8.1.2008 | 13:41
One of these days ...
Þetta er greinilega einn af þessum dögum ... Byrjar vel og heldur áfram að vera góður. Sjúkraþjálfunin var stórkostleg að vanda og nú svíf ég um í stað þess að hökta. Vöðvabólgan er a.m.k. mun betri. Súpan í Skrúðgarðinum var ekki bara góð, hún var æðisleg. Ég hvet alla Skagamenn til að smakka hana og það er líka alveg þess virði að koma alla leið frá Vopnafirði fyrir hana. Í póstkassanum beið geisladiskur, fullur af myndum af afa, ömmu, frændfólki, okkur Míu systur þegar við vorum litlar. Mikið er hann Þorgeir frændi minn frábær. Nú verður hringt í kappann og honum færðar miklar þakkir. Skelli inn frekar nýlegri mynd af okkur Míu systur þar sem sést hvað hún var góð stórasystir.
Áramótabjúgurinn er að hverfa og útlit fyrir að ég verði huggulegri í sjónvarpinu á föstudaginn en ég er núna, ekki það að það sé ekki sætt að vera bólginn og búttaður en kröfur þjóðfélagsins kalla á annað. Á meðan ég er horuð miðað við Keikó þá er ég sjálf ánægð. Ég prófaði að fara að taka inn Aloa Vera-safa og hann virðist hafa rosalega góð áhrif á mig. Hilda systir hefur hrósað honum mikið og á meðan Davíð, sonur hennar, lá í veikindunum (sama og hrjáði Björn Bjarnason) var henni bent á safann og segir að hann hafi hjálpað Davíð mikið. Ég hélt alltaf að þetta væri svo bragðvont en svo er alls ekki.
Ég tók einu sinni viðtal við Jónínu ljósmóður hér á Akranesi. Hún var orðin mikill sjúklingur og var flutt í þægilega íbúð sem hentaði veikburða manneskju betur. Hún fór að taka inn Aloa Vera og bera á sig hitakrem og slíkt og hviss bang, allt gjörbreyttist. Mér skilst að hún þjóti um allt núna og selji þessar vörur og það er eiginlega henni og viðtalinu að þakka að mér datt í hug að prófa. Það er líka að hluta til Jónínu að þakka að ég flutti á Skagann fyrir tveimur árum. Hún bjó í þægilegu íbúðinni sinni við Langasandinn og ég hékk úti í glugga hjá henni á milli þess sem ég tók viðtalið við hana. Þarna var einu fræinu sáð sem endaði með að ég keypti himnaríki. Hjónin sem eiga Ozone-tískuverslun búa líka á Jaðarsbrautinni og sama má segja um fræ ... fór í innlit í flotta raðhúsið þeirra og þráin í sjóinn bærði harkalega á sér. Maðurinn seldi mér einmitt svo flottar buxur í dag en búðin er akkúrat mitt á milli Betu sjúkraþjálfara og Skrúðgarðsins. Í nýlegri færslu um staðalímyndir var ég búin að komast að því að ég væri kynóður búðahatari en þegar buxnaeignin er komin niður í einar buxur þá þarf að gera eitthvað í því ... það var ekkert kvalafullt, enda fékk ég fína þjónustu og flottar buxur. Vildi bara að ég hefði farið fyrr, útsalan er komin langt á veg og margt hreinlega búið.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 2
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 626
- Frá upphafi: 1506025
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 512
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Áramótabjúgurinn að hverfa?
Ertu þá hætt við að vera Jabba The Hut á næsta grímuballi? Þú sem ætlaðir að spara og leggja ekki meira í búninginn en nokkra ljósatíma.
Breiðholtshatarinn (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 13:50
Það er reyndar þrælsnjallt að borða hamborgarhrygg skömmu fyrir grímudansleiki ef maður ætlar að vera barbapabbi eða Jabba (sem er aftur hver?).
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 8.1.2008 kl. 13:54
Hvar fæst svona Aloe Vera safi?
Lára Hanna Einarsdóttir, 8.1.2008 kl. 13:56
Prófaðu Jónínu ljósmóður, hún er með síma 862 2023, veit að hún vinnur líka í Rvík.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 8.1.2008 kl. 14:06
Safinn góði.Hann smakkaði ég og fékk innan tveggja tíma frá inntöku þá mestu hreinsun sem ég hef lent í. Upp og niður.Út og suður.Hann virkar víst betur á suma en aðra
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 14:07
Vá, þetta hefur aldeilis virkað á þig. Alltaf gott að fá hreinsun ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 8.1.2008 kl. 14:12
Hvernig gengur annars að keyra út Einarsbúðardagatölin...? Þröstur var búinn að lofa þér til mín um tvöleytið en ekkert bólar á þér og dagatalinu...
Lára Hanna Einarsdóttir, 8.1.2008 kl. 14:50
Jabba The Hut er fígúra úr Star Wars að mig minnir.
Bryndís R (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 15:05
Heheh, sá þetta hjá Jennýju, flott þegar einhver tekur upp á því að ráðstafa tíma manns í öllum rólegheitunum ... Annars vantar mig dagatal úr Einarsbúð og annað úr Kjötborg við Ásvallagötu!!! Best að vaða í það!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 8.1.2008 kl. 15:07
Gleðilegt ár Gurrí mín og takk fyrir skemmtilega bloggvináttu á liðnu ári!
...og skál í vöðvabólgu! Veturinn er ekki vinur minn.
Laufey Ólafsdóttir, 8.1.2008 kl. 16:37
Ég er líka með Aloe vera safa og krem.knús á þig elsku dúlla.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.1.2008 kl. 17:50
Talaði við þá í Kjötborg áðan þegar ég fór að kaupa mjólk og rúgbrauð. Fékk dagatalið mitt og sagði þeim að þú værir á leiðinni að sækja þitt. Hefði lesið það á blogginu að þú færir að koma. Kaupmaðurinn góði spurði hvort ég vildi ekki bara taka eitt fyrir þig en ég sagði að hann yrði bara svo glaður að sjá þig að best væri að hann geymdi það enn um stund og þegar þú kæmir ætti hann að senda þig beint í kaffi til mín. Já ég og kaupmaðurinn látum ekki okkar eftir liggja með að ná þér í vesturbæinn gamla mín. ÞETTA ER ÓGEÐSLEGA FLOTT DAGATAL...
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.1.2008 kl. 19:43
Best ég sendi þér eitt dagatal .... í pósti þar sem mitt er á Spáni!
En, mér finst sætustu tvibbarnir kenna til þín .... ekki að furða að fríðleik þeirra!
www.zordis.com, 8.1.2008 kl. 19:51
Prófaði einhvern tíma þennan Aloe Vera, fannst hann svo vondur á bragðið (ég er algjör aumingi, veitða), er núna að reyna trönuberjahylkin. Það er samt alveg dásamleg hvað vigtin droppar niður þegar bjúgurinn eftir allt reykta kjötið fer Hlakka til föstudagsins
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 21:57
Anno krútt. Ég drekk þetta sem er í hvítu og rauðu brúsunum og það er alls ekki bragðvont. Fékk mér reyndar líka þetta gula en er ekki byrjuð á því, skilst að það sé bragðverra ... en það venst. Svo sagði Davíð frændi sem prófaði hvorttveggja.
Loksins, Zordís, segir einhver eitthvað um þetta gullfallega barn á myndinni, mig!!! Þú ert hér með komin í geggjað uppáhald, enn meira en áður, heheheh!
Knús, Laufey og Katla.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 8.1.2008 kl. 22:07
Takkkk, Katrín fyrir að vera flutt í Vesturbæinn og versla í Kjötborg, plássið mitt var svo vandfyllt .... hehehehe
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 8.1.2008 kl. 22:08
Fallegar systur þarna á mynd En mér er spurn hvar er þessi Merkilega merking Himnaríki? kv Brynja
Brynja www.skordal.bloggar.is (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 23:04
Stal henni af síðu vélstýrunnar sem er hoppandi upp um fjöll og firnindi öll sumur. Anna bloggar undir www.velstyran.blog.is ... kannski sér hún þetta og kommentar, annars skal ég vaða í að spyrja hana. Þorði ekki að skrökva að þér að þetta væri við Jaðarsbraut, hæg heimatökin fyrir þig að tékka ... heheheh
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 8.1.2008 kl. 23:45
Legg til að ,,ritari ,,hér á undan skýri það út ,hvort að dagatalið frá Kjötborg sé fallegt eða þá einsog hún segir:´´ ógeðslega flott dagatal,,hver vill eiga svoleiðis dagatal,,,,,,,,,og Fröken Guðríður,veljum íslenskuna allt of mikið af enskuslettum eru í okkar máli.
jensen (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 23:55
Ritari no 12 á þettað að vera
jensen (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 23:56
Alltaf jafn hressandi skottið mitt. Ég hef heyrt undrasögur hjá fólki sem drekkur Aloe Vera, örugglega gott, ég er auli og finnst þetta ógeðsdrykkur. Kveðja á Skagann og í Himnaríki.
Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2008 kl. 00:26
Aloe Vera safinn inniheldur um 75 vítamín og hvata. Þið finnið ekki annað hráefni jurtaríkisins sem er jafn hollt. Ég tek fram að ég er ekki að selja þennan safa þó að ég selji Aloe Vera húðvörur, aðallega undir merkinu Banana Boat. En ég hef lesið mér mikið til um Aloe Vera jurtina og eftir því sem ég kemst næst er Aloe Vera safi Forever Produckt sá besti á markaðnum þó að ég sé ekki að selja hann.
Jens Guð, 9.1.2008 kl. 00:58
Sætar systur.
Keypti eplaedik í gær sem maður blandar 1 msk út í vatnsglas og drekkur ca 2 - 3 glös á dag. Þetta svínvirkar til að ná af sér bjúg.
Marta B Helgadóttir, 9.1.2008 kl. 09:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.