Skilaboð frægs fólks að handan ...

Fínasti föstudagur í dag. Ástkær erfðaprinsinn sótti mig í vinnuna seinnipartinn og tók kassa með tímaritum fyrir sjúkrahúsið á Akranesi. Konan í móttökunni þar sagði okkur að fara upp á deild með megnið af blöðunum og þá gafst mér kærkomið tækifæri til að sýna prinsinum, hvar hann fæddist fyrir 27 árum og 364 dögum. Eitt andartak datt mér í hug að biðja indælu ljósmóðurina um að leyfa mér að sviðsetja fæðinguna en það voru því miður ekki nema 15 mínútur í að Einarsbúð lokaði.

Skilaboð frá Bing CrosbyÁ bloggsíðu sem ég skoðaði í gær sá ég hlekk http://isl.reglan-cancercure.com/ sem ég ákvað að forvitnast um. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Þarna mátti finna margt ansi athyglisvert, meira að segja skilaboð Jesú Krists til heimsins. Einnig stendur þar orðrétt: „Hjá okkur í himnaríki eru nú yfir 438.000 íslendingar og nokkuð af FRÆGU FÓLKI.“ Ekki séns að ég nenni að gera veður út af notkun þessa góða fólks á nafni heimilis míns en ég kíkti í hvelli á fræga fólkið. Þar mátti m.a. sjá: Jóhannes Pál páfa II, Önnu Lindh, Anthony Quinn, Onassis-feðginin, Bing Crosby, Charlie Chaplin, Díönu prinsessu, Elvis Presley, George Best, John Candy, „Merilin Monro“, Grace Kelly og furstann, mann hennar, Christopher Reeves og Rock Hudson. Nokkrar myndir eru af hverjum og ef maður ýtir á þá fyrstu koma skilaboð að handan frá FRÆGA FÓLKINU. Klikkaðu á myndina af Bing Crosby og þú getur lesið skilaboð til Íslendinga

Í skilaboðum frá Önnu Lindh segir. „Take care of what you do, and where you go. Don´t take life for granted. With help from Reglan I can bring this message to you. Thank you for remembering me. My blessing and love to my family.“
Charlie Chaplin segir m.a. „If you are lonely, think about me. Bless you all.“

 

Viðbót: Ég gleymdi aðalatriðinu og bæti því við núna ... þetta eru samtök sem starfa með 105 læknum og 137 hjúkrunarfræðingum. (The treatments are performed by us in co-operation with 104 doctors, 135 nurses in all categories of medical science. The doctors and nurses were practising in their earthly life, and are practising now with blessing of our Holy Father Jesus Christ.) Loforð er gefið um lækningu við sjúkdómum, bæði andlegum og líkamlegum. Stundum tekur bara einn sólarhring að lækna sjúkdóm sem tekur jafnvel vikur eða mánuði á venjulegum sjúkrahúsum. Einnig læknast sjúkdómar sem dauðlegir læknar hafa gefist upp við að lækna. Engar dýrar skurðaðgerðir, langar sjúkrahúslegur, engin lyf og engin þjáning. Vantar bara Enginn kostnaður og þá væri þetta æði!

Hér koma síðan skilaboð JK til heimsins ... á ensku líka:
Message from Jesus Christ to the World
„All the people in the World must understand that I don’t take life, drive the car, create Cancer, diseases or other sickness in people, I am here to help. I see that in this World, that people take their own life and others. My message to you, to understand, is that nobody has the right to take their own life or others. They took my life, why? The cruelty is even more to day, than when I was killed. It is your responsibility to live this life on the Earth with respect for other people, and everything else that lives. This is a message from me to the entire World. My Kingdom is not open for all people. The Priest or the Bishop can not open my Kingdom, for those people who don’t listen to me or don’t believe in me. I am here to help people, if they ask me to with their Prayer. Often the Prayer comes to late, use the Prayer every day.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jamm, það er nefnilega það. Og hvað kostar svo lækningin? Ætli farið sé eftir gjaldskrá Ríkisspítala? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.4.2008 kl. 21:16

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahahha, einmitt! Ansi margir dollara, hugsa ég. Veiðarnar fara fram á ensku, eins og kemur fram á síðunni! Ég hélt í alvöru að þetta væri ólöglegt! Að lofa fárveiku fólki kraftaverkalækningu.

Guðríður Haraldsdóttir, 11.4.2008 kl. 21:36

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Það er greinilega mannmargt í Himnaríki, en segi ekkert um gæðin .... En sitthvað er nú Himnaríki og Himnaríki, ekki satt, Gurrí mín kær???

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.4.2008 kl. 21:49

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Meiri snilld:  
Ósæða og aðrar æðameðferðir:
Við hreinsum útfellingar innanúr æðunum, sem há blóðfita veldur, og komum þannig í veg fyrir að blóðtappi myndist.
Eftir hreinsun, setjum við nýju uppfinniguna okkar, Blóðtappagildruna (Embolism trap), sem er einstök í veröldinni, biltingarkend aðferð í æðalækningum, sem enginn getur framkvæmt nema við. Gildran kemur í veg fyrir að blóðtappi komist frá ósæðinni til hjartans og myndi hjartastopp. Fremsti sérfærðingur í hjartalækningum í heiminum, Dr. Christiaan Barnard er einn okkar lækna. Myndir og nánari útskýringar HÉR.

Guðríður Haraldsdóttir, 11.4.2008 kl. 22:00

5 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Dísös Kræst, mar!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.4.2008 kl. 22:05

6 Smámynd: Rebbý

til hamingju með soninn á morgun

Rebbý, 11.4.2008 kl. 23:13

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Á sonurinn afmæli á morgun bara?  Til hamingju með hann.

Jesú er í góðum gír.  Vona að Jón Valur lesi hjá þér honní.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.4.2008 kl. 23:44

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Gurríar er gríðar já

og geysilegur kraftur.

Segist geta, svei mér þá,

sonin borið aftur!?

Til lukku með drengin, hann var og er enn ugglaust hið fallegasta barn!

Á afmæli réttri viku á undan mér!

ER ekki annars að styttast í Englandsför, eruð vonandi ekki hætt við!?

Magnús Geir Guðmundsson, 12.4.2008 kl. 00:53

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Flott vísa, Magnús. Jú, það styttist í Englandsför. Við frestuðum henni til lokaleiksins sem verður í kringum 13. maí. Ég óska þér fyrirfram til hamingju með daginn þinn.

Anna, held að Lennon sé ekki á listanum og þess vegna ætla ég ekki að ganga í Regluna, gefa henni allar eigur mínar og svona ... 

Guðríður Haraldsdóttir, 12.4.2008 kl. 14:07

10 identicon

Er þetta enn við lýði, ég er svo aldeilis hlessa, það var umræða um þessa "Reglu" fyrir nokkrum árum eimitt í sambandi við svikalækningar og fjárplokk. kv.gua

gua (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 14:16

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er búið að fletta ofan af þessu hérna heima en þar sem síðan er mikið til á ensku þá hafa þau víkkað út veiðisvæðið. Með sannfæringarkrafti er alltaf hægt að plata örvæntingarfullt fólk. Svona blekkingar ættu að vera refsiverðar.

Guðríður Haraldsdóttir, 12.4.2008 kl. 14:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 286
  • Sl. sólarhring: 444
  • Sl. viku: 2079
  • Frá upphafi: 1461062

Annað

  • Innlit í dag: 253
  • Innlit sl. viku: 1710
  • Gestir í dag: 251
  • IP-tölur í dag: 248

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jörgen Klopp
  • Opið hús kl. 17
  • Dýrheimar kaffihús

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband