Hvassviðri og bjartsýnir ferðafélagar

HviðurÁsta hringdi þegar ég var í miðjum klíðum við að búa til latte ... „Ég verð fyrr á ferðinni og er að leggja af stað NÚNA,“ sagði hún með áhersluþunga, „við förum efri leiðina til að geta kíkt á vindhviðuskiltið.“ „Það er algjör óþarfi,“ sagði ég róandi, „ég sá á Netinu að hviðurnar eru ekki nema 26-27 m/sek.“ „Ég ætla samt að fara,“ sagði Ásta, sem trúir mér aldrei, „og við sækjum fyrst Sigþóru (hina veðurhræddu sem hafði hringt skjálfandi í Ástu).“ Latte-inn var helmingi rýrari vegna tímabreytingar Ástu og aðeins hálfur skammtur á mann ... og ekkert handa Sigþóru. Ég var á nærbuxunum við kaffigerð þegar Ásta hringdi og gat rétt svo klárað að klæða mig inn á milli samskipta minna við espressóvélina. Hrökk nefnilega upp korteri í brottför. 

Ég rétt gat stillt mig um að segja hæðnislega: „Ég sagði þér það.“ þegar rauðu tölustafirnir staðfestu að það væru 27 m/sek á Kjalarnesi. Að vísu voru 37 m/sek undir Hafnarfjalli en við vorum ekkert á leiðinni þangað. „Strætó mun ekki ganga,“ sagði hin bjartsýna Ásta með þunga og enn bjartsýnni Sigþóra, nýkomin af sólarströndu, tók undir það. Ég gat líka stillt mig um að horfa hlakkandi á þær þegar við mættum á Kjalarnesinu fyrsta strætó til Akraness og virtist Skúli vera algjörlega óhræddur undir stýri, samt er hann karlmaður. Ásta býr skammt frá Sementsverksmiðjunni og turnar þar gaula á einhvern viðbjóðslegan hátt í þessarri vindátt í hvassviðri og það heldur vöku fyrir hluta íbúa Suðurgötunnar og öllum á Mánabrautinni. Ásta var ansi hress og kát miðað við að hafa varla sofið dúr í nótt.

Hviðumælar á NetinuBíllinn haggaðist varla þar sem vindhviðumælirinn er staðsettur,  eða rétt fyrir beygjuna niður í Kollafjörð. Það tók aftur á móti ógurlega mikið í hann á svæðinu frá Hvalfjarðargöngum og að Grundahverfinu á Kjalarnesi. Ég skil ekki hvers vegna ekki er mælir þar. Þau óhöpp sem Skagastrætó hefur lent í eða næstum lent í, hafa einmitt átt sér stað þar! Kæra VEGAGERÐ, berð þú ábyrgð á þessu?

Ósköp voru fréttirnar minna spennandi í morgun en ég átti von á ... eftir öll þessi fundahöld. Bjóst við að Þingvellir yrðu seldir úr landi, kannski Gullfoss eða jafnvel Viðey! Lætin undanfarið hafa búið mann undir einhvern slíkan gjörning. Heyrði í Króa frá Spáni á Rás 2 rétt fyrir átta. Atvinnuleysi er 11,3% á Spáni og mikil bankakreppa í gangi, eins og hér heima ... samt er Spánn í Evrópusambandinu æðislega. Hmmmm, bindum við ekki of miklar vonir við að allt lagist ef við aðeins göngum í það ..?.. eins og þegar hjón ákveða að eignast barn til að laga hjónabandið! Það snýst eitthvað við í maganum á mér við tilhugsunina um að verða hluti af þessu rándýra batteríi. En hvað er ég að nöldra, þetta á að vera strætó- og boldblogg!  Fór ekki í strætó í morgun og hef ekki boldað í nokkra daga. Það verður bætt úr því síðarnefnda núna seinnipartinn.

Vona að dagurinn ykkar verði gefandi og ... jafnvel rómantískur. Einnig æsispennandi og áhyggjulaus.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

úff, ég er fegin að þurfa ekki að keyra þarna um daglega, ég er nefnilega frekar veðurhrædd í stormi.

Sigríður Þórarinsdóttir, 6.10.2008 kl. 17:37

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og yndislegar ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.10.2008 kl. 19:11

3 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 6.10.2008 kl. 23:27

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hæ krúttó! Hér í New Mexico hjá Nínu rignir yfir mig samúðarkveðjum og umhyggju þeirra sem halda að ég hljóti að vera í klessu yfir tíðindunum. Nei, nei, alls ekki, mamma og Ari bera sig vel og krakkarnir búnir að vera með mér á msn í fréttunum í dag. Skrýtið að vera í útlöndum þegar holskeflan ríður yfir. En ég fékk Obama límmiða í dag.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 7.10.2008 kl. 02:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 497
  • Sl. viku: 1239
  • Frá upphafi: 1460063

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 982
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DollyParton
  • Jason-Statham
  • 12. ágúst sko

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband