10.8.2008 | 11:53
Skilaboð frá almættinu ...
Ég hef verið full ...blindfull kvíða yfir því að verða fimmtug, Það var ekkert mál að verða þrítug, ég skildi ekki þá vini og kunningja sem kviðu og engdust yfir því. Þegar ég varð fertug fannst mér það hreinlega kúl ... og bara enginn aldur en mér var kippt harkalega niður á jörðina með það nokkuð fljótt algjörlega óviðbúinni. Ég lærði fullt af nýjum orðum, eins og kóf, breytingaskeið, miðaldra og svona.
Krabbameinsfélagið: Kona á þínum aldri þarf að mæta í brjóstamyndatöku ....
Mamma: Þú ert komin úr barneign, ekki séns að þú eignist Bryndísi litlu úr þessu!
Hárgreiðslukonan: Ha, engin grá hár og þú samt orðin fertug, vá!
Konurnar í vinnunni: Ertu með höfuðverk? Það hlýtur að vera breytingaskeiðið! Við erum orðnar svo miðaldra.
Vinkona, 12 árum eldri: (þegar ég hafði skokkað til hennar í miklum hita: Ertu með kóf, svona eins og ég?
Það sem líklega bjargaði mér var að sjálf Madonna er fjórum dögum yngri en ég og alltaf þegar ég fann fyrir hrumleika minnti ég mig á það. Þá var þessi jafnaldra mín að hlaða niður börnum, halda tónleika um heiminn og allt í þeim dúr.
Það var þó ekki fyrr en ég sá í fréttunum í gær að ég fattaði að ég hefði fengið skilaboð frá almættinu. Afmælisdagurinn minn, 12. ágúst, hefur verið valinn alþjóðlegur dagur UNGA FÓLKSINS. Ég er vissulega gömul miðað við tvítuga krakka, eldgömul alveg, en ég er ung, algjör skvísa, miðað við áttræða karla sem myndu selja sálina í sér til að verða ungir fimmtugir gæjar aftur.
Það var heilmikið glápt á mig á Megadeth-tónleikunum á Nasa um árið, enda orðin fertug, og við vinkonurnar vorum spurðar: Eruð þið hérna með börnunum ykkar? Við svöruðum (næstum því) sannleikanum samkvæmt: Nei, þau eru heima að hlusta á Celine Dion. Mér var á ákveðinn hátt komið í skilning um að minn tími væri liðinn og t.d. önnur áhugamál en rapptónlist væru hentugri fyrir mig. Ég var ekki ein af þessum fertugu sem reyndi að klæða sig eins og unglingur en skildi ekki þessa áráttu að það þyrfti að ýta mér svolítið til hliðar bara af því að ég væri fertug. Af hverju var ég ekki heima að búa til barnabörn?
Hvað ætli gerist á þriðjudaginn kl. 19.54 þegar ég verð á sekúndunni fimmtug? Hvað hefur mér ekki verið sagt? Tók ég aldurssjokkið út um fertugt eða bíður mín fólk í röðum til að segja mér að nú sé tími til að fara að stunda garðyrkju? Ég hata garðyrkju.
Jamm, þetta er nú kannski meira í gríni en alvöru en ég var vissulega stundum hissa yfir því hvað sumt fólk leyfði sér að segja við mig eftir að ég varð fertug því að ég fann harla lítinn mun á mér andlega sem líkamlega frá því að vera 35 ára. Í dag finnst mér ég t.d. ekki árinu eldri en svona 47 ½.
Hitti bloggvin á föstudaginn, elskuna hana Láru Hönnu ofurbloggara sem var greinilega að skila af sér þýðingum. Þýðingadeildin er í vinnunni minni í Hálsaskógi og stundum mæta þangað algjör sellebrittís af íþróttadeild Stöðvar 2 og svo auðvitað þýðingardeildinni. Lára Hanna gaf mér óvænta afmælisgjöf á leiðinni út, eða handritið að þýðingu sinni á boldinu þann 12. ágúst. Ég mun án efa missa af þættinum en nú get ég bara lesið þýðinguna og giskað á hverjir eru að fara að byrja saman, hverjir eru óléttir og svona. Meira bold í kvöld þegar búið er að taka himnaríki í gegn. Nú er það bara kaffffffi!
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 43
- Sl. sólarhring: 91
- Sl. viku: 681
- Frá upphafi: 1505972
Annað
- Innlit í dag: 34
- Innlit sl. viku: 548
- Gestir í dag: 33
- IP-tölur í dag: 33
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Elsku stelpan mín, það sem gerist hjá einni konu, þarf sko alls ekki að gerast hjá þeirri næstu. Þegar ég varð þrítug leið mér skelfilega og 35 ekki mikið betra en síðan þá hefur þetta verið betra og betra, fimmtug var sko bara flott og batnar, ég er miklu skemmtilegrai og ánægðari með sjálfa mig núna en um þrítugt. Þú ert svo frábær, að þú munt blómstra fram yfir nírætt, sé það sko alveg fyrir mér. Njótt hvers dags þú átt það skilið, aldurinn er eitt og umbúðirnar annað, þínar umbúðir eldast vel. Knús og klemm í sveitina.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 12:19
Til hamingju fyrirfram með 50 ára afmælið og mundu að enginn er eldri en hann fílar sig. Fékk bréf frá æskuvinkonu minni hér um daginn, þar sem hún mynnti mig á að við værum orðnar konur. Eg bað hana að vinsamlegast tala fyrir sína hönd. Eg væri alla vega 10 árum yngri en ég var fyrir 5 árum. Þó ég verði 50 ára í febrúar, þá neita ég algjörlega að ég sé orðin einhver kerling. Eg klæði mig svipað og ég gerði þegar ég var táningur, enda alldrei haft áhuga á fötum. gallabuxur og peysa passa mér betur en plíseruð pils og blússa. Mundi samt ekki vilja missa árin mín, því lífið er mun auðveldara en það var þá. Maður er svo sem búin að læra eitthvað í gegnum tíðina og mikilvægast lærdómurinn er sennilega sá að þetta er sjaldan eins alvarlegt og maður hélt. Haltu bara áfram að njóta lífsins á hvaða aldri sem þú ert.
Ásta Kristín Norrman, 10.8.2008 kl. 12:41
Til hamingju með 50 ára afmælið. Heppin varstu að fá að lifa það.
Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 12:50
Ég hlakkaði mikið til að verða fimmtug skal ég segja þér, en það sem ég kveið tvítugsafmælinu mínu er ólýsanlegt, það var algjör fullorðinsstimpill janvel elliheimilisstimpill að mér fannst, þegar dagurinn svo rann upp og ekkert breyttist hef ég bara hlakkað til "stórafmælanna" en nú get ég farið að telja niður í sextugsafmælið, það er 641 dagur þangað til
Guðrún Jóhannesdóttir, 10.8.2008 kl. 12:50
Úff er búin að vera þarna og varð ekki söm á eftir. In a good way you see.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2008 kl. 13:19
Mér fannst ferlegt vesen að verða þrítug. Svo varð ég fertug og það býttaði engu. Ég vona að ég verði eins kærulaus eftir 4 ár þegar ég á að verða fimmtug.
Fyrirfram hamingjuóskir en þú færð fleiri jafnóðum
Ragnheiður , 10.8.2008 kl. 13:30
Þegar ég varð fertug fékk ég afmæliskort sem að í stóð "Það sem þrítug gerir vel gerir fertug betur" og ég er búin að ákveða að framhaldið hljóti að vera. "Það sem fertug gerir betur gerir fimmtug enn betur"
Annars erum við "Ljónin" alltaf jafn ung í anda
Ragnheiður Ástvaldsdóttir (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 13:32
Iss...elskan mín besta...aldur er bara hugtak...ekkert til að hafa áhyggjur af.....
Og við Ljónin verðum glæsilegri með aldrinum...makkinn reistari og lífskrafturinn geislar....he he...
Bergljót Hreinsdóttir, 10.8.2008 kl. 15:40
Ég gekk í gegnum mína afmæliskreppu þegar ég varð 30 ára.Hlakka til stórafmælis á næsta ári.Bara gaman að skella sér á nýjan áratug
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 16:54
Látt´ekk´sona stelpa! Ég hef hitt fólk um þrítugt sem er eldra en þú
Heiða B. Heiðars, 10.8.2008 kl. 19:28
Ég á þrjú ár í fimmtugt.. og ég lít samt ekki út fyrir að vera degi eldri en þrítug... eða svo segir fólk...það er kannski að plata mig??? kv Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 10.8.2008 kl. 21:01
aldur skiptir ekki máli nema þú sért ostur (segir máltækið) sjáumst á þri.
Guðrún Vala Elísdóttir, 10.8.2008 kl. 21:17
Ég hitti tvær "stelpur" fæddar '31 í fyrrakvöld. Þær voru alveg hrikalega skemmilegar og reyndar miklu sætari og veltilhafðari en ég. Ef ég verð svona flott og skemmtileg þegar ég fer að nálgast áttrætt hef ég engar áhyggjur.
Jóhanna Hafliðadóttir, 10.8.2008 kl. 21:23
Ég þekki hörkukvendi sem eru fædd(ar)1940 og 1941 og þær eru miklu yngri og skemmtilegri, komplexalausari og frjálsari heldur en sumir sem ég þekki með mun hærri tölur í fæðingarártölunum sínum ..... Þetta er allt spurning um hugarfar og aftur hugarfar.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.8.2008 kl. 22:31
til hamingju fyrifram með afmæli ,en ég er sammála Ásdísi að þú átt eftir að ná níræð aldur ,,mér fannst stórt mál að vera 30ára en ekki fertug og tala nu um 50árin,,ég er að nálgast 52 ára í haust,,maður er bara ung í anda eins og þú ert Gurrí mín og berð aldurinn vel kona góð
lady, 10.8.2008 kl. 22:52
Það hefur verið merkari stund en þjóðin gerir sér grein fyrir þegar þið tvær stórglæsilegu DONNURNAR hittust!
Og taktu Láru Hönnu þér bara til fyrirmyndar, miklu eldri en þú en alltaf gullfalleg!
Magnús Geir Guðmundsson, 11.8.2008 kl. 01:29
Æ, kerlingin mín, ég skil þig svooo vel! Bara að spegillin skyldi að aldur snerist bara um hugaástand Gott partí í upphafi, setur línurnar um það sem koma skal!
Kolgrima, 11.8.2008 kl. 01:32
Það eru forréttindi að eiga fimmtugsafmæli. Ég hlakkaði svakalega til á sínum tíma. Þessi efri ár hafa staðið fyllilega undir öllum væntingum og rúmlega það.
Það voru líka forréttindi að komast á Megadeath hljómleikana á Nasa um árið. Þeir voru ansi flottir.
Jens Guð, 11.8.2008 kl. 01:33
Ég verð fimmtug eftir fimm ár, þegar ég var að verða þrítug þá fannst mér ég hreinlega vera missa af öllu saman, átti eftir að gera svo margt þ,e, að fara þetta og hitt og skoða mig um hér og þar. Kveið líka fyrir 45 árunum en finnst ekkert vera 45 ára en í dag finst mér ekki vera deginum eldir en 31.
Guðrún Ing
Aprílrós, 11.8.2008 kl. 03:54
Lífinu er lokið upp úr fimmtugu.
Þröstur Unnar, 11.8.2008 kl. 08:44
Einusinni var langamma mín fimmtug.
H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 09:10
Skessa góð....... og Þröstur jafnvel betri.......
Hrönn Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 09:29
hahahaha Þröstur alltaf samur við sig.
''.......Af hverju var ég ekki heima að búa til barnabörn?''.....
Jóna Á. Gísladóttir, 11.8.2008 kl. 09:34
Úff, þetta er orðin hættulegt tala, er þér sama þó ég fari að kalla þig Gurrí heitna svona til að vera undirbúinn?
Breiðoltshatarinn (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 09:51
Njóttu dagsins í dag og svo fagnaru með vinum og kunningjum og ég hugsa til þín hérna hinum megin við ræmuna!
www.zordis.com, 11.8.2008 kl. 10:10
Elsku Gurrí!
