Góð bæjarferð - rétt sloppið við ökuníðing

Plokkfiskur og rau�sprettaLallaMaður má ekki bregða sér af bæ, þá verður allt vitlaust! Jú, við erfðaprins brugðum okkur í bæjarferð um hádegisbil í þeim tilgangi að hitta hana Löllu vinkonu. Hún leggst í ferðalög í næstu viku og kvaddi okkur með stæl, eða matarboði á Þremur frökkum. Að sjálfsögðu fengum við okkur sveppasúpuna góðu í forrétt og svo var erfitt að velja aðalrétt, mikið úrval af girnilegum réttum.

Lalla fékk sér rauðsprettu, erfðaprinsinn plokkfisk og ég steinbít. Eftirréttur var Créme brulei úr skyri, algjört gómsæti. Held í alvöru að ég þurfi ekki að borða í marga, marga daga. Þetta var mjög svo gott og félagsskapurinn náttúrlega dásamlegur. Rebekka, SteinbíturinnRebekka fékk ís frá þessari góðu konudóttir Löllu, kom líka og var með litabók og liti sem bjargaði alveg hádeginu hjá henni. Sama hressa og góða þjónustan var á Þremur frökkum, sama konan stjanaði við okkur og síðast (sjá mynd t.h. af henni og Rebekku), en núna var hún ekki á leið til Bandaríkjanna seinnipartinn, eins og síðast.

Ég kíkti aðeins upp í vinnu og fann að ég sársakna samstarfsfólksins. Þau reyndu að gleðja mig og sögðust sakna mín líka. Ég held samt að ég sé ómissandi ... því að blómið sem Bryndís gaf okkur í kveðjugjöf er dautt, ég sá um að vökva það fyrir frí, svona viðkvæm blómstrandi Lísa þolir varla helgi án vökvunar. Þegar Bryndís hætti spurði Halldór frændi (minn og hennar) hvers vegna. Ég sagði honum að hún hefði tekið einhver mannréttindi (Amnesty) fram yfir tísku, förðun, viðtöl og slíkt. „Ohh, hún er svo undirborðskennd,“ sagði hann þá. Bryndís flissaði bara þegar ég blaðraði þessu í hana, enda er hún stóraðdáandi hans.

VikanVeðmálspottur EM lokaði kl. 16 í gær í vinnunni. Ég hefði veðjað á Þýskaland, sjúkkitt! Það er ógóspennandi forsíðuviðtal í Vikunni sem er að koma út í dag. Konan þar segir m.a. frá því að hún var yfir sig ástfangin af frábærum manni sem hún hafði verið með í tvö ár eða svo. Ég man ekki alveg hvað karlinn heitir sem kom til Íslands og hélt rándýr námskeið þar til Landlæknir bannaði honum það, rótaði í sálarlífi fólks og skildi það eftir á röngunni, einhverjir lentu inni á geðdeild í kjölfarið. Nú þessi maður hafði mikil áhrif á manninn sem viðmælandinn (Íris Hera Norðfjörð) elskaði og trúði honum þegar hann sagði að Íris væri ekki rétta konan fyrir hann, heldur önnur sem hann benti á. Djúsí viðtal við kjarnorkukonu. Flott að vara við svona fólki sem reynir að ná valdi yfir öðrum, hafa af þeim stórfé og jafnvel rústa þeim andlega. Jamm. Svo fylgir hrikalega flott grillblað aukalega með. Held að ég kaupi lítið einnota grill og prófi einhverjar uppskriftanna. Ekki get ég tekið þátt í krossgátunni og unnið flotta grillið sem er í verðlaun núna, það væri bara siðlaust.

Lögga á AkranesiVið mættum tveimur eða þremur lögreglubílum í Mosó á heimleið, kannski voru það aukalöggur að koma af Skaganum. Mikið ofboðslega er ég fegin að við mættum þessum manni ekki á 180 km/klst. þegar við vorum á leið í bæinn, það munaði bara klukkutíma, segir erfðaprinsinn, líka dauðfeginn. Gott hjá löggunni að hægja ferðina í þeim tilgangi að hægja á manninum. Ég er mjög ánægð með lögguna hérna á Skaganum, hún böstar hvern ökumanninn af öðrum fyrir of hraðan akstur og fleira rugl.


mbl.is Bíl veitt eftirför á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Gurrí þó! og þið hóuðuð ekki í mig! Ég er EKKERT SÁR!

(slær til höfðinu í besta Miss Piggy stíl...)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.6.2008 kl. 22:13

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hehheeh, það hefði sko verið gaman að hitta þig ... en við Lalla sjáumst ALDREI eftir að ég flutti á Skagann, ég stórgræði nefnilega af og til á því að vera landsbyggðartútta

Guðríður Haraldsdóttir, 12.6.2008 kl. 22:34

3 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

sko við vorum nebbla að plotta saman, við Ragnheiður (sem ég kalla aldrei Löllu) einmitt að kalla í þig og bjóða út að borða... ;)

næst, bara!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.6.2008 kl. 23:15

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, endilega. Þetta í dag var meira svona tilfallandi, hitt verður vonandi í kortunum áfram.

Guðríður Haraldsdóttir, 12.6.2008 kl. 23:43

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En E, þinn prúði, góði bílstjóri og sonur, mætti nú alveg vinna grillið kinnroðalaust ekki satt?

Magnús Geir Guðmundsson, 13.6.2008 kl. 00:27

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Nei, hann fær sko ekki að senda neinar lausnir!

Guðríður Haraldsdóttir, 13.6.2008 kl. 00:36

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mar sér nýjustu myndirnar af frænku sinni & mágkonunni á blogginu þínu.

Segið svo að bloggið sé ekki bæði persónulegt & fjölskylduvænt!

Vargafælanþín...

Steingrímur Helgason, 13.6.2008 kl. 00:44

8 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gvöð hvað þetta er girnilegt. Ég fæ vatn í munninn.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.6.2008 kl. 10:39

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þetta finnst me´r bara vera hrópandi óréttlæti, hvers á litli drengurinn að gjalda, mega ekki taka þátt í girnilegri verðlaunakrossgátu Vikunnar, bara vegna þess að mamma hans er ein af flottu píunum þar og veit líklega svarið við gátunni!?

Þetta kæmist mamma mín nú aldrei upp með!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.6.2008 kl. 12:54

10 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Weekend BBQ

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 13.6.2008 kl. 17:54

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Landsbyggðartúttur rúla!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.6.2008 kl. 20:43

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Fríi til mánaðamóta, er í sveitinni núna! Á Kleppjárnsreykjum, sumarbúðunum sko! Vitlaust að gera.

Guðríður Haraldsdóttir, 13.6.2008 kl. 21:40

13 identicon

Ja sko, og enginn minnist á hvað Rebekka og Demi Moore eru sætar? Finnst það nú allt heila pointið!

lalla (IP-tala skráð) 14.6.2008 kl. 15:57

14 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

(jáhh, og tek það fram að auðvitað var ég að grínast... eins og þið Lalla getið ekki átt dinner án mín!)

Rebekka er sætust og Rakel líka!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 16.6.2008 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 181
  • Sl. sólarhring: 341
  • Sl. viku: 2629
  • Frá upphafi: 1457498

Annað

  • Innlit í dag: 146
  • Innlit sl. viku: 2181
  • Gestir í dag: 137
  • IP-tölur í dag: 134

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Elsku Tommi
  • Elsku Tommi
  • Mamma hjúkka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband