31.3.2008 | 17:50
Draugabær í rafmagnsleysi
Mikið var andrúmsloftið eitthvað skrýtið í Mosfellsbæ seinni partinn. Eftir megalangt rafmagnsleysi í vinnunni (Hálsaskógi) þar sem tíminn var notaður til að þrífa, taka til, henda og breyta smá þótt mér nú nóg komið. Var frekar snemma á ferð í Mosó, ætlaði í góða bakaríið hjá Krónunni og var í miklu kaffistuði. Nei, þar var lokað vegna rafmagnsleysis. Ég leit í kringum mig og sá enga hreyfingu, allt dautt. Meira að segja bílarnir óku löturhægt og varla var hræðu að sjá. Eftir mikla vatnsdrykkju í vinnunni í dag leitaði ég örvæntingarfullt að stað með snyrtingu ... og það var bara í KFC sem dyrnar stóðu opnar. Elskulegheitin voru svo mikil þar að mér var ekki hleypt út af staðnum aftur fyrr en ég var búin að fá kaffibolla.
Ástkær strætóbílstjórinn gætti þess að spilla okkur farþegunum ekkert of mikið og mætti á sekúndunni XX.45 (á brottfarartíma) í Háholt og hleypti okkur inn í vagninn. Hinir bílstjórarnir mæta alltaf nokkuð fyrr á stoppistöðina, enda eru þeir minna fyrir að reyna að kenna okkur að lífið sé ekki dans á rósum, og geta þá lagt af stað á Skagann á réttum tíma. Hlini nöldraði yfir þessu fyrir hönd okkar hinna, hann skalf ekki jafnmikið og gat því talað. Við þiðnuðum aðeins á leiðinni en það er samt enn í mér hrollur. Það var svo hvasst í Mosó að ég bjóst við miklum vindhviðum á leiðinni en svo var alls ekki. Lauk bókinni Jaðiaugað í Kollafirðinum og nagaði mig í handarbökin fyrir að hafa ekki tekið aðra bók með.
Ég hef mikið talað um sparsemi undanfarið við erfðaprinsinn og það að draga saman seglin í himnaríki. Tók sem dæmi lúxusmatinn hans Tomma, kjöt í sósu, ekki samt í dós. Bréfið kostar 50 kall og erfðaprinsinn lætur þetta ganga fyrir öllu, meira að segja mjólkinni út í kaffið. Við erfðaprins skruppum í Krónuna um helgina þar sem sitt af hverju gleymdist að kaupa í Einarsbúð fyrir lokun á föstudag. Það vantaði kaffi og ég teygði mig eftir Expressó frá Kaffitári. Erfðaprinsinn var sneggri í snúningum, greip gulan Braga (100 kr. ódýrari) úr hillunni, setti í körfuna og sagði: Fyrst Tommi þarf að þjást ... Ja, Tommi fékk lúxuskattamat þann daginn. Fyrir flutning erfðaprins í himnaríki lifði Tommi góðu lífi á þurrmat, nú skælir hann og vælir þangað til samúðarfullur prinsinn lætur þetta eftir honum ... Ég hef áður bloggað um veiklyndi karlmanna gagnvart köttum og nefndi þar sem dæmi mág minn sem fer minnst tvisvar á dag í fiskbúðina fyrir elskuna hann Bjart sinn.
Nick er brjálaður vegna kossins, eða þegar Ridge notfærði sér Brooke á tískusýningunni og smellti á hana einum blautum fyrir allra augum. Nick reynir að banna henni að koma nálægt skrifstofum Forrester-veldisins ... sem er erfitt vegna þess að hún er framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Ridge hagar sér eins og ástsjúkur strákur og lætur Brooke ekki í friði. Eins og allir vita þá er Brooke trúlofuð fyrrum tengdasyni sínum, Nick, og Ridge ætlar að gera allt til að koma í veg fyrir að þau giftist. Dóttir Brooke, hún Bridget, þjáist enn yfir fyrirhuguðu brúðkaupi Feliciu og Dante, mannsins sem hún elskar. Það styttist í að Taylor (sú dökkhærða) verði meira áberandi í þáttunum ... úúúúúú!
Annars bara allt í orden í boldinu.
Enn rafmagnslaust í Mosfellsbæ og hluta Grafarvogs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 8
- Sl. sólarhring: 37
- Sl. viku: 642
- Frá upphafi: 1505995
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 519
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Kaffikonur geta sparað við sig í flestu - en alls ekki í góðu kaffi!
Lára Hanna Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:54
Flott hjá þér að hugsa um sparna. Ég er ekki komin svo langt, Drekk ekki kaffi en Stjáni kaupir ekkert nema lúxuskaffi og segir að það endist vel þar sem hann er sem hann er eini kaffisvolgrandi glefsirinn á heimilinu.
Helga Magnúsdóttir, 31.3.2008 kl. 18:27
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 19:13
Já nú verða sultarólirnar (allar) hertar þvílíkt. Knús.
Jenný Anna Baldursdóttir, 31.3.2008 kl. 19:21
Á morgunn fær mitt 'ketti' djúpsteiktann skötusel.
Tek öngvann séns á þessu með eðalkaffileysið...
Steingrímur Helgason, 31.3.2008 kl. 21:06
Ég er svangur eftir þennan lestur. Öngvar kökur og krásir og finn ekki sultarólina mína.
Þröstur Unnar, 31.3.2008 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.