Afmæli, kynþokkahatur og tilfinningaskylda

Með afa og Bryndísi vinkonuÞá er erfðaprinsinn loksins að verða fullorðinn. Núna kl. 14.07 í dag verður hann nákvæmlega 28 ára og geri aðrir betur. Hann fær þetta fína afmælisveður og er ánægður með daginn. Mig langaði að halda barnaafmæli, bjóða fólki í kökur en hann er ekki jafnbarnalegur og mamman, sem hefur gert slíkt frá 29 ára aldri fyrir sjálfa sig, og baðst undan því. Hann fær samt sérstakan afmælisglaðning og verður látinn ryksuga. Kannski ég plati hann í Skrúðgarðinn í súkkulaðitertu. Annars eftir bílaviðgerðarreikninginn ógurlega á dögunum ríkir níska, sparsemi og seglasamandrag í himnaríki. Hann er búinn að fá afmælis-latte í dag og ég hlýt að finna fleira til að gleðja´ann í dag. Kannski ég hafi samband við Regluna (úr síðustu færslu) borgi nokkrar milljónir þangað og fái liðið til að tryggja honum eilíft líf. Það væri nú frumleg og flott afmælisgjöf.

Annars fékk erfðaprinsinn sinn skerf af 15 mínútna frægð í gærkvöldi, loksins, og algjörlega verðskuldað. Bubbi Morthens sagðist ekki vera kynÞOKKAhatari þegar hann sendi Thelmu heim ... en þetta orð á erfðaprinsinn. Hann mismælti sig svona ógleymanlega fyrir einum 15-20 árum í Kjötborg við Ásvallagötu við mikla kátínu Tyson Holyfieldmína. Eftir það hef ég notað þetta orð reglulega í fjölmiðlum en það verður líklega ódauðlegt fyrr en eftir notkun Bubba á því. Í fréttatíma Stöðvar 2 kom örviðtal við mig vegna „bitaboxins“ fyrirhugaða sama kvöld, Tyson gegn Holyfield, þar sem sá fyrrnefndi beit eyrað af hinum. Í viðtalinu sagði ég að þeir sem hefðu eitthvað á móti boxi væru kynþokkahatarar. Á þeim árum hafði ég mjög gaman af hnefaleikum og þaut oftar en ekki úr miðju djammi á Kaffibarnum, niður Laugaveg, Bankastræti, upp Túngötu, niður Hofsvallagötu og heim ef t.d. Oscar De la Hoya eða Prins Nassim Hamid voru að keppa og guð hjálpi þeim perra sem hefði reynt að hefta för mína. Þetta orð, kynþokkahatari, notaði ég oft á útvarpsárum mínum og það hefur stundum sést í Vikunni.

Anna vinkona á líka skemmtilegt orð sem flögraði víða og var um tíma nafn á útvarpsþætti á Rás 2. Þegar hún hringdi í börnin sín og eiginmanninn talaði hún um tilFINNINGAskylduna. Snilldarorð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna og Pétur Kristjáns eiga þá tilfinningaskylduna saman því Pétur notaði þetta alltaf þegar hann hringdi í Lindu sína þegar hann spilaði út á landi.  Hann varð alltaf að muna eftir tilfinningaskyldunni.  Þetta krútt sem hann var.

Bitaboxið er brilljant.  Kynþokkahatur á ekki sinn líkan.

Til hamingju með erfðaprinsinn og skilaðu stuðkveðjum til hans héðan frá átakasvæðinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.4.2008 kl. 14:06

2 identicon

Afmæliskveðja til erfðaprinsins....er ekki klukkan akkæúrat 14. 07 núna????

katrinsnaeholm (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 14:08

3 Smámynd: Ragnheiður

nú er afmælið örugglega komið, til hamingju með afmælið strákur...

Kær kveðja

frá aðdáanda þínum nr 2

Ragnheiður , 12.4.2008 kl. 14:10

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

ohhh.ruslvarnarkerfið truflaði tímasetninguna hjá mér..en samt..eigið bara geðveikan afmælisdag saman mæðginin!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.4.2008 kl. 14:12

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk . Vissi ekki þetta með elskuna hann Pétur, samt alveg í stíl við hann.

Katrín þegar þú ýttir á takkann var ég akkúrat inni í stofu að knúsa afmælisbarnið. Ég reyndi að biðja hann um að skæla af öllum lífs- og sálarkröftum en hann flissaði bara, kannski meira við hæfi 28 árum síðar. 

