Bara sooooo gaman

Takk fyrir kveðjurnar, hjartagullin mín, þetta gekk bara ljómandi vel, og frábært að Skagaliðið sigraði. Það var heilmikil pressa á okkur, frétti rétt fyrir þáttinn að Skessuhorn hefði sagt að við værum síðasta von Vesturlands! Dramatíkin að fara með þá ... Mér fannst eiginlega best þegar ljóshærða fegurðardrottningin í Skagaliðinu var með á hreinu hvað eitthvað hérað í Indlandi hét. Hún horfði svellköld á Hafnfirðingana og sagði GÓA! Þau voru annars alveg frábær í hinu liðinu, gaman ef þau hefðu komist áfram líka. Bjarni Ármanns er einstaklega hress og skemmtilegur og ég er fegin að hann píndi mig til að taka Oliver Twist-flokkinn. Var aðeins of fljótfær í síðustu spurningunni þar.

Nú er víst "fárviðri" á Kjalarnesi og ég sit í Galtalindinni í Kópavogi, gisti hjá Hildu í nótt og Inga ætlar að skutla mér í fyrramálið á Skagann, eldsnemma. Útvarpsþátturinn hefst kl. 11 í Skrúðgarðinum og ég á eftir að finna tónlist og fleira, gera það sem ég hefði gert heima í kvöld ef ... Hviðurnar eru reyndar ekki nema 33 m/sek, næstum strætófært en Inga er þreytt og mér líst líka vel á fyrramálið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bloggaði að sjálfsögðu um frækna frammistöðu þína krúsulingurinn minn.  Þú varst mjög til fyrirmyndar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.11.2007 kl. 22:23

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Mér fannst eins og ég hefði verið þarna sjálfur. Var reyndar búinn að panta Harry Potter hjá Óla en í staðin koma bara einhver Óliver Snúningur.

Þið fallegu stæróskvísur hafið slegið í gegn, og Bjarni líka, pínu. (djók)

En til hamingju Gurrí. Liggur við að maður hætti sér í Skrúðgarðinn til að berja goðið augum.

Þröstur Unnar, 30.11.2007 kl. 22:41

3 Smámynd: Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir

Til hamingju þú varst frábær - ég horfði náttúrlega á netinu -enda búin að lýsa yfir dauða sjónvarpsins :) en þú varst líka góð á netinu!

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, 30.11.2007 kl. 22:52

4 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Þú varst flott í sjónvarpinu - og þið stóðuð ykkur vel. Oliver Twist var auðvitað snilldarval. Hlakka til að sjá úrslitin......

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 30.11.2007 kl. 23:38

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sá þig sæta mín. Vissi að þú mundir ekki klikka á Oliver.  Gaman að þið skylduð vinna. Þó bjó ég í Hafnarf. í tæp 20 ár, fannst þið bara einfaldlega betri. Til lukku og eigðu góðan helgi.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.11.2007 kl. 23:41

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Æ ég missti af ykkur en horfi á morgumn en við fylgdumst með gengið úr Brekkubæjarskóla og fengum sent sms  um niðurstöðuna! Til hamingju.

Edda Agnarsdóttir, 30.11.2007 kl. 23:45

7 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Hey þú ert bara nokkra metra í burtu frá mér. Bý nebblega í Geislalind..

Brynja Hjaltadóttir, 30.11.2007 kl. 23:54

8 identicon

Til hamingju móðir góð, þá er bara að taka Ísfirðinganna í bakaríið næst :)

Vel gert!

 Mr. Einarsson

Einar (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 00:09

9 Smámynd: Fjóla Æ.

Til hamingju með sigurinn fegurðardís. Fötin frá Nínu gerðu þig ómótsæðilega. Sá reyndar ekki á kreditlistanum að þú hefðir fengið fötin þar.

Mér finnst þú ættir að lauma því að Bjarna að skella sér í fótsnyrtingu og fá rautt lakk á táslurnar fyrir næsta þátt. Þá gæti hann kannski orðið næstum eins fallegur og þú.

Njóttu verunnar hjá Hildu.

Fjóla Æ., 1.12.2007 kl. 00:12

10 identicon

TIl hamingju með sigurinn

Linda B. (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 00:17

11 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Til hamingju með sigurinn. Þú tókst þig vel út í sjónvarpinu mínu  ...

Hólmgeir Karlsson, 1.12.2007 kl. 00:35

12 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Þetta var skemmtilegur þáttur í kvöld og þið voruð frábær bæði Akranes og Hafnarfjörður. Þátturinn var farin að verða alvarlegri og alvarlegri eftir því sem leið á. Eða.. þátttakendur voru farnir að taka þetta alvarlegar en efni stóðu til. Síðasti þáttur með Ísafirði og Reykjanesbæ er dæmi um það.

En upp með húmorinn ! Ykkur tókst það í kvöld 

Þóra Sigurðardóttir, 1.12.2007 kl. 00:36

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Til hamingju og góðar kveðjur úr Borgarnesi. 

Anna Einarsdóttir, 1.12.2007 kl. 00:36

14 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Til hamingju krúttið mitt!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 1.12.2007 kl. 00:44

15 identicon

Þú varst svaka flott í kvöld allgjör skvísa þið stóðuð ykkur frábærlega en gat samt ekki annað en brosað þegar ég sá hvaða andstæðingar mæta ykkur í næstu ferð En þið takið þetta bara með stæl ísafjörður hvað smá djókur bara já ætli ég kíki ekki á morgun í gott kaffi í skrúðgarðinn til að sjá liðið kannski verður bara biðröð og hleypt inn í hollum hver veit gangi þér vel heim í himnaríki í bítið og hafðu góða nótt

Brynja blogg.central.is/skordal_1 (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 01:39

16 identicon

Til lukku! En ég held nú að rauðhærða galdrastelpan fyrir vestan muni vinna keppnina, enda þótt Bjarni sé með barni og líti út eins og Harry Potter!

Steini Briem (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 02:03

17 identicon

Glæsilegt hjá ykkur  Til hamingju með þáttinn þið voruð frábær og ég að springa úr Skagastolti að sjálfsögðu. Ég á sko eftir að segja þér dramaferðina heim í gær það var snilld ég dauðskammaðist mín fyrir óhemjuskapinn þegar ég var komin heim heilu og höldnu. Þú færð söguna þegar við hittumst næst

Gangi þér vel í útvarpinu FJÖLMIÐLADROTTINGIN MÍN

Sigþóra Gunnarsd (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 08:03

18 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Til hamingju!!

Ég gólaði með vélstýrunni á imbann!!! Ég skil ekkert í því af hverju þú svaraðir mér ekki... ég gólaði amk nógu hátt til að það ætti að heyrast alla leið... upp á skaga meira að segja!!

Fékkstu brennivín og sæta kalla inn um lúguna frá mér?

Heiða B. Heiðars, 1.12.2007 kl. 10:23

19 Smámynd: SigrúnSveitó

gaman að sjá þig í sjónvarpinu. Mætti halda að þú byggir 1000 mílur í burtu...rekst bara aldrei á þig!

Kærleikur...

SigrúnSveitó, 1.12.2007 kl. 10:49

20 Smámynd: www.zordis.com

Sigurvegari!  Til hamingju, á svona stundu væri gaman að geta fylgst með!  Best að hössla netið og gá hvort ég sé með töfranettengingu í morgunsárið .... Er svo ekki þátturinn á skaganum í dag?  Gangi þér vel!

www.zordis.com, 1.12.2007 kl. 11:01

21 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með sigurinn Gurrí mín það var gaman að sjá þig knús

Kristín Katla Árnadóttir, 1.12.2007 kl. 11:52

22 Smámynd: Gunna-Polly

Stóðuð ykkur eins og hetjur og þú varst svo flott í nýja dressinu . spurning að skreppa á skagann að versla jóladressið

