Konan í brekkunni ...

Var soldið ógreinileg í morgun ...Fólkið í vinnunni starði á mig í morgun, eins og ég væri draugur. „Þú hefur komist yfir Kjalarnesið?“ spurði ein kjörkuð, þó með smá Reynistaðabræðrabeyg í augnaráðinu. Já, ég komst svo sannarlega og það var voða gaman, enda Tommi undir stýri. Hann verður útvarpsstjarna í kvöld og spilar rokklög á Útvarpi Akranes FM 95.0. Mér skilst að aðeins hjartahreint, rauðhært og vestfirskt fólk nái stöðinni á höfuðborgarsvæðinu.

-----      ----------     ------

Strætó í morgunSat fremst við hlið Sigþóru í strætó og klappaði henni reglulega á róandi hátt, hún er svo veðurhrædd að eigin sögn, elsku kerlingin. Það komu vissulega nokkrar hressilegar hviður, enda 30 m/sek í hviðum, en Tommi hafði fulla stjórn á öllu, m.a. með því að aka hægt á köflum. Tommi, þessi lauslætisdaðurbósi, sagði okkur Sigþóru, smiðnum og Hlina (fólki í fremstu röð) að ekkert prýddi nú lengur Lopabrekkuna, engin Karítas biði og gleddi augu bílstjóranna, hún væri víst flutt til Akureyrar. Við komumst að þeirri niðurstöðu að henni hefði ekki bara boðist gott starf, heldur hafi hún fallið fyrir því að það er FRÍTT í strætó á Akureyri. Ég flutti upp á Akranes af því að strætó byrjaði að ganga á milli ... hvað ætli margir myndu flytja ef það væri þar að auki frítt ... kannski hefðum við ekki misst Karítas norður yfir heiðar!

"Viltu vera algjört krútt og stoppa fyrir okkur Sigþóru," sagði ég þegar við nálguðumst Hálsahverfi. "Ég þarf ekki að stoppa til þess," svaraði sár bílstjórinn og Sigþóra hló, enda skepna. Það er ekki bjalla í rútunni og ég reyni að nota mismunandi setningar í staðinn, til að bílstjórarnir fái ekki leið á mér, m.a.: „Ef ég lauma að þér 50 kalli væri þú þá til í að stoppa næst?“ eða „Þetta er rán, ef þér stöðvið eigi langferðabifreiðina mun ég syngja fyrsta kaflann í Ármanni og Vildísi eftir Kristmann Guðmundsson.“ ja, þetta síðasta hef ég reyndar ekki prófað en það verður brátt. Langur dagur fram undan, ég er með Pál Óskar í eyrunum og finnst nýja platan hans gjörsamlega æðisleg, tónlist sem gerir mann hamingjusaman, alveg í stíl við söngvarann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er gott til þess að vita að þú komst heil til höfuðborgarinnar frá himnaríki. Nú er hann havss hér í Norðlingaholtinu, horfi á Jólaseríur fjúka útí veður og vind.  Sveimér ef ég ekki bara flyt aftur niður á lálendi svona mikið rok á alls ekki við mig. Var ekki mikið rok í himnaríki í morgunn? það er nú svo opið þar fyrir öllum höfuð áttum. jæja en er rosalega glaður að sjá að þú ert komin heil til byggða. Nú fer að líða að því að ég verð að fara að taka númer 19 niður í bæ, skyldi strætó ganga í þessu veðri?

bestu kv

siggi

siggi (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 09:48

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hehhe, já, já, strætó gengur, það var hvasst niðri í Bankastræti í morgun get ég sagt þér en ekki fjúkandi jólaskraut þó. Það hvein svolítið í himnaríki en samt ekkert svo ... annars elska ég svona veður! Sérstaklega þegar það er helgi og líka þegar öll skip eru í vari og allar þakplötur vel festar niður ... well, svona flestar.

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 10:02

3 identicon

mikið ert þú heppin að finna ekki fyrir hvössum vindi, ég er mest hræddur við allt þetta lausa timbur og það sem fylgir þessum nýju húsum hér í noðlingaholtinu, ýmislegt lauslegt getur farið afstað og lent á rúðum, það væri nú ekki gott ef þessar stóru rúður hjá mér færu í öreindir. En eins og ég segi þá öfunda ég þig af því að vera ekki veðurhrædd. 'Eg gleymi ekki vondu veðri austur í sumarhúsi húsó við Gíslhotsvatn, hélt að kofin færi á loft, sáum bílin hreyfast á bílaplaninu, manni stóð nú ekki á sama, síðan hef ég verið vindhræddur heheheheheheheheehheh

siggi

siggi (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 10:12

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, Anna mín. Vonandi svelgist þér ekki á poppinu ef stressuð vinkona þín klúðrar svörunum ...

Svar: Rangárvallasýsla? Uuuuuu .... Þingeyjarsýsla?

Spurning á móti ... Í hvaða sýslu er Akranes? (í alvöru, ég er búin að steingleyma því og þessar upplýsingar liggja ekki á lausu á Netinu og enginn virðist vita það, hef spurt alla vega tvo!

Rokrassgatið var ekki á Akranesi, þarna Anna panna, heldur á Kjalarnesi sem er í 116 Reykjavík!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 10:37

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Annað, Anna, ef þú vilt koma í sjónvarpssal þá ertu hjartanlega velkomin! Mæting korter fyrir átta í allra síðasta lagi, þarf að láta vita á ruv.is/utsvar. Hilda tekur saumaklúbb fram yfir mig, mamma ætlar að taka upp þáttinn og eflaust hlæja og hlæja að dóttur sinni ... eða eitthvað.  

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 10:39

6 identicon

Ertu að segja að ég geti semsagt hlustað á þig.......varstu ekki að tala um hjartahreint,rauðhært og vestfirskt.........verandi allt þetta....

Magga (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 10:48

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, Magga. Þú getur hlustað, elskan. Ásamt öllum bloggvinum mínum.

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 11:13

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Gurrí mín...gott að þú ert fokin yfir og undir fjöllin þarna heil til byggða....er það ekki örugglega rétt skilið hjá mér að þú sért að keppa fyrir skagann?? Við familían erum svo tilbúin fyrir kvöldið..erum með flotta fána sem á stendur Áfram geggjaða Gurrí...útsaumað í mörgum fallegum litum. Settum líka upp plaköt af þér í stofuna og gangveginn inn í eldhús svo við getum séð þig þegar við náum í nachosið og ostasósuna. Notuðum myndina sætu af þér á gamla krúttlega pöbbnum í ensku sveitinni.

Tu tu frá okkur öllum.

Knús og mús. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.11.2007 kl. 11:27

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk elsku Katrín. Fallega gert af þér sem Hafnfirðingi að segja svona ... þar sem Skaginn keppir við Hafnarfjörð í kvöld ...  Þú ert dúlla. Megið bara alls ekki nota myndirnar af mér í pílukasti, held að það sé mjög slæmt Feng Shui!

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 11:49

10 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

tojtoj í kvöld, get ekki horft beint, sé þig á netinu :D

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 30.11.2007 kl. 12:05

11 Smámynd: Þröstur Unnar

Skammast mín bara pínu. Var bara búin að prenta út eina mynd, að vísu í A4, af Gurrí, sem ég ætlaði að hengja upp í Einarsbúð. En finn mig knúinn til að toppa Katrínu, en veit ekki alveg hvernig ennþá.

Þröstur Unnar, 30.11.2007 kl. 12:10

12 identicon

http://is.wikipedia.org/wiki/Mynd:S%C3%BDslur_%C3%A1_%C3%8Dslandi.png

Akranes er að sjálfsögðu í Borgarfjarðarsýslu

Aðalheiður (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 12:50

13 identicon

Vá veður Tommi útvarpsstjarna !! ég er hjartahrein og eldrauðhærð kanski að ég nái útsendinguni ...Gangi þér sem allra allra best í sjónvarpinu, ég verð líka með popp og kók að hvetja þig.

Kveðja

Systir lauslætisdaðursbósans

Magga (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 13:07

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk kærlega, Aðalheiður. Fannst það líklegast en einhverjir sögðu þó nei við því. Það sem ruglaði mig var að um tíma stóð á www.yr.no, norsku veðursíðunni minni, að Akranes væri í Kjósarsýslu, næst var það komið í Gullbringusýslu og ég var orðin kolrugluð í ríminu. Já, Þröstur, reyndu að toppa Katrínu!!! Og takk, Hildigunnur. 

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 13:11

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sá þig ekki Magga ... það særir okkur Sigþóru rosalega mikið þegar Tommi talar áfergjulega um aðrar konur, sérstaklega konur úr Mosfellsbæ!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 13:12

16 identicon

Oh mikið er ég orðin spennt að horfa á útsvar í kvöld Áframm Akranes!!!!

Brynja blogg.central.is/skordal_1 (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 16:33

17 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

stattu þig Gurrí, áfram Skagamenn

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.11.2007 kl. 17:42

18 identicon

bestu kveðjur stattu þig fyrir skagan,

siggi

siggi (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 18:35

19 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Bestu kveðjur til þín og til hamingju með kökublaðið er búin að kaupa það flott blað í ár.

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 30.11.2007 kl. 18:48

20 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 30.11.2007 kl. 19:45

21 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Hæ skvís ! Ég bíð hérna spennt heima eftir að horfa á Útsvar  Áfram skagamenn hí,hí (er náttúrulega skagamaður sjálf) Knús til þín

Katrín Ósk Adamsdóttir, 30.11.2007 kl. 20:08

22 Smámynd: bara Maja...

Jeij áfram Gurrí , er að horfa akkúrat núna, þið eruð langflottust!!!

bara Maja..., 30.11.2007 kl. 21:15

23 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Til Hamingju með sigurinn frábær þáttur í kvöld.

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 30.11.2007 kl. 21:18

24 Smámynd: Jens Guð

  Til hamingju með góða frammistöðu og sigur í Útsvari,  Gurrí!

Jens Guð, 30.11.2007 kl. 21:19

25 Smámynd: Alexander Már Benediktsson

hæhæ þetta var spennandi þáttur og ég var að horfa á og þetta var bara flottur sigur hjá ykkur :D;):)

Alexander Már Benediktsson, 30.11.2007 kl. 21:21

26 identicon

Innilegar hamingjuóskir, úr Árnesþingi !

Mbk., sem fyrr / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 21:28

27 Smámynd: Þröstur Unnar

Íhaaaaaaaaaaaaaaaaaha auddað unnu sætustu stelpurnar.....  og Bjarni.

Þröstur Unnar, 30.11.2007 kl. 21:33

28 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

til hamingju með sigurinn, þið stóðuð ykkur frábærlega

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.11.2007 kl. 21:33

29 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Frábært að horfa á þig í sjónvarpinu. Settist meira að segja og horfði þrátt fyrir andúð mína á RUV. Stóðst þig frábærlega og ert svaka sæt...

Brynja Hjaltadóttir, 30.11.2007 kl. 22:18

30 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takkkkkk, myndi setja hjörtu og broskarla væri ég ekki í MAKKA-tölvu ... say no more ...

Guðríður Haraldsdóttir, 30.11.2007 kl. 22:19

31 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður , 30.11.2007 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 494
  • Sl. viku: 1239
  • Frá upphafi: 1460063

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 982
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DollyParton
  • Jason-Statham
  • 12. ágúst sko

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband