13.8.2008 | 01:35
Skelfileg mistök bakara ... og meira svona afmælis
Þetta var aldeilis stórkostlegur dagur.
Fjöldi fólks lét sjá sig og skrifuðu um 80 manns sig í gestabókina sem er dágóður afrakstur miðað við árstíma og búsetu. Ég fékk fjölmargar dúndurgjafir þrátt fyrir (máttleysislegt) bann mitt um að það væri bannað ... og í fyrsta sinn í áraraðir kom ekkert barn í afmælið. Fjóla Æ og Mummi Guð, bloggvinir úr Keflavík, mættu í afmælið mér til mikillar gleði, og mikil var undrun þeirra þegar þau hittu Þurí hjá mér en hún og Mummi eru bræðrabörn. Lítill heimur.
Stór afmælisgrein kom í DV í dag, næstum heilsíða og ég sagði fólki að ég hefði sofið hjá ritstjóra DV til að fá svona drottningarmeðferð ... en það var bara plat. Ég er of siðprúð fyrir slíkt en ótrúlegt hvað einn fimmtíukall sem laumað er að ættfræðingi getur gert.
Ég klippti afmælisgreinina út og setti á ísskápinn. Halldór frændi las hana og sagði svo: Reyndu að gera sem minnst í viðbót í lífinu og þá er hægt að nota þetta sem minningargrein.
Bakarinn gerði hroðaleg mistök. Á stóru afmælistertunni átti að standa. Gurrí 50 ára, 12. ágúst Alþjóðlegur dagur unga fólksins. Ég fór sjálf í bakaríið til að panta og hafði að orði að þetta væri minn dagur líka og haldið að bakarinn hafi ekki skrifað Alþjóðlegur dagur ÞUNGA fólksins.
Kvikindislegir afmælisgestir mínir orguðu úr hlátri en þar sem kakan var svo bragðgóð ætla ég ekki að gera veður út af þessu. Orðið þunga var þó ekki borðað fyrr en undir átta í kvöld. Arg ...
Síðustu gestirnir komu um hálfellefu í kvöld og þá voru bara tveir gestir fyrir. Það er svolítið snjallt að vera síðastur út, þá fær viðkomandi afganga með í poka.
Smá afgangur er nú eftir af afmælistertunni fyrir þá sem koma á morgun og varla mikið meira. Næst man ég að hafa heilan helling af brauðmeti, það hvarf allt um kvöldmatarleytið. Sumir stórgræddu á því að þrjár brauðterturúllur týndust inni í ísskáp í tvo tíma og allt fylltist í eldhúsinu þegar þær voru bornar fram. Ég fékk fína aðstoð, Ásta mín reddaði mér góðri stelpu sem hellti upp á, skar brauðrúllur og hvaðeina sem til féll og stóð sig mjög vel.
Auðna, samstarfskona mín af Vikunni og dóttir Borghildar vinkonu, og Andrés, maður hennar, eignuðust stúlkubarn kl. 19.44 í kvöld ... þannig að það vantaði 10 mínútur upp á að nákvæmlega 50 ár yrðu á milli mín og barnsins. Geri aðrir betur. Ég var komin á SMS-listann og náði að færa ömmunni fréttirnar. Hún varð eirðarlaus upp úr því og á endanum dró hún Elfu vinkonu, sem kom alla leið frá Ameríku í afmælið mitt (og jú, sonur hennar verður þrítugur 18. ágúst nk.), upp á fæðingardeild. Stúlkan var tæpar 15 merkur og 53 cm. Aldeilis gaman að fá heilt barn í afmælisgjöf, fyrir utan allt hitt ... sem nýtist mér án efa betur.
P.s. Leiðrétti aldursmuninn á okkur barninu eftir gáfulegt komment, takk fyrir það. Meinloka hjá mér eða greindarskortur eða þreyta ...
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 3
- Sl. sólarhring: 57
- Sl. viku: 637
- Frá upphafi: 1505990
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 514
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Frábær lesning og flottar myndir. Mér finnst kakan þín æðisleg
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.8.2008 kl. 01:40
Heil og sæl; Guðríður mín !
Tek undir; með Jónu Kolbrúnu, en vildi bæta við. Megi 12. Ágúst, 2008, verða þér minnisstæður, og þínu fólki öllu, sem ágætum gestum, um leið, og ég ítreka fyrri árnaðar óskir mínar.
Einhver mesti gleðigjafinn; hér á, stundum, rökkvuðum vefsíðum, Guðríður mín, og ég veit, að þú munt uppskera, eftir því.
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 01:46
SVefndrukkin sit ég og sendi þér kveðju, yndislegt að vita að dagurinn hafi verið þér góður. bið að heilsa Elfu ef hún verður áfram í færi, við erum næstum því svona frændsystkin, móðurbróðir minn heitin ól hana víst að hluta til upp.
Magnús Geir Guðmundsson, 13.8.2008 kl. 02:15
Dísúss, hvað maður er alltaf að missa af einhverju stórfenglegu. Viss´etta, viss´etta. Hvílíkt stuð. Viltu lofa að það verði eikkkhva næst, takk, takk.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.8.2008 kl. 03:02
Þú meinar 49 ár, 364 dagar, 23 klukkustundir og 50 mínútur á milli ykkar...
Smámunasemi er skemmtileg - en bara hjá manni sjálfum.
Til hamingju með daginn!
Ævar Örn (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 03:12
Gurrí mín, Enn og aftur til hamingju með að vera ekki lengur "49 and holding". Það fór eins og mig grunaði, dræverinn fékk sólsting í berjamónum í Heiðmörkinni og komst því aðeins -við illann leik- í humar í Hafnarfirðinum. Huxuðum þó fallega til þín allan tímann.
Vonandu fékkst þú þó skeytið, enda sendi ég það fyrir hádegi. Nema hvað að sem ég sé mynd af afmælistertunni -það var reyndar líka mynd af tertu á skeytinu -valið stóð á milli hennar og þjóðarblómsins- rifjast upp að daman í skeytamóttökunni mislas fyrir mig textann; í seinni hlutanum stóð ...þú unga mær, en konan las þetta fyrir mig sem "...þunga mær". Ætla nú ekki að endurtaka það sem ég sagði við manneskjuna. Nei, auðvitað ekkert ljótt -en fyrr má nú aldeilis fyrrvera -og eins gott að þær lesa fyrir mann textann áður en þær senda hann...
Knús og kveðjur frá næstu ljónynju
Hildur Helga Sigurðardóttir, 13.8.2008 kl. 03:16
Enn og aftur til hamingju með daginn Gurrí mín. Svei mér þá ef mér sýnist ekki bara að það hafi verið fjör í himnaríki í afmælinu þínu. Flottar myndir hjá þér - flott lið auðvitað líka!
Knús á þig Gurrí mín og hafðu ljúfan dag á morgun - sem og næstu 50 ár - ég mæti örugglega með blóm í næsta 50 ára afmæli hjá þér!
Tiger, 13.8.2008 kl. 05:28
Til hamingju með daginn Gurrí mín - og velkomin á þennan virðulega aldur. Ég er öll önnur eftir að mér hlotnaðist sú náð að ná 50 ára aldrinum 8. mars. Gaman að sjá myndir af honum Matta mínum með frænku þinni - þar fer góður drengur.....
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 13.8.2008 kl. 08:34
Til hamingju enn og aftur, var með ykkur í anda í gær :D
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.8.2008 kl. 08:44
Heyrðu gamla mín (hí hí) ... engin mynd af mér?
H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 09:28
Til hamingju með daginn og bestu þakkir fyrir mig. Þú lítur mjög vel út miðað við að vera komin á "þennan aldur" LOL
Guðrún E (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 09:33
Elskan mín, til hamingju með gærdaginn. Af myndunum af dæma hefur þú átt frábæran dag. Knús&kossar.
SigrúnSveitó, 13.8.2008 kl. 09:42
Og engin mynd af mér? Hvað á þetta að þýða?
Takk fyrir síðast, þetta leit all verulega vel út sérstaklega kisurnar og svalirnar!
Edda Agnarsdóttir, 13.8.2008 kl. 09:51
Já, kakan þunga bragðaðist æðislega, enda þungavigtarkaka.
Steingerður Steinarsdóttir, 13.8.2008 kl. 10:02
Og engin mynd af mér heldur (sniff, sniff). Ég skrifaði samt í gestabókina. Takk enn og aftur Gurrí mín fyrir frábæra veislu. Bestu kveðjur norður fyrir rör.....
Sigríður Jósefsdóttir, 13.8.2008 kl. 10:36
Þvílík gleði og hamingja! Til lukku og hamingju meððetta allt.
www.zordis.com, 13.8.2008 kl. 10:48
Hamingjuóskir til þín og þinna í himnaríki. Megir þú lengi lifa og skrifa marga, marga pistla. Það er svo gaman að lesa skrifin þín. Takk
Auður (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 10:53
Og engin mynd af mér.
