Gjafmildir Skagamenn

Ljóst er að myndatakan í gær hafði verulega slæm áhrif á heilsu himnaríkisfrúar. Heilsu OG útlit. Við heimkomu í gær var farðinn hreinsaður af (með blautum þvottapoka) og græðandi og gott krem sett yfir. Síðan var sest út á svalir í hálftíma. Í morgun var síðan andlitið þrútið og rautt, sérstaklega vinstri kinnin, og ekki nóg með það, heldur kominn hósti, hálsbólga og almennur slappleiki. Það verður því engin Betuheimsókn í dag, maður smitar ekki sjúkraþjálfarann sinn af bólginni kinn og kvefi.

Rauði krossinnÍ öllum látunum vegna flóttakvennanna á dögunum ákvað ég að nöldra ekkert meira, heldur gera eitthvað í málunum og er nú orðin virðulegur sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Í gær skutlaði erfðaprinsinn mér í húsnæði sem RK hefur til umráða en nú hefur verið biðlað til Skagamanna um að gefa húsgögn, húsmuni og fatnað. Ekki var að spyrja að þessum elskum, strax í gærkvöldi voru komnir margir fatapokar, húsgögn og ýmsir heimilismunir. Það verður opið alla mánudaga og fimmtudaga frá 18-21, nú í júlí alla vega, á Vallholti 1, þar sem bifreiðaskoðun var einu sinni, þarna við hliðina á bifreiðaverkstæði Hjalta og skáhallt á móti Fiskisögu, fiskbúðinni frábæru. Næsta vakt mín verður á fimmtudaginn í næstu viku og ég hlakka helling til, enda var þarna mjög skemmtilegt fólk að vinna, m.a. tilvonandi dönskukennari erfðaprinsins.

Jæja, farin upp í rúm aftur, best að reyna að sofa þetta úr sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært framtak móðir góð.

Ég mun sýna stuðning í verki með því að keyra móður mína hvenær sem þarf og hvert sem er, í sjálfboðaliðastarfið. Ekki spurning.

Frábært að heyra að fólk mætti um leið með húsgögn og föt. Æðislegt!

Kær kveðja

Erfðaprinsinn

E-prinsinn (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 12:56

2 identicon

Sæl og blessuð, mér leikur forvitni á að vita ef Reykvíkingum langar að láta eitthvað af hendi rakna hvort við eigum aðra kosti en bíltúr, tjah eða þá strætóferð, upp á Skaga? Hvort Rauði Krossinn í Reykjavík geti e.t.v. tekið á móti einhverju og komið áleiðis. Á bæði einhverja innanstokksmuni, kven- og barnafatnað, sængurfatnað sem og eldhúsbúnað sem mætti missa sín.

Veit að þetta er kannski fullmikið á þig lagt yfir eina vakt en vildi a.m.k. koma á framfæri hrósi og aðdáun fyrir framtakið.

Bergþóra (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 13:18

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég elska fólk eins og þig og prinsinn Gurrí sem láta verkin tala.

Frábært og ég ber virðingu fyrir þér kjéddling en láttu það ekki stíga þér til höfuð þarna Þingeyingurinn þinn

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 14:02

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flott hjá ykkur mæðginum, þú í sjálfboðastarfi og hann að keyra þig. Láttu þér nu batna, kona, svo þú komir ekki með lasleikann og dreifir honum um vinnustaðinn.

Helga Magnúsdóttir, 8.7.2008 kl. 20:05

5 Smámynd: Tiger

 Auðvitað eru skagamenn allir af vilja gerðir - rétt eins og aðrir Íslendingar - þegar það þarf að hjálpa þeim sem minna mega sín. Við erum sannarlega hjálpsöm þegar á reynir. Yndislegt framtak hjá þér að ganga til liðs við þetta málefni/rauða krossinn, það var þér líkt - enda virðist þú sannarlega vera með hjarta úr gulli.

Vona að þú hressist fljótt við aftur - það er svo mikið að þegar heilsan er að stríða okkur, sama þó það sé pest eða kvef eða eitthvað mikið meira. Knús í himnaríki - ríki þar sem englarnir hvíla nú lasin bein. Eigðu ljúfa nótt mín kæra!

Tiger, 9.7.2008 kl. 00:22

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Duglega kona.

segðu mér Gurrí mín: ertu með ofnæmi fyrir förðunarvörum eða var þetta bara óheppilegt tilvik?

Jóna Á. Gísladóttir, 9.7.2008 kl. 00:40

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Held Jóna að ég hafi ekki hreinsað farðannn nógu vel af, svo setti ég græðandi krem á húðina en það hefur virkað eins og steikingarfeiti fyrir sólina, samt var ég bara úti í rúman hálftíma.

Bergþóra, ég skal kanna þetta, það hlýtur að vera hægt að koma hlutum af sér í Reykjavík hjá Rauða krossinum þar og segja að þeir séu til þessa verkefnis.

Tigercopper, knús á móti, og líka til Jennýjar og Helgu.

Guðríður Haraldsdóttir, 9.7.2008 kl. 10:04

8 identicon

Elsku láttu þér barna fljótt það er svo asskoti dauflegt í vagninum án þín,

kær kv Ella Eilífðargella ;)

Elín Íris (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 11:13

9 identicon

batna átti þetta að sjálfsögðu að vera ekki barna...hehehe

Elín Íris (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 346
  • Sl. sólarhring: 373
  • Sl. viku: 2308
  • Frá upphafi: 1456011

Annað

  • Innlit í dag: 309
  • Innlit sl. viku: 1910
  • Gestir í dag: 294
  • IP-tölur í dag: 286

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ástarsaga
  • Sofandi köttur
  • 1. maí fyrir nokkrum árum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband