Frýs í æðum blóð

Snæfinnur á stoppistöðinniHvílíkur kuldi í morgun. Áttaði mig á því á stoppistöðinni við Garðabraut að einn trefill nægði ekki, kuldaboli beit svo fast að þetta var sannkallað þriggja trefla veður. Gummi (34) var farinn að keyra aftur eftir vikulasleika og heilsaði hressilega að vanda. Ég settist fyrir framan stillilega og rólyndislega stúlku en maður skyldi aldrei láta útlitið blekkja sig. Hún reyndist mikil skrafskjóða þegar kunningjakona hennar settist hjá henni og þær báðar. Nú veit ég ALLT um þessar konur ... og ég sem ætlaði að reyna að dorma á leiðinni. Þær þögnuðu reyndar þegar strætó fór í göngin en um leið og við komum upp úr þeim þá áttaði ég mig á því að þær ganga fyrir dagsbirtu. Ég hef nóg efni í lífsreynslusögur næstu árin.

Ungi maðurinn í leið 18, þessi sem vinnur hér í húsinu, er hættur að vera hræddur við mig og hleypir mér alltaf inn bakdyramegin. Þurfti því að ganga í gegnum matsalinn. Mikill fnykur var þar og datt mér helst í hug að þorramatur yrði á boðstólum ... en það verður reyndar plokkfiskur. Greinilega stappaður saman við þorramat. Hver vill bjóða mér í mat í hádeginu? Ég skal borga. Fyrstir koma - fyrstir fá!

Ég á afar skemmtilegt verk fyrir höndum í dag, eða að þýða kynstrin öll af bröndurum. Það fer í krossgátu- og afþreyingarblað Vikunnar sem kemur út fljótlega. Ef þið lumið á einhverjum góðum sem ekki hafa birst í öllum fjölmiðlum og gengið manna á milli í tölvupósti þigg ég alveg ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

hvar var kuldi það var frekar hlýtt hjá mér

Ólafur fannberg, 10.3.2008 kl. 10:43

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Úti á stoppistöð var kalt, enn kaldara á stoppistöðinni í Mosfellsbæ og langkaldast á stoppistöðinni í Ártúni. Hefði að sjálfsögðu klætt mig betur ef mig hefði grunað þetta ... Hlýrri peysa, þrír treflar og svona.

Guðríður Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 10:53

3 identicon

Það er gott að heyra að það sé kalt úti þar sem ég er heima með veikt barn og við vorum að öfundast út í snjóinn að fá að vera úti í sólinni

Þórunn María Örnólfsdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 10:58

4 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég las "hver vill bjóða mér í glas í hádeginu" og ætlaði að bjóða mig fram...

Hef ekkert gott af að vera að éta..en hefði alveg verið til í öl

Ég meina..það er helgi hjá mér núna.

Brynja Hjaltadóttir, 10.3.2008 kl. 11:06

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Í glas í hádeginu ... hahahahhaha, sjúr, Brynja! Þórunn, vertu bara inni í hlýjunni, það er gluggaveður núna. Brrrrr

Guðríður Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 11:10

6 identicon

Ég var að velta því fyrir mér að skreppa í Nóatún, Nóatúni 17 105 RVK, og skella mér á fríkadellur eða bara kálböggla. Þú ert að sjálfsögðu velkomin þangað líka, en verður að standa straum af tilfallandi kostnaði, sem af kann að hljótast.

Séntilmaður 2008.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 11:19

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðmundur minn, ekki séns að ég nenni í strætó niður í Nóatún. Það myndi taka mig einn og hálfan tíma fram og til baka. Ætla bara að fá mér grænmetisréttinn í mötuneytinu og halda fyrir nefið á meðan ég borða. Hvernig dettur kokkinum í hug að bjóða upp á plokkfisk úr SALTFISKI? Fýlan var af saltfiskinum í morgun.

Guðríður Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 11:38

8 Smámynd: Brynja skordal

þarf að fara skreppa með strætó virðist alltaf stuð þar en hló mikið núna þær ganga fyrir Dagsbirtu snild En Plokkfisk úr saltfiski gæti verið gott ég hefði smakkað svona fnykur seigir ekkert hvernig hann bragðast eins er með hákarlinn hafðu góðan dag

Brynja skordal, 10.3.2008 kl. 12:18

9 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Ég hef verið með saltfiskplokkfisk í fínum veislum sem ég hef eldað fyrir. Brúðkaupsveislu meiraðsegja. Það kvartaði enginn yfir því ...

Nanna Rögnvaldardóttir, 10.3.2008 kl. 12:58

10 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Á ég annars að trúa því að þú hafir ekki smakkað saltfiskplokkfiskinn í fimmtugsafmælinu mínu? Það voru sko engar döðlurmöndlurhneturrúsínur í honum.

Nanna Rögnvaldardóttir, 10.3.2008 kl. 13:00

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheh, fordómar hjá mér, af því að lyktin var svo vond í mötuneytinu. Jú, ég smakkaði þennan fína plokkara í afmælinu þínu, Nanna. Allt sem ég smakkaði þar var æðislegt, ekkert skrýtið ...

Guðríður Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 239
  • Sl. sólarhring: 422
  • Sl. viku: 2356
  • Frá upphafi: 1456306

Annað

  • Innlit í dag: 216
  • Innlit sl. viku: 1974
  • Gestir í dag: 212
  • IP-tölur í dag: 208

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband