Ör-fermingarveislur dagsins

KjötsúpaHéðan var haldið skömmu fyrir hádegi með Tommabíl (strætó) til að afplána tvær fermingarveislur í Reykjavík. Afplánun er auðvitað rangt orð og bara djók, þetta var frábært. Tvær frænkur mínar, Ylfa og Anita, voru fermdar í Hallgrímskirkju í morgun og veislurnar haldnar heima hjá þeim ... á Grettisgötunni, kl. 14 og 15. Skemmtileg tilviljun ... þær eru ekkert skyldar. Eins og alþjóð veit er Grettisgatan nálægt Hlemmi og skipulagning dagsins miðaði við að taka strætó þaðan kl. 15.45.

TertaBeið til tæplega tvö eftir Hildu í Kaffitári, Bankastræti og sötraði fyrri latte dagsins. Er ekki yfirleitt vont kaffi í fermingarveislum? Ja, ekki fékk ég að prófa þá kenningu. Þetta voru nefnilega ör-fermingarveislur. „Gjörið svo vel,“ var nefnilega sagt 10 mínútum áður en ég þurfti að yfirgefa samkvæmnin, líklega Aðgerðin setjum Gurrí í megrun eftir páskana-dæmi. Hjá Höllu frænku (mömmu Ylfu) var kjötsúpa, alveg tryllingslega góð. Tvær kökur voru á borðinu, hjá súpunni,  hnetukökur. Gat ekki stillt mig um, þegar ég knúsaði Höllu bless, að þakka fyrir „dásamlegu hnetukökurnar“ ... og hló hæðnislega með dassi af beiskju. „Hnuss,“ sagði Halla, „ég faldi aðalterturnar fyrir þér inni í eldhúsi.“ Í ljós kom að dýrðarinnar tertuveisla var um það bil að hefjast og súpudruslan var bara til að hita gestina upp.

Indverskur maturHilda þurfti að draga mig út á hárinu því næsta fermingarveisla átti að hefjast klukkan 15, eða 45 mínútum fyrir áætlaða brottför frá Hlemmi. Við hlupum niður Grettisgötuna og fældum hvæsandi ketti og hræddum gamlar konur í öllum látunum. Hjá Anitu var æðislegt hlaðborð með indverskum réttum og ég fann hvernig skipulagið fór smám saman að riðlast í huga mínum, sérstaklega af því að það var ekki sagt gjörsovel strax. Seinir gestir og slíkt. Skrattinn á hægri öxl hvíslaði að mér að ég gæti bara tekið leigubíl í Mosó, til hvers að fara með strætó 15 og húka svo í Mosó í 40 mínútur í svona brunagaddi? Skrattinn á vinstri öxl samþykkti það með öllu greiddu atkvæði.

Hilda daðrar við TommaVið náðum þó að fá okkur mat áður en hringt var í Hildu vegna vinnunnar, hún var á bakvakt eða eitthvað. Við rukum í Kópavoginn og hún reddaði málum ... og þar sem leigubíllinn sem beið við staurinn þarna rétt hjá hvarf ákvað hún bara að skutla mér í Mosó. Hún flautaði svo og veifaði daðursfullt til Tomma, gamla bekkjarbróður síns, sem beið þolinmóður á stoppistöðinni eftir Gurrí sinni. Hilda, ég er þér afar þakklát fyrir skutlið ... en Tommi er minn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

OOOHHH, varstu í veislu hjá Höllu? Rosalega ert þú alltaf heppin. Bið svakalega vel að heilsa henni næst þegar þú heyrir í henni. En hvarflaði í alvörunni að þér að húka á stoppistöð í 40 mínútur í þessum gaddi? Er ekki allt í lagi með þig? Fyrr færi ég á puttanum með öskubíl eða hvaða öðru farartæki sem er. Eins gott að skrattinn hefur vit fyrir þér.

Helga Magnúsdóttir, 30.3.2008 kl. 18:59

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það sem ég gerði þessar 40 mínútur kemur í næstu færslu! Þetta var orðið eins og BA ritgerð hjá mér ...

Guðríður Haraldsdóttir, 30.3.2008 kl. 19:08

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég held að þú hafir verið alveg gasalega heppin að missa af földu tertunni, ef myndin er af henni ..... !

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:35

4 identicon

ÓKEY ÞÁ!!!

Hilda systir (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 23:28

5 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Já Hilda, ekkert daður við Tomma

Guðrún Jóhannesdóttir, 31.3.2008 kl. 01:48

6 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Hvaða strætóvesen er þetta.... bara fá skutl 

Svala Erlendsdóttir, 31.3.2008 kl. 09:34

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 31.3.2008 kl. 14:44

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þið strætó-ferðandi-fólk eruð sannar hetjur. Ég held ég myndi bara flippa út, svei mér þá.

Ég get ekki annað en hlegið að þessari færslu. Vona bara að næst þegar þetta fólk er með fermingarveislu segi það gjössovel a.m.k. 20 mínútum áður en þú átt að vera mætt í strætó

Jóna Á. Gísladóttir, 31.3.2008 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 90
  • Sl. sólarhring: 423
  • Sl. viku: 1114
  • Frá upphafi: 1459622

Annað

  • Innlit í dag: 79
  • Innlit sl. viku: 892
  • Gestir í dag: 78
  • IP-tölur í dag: 78

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DollyParton
  • Jason-Statham
  • 12. ágúst sko

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband