21.10.2008 | 10:37
Af bossum, boldi og milljónustu flettingunni
Tókst að klára hina hröðu, grimmu og spennandi bók Stefáns Mána í gær. Fyndið hvað sú bók hittir í mark með efnistökum, þótt glæpir eigi svo sem alltaf við ... Verðbréfasukk og svínarí, hvað hefur ekki komið á daginn?
Ég tek virkilega nærri mér hvernig rassinn á Töru Reid er orðinn. Það stendur í frétt á www.dv.is að rass Töru Reid veki óhug. Ég er líka þræll fullkomins útlits og skil vel að heimurinn sé í uppnámi. Svona lætur maður ekki gerast með rassinn á sér. Hver er annars þessi Tara Reid?
Það styttist óðum í milljónustu flettinguna mína á Moggabloggi. Ég veit ekki hvaða verðlaun eru nógu góð fyrir þann sem kemst næst því að verða fletting númer milljón ... en vona að viðkomandi láti vita í athugasemdakerfinu. Lofa djúsí verðlaunum, ekkert: Gönguferð fyrir einn yfir hálendið ... þú mátt leggja af stað núna-dæmi! Ekki slæmt ef króna hefði fengist fyrir hverja flettingu en ég set að vanda allt mitt traust á bingólottó.
Það hefur færst í aukana að bloggvinir láti aðra bloggvini vita í innankerfispóstinum þegar þeir hafa skrifað enn eina tímamótafærsluna en mér dettur ekki í hug að auðvelda bloggvinum mínum þetta, krefst þess að þið hafið svolítið fyrir því að leita mig uppi og lesa ódauðleg skrif mín um strætisvagnaferðir og bold. Múahahaha!
Boldið var djúsí í morgun að vanda. Eric heimsótti Jackie, miður sín yfir því hvernig kona hans, Stefanía, hefur leikið hana, eða opinberað fyrir alheimi að Jackie vann fyrir sér sem gleðikona í gamla daga. Vopnin hafa snúist í höndum Stefaníu og Nick neitar nú alfarið að selja fyrirtækið til Forresteranna aftur. Hann var orðinn pínu volgur varðandi söluna sem er geðlækninum Taylor og tímunum með henni að þakka en nú er allt lok, lok og læs. Hope litla, dóttir Brooke og Deacon (fyrrum tengdasonar Brooke) og Alexandria litla, dóttir Thorne og Dörlu heitinnar (sem Taylor ók á af slysni) leika sér saman og Hope segir vinkonu sinni að Taylor, sem nú er að fara að giftast pabba hennar og gerast góða stjúpan, hafi keyrt á Dörlu. Litla stúlkan er í miklu uppnámi, enda gekk henni svo vel að díla við móðurmissinn með hjálp geðlæknisins geðþekka, Taylor, sem nú reynist vera vondikarlinn sem orsakaði lát móður hennar þótt algjörlega óvart hefði verið ... Jamm, alltaf mikið að gerast í boldinu. Annars er Taylor farin að horfa með áfergju á Nick, nú er hann á lausu eftir að Brooke fór aftur til Ridge sem er fyrrum eiginmaður Taylor. Hvað verður nú um Tómas og tvíburana?
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 121
- Sl. sólarhring: 305
- Sl. viku: 813
- Frá upphafi: 1505820
Annað
- Innlit í dag: 98
- Innlit sl. viku: 664
- Gestir í dag: 97
- IP-tölur í dag: 94
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
.... er í hláturkrampa yfir lýsingum þín á Bold -
Ég er búin að fylgjast með þessari makalausu fjölskyldu frá því sumarið 1992. Núna dugar bara að kíkja við hjá þér og fá "up to date" á fjölskyldumálunum.
En hvað er annars að frétta af henni Bridget ? Dó hún eða?
Linda Lea Bogadóttir, 21.10.2008 kl. 10:59
Bridget er orðin læknir þótt hún hafi aldrei þurft að læra. Hún hefur átt tvo eiginmenn en mamma hennar stal þeim báðum frá henni og eignaðist Hope litlu með öðrum þeirra, þú kannski vissir af því. Hana dreymir enn um þann síðari, eða Nick, sérstaklega núna eftir að mamma hennar er skilin við hann. Hún varð ólétt aftur eftir kærasta Feliciu, stóru systur, en missti fóstrið. Man ekki meira.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.10.2008 kl. 11:09
Mér skilst að Mrs. Tara Reid sé að koma úr tveggja vikna reiðtúr yfir hálendið, hm.
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 12:18
Aha, það útskýrir hvers vegna rassinn á henni er svona krumpaður!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.10.2008 kl. 12:49
Sæl Frú Gurrí. Hver er þessi Tara? aldrei heyrt hana nefnda, hún er örugglega´ekki í líkamsrækt til að styrkja rasskinnar, ég fer 4 sinnum á viku til þess halda í rassinn minn fína, engvar ósoðnar lifrapylsur þar.
Mikið er ég nú orðin leiður á þessum hóruþætti bold and eitthvað, verð að horfa á hann þegar ég er á hlaupabrettinu í líkamsrækinni, þvílík þvæla, ég trúi því ekki að þú hafir gaman af þessu, þú þessi klára kona sem þú ert.
bestu kv héðan úr Norðlingaholtinu
siggi
siggi (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 13:19
Siggi minn, ég bolda til að gleyma!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.10.2008 kl. 14:43
Náði ekki alveg BOLD færslunni.
Hope litla er dóttir Brooke og Deacon samkvæmt færslunni, Hope litla segir vinkonu sinni að Taylor ætli að fara að giftast pabba hennar, Deacon þá??? Mér skildist alltaf að Thorne og Taylor væru par??
Ég er ekki lengur með stöð 2. en fylgist með Bold hér hjá þér!!?
kv. kristín
Kristin Jónsdóttir (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 18:07
Hef eitthvað orðað þetta loðið, Taylor ætlar að giftast Thorne, pabba hinnar stelpunnar, Alexandríu, sem varð móðurlaus eftir að Taylor keyrði á Dörlu. Sorrí!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.10.2008 kl. 18:16
998571
Ragnheiður , 21.10.2008 kl. 18:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.