22.9.2008 | 11:25
"Eins og þjófur úr heiðskírri nóttu ..."
Ekki var erfitt að sofna vel og rótt eftir sjónvarpsveislu gærkvöldsins. Svartir englar lofar mjög góðu ... ég var svo óheppin að fá símtal í miðjum þætti og datt svolítið út, ætla að horfa á endursýninguna á fimmtudagskvöldið. Ævar Örn er einn af uppáhaldsrithöfundunum mínum og fyrst þættirnir eru byggðir á bókum hans ... jamm, bara gæðastimpill. Í mörgum íslenskum þáttum er það oft leikurinn sem er veiki hlekkurinn, skýrmæltir sviðsleikarar sem gera hlutina ótrúverðuga en ég sá ekki hvort slíkt var í gangi í gær. Eitthvað sem góðir gribbuleikstjórar ættu að geta lagað. Dagvaktin var bráðfyndin og lokaatriðið alveg brilljant. Það er búið að auglýsa hana svo mikið undanfarnar vikur að ég ætlaði varla að nenna að horfa en sé ekki eftir því að hafa gert það.
Ung kona á stoppistöðinni við Garðabraut var með lopavettlinga í morgun brrrrrr ... og mér kólnaði skyndilega við þá sýn, nú kafa ég í skápa og skúffur og finn gammósíur, fleiri trefla og hlýja peysu. Sagði við eina berhálsaða: Nú er aldeilis tveggja trefla veður. Var samt ekkert að meina það til hennar, minn eini trefill var nefnilega aðeins of lítið skjól gegn kulda að þessu sinni. Konan flissaði glaðlega og hagræddi kraganum á úlpunni. Öryggisbeltið í sætinu mínu passaði ekki utan um mig (enga offitubrandara, takk) og skellti mér aðeins framar, eða í aðstoðarmannssæti bílstjórans, og þar passaði beltið. Ég aðstoðaði bílstjórann alla leiðina með hugarorkunni einni saman, steinþegjandi, og við komumst heilu og höldnu í Mosó. Mjög, mjög, MJÖG margir farþegar voru í Skagastrætó og ekki næstum allir komnir yfir götuna á stoppistöðina (til Rvk) þegar leið 15 kom brunandi. Við vorum svo mörg að við ríflega fylltum leið 15 þannig að elsku Mosóbúar fengu ekki sæti alla þessa leið til Reykjavíkur. Í Ártúni hitti ég einn Indverjann minn og hann sagði: You have blogsite. Ég játti því og frétti þá að íslensk samstarfskona hópsins hafði rekist á skrifin um þá og blaðrað .... hehehehe. Ég sagði honum frá troðfullum Mosó-strætó sem ég var að koma úr og hann sagði að indverskir strætisvagnar væru ekki fullir - heldur TROÐNIR ... Ansi margt fólk var einmitt lika í leið 18. Veit ekki hvað gerðist í dag, kannski allir orðnir leiðir á því að láta .... uuuu, ..vera með vaselín á bensínstöðvunum .... (var þetta ekki bara fínlega gróft hjá mér?)
Samstarfskonur mínar voru í miklu stuði við komu kl. 9 og fóru að rifja upp ýmis mistök í íslensku ..., bæði sem þær hafa gert eða heyrt hjá öðrum. Dæmi: stott stupp, spakk og hakettí ... Maður fórnar nú ekki höndum fyrir smá mat ... Hann kom eins og þjófur úr heiðskírri nóttu.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 169
- Sl. sólarhring: 338
- Sl. viku: 861
- Frá upphafi: 1505868
Annað
- Innlit í dag: 135
- Innlit sl. viku: 701
- Gestir í dag: 130
- IP-tölur í dag: 126
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
hehe YOU HAVE BLOGSITE !!
En ég var að mestu leyti sátt við verk Ævars, Steinn Ármann gerður aðeins of ýktur asni og sérlega pirruð á honum þegar hann var hjá systur fórnarlambsins. Ég hefði bara urlast yfir svona framkomu en mér er málið skylt og hef þessa snöggu bletti gagnvart slíkum málum.
Ég ætla að horfa á næsta
Ragnheiður , 22.9.2008 kl. 11:59
Já, ég missti alveg af því atriði, sé það á fimmtudaginn.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.9.2008 kl. 12:13
Sæl Gurrý, ein ókunnug hér á ferð en les alltaf bloggið þitt, þú ert svo ansi hreint skemmtilegur bloggari :)
Troðfullur strætó, er ekki bíllausi dagurinn í dag eða eitthvað svoleiðis??? Svo verð ég nú að segja það að Steinn Ármann gerir nú Guðna bara góð skil, hann var í bókinni alveg nákvæmlega svona, alger asni og tuddi !!!1
Guðný (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 12:27
Missti af þessu, ætla að horfa á fimmtudaginn. Troðfullur strætó? Hef ekki séð svoleiðis í mörg ár.
Helga Magnúsdóttir, 22.9.2008 kl. 13:12
Sammála Guðný, það sem ég sá af Guðna passar nú skrambi vel við lýsinguna af honum í bókunum. Mér finnst fólk reyndar aldrei hlýða svona "Dögum" eins og reyklausa deginum, bíllausa deginum ...
Jú, Helga, troðið í leið 15 og svo þurftu nokkrir að standa í leið 18. Bara þvílíkt! Ekkert hægt að treysta á Ástu mína, hún fer bara af og til á bílnum í bæinn sem er ósköp notalegt með.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.9.2008 kl. 13:20
Haha þessi mynd lýsir mynd lýsir ferðinni í morgun mjög vel alveg troðfullur vagnin og ég svoldið grumppy En það er á svona dögum sem maður uppsker brosin sem maður sendir út því að það hressir mann við að vera búin að venja altt liðið á að brosa til baka
Það var mjög leiðinlegt að dangla speiglinum í hausinn á stráknum en sem betur fer þá fór það ekki ílla
Ég hef aldrey lent í þessu áður en þessir vagnar eru búnir að vera hjá Strætó í 10 ár (reindar er þetta elsti svona vagninn) og á þessum tíma þá hefur þetta aldrey gerst.
Svo varð ég pirraður á því að þurfa sífelt að fá fólk til að færa sig aftar í vagnin þetta tafði ferðina um 2-3 mín og varð næstum til þess að við mistum af vögnunum í Ártúni! það má ekkert útaf bregða í þessari ferð til þess að ná vögnunum þar og ég hef reynt að gera mitt til þess að fólk þurfi ekki að býða óþarflega í Ártúni
En það gengur örugglega betur á morgun
Helga vagnarnir eru gjarnan fullir það fara t.d. 4 stk vagnar á leið 6 frá Ártúni um 7:30 og þeir eru allir það fullir að fólk stendur, það er ansi mikið af fólkki
kv hag
hag (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 18:10
Þú varst sko ekki grömpí í morgun, Haraldur, fólk áttaði sig hreinlega ekki á því að það gat ekki staðið fremst, þá komust nýir farþegar ekki inn. Já, þetta var ansi mikil hrúga í morgun, hef ekki séð það svona mikið lengi. Ég fæ stundum far í bæinn og það er auðvitað voða þægilegt, en mér finnst alltaf gaman að taka strætó. Ég var búin að gleyma þessu með spegilinn, strákurinn hló bara að þessu, algjör hetja. Svona getur farið þegar allt of margt fólk er á stoppistöðinni, þá eru einhverjir svo nálægt götunni og þá vagninum þegar hann rennur inn á stoppistöðina.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.9.2008 kl. 18:19
Mér fannst þátturinn betri en bókin hans Ævars, skítadjobb. Fíla hann ekki nógu vel sem rithöfund. Fannst bókin alltof langdregin en þættirnir lofa góðu:)
Viktoría (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 20:30
Sæl Gurrí
Vona að þú hættir ekki að blogga um Indverjana þó þeir viti af síðunni þinni. Á nefnilega einn prins frá Indlandi og finnst gaman að lesa um Indverjana þína, fer þá alltaf í smá ferð til Indlands og rifja upp frábæra ferð þangað.....sjokk við að kynnast fæðingarlandi sonarins, en ótrúleg upplifun að verða mamma í fyrsta sinn í saman landi - elska Indverja og Indland, enda gaf það land mér dýrmætustu gjöf sem hægt er að hugsa sér ERFÐAPRINS :)
kveðja, Kristín
Kristín (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 20:46
Sæl vertu, alltaf er gaman hjá þér á morgnana, já troðin strætó, það er sjaldséð sjón, á íslandi, en hér er strætó oft það fullur að maður þarf að bíða eftir næsta.
Sá ekki þáttinn, en hann hefur örugglega verið skemmtilegur.
Hafðu það gott kv Gleymmerei
Brynja Dögg Ívarsdóttir, 22.9.2008 kl. 21:22
Ég missti af englunum, hlakka ekkert smá til á fimmtudaginn, hahah óþolandi svona smágerð bílbelti...hahaha!!
alva (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 23:31
Ég missti líka af báðum þáttunumekkert smá spælandi búin að hlakka mikið til,ég elska bækurnar hans Ævars,en Guði sé lof fyrir endursýningar svo þá læsi ég mig bara inni og dreg fyrirgóða nótt ljúfust
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 23.9.2008 kl. 00:42
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 10:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.