21.8.2008 | 09:11
Snyrtipinninn nýi og ánægður femínistaboli himnaríkis
Mikið er sallarólegt hérna í vinnunni svona snemma á morgnana (7.30). Enginn annar í húsi, nema þá helst blaðamaðurinn á dv.is en hann er hinum megin í húsinu. Það er mikið stuð að vera fyrstur á staðinn, ég get sest í alla skrifboðsstólana í salnum og rúllað mér á milli borðanna ... og get á nýjan leik boðið prófarkalesurunum gott kvöld með hæðnistóni þegar þær mæta undir átta.
Nýi þrífukarlinn okkar hefur greinilega ekki fengið neina tilsögn því að áður en ég gat hugsað mér að fá mér kaffi þurfti ég að fleygja ótrúlega miklu rusli sem var í kringum kaffivélina. Hella úr bollum afgangskaffi síðan í gær í sérstaka tilþessætlaða-fötu og síðan fleygja drykkjarmálunum í ruslafötuna, allt er þetta í innan hálfs metra radíus til að auðvelda okkur ... en sumt samstarfsfólkið gerir þetta ekki ... og ekki heldur ræstingamaðurinn í gærkvöldi.
Svona varð ég nú mikill snyrtipinni við það að bætast í hóp eldri borgara í síðustu viku. Jibbí! Þann 11. ágúst sl. á meðan ég tilheyrði enn ungu kynslóðinni, hefði ég horft kæruleysislega á þetta og vitað að þetta væri ekki mitt vandamál, einhver 50 plús gæti bara gert þetta. Múahahahahahaha!
Femínistanautið í himnaríki (erfðaprinsinn) verður sífellt ánægðara með mig, enda hef ég gengið einstaklega vel um í heila tíu daga. Ég vissi að eitthvað gott myndi fylgja aldrinum. Ég hef beðið árangurslaust (reyndar frá því ég varð fertug) eftir kostunum sem eiga að fylgja, m.a. fjarsýni (til að verða minna nærsýn-ef það virkar), minni svefnþörf en ekkert hefur miðað, ég er ekki einu sinni komin með alla endajaxlana, þrír þrjóskast enn við að láta sjá sig.
Gífurleg þreyta kom óvænt yfir okkur stuðboltana, mig og erfðaprins, í gærkvöldi. Eina sem ég man er að hafa horft á Ghost Whisperer (sem er spúkí spennuþáttur) setið í leisígörl með elskuna mína í fanginu (mjúka teppið úr Rúmfatalagernum) ... þangað til ég vaknaði um miðja nótt, eða klukkutíma fyrir áætlaðan fótaferðatíma (6.15). Útlit mitt er einstaklega gott miðað við að hafa sofið upprétt næstum alla nóttina en leisígörl er þrjóskur stóll og vill ekkert láta halla sér mikið aftur ... það þarf alla vega mjög einbeittan vilja til þess. Það getur mögulega kannski skipt einhverju máli tískusýningardömuvaxtarlagið á mér; langar lappir á kostnað búksins þegar kemur að því að nota leisígörl rétt. Hverjum datt í hug að hanna stólinn svona asnalega? Lappirnar á mér standa langt út fyrir fótaskemilinn og ég hef ekki afl til að ýta mér aftur vegna skorts á búklengd. Hönnun þessa stóls er ekkert annað en aðför að mér.
Ásta vill breyta brottfarartíma frá himnaríki úr 6.50 í 6.40 á morgnana. Það verður bara stuð, ég er í eðli mínu algjör B-manneskja og get því staðið í ströngu um miðjar nætur.
Óska ykkur gleðilegs morguns, farsæls komandi eftirmiðdags og heillaríks kvölds.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 189
- Sl. sólarhring: 355
- Sl. viku: 881
- Frá upphafi: 1505888
Annað
- Innlit í dag: 150
- Innlit sl. viku: 716
- Gestir í dag: 144
- IP-tölur í dag: 139
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Þú drepur mig einn daginn. May it be on your head.
Var að skoða leisígörl týpu í IKEA í gær. 12 þúsund og eitthvað spírólur kostaði fyrirkomulagið. En ég er svo hrædd um að ég eldist hratt ef ég festist í kvikindinu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.8.2008 kl. 11:32
Sæl Gurry !
hvað er netfangið þitt. Langar að senda þér mynd.
kveðja Hanna Rúna
hannaruna@internet.is
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 21.8.2008 kl. 11:49
Leyfðu mér að leiðrétta þig, gæska: þú verður ekki eldri borgari fyrr en eftir áratug!
Njóttu lífsins!
Sigurður Hreiðar, 21.8.2008 kl. 12:08
Ég er einmitt með tvo svona leisígörl stóla og það er ekki mikið setið í þeim eins og er, næ alveg að halla honum en hann tekur upp á því að rétta úr sér svona hægt og rólega...ég er greinilega ekki nógu stór og þung til að halda honum í lágréttri stöðu.. kv Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 21.8.2008 kl. 12:15
Starfið þér með Baggalúti? Þeir eru allavega þarna í bakgrunninum.
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 12:37
Jamm, Guðmundur, ég er leikfang mánaðarins hjá Baggalútum núna, múahahahahah!
Sigurður, takk fyrir leiðréttinguna, veit að ég á minnst 20 ár eftir í eitthvað slíkt, MINNST! Ef ég miða við mömmu.
Vildi, Guðrún, að ég gæti sagst vera of létt fyrir leisígörl
12.000 er enginn peningur, Jenný. Minn kostaði rúmlega 20.000 í RL-Magasín. (Rúmfatalagernum) ...
Eins gott að þú sofnir ekki í vinnunni, Anna!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.8.2008 kl. 13:49
Nei, Gurrí, þetta er allt fest í lögum -- við verðum eldri borgarar 60 ára sama hversu síung og sprellfjörug við erum fram undir nírætt!
Sigurður Hreiðar, 21.8.2008 kl. 14:26
Mizrétti er lokzins náð hjá femínzyzdabeljum bloggsins , 'leizýgörlí stólar' kosta klárlega bara brotabrot af því sem við við aumir karlapar þurftum að 'púnga' út fyrir okkar 'lötustrákastóla'.
En við erum reyndar sáttir við okkar...
Steingrímur Helgason, 21.8.2008 kl. 14:51
Hahhah, já Steingrímur, það er rétt. Annars hef ég séð ansi ánægða karla í svona leisígörlstólum. Það eru örugglega svona femínistakarlar.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.8.2008 kl. 15:07
Ég sakna þín úr strætó Takk fyrir mig, ógisslega fyndin og málefnaleg í senn. Kær kv Elín
Elín (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 15:53
Skemmtileg að vanda gamla mín hafðu það sem best.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 16:14
Oooog, enn ein færslan frá þér sem kom mér til að brosa, já jafnvel hlæja.....
Lilja G. Bolladóttir, 21.8.2008 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.