Til hamingju með morgundaginn ef ég klikka á kvittinu þá. Ég er viss um að dagurinn verður frábær!
Þetta þýðir semsagt að það hefur liðið heilt ár án þess að ég hafi náð í bökunarplötuna hennar mömmu sem ég kom með kökuna á :D það virðist hafa sloppið, ég hef alveg fengið hellings bakstur að borða hjá henni ;)
Dagbjört Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 10:59
Láttu ekki listamanninn sem safnar líkum vita hvað þú ert orðin öldruð...hann hlýtur að sitja um þig þarna á Langasandinum og bíða eftir að þú hrökkvir upp af af elli einni saman svo hann geti notað þig í vídéóinnslag...og gert þig frægari en þú ert í lifanda lífi..híhí. Hlakka til að sjá hvað mun standa á kökunni þinni krúttan mín...þú ert alltaf jafn skemmtileg. Nei skemmtilegri eftir því sem þú eldist..sver það
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.8.2008 kl. 11:03
Elsku Gurri mín !!!!
Lífinu er sko ALDEILIS
Sigþóra (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 11:20
hahhahhaaaaa ætla að reyna að halda áfram með þetta ...................
Lifinu er sko ALDEILIS EKKI LOKIÐ UM FIMMTUGT bölvað bull í Þresti. Ég ákvað þegar ég varð fimmtug að hér eftir ætla ég að fagna hverjum einasta afmælisdegi og það vel því það eru sko FORRÉTTINDI að fá að eldast. Lífið verður betra og betra með hverju árinu það er mín skoðun Líttu bara á mig arka súkkulaði brekkuna án þess að blása úr nös haaahaaa nema í snó og stormi Hlakk til að hitta þig og bjóða þig velkomna í hóp okkar sem erum komin á SEXTUGSALDURINN (flottur aldur )
Sjáumst á morgun mín kæra
Sigþóra (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 11:25
Tek fagnandi á móti hverjum afmælisdegi, á einmitt afmæli í dag 37 ára og get ekki beðið eftir að verða 40. þá verður svaka stuð.
Skil ekki fólk sem er í aldurskreppu, mér leið frábærlega þegar ég varð 30, aldrei liðið eins vel á æfinni. Aðrir höfðu áhyggjur, fékk samúðar símtöl. Allt uppá við eftir það afmæli.
ps: Fagna líka gráu hárunum sem eru orðin töluvert mörg. Svo mörg að ég er hætt að nenna að lita. Heyr heyr fyrir gráhærðum konum.
Lilja Kjerúlf, 11.8.2008 kl. 13:48
konan sem býr fyrir ofan mig er 55 árum eldri en þú......hver var að tala um aldur?
Hólmdís Hjartardóttir, 11.8.2008 kl. 14:11
Innilega til hamingju með daginn, Lilja, já, ég er nú farin að hlakka helling til morgundagsins, eins og ég hef hlakkað til allra afmælisdaga hingað til. Ekki skilið neitt í fólki sem er í aldurskreppu og bíð bara spennt eftir því að verða svona alvöru "kona á mínum aldri", um áttrætt eða svo.
Takk fyrir frábær komment, meira að segja líka þú, Breiðholtshatari ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 11.8.2008 kl. 14:26
Ömmustrákurinn minn varð 5 ára í gær - sonur minn er 28 ára í dag - þú verður fimmtug á morgun. Það er eitthvað við þessa daga...
Af fenginni reynslu get ég sagt þér að þú hefur ekkert að óttast!
Viltu handritið á ensku líka, kannski? Þá geturðu borið saman og séð hver er að tala hverju sinni...
Lára Hanna Einarsdóttir, 11.8.2008 kl. 15:25
Til lukku gamla !
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 11.8.2008 kl. 22:19
Já til hamingju Gamla.
Númi (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 23:59
Þetta venst, komin með sex ára skráp! Ég á enn Megadeth (ekki prentvilla) bolinn minn, þetta voru þrusu tónleikar. Og Hanna er nýlega búin að biðja mig að lækka tónlistina, enn einu sinni. Held þó að hún sé hætt að hlusta á Celin Dion, guðsélof.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.8.2008 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.