Guðríður Haraldsdóttir, 12.4.2008 kl. 14:24

6 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Til hamingju með prinsinn  Ég vona að þið eigið frábæran dag elskurnar  

Katrín Ósk Adamsdóttir, 12.4.2008 kl. 14:38

7 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Til hamingju með afmælisbarnið

Svanhildur Karlsdóttir, 12.4.2008 kl. 14:42

8 identicon

Til hamingju með afmælisdag sonarins. Vona að hann lesi afmæliskveðjuna frá mér á bloggsíðunni sinni.

Ég bíð eftir matar eða kökuboði og heimta köku með 28 logandi kertum.......

Afmælisknús úr Kópavoginum :-)

Hilda systir (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 16:12

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, snúllurnar mínar. Jú, Hilda, auðvitað verður tertuveisla með 28 logandi kertum einn daginn þegar þú loksins kemst.

Guðríður Haraldsdóttir, 12.4.2008 kl. 17:39

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Til lukku með strákinn og góða helgi

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.4.2008 kl. 17:56

11 Smámynd: Binnan

Til hamingju med drenginn!

Binnan, 12.4.2008 kl. 17:57

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Innilega til hamingju með hann

Marta B Helgadóttir, 12.4.2008 kl. 22:04

13 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Til hamingju með erfðaprinsinn

Þóra Sigurðardóttir, 12.4.2008 kl. 22:33

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Til hamingju með litla barnið þitt Gurrí mín.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 23:48

15 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Til lukku með baddnið!  Mitt baddn verður 28 11. ágúst, svo þeir eru á sama ári strákarnir. En ég er MIKLU eldri en þú samt...    Tek það fram ef þú skyldir vera þannig upp alin að þú berir ómælda virðingu fyrir þér eldra fólki... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.4.2008 kl. 00:15

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk fyrir afmæliskveðjur, erfðaprinsinn er alsæll. Þetta hefur verið góður dagur sem bloggað verður um á morgun, sunnudag. Það sem kemur við sögu er: súkkulaðikaka, örlæti Maríu í Skrúðgarðinum, kjúklingur, sætkartöflustappa, steinsmiður (spennubók), leiðinlegleg DVD-mynd, svalir, kettir, handklæði, þorskastríðið, púsluspil, baðströnd, fiskeldi, skrapp ... æ, djók. Þetta verður siðuð færsla í fyrramálið.

Ég er þannig upp alin, Lára Hanna, ber nú samt enn ómældari virðingu fyrir þér sem ÞÝÐANDA BOLDSINS!!!!!!!!!!!!!! 

Guðríður Haraldsdóttir, 13.4.2008 kl. 00:37

17 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju með prinsinn, ég er viss um að hann hefur mikinn kynþokka eins og móðir hans, góðir hlutir erfast svo vel 

Ásdís Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 01:02

18 Smámynd: Þröstur Unnar

Til hamingju með litlu krúsídúlluna þína.

Þröstur Unnar, 13.4.2008 kl. 08:47

19 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sæl Gurrí. Nú er bókaspjallið hafið á síðunni minni

Marta B Helgadóttir, 13.4.2008 kl. 09:50

20 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 15:46

21 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til hamingju með afmælisstrákinn frá okkur Úlla. Úlli talar oft um Einar því honum fannst hann svo skemmtilegur þegar við fórum öll saman í bíó að sjá Lord of the Rings.

Helga Magnúsdóttir, 13.4.2008 kl. 15:47

22 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Til hamingju með erfðaprinsinn þinn! Það hefði nú verið góður leikur að halda barnaafmæli fyrir hann; ég ætla að stela þeirri hugmynd og nota við tækifæri .... !

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.4.2008 kl. 17:18

23 Smámynd: Laufey B Waage

Til hamingju með erfðaprinsinn. Þetta er nú dáldið fyndið, - systir mín átti líka afmæli í gær 12.apríl, og pabbi var fæddur 12.ágúst eins og þú.

Laufey B Waage, 13.4.2008 kl. 21:21

24 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, snúllurnar mínar. Fyndið, Laufey ... sýnir bara að þú ert í dásamlegri fjölskyldu, heheheh!

Guðný Anna, held að krakkarnir þínir yrðu heldur betur glaðir ef þú héldir þeim barnaafmæli. Býst við að erfðaprinsinn vilji bíða til þrítugs með kökuveislu.

Knúsaðu Úlla frá mér, Helga, hann er með skemmtilegri krökkum sem ég hef kynnst. 

Guðríður Haraldsdóttir, 13.4.2008 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 239
  • Sl. sólarhring: 352
  • Sl. viku: 2687
  • Frá upphafi: 1457556

Annað

  • Innlit í dag: 198
  • Innlit sl. viku: 2233
  • Gestir í dag: 185
  • IP-tölur í dag: 180

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Íslendingar í útlöndum
  • Titanic
  • Elsku Tommi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband