10.3.2008 | 10:13
Frýs í æðum blóð
Hvílíkur kuldi í morgun. Áttaði mig á því á stoppistöðinni við Garðabraut að einn trefill nægði ekki, kuldaboli beit svo fast að þetta var sannkallað þriggja trefla veður. Gummi (34) var farinn að keyra aftur eftir vikulasleika og heilsaði hressilega að vanda. Ég settist fyrir framan stillilega og rólyndislega stúlku en maður skyldi aldrei láta útlitið blekkja sig. Hún reyndist mikil skrafskjóða þegar kunningjakona hennar settist hjá henni og þær báðar. Nú veit ég ALLT um þessar konur ... og ég sem ætlaði að reyna að dorma á leiðinni. Þær þögnuðu reyndar þegar strætó fór í göngin en um leið og við komum upp úr þeim þá áttaði ég mig á því að þær ganga fyrir dagsbirtu. Ég hef nóg efni í lífsreynslusögur næstu árin.
Ungi maðurinn í leið 18, þessi sem vinnur hér í húsinu, er hættur að vera hræddur við mig og hleypir mér alltaf inn bakdyramegin. Þurfti því að ganga í gegnum matsalinn. Mikill fnykur var þar og datt mér helst í hug að þorramatur yrði á boðstólum ... en það verður reyndar plokkfiskur. Greinilega stappaður saman við þorramat. Hver vill bjóða mér í mat í hádeginu? Ég skal borga. Fyrstir koma - fyrstir fá!
Ég á afar skemmtilegt verk fyrir höndum í dag, eða að þýða kynstrin öll af bröndurum. Það fer í krossgátu- og afþreyingarblað Vikunnar sem kemur út fljótlega. Ef þið lumið á einhverjum góðum sem ekki hafa birst í öllum fjölmiðlum og gengið manna á milli í tölvupósti þigg ég alveg ...
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 212
- Sl. viku: 641
- Frá upphafi: 1505932
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 516
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
hvar var kuldi það var frekar hlýtt hjá mér
Ólafur fannberg, 10.3.2008 kl. 10:43
Úti á stoppistöð var kalt, enn kaldara á stoppistöðinni í Mosfellsbæ og langkaldast á stoppistöðinni í Ártúni. Hefði að sjálfsögðu klætt mig betur ef mig hefði grunað þetta ... Hlýrri peysa, þrír treflar og svona.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 10:53
Það er gott að heyra að það sé kalt úti þar sem ég er heima með veikt barn og við vorum að öfundast út í snjóinn að fá að vera úti í sólinni
Þórunn María Örnólfsdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 10:58
Ég las "hver vill bjóða mér í glas í hádeginu" og ætlaði að bjóða mig fram...
Hef ekkert gott af að vera að éta..en hefði alveg verið til í öl
Ég meina..það er helgi hjá mér núna.
Brynja Hjaltadóttir, 10.3.2008 kl. 11:06
Í glas í hádeginu ... hahahahhaha, sjúr, Brynja! Þórunn, vertu bara inni í hlýjunni, það er gluggaveður núna. Brrrrr
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 11:10
Ég var að velta því fyrir mér að skreppa í Nóatún, Nóatúni 17 105 RVK, og skella mér á fríkadellur eða bara kálböggla. Þú ert að sjálfsögðu velkomin þangað líka, en verður að standa straum af tilfallandi kostnaði, sem af kann að hljótast.
Séntilmaður 2008.
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 11:19
Guðmundur minn, ekki séns að ég nenni í strætó niður í Nóatún. Það myndi taka mig einn og hálfan tíma fram og til baka. Ætla bara að fá mér grænmetisréttinn í mötuneytinu og halda fyrir nefið á meðan ég borða. Hvernig dettur kokkinum í hug að bjóða upp á plokkfisk úr SALTFISKI? Fýlan var af saltfiskinum í morgun.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 11:38
þarf að fara skreppa með strætó virðist alltaf stuð þar en hló mikið núna þær ganga fyrir Dagsbirtu snild En Plokkfisk úr saltfiski gæti verið gott ég hefði smakkað svona fnykur seigir ekkert hvernig hann bragðast eins er með hákarlinn hafðu góðan dag
Brynja skordal, 10.3.2008 kl. 12:18
Ég hef verið með saltfiskplokkfisk í fínum veislum sem ég hef eldað fyrir. Brúðkaupsveislu meiraðsegja. Það kvartaði enginn yfir því ...
Nanna Rögnvaldardóttir, 10.3.2008 kl. 12:58
Á ég annars að trúa því að þú hafir ekki smakkað saltfiskplokkfiskinn í fimmtugsafmælinu mínu? Það voru sko engar döðlurmöndlurhneturrúsínur í honum.
Nanna Rögnvaldardóttir, 10.3.2008 kl. 13:00
Heheh, fordómar hjá mér, af því að lyktin var svo vond í mötuneytinu. Jú, ég smakkaði þennan fína plokkara í afmælinu þínu, Nanna. Allt sem ég smakkaði þar var æðislegt, ekkert skrýtið ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 13:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.