Þröstur Unnar, 13.8.2008 kl. 11:06
Til hamingju með afmælið mín kæra!!
....ég er auli! steingleymdi þessu!
Heiða B. Heiðars, 13.8.2008 kl. 11:08
Ok ég ætlaði ekki að segja neit en fyrst fordæmið er komið....hallló ég sett margoft upp sparibrosið í þessu bráðskemmtielga afmæli. Það slær á sárindin allt skemmtilega fólkið sem ég hitti í teitinu eins og t.d. Gunnu Jóh og Hildu, ástarþökk fyrir mig, kær kv Elín.
Ps: Vonandi fannst þér breytingarskeiðslesningin ekki of neikvæð, allt eru þetta misvirkar staðreyndir sem koma við okkur flestar einhverntíman
Elín Íris (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 11:23
Innlitskvitt og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.8.2008 kl. 11:45
Gaman að lesa skrifin hjá þér Gurrí. Það er gott að dagurinn heppnaðist frábærlega vel og kakan greinilega toppaði skemmtunina fyrir utan ykkar eigin skemmtun.
Kveðja Guðrún Ing
Aprílrós, 13.8.2008 kl. 12:37
En æðislegt að þetta heppnaðist svona vel og þú áttir frábæran dag Gurrí mín...kv. Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 13.8.2008 kl. 12:39
Sjúkkitt að þú náðir þessu. Velkomin í þennan skemmtilega hóp ernra gamalmenna. Eða þannig.
Loveu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 13.8.2008 kl. 12:45
Vá æðislegar myndir girnilegar kökur en já gott að áletrun á köku gerði kátínu hjá gestum oh Sé eftir að hafa ekki komið en mitt tap krúttleg myndin af palla og þú blómstrar 5tuga kona Glæsileg hafðu það ljúft
Brynja skordal, 13.8.2008 kl. 14:18
Takk, elskurnar. Reyndi um hádegi að setja myndir inn í albúmin, afmæli 2008 og hef bara náð að setja tæplega helminginn inn, kerfið frýs bara og neitar að setja meira í bili. Prófa aftur í kvöld.
Er enn mjög ern þrátt fyrir allt ... en frekar þreytt og bakið í messi, svona er þetta þegar aldurinn færist yfir, hehehhehe
Takk allir fyrir fallegar kveðjur og þeir sem komu, þið gerðuð þennan dag ógleymanlegan og æðislegan. Knús og kossar.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.8.2008 kl. 14:57
Gjöfin frá okkur er einmitt alveg kjörin til að þú getir haldið áfram að vera svona ern, þrátt fyrir allt Takk fyrir frábærar kökur og flott afmæli.
Fjóla Æ., 13.8.2008 kl. 15:11
Elsku Gurrí!
Til hamingju með daginn í gær!
Ofsa girnileg kaka.....
Kallý, 13.8.2008 kl. 15:46
Gaman að sjá allar þessar flottu myndir og rosaleg "skemmtileg" kaka. Innilega til hamingju aftur og enn.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.8.2008 kl. 16:14
Til hamingju með daginn þú fyrirmyndar kona... ég afgreiddi þig með kaffi í Te&Kaffi um ára bil um 1991 og hef síðann fylgst með þér úr fjarðlægð og erut mér mikil fyrimynd...
Margrét Ingibjörg Lindquist, 13.8.2008 kl. 17:28
Bestu þakkir fyrir skemmtilega stund hjá þér í gær Gurrí mín og alveg frábærar veitingar ummmmmmmm, ætla ekkert að kvarta undan myndunum, minnir að það hafi verið mynd af kellu í fyrra svo þú sleppur með þetta í ár, en næst.... já það er sko annað mál
Leiðinlegt með tertuna, ótrúlegt að bakarar skuli klikka svona þegar þeir taka að sér svona stórvirki
Guðrún Jóhannesdóttir, 13.8.2008 kl. 17:45
Þarna fékkstu nú aldeilis afmælisgjöf á öðrum í afmæli þykir mér, orð frá konu úr fortíðinni sem tekið hefur þig til fyrirmyndar. Mér þætti nú meir til slíks koma en þúsundkalla eða þúsund kalla!
Annars sendi ég elsku bakinu batakveðjur og þegar þú verður næst í stuði væri gaman að fá netta afmælisgjafaskýrslu með meiru!
Magnús Geir Guðmundsson, 13.8.2008 kl. 18:23
Til hamingju með daginn
Marilyn, 13.8.2008 kl. 18:56
Kaera Gurri min
Hjartanlegar hamingjuoskir til thin med daginn, thu litur nu ut fyrir ad vera miklu yngri en fimmtug, og thessvegna skil eg vel ad kakan atti ad segja dagur unga folksins, en veistu thad, ad eg er adeins of thung sjalf, thannig ad ekkert er ad thvi ad kakan sagdi thunga folksins, afmaelid mitt var thann 3. Agust, thannig ad vid erum badar ljona konur og flottar a thvi!!! Mikid vildi eg ad eg hefdi verid a landinu, eg hefdi pottthett kykt i himnarikid til thin, elskan. Nuna fer eg ad drifa mig i ad blogga, er buid ad vera mikid ad gera, thu veist hvernig thad er, thu ert fyrirmynd min, thvi ad thu gefur ther alltaf tima til thess ad blogga.
Hafdu thad gott i dag, og avallt, thu ert frabaer manneskja.
Bertha Sigmundsdóttir, 13.8.2008 kl. 19:28
Takk fyrir yndislegt afmæli og mér finnst þú alger hetja að setja inn afmælismyndir í albúmið, fullt af flottum myndum.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 13.8.2008 kl. 20:49
Til hamingju aftur (ef þú hefur enn pláss fyrir hamingjuóskir, hef sjaldan séð þær svona margar ;)). Við mæðgurnar munum kíkja til þín fljótlega, nú höfum við tíma til að plana afmælisgjöf sem toppar hinar múhahah (ég er að reyna að sjá bjartar hliðar á því að hafa misst af afmælinu) ;)
Guðmundur Hrafnkell reyndi mikið í gær að fá að skreppa, sagðist vera gömul sál þrátt fyrir að vera bara 6 mánaða en ég var hörð við hann og sagði að börn væru jú stranglega bönnuð. Hann sætti sig við þetta á endanum.
Var að skoða afmælismyndirnar og er sérstaklega ánægð með myndirnar af herðatrjánum. Mér finnst þú alltof sjaldan taka myndir af þeim!
Hafðu það áfram sem best og við hlökkum til að koma í heimsókn :)
Dagbjört (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 21:22
Ég orgaði af hlátri þegar ég sá myndina af Ása og Elínu með Gumma og Ernu að gretta sig í bakgrunninum..týpískt þau;-) Og bakarinn á Akranesi er SNILLINGUR!!!;-)
Vona að þú hafir átt yndislegan afmælisdag kæra samstarfskona. Ég ætlaði mér sannarlega að mæta til þín en gleymdi mér. En þín bíður afmælisgjöf;-)
Kær kv. Gerður
Gerdur (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 22:04
Takk fyrir kræsingarnar og gestrisnina.
Mummi Guð, 13.8.2008 kl. 22:37
Til hamingju með daginn.
Eyþór Árnason, 13.8.2008 kl. 22:53
Elsku Gurrí, til hamingju með afmælið :) Knús og koss !
Halldóra Anna Hagalín (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 23:41
Til hamingju með afmælið
alva (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 00:32
Elsku Frænka... ætlaði loks að þora að drífa mig til sveita og kíkja til þín í stórboðið en var lögð að velli af flensuómynd...
Ég kíki bara þegar þú ert 50 og hálfs:)
Til hamingju með að vera orðin hálf 100 það er ekkert smá...
Annars er ég orðin viðþolslaus af kattarleysi og kíki kannski bara miklu fyrr til að fá að knúsa kött
Með björtum afmæliskveðjum
Birgitta
Birgitta Jónsdóttir, 14.8.2008 kl. 08:51
var kakan góð? urðuð þið öll feit af henni?
r.jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 16:35
Innilega til hamingju með daginn þinn...
Allt sem fertugur getur gerir fimmtugur betur !
Koss&knús til þín skvísa
Já og frábær afmæliskaka
Brynja Hjaltadóttir, 14.8.2008 kl. 17:47
Sæl Gurrí mín og þakka þér fyrir frábært afmælisboð. Það var alveg þess virði að koma frá Seattle í boðið. Gaman af myndunum sem þú settir inn. Hlakka til að hitta þig aftur við minna tilefni elsku vinkona mín. Love, Elfa
Elfa Gísla (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 18:15
Innilega til hamingju með daginn gamla mín! Lítur ekki út fyrir vera deginum eldri en 25. Kveðja frá einni sem er að ná þér í aldri.
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 14.8.2008 kl. 21:01
Ellin þykir indæll kostur
allir kunna að met' ana
ef Gurrí væri gamalostur
gaman væri að ét 'ana.
Már Högnason (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 06:48
til hamingju með daginn
Hulda (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.