar Stefanía er, hún hefur ekkert sést. Hvað þá Amber.

SunnudagskvöldAnnars hefur dagurinn verið góður. Erfðaprinsinn viðraði móður sína um kaffileytið og bauð henni með í Skrúðgarðinn. Besti kaffidrykkurinn á staðnum, tvöfaldur latte með 150°F mjólk, hefur nú verið endurskírður, hann heitir ekki lengur Kaffi-Gurrí, heldur Íslensk kjötsúpa. Þetta á víst að vera húmor ... Minnir óneitanlega á bolinn sem Anna vinkona gaf mér eitt sinn með mynd af sjálfri mér og léttmjólk framan á. Myndin var tekin á einu sunnudagskvöldinu hennar á Álftanesi, ég hef án efa drukkið kók það kvöldið. Eftir allt nöldrið í mér um að léttmjólk væri ekki boðleg út í kaffi (bara nýmjólk) var þetta bara gott á mig. María hugsar eins og Anna: refsum nöldurskjóðunni. Þetta er sem sagt síðasta nöldrið mitt! Á morgun hefst nýtt líf, nöldurlaust. Þá fæ ég kannski bol með réttri mjólkurtegund og kaffidrykkurinn fær sitt rétta nafn aftur. Hver biður um kjötsúpu þegar hann langar í latte? Ha, María! Ja, ég pantaði heitt súkkulaði í mótmælaskyni. Verst að María var ekki á staðnum og stelpurnar föttuðu ekkert. Þegar við mættum á staðinn var stund milli stríða, rólegt eftir mikla ös og svo drifum við okkur út þegar allt fór að fyllast aftur. Það veitti sannarlega ekki af því að fá kaffihús á Skagann. Tengingin við strætó (endastöð) er líka snilldarleg. 

Lauk við bókina Englar dauðans (eftir Þráin Bertelsson) í dag. Hún er mjög góð; spennandi, sorgleg og óhugnanleg ... og stundum fyndin. Veit ekki hvort Ævar Örn er með krimma núna en ég á Yrsu eftir. Við eigum orðið skrambi góða sakamálahöfunda. Man þegar Leó Löve sendi frá sér spennubók fyrir mörgum árum og sumum fannst bjánalegt að skrifa slíka sögu sem átti að gerast á saklausa landinu okkar. Ja, æsku okkar Íslendinga og sakleysi er greinilega lokið ...

Tók silfurslegna mynd út um gluggann í gærkvöldi og aðra ögn gylltari í kvöld. Bjútífúl!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fyrirsögnin er frábær.  Haltu áfram að nöldra, það er ekki leiðinlegt að láta eitthvað heita eftir sér á veitingaseðli.  Mér þætti heiður af rétti sem héti femýniztabelja og væri heitin eftir mér, þó það væri slátur

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.11.2007 kl. 18:49

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Alltaf gaman að lesa bloggið þitt.  Búin að spara heilmikið eftir að ég sagði stöð 2 upp og les bara um Boldið  hjá þér, þetta er stutt og hnitmiðað.  frábært hjá þér.  kveðja

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.11.2007 kl. 19:38

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hann heitir Dante held ég. Þú átt bara að nöldra ef þú vilt, manni líður svo vel á eftir. Eigðu nú góða vinnuviku og ég vona að veðurguð hafi logn þessa vikuna fyrir þig og okkur hin. 

Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2007 kl. 19:41

4 Smámynd: Fjóla Æ.

Nauðsynlegt að viðra góðar konur annað slagið.

Bjargvættur Taylor heitir Dante og strákurinn hennar Feliciu heitir Dominick, ekki Nicholas. Sorry  en ég varð að leiðrétta þig

Fjóla Æ., 18.11.2007 kl. 21:57

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég veit að það er ekki hægt að fá þig til að hætta að bolda, en ef þú ætlar að hætta að nöldra. Ég spyr hvað á maður þá að lesa?

Þröstur Unnar, 18.11.2007 kl. 22:01

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ohhhh, Fjóla, ég vissi að það væri NICK í því ... Mjóaði munu!

Þröstur, ertu að segja að ég nöldri út í eitt á blogginu?

Já, Dante var það, hvernig læt ég ... og ég ætla að halda áfram að nöldra ... múahhahahah 

Guðríður Haraldsdóttir, 18.11.2007 kl. 22:41

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Nei ekki út í eitt, bara pínu lítið um kjörsúpu, sem gerir þetta bara líflegra.

btw.Glæsilegar myndir hjá þér.

Þröstur Unnar, 18.11.2007 kl. 22:51

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Dante er ekki bjargvættur Taylor, það er Hector. Dante er að reyna að bjarga Bridget!! Og þykist núna eiga Dominick af því að hann var með Felicity!! Ein sem horfir of mikið á sápur :)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.11.2007 kl. 01:32

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Oh ég ætla sko að lesa þessa bók eftir Þráinn!!

Heiða B. Heiðars, 19.11.2007 kl. 09:29

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sko Jóna Kolbrún. Dante bjargaði einu sinni Taylor frá Ómari soldáni, átti að mála af henni mynd en hjálpaði henni að flýja í staðinn. Síðan hef ég kallað hann bjargvætt ... en þetta er samt rétt hjá þér, Hector brunakarl er réttnefndur bjargvættur hennar núna

Jamms, Heiða, bókin er full af óhugnanlegum morðum ... nammmm!

Guðríður Haraldsdóttir, 19.11.2007 kl. 11:50

11 identicon

einmitt pæling sem ég hef verið með undanfarið, hvort það fari ekki að koma bók frá ævari... alveg komin tími á upprifjun á öllum karakterunum í þeirri bók. Vonandi sem fyrst

Hulda (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 160
  • Sl. viku: 1324
  • Frá upphafi: 1460223

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 1043
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Fótapláss ekkert
  • Facebookvinátta
  • Fótapláss ekkert

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband