12.8.2008 | 11:23
Barn í afmælisgjöf
Mörg skemmtileg símtöl í morgun og eitt það sniðugasta kom frá fæðingardeildinni. Hæ, Gurrí, ég er að föndra afmælisgjöf handa þér! Hehhehehe, hló ég og skildi ekkert hvað Auðna átti við. En það kom fljótlega í ljós, hún ætlar að gefa mér barn í afmælisgjöf, splunkunýtt og sætt. Búið er að setja hana af stað og þau Andrés stefna á að erfinginn fæðist kl. 19.54 svo það verði nákvæmlega 50 ár á milli okkar. Við getum svo sameinað veislurnar þegar ég verð 100 ára og krúttmolinn fimmtugur. Mikið á mér eftir að finnast hann ungur og barnalegur þá.
Ég vona að allir þeir sem ég náði ekki í eða gleymdi að minna á afmælið láti nú sjá sig í dag þrátt fyrir það. Samt er engin skyldumæting. Ég móðgast ekki út í neinn sem kemur ekki, sjálf er ég frekar partífælin.
Njótið dagsins, elskurnar! Það ætla ég sko að gera.
P.s. Myndin sýnir afstöðu himnaríkis við Sementsverksmiðuna ... eða þannig, eða hvar Jaðarsbrautin liggur. Myndin er tekin af suðursvölunum mínum. Inngangurinn er norðanmegin. Flóð verður kl. 15.59 við Langasandinn í dag ... svona fyrir þá sem vilja hafa allt á hreinu.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 55
- Sl. viku: 634
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 512
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Færðu barnið innpakkað og jafnvel skreytt? Til haningju með daginn.
Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 11:28
hamingju
Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 11:29
Hjartanlega til hamingju með daginn elsku Gurrí. Ég veit að þetta verður æðislegur dagur og frábært afmælisboð .... en heyrðu... verður ekki erfðaprinsinn spældur yfir gjöfinni Bestu kveðjur heim, Edda.
Edda í Englandi (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:34
Heill þér fimmtugri, himneska Himnaríkisfröken. Það er líf eftir fimmtugt, m.a.s. ágætis líf, skal ég segja þér..
Hefði fátt viljað meira en að vera með þér, borða fimmtán tertusneiðar (það er standardinn minn), drekka 9 kaffibolla (líka standard) og tala frá mér mitt litla vit.
Því miður (fyrir mig) er útilokað að ég komist, þrátt fyrir heitstrengingar síðasta árið.
Verð hjá þér í anda - og veit að þú verður umkringd einhverju skemmtilegasta fólki á Íslandi. Þú hefur lag á að sanka að þér svoleiðis fólki!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.8.2008 kl. 11:34
Til hamingju snúllan mín og dúllan mín, villingurinn minn og snillingurinn minn.
Nú get ég sagt að ég hafi þekkt hana Gurrí frá því að hún hafi verið fjörtíuogeitthvað en hún sé nú á sextugs aldri.
Eða að ég hafi þekkt þig til fleiri ára.
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.8.2008 kl. 11:35
Til hamingju með afmælið Gurrí!
Vera Knútsdóttir, 12.8.2008 kl. 11:36
Til hamingju með afmælið...og vona að þú eigir góðan og skemmtilegan dag og njóttu hans í botn.... kv Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 12.8.2008 kl. 11:37
Innilega til hamingju elsku Gurrí
Ragnheiður , 12.8.2008 kl. 11:37
Sendi innilegar hamingjuóskir yfir flóann...
Lára Hanna Einarsdóttir, 12.8.2008 kl. 11:44
Innilega til hamingju með afmælið elsku Gurrý, þú færð aldeilis fallegt veður. Vona að dagurinn verði tóm hamingja og gleði. Ég er búin að breyta þessari talningu að vera á fertugsaldri og fimmtugs og sextugs, nú tel ég þannig að þegar maður er fimmtíu og + þá er það hinn nýji fimmtugsaldur, þá er maður nebbla fimmtíu og eitthvað, miklu jákvæðara og skemmtilegra. Skrítin þessa gamla talning. knús og kram í beinni loftlínu úr laxy boy mínum í þinn hug
Ásdís Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 12:03
Til hamingju með afmælið Gurrí
Sjáumst í kvöld!
Ellen frænka (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 12:13
Elsku Gurrí mín.
Til hamingju með daginn. Var að spá í að syngja þessar vísur í afmælinu þínu en birti það hér svo að allir geti sungið með :-)
Lag: Ó María mig langar heim.
Hver hendist heim í strætó hvernig sem er (veðrið sko)
með pólverjana alla á eftir sér.
Nje nje hún syngur og brosir breitt
kynþokkafull og til í allt og ekki neitt.
Viðlag:
Ó Gurrí þig langar heim, ó Gurrí þig langar heim
því heima viltu helst vera himnaríkinu í.
Strætóferðir Gurríar eru frægðarspor
í þeim er hún þekkt fyrir kraft og þor.
Hún stekkur , hún hleypur og rennir sér
hvað eftir annað og skemmtir sér.
Viðlag
Súkkulaðibrekkan hún er unaðsleg
þar á að gera Guðríðarveg.
Upp, upp hún fer og segir fylgið mér
með pólverjana alla á eftir sér.
Viðlag
Einn dag er Gurrí leit yfir Langasand
þá birtist henni undurfagur hússerband
Hún stökk út með kylfu og dró hann inn
æpti á pólsku og íslensku þú ert minn
Viðlag
Tröllvaxinn og tígurlegur töffari
með háskólagráðu og gleraugu.
Ættarnafn ber hann og er húslegur
huggulegur og sérstaklega viljugur.
Nýr texti í viðlagi:
Blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg
blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg
blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg
blogg blogg blogg blogg blogg blogg
Afmælisknús, sjáumst á eftir!
Þín unga systir, Hilda :-)
Hilda systir. (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 12:19
Ég er þegar farin að hafa mig til fyrir veisluna...hlakka ekkert smá til og ekki er verra að vita að maður fýkur ekki útí móa í þessari blíðu sem umlykur afmælisdaginn þinn.
Afmælisknús frá okkur öllum..börnin verða í strangri gæslu heima fyrir en við fullorðnu mætum!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.8.2008 kl. 12:34
Til lukku með afmælið
Rannveig Lena Gísladóttir, 12.8.2008 kl. 12:40
Hamingjuóskir til þín
Einar Örn Einarsson, 12.8.2008 kl. 12:50
Til hamingju með afmælið, skvís Ekkert smá flott gjöf sem þú færð
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 12.8.2008 kl. 12:57
Elsku Gurrí hjartanlega til hamingju með daginn þinn, þú lengi lifi ....húrrrra....húrrrra....húrrrra !! Við Daði látum að sjálfsögðu sjá okkur og þökkum boðið, sjáumst hressar Elín
Elín Mosóbúi (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 13:19
Til lukku með daginn, ljón eru frábær
Lilja Kjerúlf, 12.8.2008 kl. 13:25
Hamingju með daginn Gurrí, og eigðu gott kvöld.
Bestu kveðjur Guðrún Ing
Aprílrós, 12.8.2008 kl. 13:59
Hæ það eru aldeilis afmæliskveðjur sem þú færð! En til hamingju ég ætla að reyna að kíkja fyrir kl 6 annars bara góða skemmtun skvís!
Eygló Sara , 12.8.2008 kl. 14:00
ÞETTA VAR FRA MÉR, ég var óvart inná mömmu
//Kossar og knús
Ásdís Rán , 12.8.2008 kl. 14:03
til lukku með daginn
Ásta , 12.8.2008 kl. 14:09
Takk, elskurnar mínar. Ég settist augnablik niður til að drekka latte nr. 2 í dag ... Vélstýran á leiðinni með kaffigræjur og kaffi, þessi elska og svo skellur allt á kl. 16.
Reyni að taka margar myndir þannig að þeir sem ekki komast fái notið yndislegu gestanna minna í myndaformi. Skrýtið, veit ekki hvort koma 60 manns eða 120 ...
Knús í daginn.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.8.2008 kl. 14:43
Hjartans hamingjuóskir til þín fallega Hefðarmær í Himnaríki,með 50 ára afmæli þitt í dag. - Ji, mér finnst svo stutt síðan þú fæddist, en trúðu mér nú fyrst fer lífið að verða skemmtilegt, og hafi það verið skemmtilegt áður hvernig heldurðu þá að það verði núna?. Enn skemmtilegra en maður getur gert sér í hugarlund, þegar maður er yngri. - Góða skemmtun. - Og njóttu lífsins.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.8.2008 kl. 14:47
Til hamingju með daginn elsku Gurrý mín
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.8.2008 kl. 14:51
Elsku Gurrí mín!
Innilega til hamingju með daginn, kemst ekki á Skagann í dag (gat ekki losað mig við börnin) en kem í einkaheimsókn fljótlega, kannski bara akkurat á Bold tíma og allt.
Þú lengi lifi, hip, hip, húrra, húrra HÚRRAAAAA (og hér ætlaði ég svo að setja mynd af íslenska fánanum).
Kikka (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 15:02
Til hamingju með daginn Gurrí
Ágúst H Bjarnason, 12.8.2008 kl. 15:25
Haha mér finnst að þessi vísa þurfi að vera sungin í kvöld ;)
Ellen frænka (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 15:40
Til hamingju með daginn kæra bloggvinkona...
Flottur dagur og sólríkur og ekki skemmir að fál ítið kríli í afmælisgjöf...til hamingju með það!!
Hún lengi lifi: Húrra! Húrra! Húrra! Húrra!
Bergljót Hreinsdóttir, 12.8.2008 kl. 16:49
Til hamingju með afmælið þitt Gurrí mín, sjáumst á eftir :)
Á hvaða samningi ertu við veðurguðina, er þetta bara svona af því að þú býrð í himnaríki, mig minnir að veðrið hafi einmitt verið svona í fyrra
Guðrún Jóhannesdóttir, 12.8.2008 kl. 16:51
Innilegar hamingju óskir með 50 árin Elsku Gurrí mín megi þessi dýrðardagur vera þér og þínum yndislegur í Himnaríki verð að vera fjarri góðu gamni hittumst seinna sendi þér skilaboð
Brynja skordal, 12.8.2008 kl. 17:28
Til hamingju með afmælið elsku Gurrí mín
Kristín Katla Árnadóttir, 12.8.2008 kl. 18:02
til hamingju aftur, kemst því miður ekki í kvöld, eins og það væri nú gaman! Skemmtið ykkur bara megavel.
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.8.2008 kl. 18:32
Innilegar hamingjuóskir með afmælið og þennan fallega dag. Veðurguðirnir eru sko greinilega vinir þínir. Ekkert smá gott veður sem þú færð
Björg K. Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 18:36
Innilegustu hamingjuóskir á afmælisdaginn elsku Gurrí mín! Ég vona að þú eigir frábæran dag!
Sæunn Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 18:46
Til hamingju með daginn
Gerða Kristjáns, 12.8.2008 kl. 19:00
Hjartans hamingjuóskir með daginn Gurrí mín - ætlaði að senda þér skeiti núna - en það var lokað á það klukkan sex svo ég hljóp hús úr húsi til að finna tölvu svo ég gæti óskað þér lukku með daginn. Vona að dagurinn hafi verið yndislegur og að kvöldið verði enn frábærra! Kveðjur, knús og kram í himnaríkið ..
Tigercopper (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 19:13
Til hamingju með daginn!!!!!
Ragnheiður Ástvaldsdóttir (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 19:19
Til hamingju með daginn og veginn, frú Guðríður.
Þröstur Unnar, 12.8.2008 kl. 19:36
Elsku Gurr!
Innilega til hamingju með stóra daginn teysti svo á að næsti aldarhelmingur fari um þig jafn mjúkum höndum
Magga (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 19:55
Iss....átti auðvita að verða treysti á greinilega búin með rafhlöðurnar. Eigðu ljúft kvöld
Magga (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 19:57
Innilega til hamingju með daginn, enn og aftur. Mikið var gaman að koma til þín í dag - og veðrið alveg yndislegt. Það er ekki amalegt að búa á Malibu Íslands.
Guðbjörg Hildur Kolbeins, 12.8.2008 kl. 20:13
Til hamningju með daginn Gurrí mín. Þú ert farþegi okkar númer 1
Diddi (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 20:39
Innilegar hamingjuóskir með afmælið .
Laufey B Waage, 12.8.2008 kl. 20:41
how important it is that they exist.
how good it is just to see them.
how comforting their smile is.
how good it feels to be near them.
how much poorer we would be without them.
that they are like Heaven's gift to us.
Guðrún Jóhannesdóttir, 12.8.2008 kl. 21:57
Til hamingju með daginn elsku makona mín, komst því miður ekki, varð að bruna með miðbarnið til læknis.
Ég ætlaði mér svo sannalega að koma..
Vonandi hefur dagurinn verið yndislegur
Magga mákona
Arafat í sparifötunum, 12.8.2008 kl. 22:16
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 23:01
til hamingju með þennan flotta aldur!
www.zordis.com, 12.8.2008 kl. 23:18
Hjartanlega til hamingju með dagin.Fín grein um þig í D V í dag og myndin af þér,bara stórglæsileg flott Gurrí.
Númi (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 23:34
Áttum frábærar stundir í afmæli frú Gurríar..og vitiði hvað..barnið litla kom í heiminn aðeins örfáum mínútum áður en fæðingarstund Gurríar kom upp...Þannig að önnur frú Guðríður er fædd og mun fylgja okkur öllum næstu áratugina. Ein tekur við af annari. Takk fyrir frábært afmæli, góðar kökur og kaffi og óendanlega skemmtilegt fólk alltum kring. Og þú auðvitað bara flottust!!!!
p.s...gleymdum að setja kort frá okkur Óla og Ólöfu...en dýrðlega baðsaltið og handáburðurinn var auðvitað frá okkur svo þú getir átt unaðsstundir í baðinu þínu í vetur og skrifað mjúkhentar greinar í Vikuna um allt það góða í lífinu.
Knús og klemm
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.8.2008 kl. 23:44
Kominn tími á að leysa Gurr af hólmi Katrín, ekkert svo mörg ammili eftir, tókstu ekki eftir hvað það er farið að slá útí fyrir henni? Svo er þessi grái húðlitur aldrei ávísun á 50 ár í viðbót.
Breiðholtshatarinn (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 00:15
Vona að dagurinn hafi verið bjartur og yndislegur og til hamingju með barnið!
EN HVAÐ STÓÐ Á KÖKUNNI?????
Bergljót Hreinsdóttir, 13.8.2008 kl. 00:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.