Gunna-Polly, 1.12.2007 kl. 12:15

23 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Til hamingju, snilld, gláptum á netinu eftir tónleika :)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 1.12.2007 kl. 12:15

24 Smámynd: Guðni Gíslason

Takk Guðríður fyrir skemmtilega og hressilega keppni og ekki við öðru að búast þegar þessi skemmtilegu bæjarfélög mætast. Ekki gleyma að á áttunda áratugnum voru til Skagabrandarar sem stóðu jafnfætis Hafnarfjarðarbröndurunum þegar þessir brandarar voru sendir á milli skáta á úr Skf. Akraness og Hraunbúa. Þið fenguð svo alla landsmenn til liðs við okkur og við vorum bara grobbin af frægðinni.  Þessi þáttur færir okkur þó ekki frægð - hefði þó gert það ef við hefðum verið afspyrnuléleg en við erum bara stolt, þrátt fyrir að vera hundfúl yfir að hafa ekki unnið - bara eitt rétt svar af þremur í lokum hefði dugað. Kveðjur á Skagann.

Guðni Gíslason, 1.12.2007 kl. 15:29

25 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hæ, Gísli og takk fyrir síðast!!! Mikið voruð þið skemmtileg, alveg synd að þessi örfáu stig náðust ekki. Skammast mín fyrir að vera búin að gleyma svona öllu um sem ég lærði í skóla um endur ... kenni bara árafjöldanum síðan um það ...

Held að þið hljótið að hafa vinninginn sem SKEMMTILEGASTA sveitarfélagið.  

Guðríður Haraldsdóttir, 1.12.2007 kl. 15:37

26 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Habbnfyrðingar eru náttúrlega eiturskemmtilegt lið, það er bókað :)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 1.12.2007 kl. 16:51

27 identicon

laugardagskvöld og ég er núna fyrst að muna hvað ég ætlaði að taka upp í gær... ansans!

Hulda (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 18:20

28 identicon

Allt gott og blessað,hamingju með sigur,en ansi fengu liðin fá stig.Undiritaður Númi er alveg hissa á því hvernig þið gátuð giskað á spurninguna um sóp á laufblöðum.Þú komst vel út á skjánum,og ef Númi væri laufblað mundi hann alveg vilja fjúka í fangið á þér,en helst ekki ef það eru 33,metrar á sekúndu.

Númi (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 22:06

29 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Til hamingju með sigurinn Gurrí mín, þú hefðir átt að heyra vonbrigðargólið sem ég rak upp þegar ég sá hverjum þið drógust á móti í aðra umferð.  (Lofa að mæta í sjónvarpssal).  Hefði samt viljað sjá þig taka sýsla frænda í bakaríið.......

Sigríður Jósefsdóttir, 1.12.2007 kl. 22:37

30 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, Númi, það hefði verið gaman að fá fleiri stig, vonandi næst!

Ætla að leyfa mér að vona að Ísfirðingar séu orðnir svo sigurvissir að þeir slaki aðeins á ... múahahhahah

Hulda, þú getur séð þetta á Netinu, á www.ruv.is.  

Guðríður Haraldsdóttir, 1.12.2007 kl. 22:59

31 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hefði kommenterað á þetta fyrr, en ég er búin að vera í æfingabúðum með Ísafjarðarliðinu uppi á Hveravöllum sl. þrjár vikur, svo þetta fór framhjá mér þar til núna.

Ísfirðingar vita að það má ekki slaka á, Skagamenn eru alræmdir fyrir að bruna fram og stela sigri.

Sjáumst í sjónvarpslandi.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 3.12.2007 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 56
  • Sl. sólarhring: 338
  • Sl. viku: 1935
  • Frá upphafi: 1454809

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 1569
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Bakklóra
  • Snorri og Patrik
  • Vifta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband