Kjarnyrt umræða og ónýtt samkvæmislíf

AkranesÁsta mætti fyrir utan himnaríki kl. 6.40 sharp en þá var ég einmitt á leiðinni niður stigana með nýlagað latte í  báðum. Metallica hljómaði í græjunum en af því að við erum orðnar svo virðulegar settum við fljótlega útvarpið á til að heyra sjö-fréttirnar. Við ræddum líka það nýjasta á Skaganum ... eða fjörlegu umræðuna á vef Akranesbæjar en hér er slóðin: http://akranes.is/um-akranes/umraeda/umr_id/19987/thradur/19958/fl/46/ svona ef einhvern langar að kíkja. Einhverjir ósvífnir "kontóristar og afætur á þjóðfélaginu" hafa nefnilega slett sér fram í mál Sementsverksmiðjunnar og gagnrýnt að senn verði fjölbreytilegum úrgangi brennt þar. Einn (örugglega kennari eða þaðan af verra) er meira að segja svo ósvífinn að hann spyr hvort verði ekki líka grafinn kjarnorkuúrgangur á Breiðinni svona í stíl við þetta ... Kjarnyrt svar frá verksmiðjunni ætti vonandi að þagga strax niður í þessarri umræðu sem lyktar af náttúruvernd, eða þaðan af verra. Jamm, alltaf fjör á Skaganum.

24Alveg er það magnað að stimpilklukkan í vinnunni skuli vera biluð þegar ég mæti svona ofboðslega snemma í vinnuna! Hún bilaði af því að sumir notuðu bíllykil til að stimpla sig inn. Verð líklega svona snemma á ferð flesta morgna í vetur og fer með Ástu í bæinn og svo heim á Skaga suma eftirmiðdaga á drossíunni. Þetta, að vakna svona um miðja nótt, á algjörlega eftir að eyðileggja fyrir mér samkvæmislífið, nú þarf ég t.d. að vita hvenær þátturinn 24 verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur ... hvort ég geti horft eða klukkan verði orðin of margt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þarna fer í verra með heví samkvæmislíf himnaríkisfrúarinnar.  Hm..

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 10:42

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

... samkvæmislíf sem felst í sjónvarpsglápi nokkur kvöld vikunnar er nú bara þónokkuð fyrir konu á mínum aldri.

Guðríður Haraldsdóttir, 25.8.2008 kl. 10:46

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Svefn, næring og hreyfing er aðalundirstaða góðs lífs. Svo ég vona að 24  verði á temmilegum tíma svo þú fáir örugglega þína átta tíma, réttir reglulega úr tánum i Lazy girl og drekkir bara hollt kaffi..þá ertu fín!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 11:57

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ég held þú verðir reyndar að laga vinnutímann þinn (og samkvæmislífið) að 24 þegar nær dregur. Loksins þegar þátturinn snýr aftur með þurran aðalleikara.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.8.2008 kl. 20:41

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég man þá tíð að þegar ~lángamma~ mín komzt á þinn ~samkvæmisaldur~, að fjölskyldan fjárfesti í svona 'stækkunarglerzskermi' fyrir framan bezta heimilisvin hennar.

Varla ertu nú að ætlazt til hins sama hópefliz, af hálfu okkar trúfözdu bloggvennzla þinna ?

Steingrímur Helgason, 25.8.2008 kl. 20:47

6 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Þú og þínar pælingar ásamt skrifum þínum er tær snilld.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 25.8.2008 kl. 22:31

7 Smámynd: Marilyn

Heyrðu nú - sumir notuðu bíllykil til að stimpla sig inn vegna þess að stimpilklukkan var biluð fyrir og ekki vinnandi vegur að fá neitt út úr henni með fingrunum einum saman og því varð að grípa til annarra vopna t.d. penna eða bíllykla (þetta gæti hljómað dörtí fyrir óvana)

Kveðja frá bíllyklastimplara 

Marilyn, 26.8.2008 kl. 00:45

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kvitt og knús, sofðu vel og góðan morgundag.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 00:45

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jón Arnar, segðu fokreiða manninum í Sementsverksmiðjunni það. Ég var að gera grín að látunum í honum, heldur þú virkilega að Skagamenn vilji fá aukna mengun í bæinn sinn? Held ekki.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.8.2008 kl. 07:47

10 identicon

Alveg sammála þér Gurrí, ég vil ekki sjá þessa mengun og viðbjóð sem sementið er að fara að standa í núna. Þetta vona ég að verði stoppað. Hvað með bæjarstjórnina? eru ekki Sjálfstæðismenn með tögl og haldir þar, hvernig væri bara að stöðva þetta mengunarslys áður en illa fer?

Jón Arnar, um hvað ert þú að tala? Stundum betra að lesa hlutina áður en þú kommentar á þá. Ekki satt??

Skagakona (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 292
  • Sl. viku: 2345
  • Frá upphafi: 1457615

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 1940
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Íslendingar í útlöndum
  • Titanic
  • Elsku Tommi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband