9.10.2023 | 21:56
Möguleg Gnarr-styrjöld og nauðungarhlaup yfir hálfan Skagann ...
Bæjarferðin sem var farin á laugardag var dásamleg á ýmsan hátt en nokkuð óvænt líka þarna strax í byrjun. Þegar maður heldur að maður þekki einhvern ... Hilda systir sótti okkur í Mjódd og við héldum beinustu leið í Kaffitár á Höfða. Létum dásemdar-kaffið kólna ögn í bílnum á meðan við skutumst inn í Húsgagnahöll þar sem litlasystir hafði áður keypt sófa og borð, glimrandi flott og fínt. Nú átti að bæta við glimrandi fínu hliðarborði í stíl.
Á leiðinni upp rúllustigann heyrðist kallað: HÆ, GURRÍ!
Stráksi hnippti í mig þar sem ég litaðist um, til að benda mér á hvar kallandi maðurinn væri. Ég kallaði fagnandi HÆ á móti og sendi meira að segja fingurkoss, eins og maður gerir. Þessi samskipti tóku um þrjá sekúndur.
Hvaða maður var þetta? spurði stráksi.
Við unnum saman á Aðalstöðinni í gamla daga, svaraði ég en bætti svo við: Heyrðu, þú og hinir krakkarnir á starfsbraut hafið verið að horfa á Vaktirnar (Næturvaktin, Dagvaktin, Fangavaktin ...), þetta er maðurinn sem lék Georg Bjarnfreðarson,
Drengurinn stökk næstum hæð sína í fullum herklæðum. VAR ÞETTA Jón Gnarr? En hann var svo glaður ... og alveg venjulegur! Eftir smáræðu um vissa leiksigra, muninn á því að vera í vinnunni og ekki í vinnunni, héldum við áfram að aðstoða Hildu við að festa kaup á hliðarborðinu sem kemur til landsins vel fyrir jól og var á góðu verði, eins og hitt, á tilboði, með kynþokkaafslætti og alls konar. Hittum Petu og Grímar (mömmur.is-foreldrarnir) en mig grunar að helgarnar þeirra fari margar í að fagna sigrum með efnilegu körfubolta-barnabörnum sínum.
Sögunni var alls ekki lokið. Halldór fjandi hringdi í mig þegar við vorum nýkomin út í Hildubíl og sátum enn fyrir framan Húsgagnahöllina. Þetta var myndsímtal og rannsakandi augnaráð frænda míns olli mér engum óþægindum til að byrja með. Þú virðist hress? sagði hann í spurnartón og ég kvað svo vera, enda með gott kaffi í annarri og að smella á mig bílbeltinu með hinni.
Varstu í Húsgagnahöllinni? spurði hann sakleysislega en ég sá í gegnum hann í hvelli og fannst þetta grunsamlegt, hann er búsettur lengst úti í Evrópu, frekar svalt á morgun, 13°C, en fer upp í 19°C á miðvikudag og 22°C á fimmtudag (ég er með veðurapp í gemsanum). Eftir talsvert þref og þras komst ég að því að fyrrum samstarfsmaður minn sendi frænda mínum ekki bara fréttir af ferðum mínum, heldur FALSFRÉTTIR!
Skilaboð Jóns til fjanda voru svohljóðandi:
sá Gurrí áðan veltast um í stiganum í Húsgagnahöllinni. ég skal ekki sverja fyrir það en mér sýndist hún drukkin. sem er auðvitað skrítið rétt uppúr hádegi. hún var amk illa áttuð. ég kallaði á hana en hún virtist annaðhvort ekki heyra það eða skilja. þá hnippti einn drykkjufélagi hennar í hana og hristi hana til. þá var eins og hún rankaði aðeins við sér og brosti sínu breiðasta og vinkaði til mín. ég veit samt ekki hvort hún þekkti mig eða vissi hvar hún væri.
Meintur drykkjufélagi minn var stráksi!
Fjandi var hliðhollur mér í u.þ.b. fjórar mínútur (ættarböndin) sem var tíminn til að ná skilaboðunum út úr honum, en svo tók karlameðvirknin, strákasamsærið, Ken-hollustan yfir og hann sagði Gnarr að hann óttaðist að ég ætlaði að nota textann gegn honum, mögulega níða af honum skóinn.
Drykkjufólk þróar alltaf með sér gremju, svaraði Gnarr!!! Mögulega og vonandi bara var hann að stytta orðið kaffi-drykkjufólk ... ég hef vissulega þróað með mér gremju yfir ódrekkandi kaffi sem boðið er upp á allt of víða.
Lögmenn mínir hafa samt þaullesið textann í þeirri von að finna refsiverðar móðganir. Nákvæmlega svona verða sögurnar til!
Ég held reyndar að ég sé að detta í sundur (líkaminn) en slagaði samt alls EKKI eins og drukkin í rúllustiganum í Húsgagnahöllinni. Eins gott að ég pantaði tíma hjá nýjum kírópraktor hér á Skaga í lok október.
Nokkrum klukkutímum fyrir þessa atburði stóð ég virðuleg og beið eftir strætó 57 á leið í bæinn þegar grannkona mín, sem einnig ætlaði í bæinn, sýndi mér skilaboð frá Vegagerðinni um að Garðabraut væri lokuð og strætó færi aðra leið. Ég sá ekkert sem gæti mögulega orsakað lokun en treysti skilaboðum Vegagerðarinnar - í síðasta sinn.
Þegar ég sit sem oftar í biðskýlinu mínu við Garðabraut, sé ég í fjarlægð stoppistöðina á undan minni, Bæjarskrifstofur, heitir hún, er við Stillholt, rétt hjá Galito. Í raun eina von okkar til að ná strætó á laugardaginn var að spretta úr spori. Ég sem hef varla hlaupið að nokkru ráði í mörg ár tók til fótanna. Bílstjórinn beið sallarólegur, virtist eiginlega njóta þess að sjá virðulegar frúr á besta aldri, þjóta þessa óbærilega löngu leið, þetta var alveg hálf Garðabrautin, yfir hringtorgið stóra (það var lítil umferð), fram hjá bensínstöðinni á vinstri hönd og Landsbankanum, Flamingo og Dýrabæ á hægri hönd. Ég gekk virðulega síðustu metrana til að æla ekki blóði og sá mér til gleði að þessi örlitla strætóseinkun vegna hlaupa okkar, hafði orðið til þess að vinir okkar stráksa, Keli og Gaur, náðu strætó. Gaur er svartur labrador og með þeim allra, allra fallegustu. Við Keli spjölluðum saman alla leiðina og þar sem Gaur var ekki í vinnunni á meðan við vorum í strætó, fékk ég að klappa honum að vild. Ég þakka það reykleysi mínu til bráðum fjögurra ára að ég gat yfirhöfuð talað, ég var svo ótrúlega fljót að ná andanum. Ég hefði ábyggilega orðið vör við ef ég hefði rifið hásin - en verkirnir benda þó til einhverra áverka.
Mynd, samsett úr fjórum - til að útskýra hlaupin:
1. uppi t.v.: Tekin frá enda Garðabrautar, þegar ég var komin langleiðina, það sést í strætó á stoppistöðinni við Stillholt. Ég þaut yfir umferðareyjuna.
2. uppi t.h. Eldgömul hálkumynd sem sýnir leiðina að stoppistöðinni við Garðabraut, ég er farin að ganga með salt á mér. Græna blokkin stendur sem sagt við Garðabraut en skýlið mitt er vinstra megin og sést ekki fyrir bílskúrunum fjær.
3. niðri t.v.: Biðskýlið, gat ekki setið því vindurinn kom svo kaldur í bakið, ekki svona vel þrifið, heldur brotið.
4. niðri t.h.: Kort af leiðinni sem ég neyddist til að hlaupa, leiðin merkt með bláu, teiknuðu myndirnar af strætó sýna stoppistöðina mína, Garðabraut, lengst til hægri og sú við Stillholt er lengst til vinstri.
Það hræðilegasta var að bílstjórinn (frá Litháen) sem beið sallarólegur í Stillholtinu, flissaði góðlátlega og sagði að akkúrat þennan dag færi hann Garðabrautina eins og venjulega svo við hefðum ekki þurft að hlaupa. Ætti ég að fara í sjúkranudd og -þjálfun og senda Vegagerðinni reikninginn? Eða jafnar þetta sig ef ég ligg í rúminu í viku? Fundur hjá Hekls Angels á miðvikudag svo það gengur ekki. Eða á ég að láta lögmenn mína sjá um stóra hlaupamálið líka?
Dónabókin kláraðist á laugardagskvöld og var bara orðin mjög kjút í lokin. Það gerðist visulega fátt bitastætt fyrstu ellefu klukkutímana (hljóðbók) en svo varð allt vitlaust og ég þurfti að laumast til að hlusta undir sæng um tíma, munið.
Fór reyndar í bókabúð í gær og keypti nýju bókina hennar Nönnu Rögnvaldardóttur. Hafði frétt frá mjög áreiðanlegum heimildum að þetta væri harðkjarna torfbæjaklám. Mér fannst ég þurfa að tékka á því, er samt alls ekki orðin vitlaus í djarfar bækur. Byrjaði samt að lesa krimma sem ég keypti í leiðinni, hann fór vel í veski á meðan ég erindaðist í dag og ég gat lesið aðeins á biðstofu meðal annars. Valskan verður nú samt lesin fljótlega. Hef heyrt svo gott um hana.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2023 | 13:50
Algjör umbreyting ... og mál málanna
Skjótt skipast veður í lofti - nú er ég að tala um fremur langdregna ástarsögu (vægast sagt) sem ég var við það að gefast upp á eftir 11 klukkutíma hlustun. Fyrsti kossinn kom klukkustund síðar (sbr. blogg gærdagsins) og upp úr því fór að hitna í kolunum. Ég hélt að ímyndunarafl lesandans fengi að ráða restinni þegar kom: Og þá leystist veröld hennar upp - eins og það væri ekki nóg. Nei, aldeilis ekki, þetta var rétt að byrja. Bókin breyttist mjög skyndilega í harðkjarna erótík, sem er mjög vægt orðalag. Þau hvíldu sig varla, borðuðu ekki, fóru varla í sturtu, gáfu sér rétt tíma til að fara í flugvél og fljúga heim og héldu þá áfram ... Eiginlega frekar lærdómsríkt samt en aðallega vandræðalegt þar sem ég var ekki ein heima. Ég lá um hríð náföl undir sæng með símann og hlustaði. Var ég þá svona spennt? Nei, auðvitað ekki, vildi bara heyra hvernig færi.
Myndin lýsir ástandi gærdagsins alls ekki. Ég er bara ekki sérlega góð í að gúgla myndir sem eiga við.
Þegar klukkan var langt gengin í sjö í gær og garnirnar farnar að gaula í steríó í Himnaríki, neyddi ég mig til að slökkva á Storytel og staulaðist svo fram í eldhús, heit og rjóð eftir sængina yfir mér um hábjartan dag. Ég stakk upp á því við stráksa að hann færi í langa gönguferð fyrir matinn, það væri svo gott veður, og svo gaman og hollt ... Hann var meira en til í það og þegar ég sá út um baðgluggann að hann var kominn út á Höfðabraut hélt ég áfram að hlusta. Það reyndist mjög flókið að elda. Halda einbeitingu við Eldum rétt-uppskriftina, hlusta á verulega djarfar lýsingar og fylgjast með því hvort stráksi væri að koma heim. Ekki auðveldaði að ég var að elda turn, tortilla-turn, ekki gott fyrir hugrenningatengslin. Eftir að stráksi kom heim og við borðuðum ansi hreint ljúffengan tortilla-turninn hef ég ekki getað hlustað á bókina. Mér finnst hann sitja um mig og birtast óvænt á fimm mínútna fresti, og alltaf þegar ég er við það að ýta á play.
Tryggði þetta ástarsögurugl rómantíska drauma síðastliðna nótt? Nei, aldeilis ekki. Mig dreymdi bara hesta, heilu stóðin.
Við stráksi ætlum í bæinn á eftir og kettirnir undirbúa sig undir ástarorð á úkraínsku. Þeir dá og dýrka Svitlönu og Rostyk sem eru óspör á klapp, knús, leik og nammi. Eins og allir vita er ég mikið fyrir að hafa plan B í öllu.
Allir dallar fullir af kattamat, dugir eflaust í nokkra daga, þeir búnir að fá blautmat í dag, Keli lyfin sín.
Vatnsbrunnurinn ekki bara fullur af hreinu vatni, heldur eru líka tvær fullar skálar í vaskinum í eldhúsinu, svona ef rafmagnið færi af og brunnurinn stoppaði. Og allt þrátt fyrir svona góða og mikla pössun.
Nú, ef eitthvað ... þá gætu þeir bjargað sér í nokkra daga. Þá er ég að tala um ef ég þyrfti til dæmis að komast gangandi upp á Akranes, það þarf að gera ráð fyrir öllu! Lífstíðarbann í strætó er ólíklegt en hvað veit ég ...
AÐ MÁLI MÁLANNA:
Vitið þið hvern er best að tala við til að skipuleggja tónleika með Skálmöld hér á Akranesi? Miðað við fyrirspurn mína á feisbúkk eru þeir til í að koma, elsku yndin. Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum væri tilvalið (fyrir bíllausa kerlu). Orðið frekar langt síðan ég sá Jethro Tull hér og löngu seinna Dúndurfréttir, eða skömmu fyrir covid.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2023 | 16:42
Myndafundur, fyrsti kossinn og snjólétta Akranes
Gránaði í fjöll í gær, eins og stundum áður á þessum árstíma? Já, ekki mikið en það finnst vel fyrir kuldanum og spurning um að leggja sumar-alltofhlýja-jakkanum og taka fram dúnúlpuna. Esjan var þó miklu grárri því snjór virðist forðast Akranes (sjúkk). Þekki ungan mann sem bjó á Akranesi og fékk ógurlega flottan sleða í jólagjöf þegar hann var kannski níu eða tíu ára. Það festi ekki snjó á Skaganum næstu árin og þegar það loks gerðist langaði hann ekki í sleðaferð, enda orðinn unglingur og hafði miklu meiri áhuga á stelpum en sleðum, vill móðir hans meina. Ég hef reyndar einu sinni á mínum 17 árum hér, frá 2006, upplifað meiri snjó á Skaganum en í höfuðborginni. Einu sinni. Kannski var bara meira mokað í Reykjavík en ég held samt ekki. Myndina tók ég út um eldhúsglugga Himnaríkis og yfir Nýju blokkina, eða næstelstu blokkina á Skaganum. Þar bjó ég um tíma með foreldrum mínum og þar fékk ég alla heimsins barnasjúkdóma áður en bólusetningar voru fundnar upp við þeim. Rauða hunda, skarlatssótt, mislinga, og allt hvert á eftir öðru fyrir, um og eftir jólin. Þarna kynntist ég Boggu vinkonu minni og vináttan hefur haldist óslitin síðan, eða alveg í rúm 30 ár ...
Hræðilega bókin sem ég skrifaði um í síðasta bloggi og eiginlega lofaði Steingerði að hætta að lesa, lífið of stutt, sagði hún, fyrir leiðinlegar bækur (ég segi, fyrir vont kaffi) tekur tæpa 15 klukkutíma í lestri (á eðlilegum hraða) og það var ekki fyrr en eftir tæpa tólf tíma sem þau kysstust í fyrsta sinn. Stráksi kom heim um eittleytið í dag, ég að setja í uppþvottavél og hlusta, og þá skall á koss sem fékk hann til að flissa í dyrunum. Almáttugur, argaði ég og slökkti á sögunni. Það fannst honum mjög fyndið. Kannski er hann til í að hlusta á sögur núna, fyrst það eru kossar þar. Hann hefur aðgang að Hljóðbókasafninu og ætti auðvitað að hlusta á skemmtilegar bækur þar. Ég las inn bækurnar um Lúlla mjólkurpóst, orðljótan og strangan karl sem alla strákana í bænum langaði samt að vinna fyrir með skólanum. Svo hrikalega fyndnar að ég skellti nokkrum sinnum upp úr, tæknimanninum til lítillar gleði. Ég fékk fyrir nokkrum árum að hlusta á örlítinn part af upplestri mínum (síðan á síðustu öld, mögulega níunda áratugnum) og ég hljóma eins og tilgerðarleg fegurðardrottning að tala um frið á jörðu. Með fullri virðingu fyrir öllum dásamlegum fegurðardrottningum. Að sjálfsögðu er ég að tala um útlenskar, annað hvort væri það nú. Bendi stráksa á Lúlla mjókurpóst. Og fyrst ég á bara þrjá tíma eftir ætla ég að klára kvikindið - hún getur ekki versnað úr þessu. Bækur sem svona gott er að sofna við eru vandfundnar.
Í látunum í kringum fegrun skópalls Himnaríkis þurfti ég að finna nýjan stað fyrir albúmin og að sjálfsögðu datt ég ofan í þau, alltaf gaman að skoða gamlar myndir. Ég var frekar dugleg að taka myndir á Kodak Instamatik, eða hvað sem það hét ... með flasskubbi og allt. Árið 1978 var leikritið Hlaupvídd sex sett á svið á Akranesi og hér er mynd af fögrum leikkonunum sem tóku þátt, allar spariklæddar nema ég lengst til vinstri, enda þær í ástandinu ... Ég var Áslaug, á móti hernum og sönn talskona þjóðlegra gilda. Ótrúlega gaman að taka þátt í þessu, og í Línu Langsokk næsta ár á eftir þar sem Helga Braga steig sín fyrstu spor á leiklistarbrautinni, sem Lína. Kannski gerði Guðfinna það líka, þarna í Hlaupvídd sex árinu áður, en hún er við hliðina á mér á myndinni og leikur m.a. í nýlegri og bráðskemmtilegri Icelandair-auglýsingu.
Ég fann myndirnar úr skólaferðalagi hagnýtrar fjölmiðlunar 1998-1999 til New York og Washington DC og rifjaði upp góðar stundir þar. Ævintýrin ... þegar spákonan í Brooklyn reyndi að kúga mig til að senda sér andvirði um 200 þúsund króna fyrir kristalla sem ég átti að hugleiða yfir og senda henni til baka, og hún síðan að láta nornir syngja yfir svo líf mitt yrði gott. Það sem hefur verið reynt að frelsa mig yfir í alls konar, það gerir aulasvipurinn og svo stendur auðvitað AUÐBLEKKT á enninu á mér, ranglega. Ég er nú samt alveg rosalega tortryggin og jarðbundin.
Jú, bekkurinn úr hagnýtri heimsótti Jón Baldvin og Bryndísi í sendiherrabústaðinn í Washington. Við fengum fínar móttökur, snittur og hvítvín, en þrátt fyrir að þetta hafi verið gaman, skilaði það voðalega litlu nema góðglöðum skvísum og nokkrum ljósmyndum í albúm á Akranesi. Myndi ég nenna að vera sendiherra og þurfa í sífellu að standa í svona tilgangslausum móttökum? Nei, nema jú, kannski í Englandi, en hætta fljótlega eftir heimsóknina í Buckinghamhöll. Já, svona getur maður verið tækifærissinnaður.
Mynd: Þarna sitjum við saman eftir móttöku JB og Bryndísar og komnar á einhvern voða fínan veitingastað þar sem ég borðaði ostrur í fyrsta sinn og hvítvín, jæks, hvað það var ... ekkert sérstakt. Skelfiskur, nema humar og rækjur, finnst mér ekki góður og ég er meiri rauðvíns- en hvítvínskona, eiginlega bara helst kaffikona. Minnir að kaffið westra hafi ekki verið sérlega gott, aðeins örfá ár síðan Starbucks kom til New York sem var 22. apríl 1994 og ekki enn á hverju götuhorni, og ári áður, eða í mars 1993, til Washington DC. Þetta DC ... Það var ekki fyrr en ég heimsótti Elfu vinkonu fyrst að ég skildi hvers vegna allir sögðu DC (District of Columbia) fyrir aftan heiti borgarinnar. Jú, af því að borgin Washington (DC) er svo sannarlega ekki í ríkinu Washington, þar er Seattle og þar er Conway þar sem Elfa býr, og höfuðborgin tilheyrir engu ríki.
Á myndunum má þekkja tvær RÚV-konur úr mínum bekk, en önnur þeirra bjó nokkuð fyrr í sama húsi og ég (á Hringbraut) um hríð (í þrjá mánuði) og opnaði fyrir syni mínum þegar hann lokaði sig úti, lét hann lofa sér í leiðinni að hætta að spila Cyprus Hill á hæsta, og kenndi mér að búa til bestu grænmetissúpu í heimi! Inniheldur m.a. chili (með fræjunum) og hálfan lítra af rjóma sem gerir hana sterkmjúka, mjúksterka? Frábær þessi bekkur og þessar Siggur - þetta ár í hagnýtri var eitt það skemmtilegasta í lífi mínu. Eftir það sogaðist ég inn í tímaritabransann; annríki, álag, vikulegt deddlæn, frábært samstarfsfólk, skemmtilegir viðmælendur ... og hviss, bang, árin liðu hratt og nú er bráðum aldarfjórðungur liðinn frá því þessar myndir voru teknar! Svo er ég farin að skrifa oggulítið fyrir Lifðu núna, vefrit fyrir fimmtíu plús. Fjölbreytt og skemmtilegt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2023 | 13:40
Eyðileggjandi stundvísi ... og örlítið frægafólksmont
Ondúlering átti sér stað í gær hjá Classic hárstofu á landamærum bæjar og sveitar í 300 Akranesi og tengist því að verða sem fínust úti í Glasgow, til að verða ferðafélögum ekki til skammar. Þeim hefur fækkað sem þora að spyrja: Af hverju ferðu ekki frekar til Edinborgar? Ég tek því ekki vel og skánandi bak mitt orsakar alls konar frábærlegheit, eins og að eiga léttara með slagsmál.
Fyrir mörgum árum sagði einhver við mig: Ef þú ætlar að finna draumaprinsinn, þarftu sennilega að fara til Skotlands. Mig dreymdi nefnilega, þegar ég var 12 ára, nafnið á tilvonandi eiginmanni mínum; Filippus Angantýr. Hef bloggað um það áður. Langt síðan. Nafnið finnst ekki í þjóðskrá. Einhver snillingur í vinahópnum vildi meina að það hefði verið of flókið fyrir mig svona unga að heyra Philip MacIntyre, gæti það orðið skoskara?) og ég hefði aldrei getað skrifað það rétt strax um morguninn, enda ekki byrjuð að læra ensku þá, bara dönsku. Ég var sem sagt að spjalla við guð í draumnum og hann sagði að ég myndi eignast tvíbura (gekk ekki eftir), deyja (í hárri elli) 38 ára (gekk ekki eftir) og eignast mann með þessu nafni (enn er von). En ... miðað við alla mína fyrrum eiginmenn væri sennilega langauðveldast að taka stafi úr nöfnum þeirra og búa til Filippus Angantý, nægur afgangur fyrir fleiri nöfn. Þegar ég heyri nafnið Filippus, man ég líka flissið í mömmu þegar hún var að skrifa jólakort eitt árið og bað mig að skrifa utan á umslögin. Ég var kannski 10-11 ára. Filippía sem mamma þekkti átti að fá jólakort og ég skrifaði að sjálfsögðu Fillipía (fyllipía) sem mömmu fannst alls ekki ganga svo ég varð að skrifa utan á annað umslag. Það er eins og mig minni að sú kona hafi verið tengdamamma Didda fiðlu. (Name dropping er leyft á þessari síðu, einnig í athugasemdum, þó með takmörkunum).
Frægafólksmont, er það gott orð? Kannski frægafólksgrobb?
Anna Júlía klippti mig og litaði og þrátt fyrir mikinn mun til hins fegurra urðu engar umferðartafir og slíkt rugl við brottför mína. Anna tjáði mér að hún hefði séð dulbúinn lögreglumann sitja í ómerktum bíl fyrir utan, örugglega ekki að mæla hraða, eins og eflaust einhverjir héldu, heldur út af klippingunni, til að hafa hemil á fólkinu sem vildi sjá. Það eru einhverjar lokanir á Akranesi og bílstjóri strætó benti mér á að koma yfir götuna því hann sneri ekki við, eins og hann á að gera við Hausthúsatorg. Það þýddi að ég hljóp á eftir strætó í fyrsta sinn í mörg ár og gekk bara vel. Það gerist alltaf eitthvað spennandi á hverjum degi! Oft á dag, stundum.
Ég er afskaplega stundvís, eða reyni það eftir bestu getu, kem helst of seint ef strætó er seinn, ég sef yfir mig (gerðist stundum í gamla daga) eða ég treysti á bílfar með fólki með ekkert tímaskyn. Þegar ég var komin í skóna í gær sá ég að það voru alveg fimm mínútur þar til ég þyrfti að leggja af stað til að ná strætó. Var búin að taka til fleiri bækur í gefins-hilluna og ætlaði að fara að koma þeim smekklega fyrir þegar ég andaði á svarthvítu myndina (frá c.a. 1968 í 1. maí-göngu en í þá daga fóru allir sem gátu gengið í allar göngur, enda ekkert annað í boði nema bókasafnið og KFUK. Myndinni hafði ég tyllt ofan á hilluna svo hún datt á mig og tók blómapottinn með gervi-mánagullinu með sér í leiðinni en sá fór á gólfið. Hann brotnaði en ég varð að skilja þetta eftir svona (sjá mynd) til að mæta á réttum tíma í klipp og lit.
Maður þarf að þjást til að vera fallegur ... og líka stundvís. Stundvísi getur greinilega líka verið eyðileggjandi. Einhvers staðar á ég kennaratyggjó og ætti að festa myndina þannig að hún hrynji ekki við næsta andardrátt einhvers. Að setja þarna bækur sem gestir mínir taka með sér og mega eiga eða gefa áfram, hefur mælst einstaklega vel fyrir. Enda fínustu bækur, að sjálfsögðu.
Bókin sem ég er að lesa núna er ekki í þeim flokki, held þó í þá von að hún lagist. Ég keypti mér hana fyrir mörgum vikum, þegar hún var nýkomin út, en hef lúsast áfram með hana, ekki næstum því hálfnuð sem er nánast óhugsandi því ég er hraðlesari og get auðveldlega lesið meðalkilju á einum degi, og það með vinnu, húsverkjum, gestakomum og alles. Hún mætti á Storytel og ég ákvað að prófa hvort hún væri þolanlegri í upplestri og það er hún, samt er hún frekar óþolandi og kemur sér aldrei að efninu, eða brúðkaupi systurinnar þar sem aðalpersónan ætlar að mæta með þykjustukærasta (erfiðum samstarfsmanni sem býðst til að leika kærastann). Það eru eilíf augnaráð, misskilningur á annarri hverri blaðsíðu, yfirlið, hún alltaf í megrun ... en fyrrum kærasti hennar er kominn með nýja upp á arminn og verður að auki svaramaður tilvonandi mágs hennar, svo hún "verður" að bæði líta vel út (grennri) og vera líka með kærasta (gervi). Ekkert slæm hugmynd að þægilegri, auðgleymanlegri og klisjukenndri ástarsögu þar sem hún endar að öllum líkindum í örmum gervikærastans en ég hefði átt að hlusta á kunningjakonu mína sem ég hitti í bókabúðinni: Ætlar þú að kaupa þessa? Hún hefur reyndar fengið frekar misjafna dóma ... Ég hef lesið svo mikið af svona bókum síðustu árin, hef hreinlega þurft á góðum endi að halda en þetta er ekki gott. Hún svæfir mig alla vega hratt á kvöldin og ég hirði ekki um að spóla ögn til baka til að missa ekki af neinu, enda er ég svo sem enn að hlusta á eitthvað sem ég hef lesið og leiðst yfir og eiginlega gleymt. Það eru nokkrar góðar (held ég) á leiðinni.
Neðsta myndin var tekin áður en allt fór satans til. Ég átti enn eftir að fjarlægja tvær bækur (sem verða ekki gefnar) og þarna er blómapotturinn í heilu lagi. Svarthvíta myndin er ekki sérlega skýr en við Bogga vinkona til áratuga stikum þarna áfram framarlega fyrir miðju, og Gunnhildur, bekkjarsystir okkar, fyrir framan okkur. Ég keypti þessa mynd af Ljósmyndasafni Akraness eitt árið en pantaði hana þó allt of stóra ... Það er nánast ekkert veggpláss eftir í Himnaríki. Héðan í frá verða bara pantaðar og keyptar myndir í passamyndastærð nema ég skipti um íbúð. Nú sé ég eftir að hafa rifið vegginn á milli stofu og svefnherbergis fyrir 17 árum. En samt ekki, frábært að hafa stóra stofu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2023 | 16:56
Morgungestir og misskilningur vegna myndbirtingar ...
Óvæntur morgunverður snæddur í himnaríki í morgun. Fékk veður af þessu um áttaleytið í morgun, stillti klukkuna á hálftíu og var orðin spikk og span þegar þau komu um tíuleytið. Þú hefur breyst, sagði Kamilla en hún hefur ekkert hitt mig síðan FYRIR RÚM (FR). Þú ert orðin eitthvað svo há og grönn, gaf hún greinilega í skyn og vildi meina að líkamsburður minn væri breyttur, fegurri og meira fjaðrandi, sýndist mér á augnaráði hennar. Hún er læknir og ætti að hafa vit á þessu. Gerry hennar er listamaður og virtist líka fullur aðdáunar, hefur afskaplega gott listamannsauga, ef svo er. Það munaði minnstu að þau byðu mér í gönguferð þar sem ég er farin að geta gengið meira en fimm sentimetra án þess að fá í bakið en ég var fljót að stoppa það, þótt ég geti nú gengið út í bókabúð og til baka án þess að þurfa að leggjast á hitapoka sem ég gerði iðulega FR. Mæli með að fá sér gott rúm, þetta extra stífa RB-rúm hefur bæði yngt mig og fegrað á innan við mánuði. Ýkjulaust.
Tók mynd af Gerry og setti á Snappið á meðan Kamilla skar í sundur rúnnstykkin frammi í eldhúsi, tók svo mynd af þeim saman til að setja á bloggið. Það rigndi yfir mig snappskilaboðum; Hvaða myndarmaður er þetta? Úhú, flott hjá þér ... Góð ... Bíddu, bíddu, eitthvað sem þú þarft að segja mér!
Nei, krakkar mínir, ég fer alltaf afskaplega leynt með alla mína kærasta og skyndigaura* (*föstudagar, mjólkurkælir, Einarsbúð) og birti ekki myndir af þeim á samfélagsmiðlum, í allra mesta lagi brúðkaupsmyndir og bara ef ég er enn skotin í þeim eftir athöfnina. Ég er meira að segja með leynilyftu í Himnaríki, kalla hana Amor, hún er á bak við ísskápinn (já, smávesen) en hefur aðstoðað mig við að halda orðspori mínu sem meinlaus kattakerling.
Þessi viðbrögð segja mér samt að aðdáendur mínir (u.þ.b.30) á snappinu vilji mögulega eitthvað ögn meira æsandi en myndir af flottum köttum, æðislegum Eldum rétt-mat og mögnuðum öldum við Langasand en á Langasandi sjást reyndar oft karlkynsskokkarar, berir að ofan, sem er það næsta sem margar konur komast kynlífi eftir fimmtugt. Að sjálfsögðu tala ég ekki af reynslu. Auðvitað hef ég tekið myndir uppi í rúmi en þar sjást bara fjörugir en oftast sofandi ofsasætir kettir og bækur, reyndar nokkuð oft SPENNUbækur ... alveg spurning um að ég færi mig á næsta stig og fjölgi þannig snappvinum upp í 40. Þarf bara að hugsa hvað ég geri, ekki óttast, það verður ekkert of djarft. Ég er dama.
Fyrir tíu í morgun kláraði ég ansi hreint fína bók sem ég byrjaði á í gær, hún heitir Grátvíðir og er eftir Fífu Larsen. Bókin er vel skrifuð og líka það spennandi að ég vakti allt of lengi yfir henni, eða fram á nótt. Annars hefði ég sennilega sagt morgunverðargestunum að koma fyrr ... Bókin gerist á Ítalíu og segir frá íslenskri konu, ekkju sem býr með ungum syni sínum og ítölskum tengdaföður. Lögreglan hefur samband við hana eftir að lík af konu finnst og með miða þar sem símanúmer þeirrar íslensku var skrifað. Segi ekki meira - mæli hástöfum með. Og konan sem les (Sigrún Hermannsdóttir) er virkilega góð.
Vinkona mín vinnur á frekar stórum vinnustað en um 50 samstarfsmenn hennar sitja nú heima með covid-19. Það er ýmislegt gert til að halda mér í landi og koma í veg fyrir Glasgow-ferðina. Vonandi verður covid ekki eitt af því. Daginn sem ég flýg út verður nefnilega KVENNAFRÍDAGUR! Ætli verði þá bara karlkynskrúttmolar í öllum störfum á Leifsstöð? Vonandi eru til nógu margir flugmenn (kk) og flugliðar (kk) svo allar konurnar geti tekið sér frí.
Stráksi er alla vega búinn að fá frí í skólanum og mér var fyrirgefið þótt ég hefði óvart valið ranga viku (haustfrí vikunni á undan), ég lofaði að vera dugleg að kenna honum sitt af hverju nytsamlegt í ferðinni. Hann kemur alltaf miklu lífsreyndari og klárari úr hverri ferð og með enn betri enskukunnáttu. Nú þarf ég meðal annars að kenna honum að nota skoskan framburð til dæmis við buxnakaup. Maður segir víst ekki tráses, heldur trúsars ... sönn saga.
Ég heyrði undarlegt hljóð áðan. Hvað ertu að gera? spurði ég stráksa sem var víst að sveifla hurðinni að herbergi sínu til að búa til vind (lofta út). Leysa vind með hugarorkunni, svaraði hann. Hér eru prumpbrandarar fullkomnnaðir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2023 | 20:12
Ein á palli ... fyrir og eftir
Dugnaðurinn við að gera næsta pall ögn bærilegri var allnokkur í gær og enn meiri í dag þrátt fyrir afmælisveislu í næstu götu. Tvær af dásamlegustu manneskjum í heimi mínum eiga báðar afmæli í dag, önnur bauð í vöfflur (sem var nú aldeilis meira en það) og það var Inga. Hin (Steingerður) býr í Kópavogi en er samt æðisleg.
Margt var rætt í afmæli Ingu, eins og alltaf þegar gáfað og fallegt fólk kemur saman. Nánast um allt nema stjórnmál, veikindi, trúmál og var ekki eitthvað eitt enn sem er bannað í veislum? Jú, fjármál veislugesta, skilst að það sé líka bannað, svona ef mann langar að verða boðið aftur. Talið barst að tilvonandi mögulegri hótelbyggingu á þyrlupalli Himnaríkis. Mér heyrðist á öllum að sá staður hugnist þeim ekki svo mjög, frekar staðurinn þarna í grennd við sements-sílóin, smábátahöfnina og þar. Verulega flott sjávarútsýni þar, en þá þyrfti ég að ganga alla Faxabrautina eftir latte-bolla sem yrði eini gallinn við þá staðsetningu. Æ, þetta fer eins og það fer, ekkert vit í að fárast yfir einhverju sem verður kannski allt öðruvísi en sögur segja. Ein spurði hvort væri þörf á hóteli hér, við hreinlega vissum það ekki, en sennilega, með alla þessa útlendinga sem koma til Íslands. Við vorum nokk sammála um að staða fatlaðra barna við það að verða 18 ára geti orðið rosalega flókin og nokkrar dæmisögur fengu að fjúka. Þetta voru alvarlegri málefnin, auðvitað ræddum við helling um bækur, eins og alltaf er gert í góðum boðum. Held að við getum ekki beðið eftir jólabókaflóðinu. Hver getur það?
Pallurinn niðri er sannarlega ekki búinn, ég er að máta, það þarf, og þigg alveg tillögur smekklegra vina og vandamanna. Hann var mjög ljótur en hefur skánað til muna. Blómin þrjú sem voru þarna niðri eru í gjörgæslu í eldhúsinu. Sennilega get ég bjargað yngri jólakaktusinum en ég held að liljan og stóri kaktusinn (bráðum fimmtugur) séu búin að missa lífsviljann. Gerviblóm eru málið, Mánagullið ofan á hillunni er ekki ekta. Svo er gott að hafa stól þarna niðri, ólíklegasta fólk þiggur með þökkum að fá að tylla sér við þá athöfn að klæða sig í skó. Vetrarskór krefjast þess yfirleitt en líka hægt að setjast í stigann.
Þetta vandræðadæmi þarna hægra megin við kringlótta borðið eru nokkrar marmaraflísar upp á rönd (frá endurbótunum 2020, ef brotnar á baðinu) en ég fór með þær niður á pall (fékk aðstoð) þegar ég fann engan stað fyrir þær í Himnaríki, þær eru svo ofboðslega þungar og myndu skemma og brjóta skápbotninn á fataskápnum. Ég var búin að vefja hvítri gardínu utan um þær en sé á myndinni að á hliðinni sem sést þarf að gera það betur. Smiðirnir mínir ætluðu að taka flísarnar og geyma fyrir mig í trésmiðjunni en það gleymdist alltaf og ég ætla ekki að ónáða þessar greiðviknu elskur. Hillan hvíta úr kósíhorninu er betri þarna vinstra megin og ég fékk þá hugmynd að geyma í efstu hillunni bækur sem gestir mínir geta valið úr og mega eiga. Krimmarnir fara þó til hirðrafvirkjans. Ég þarf aðeins að grisja þar, sá ég áðan, og taka eina eða tvær með mér upp aftur. Svo er spurning um stærra kringlótta borðið, skákborðið sem er komið upp, hvort ég leyfi því að gossa, það skjöktir og er orðið ansi sjúskað enda eldgamalt ... er til í allt nema of mikið af húsgögnum og munum, ég nýt þess svo innilega að hafa minna dót og drasl í kringum mig eins og hefur verið eftir 2020.
Það er frekar mikil rúst í himnaríki núna, allt skúrað og sjænað fyrripartinn í gær - svo fékk ég hugmyndina. Samt ábyggilega betra en að vera að breyta og taka til í leiðinni. Þið hafið tillögurétt og málfrelsi í stóra pallsmáli Himnaríkis (Inga hélt að ég væri að vesenast með einhvern útipall, þekkir hún mig ekki betur?)
Vantar ekki blóm (gervi) í gluggann sjálfan? þótt ég trúi ekki þannig séð á Feng Shui er ég sammála ýmsu þar, eins og því að passa upp á flæðið, láta ekki þrengja að sér. Ef ég hefði sett stólinn við hlið borðsins, með bakið upp við vegginn hægra megin hefði hann orðið hindrun fyrir neðstu tröppuna, auðvitað prófaði ég það fyrst en það kom ekki vel út. Það hefði verið sniðugt til að fela betur flísarnar. Ég mun máta, jafnvel prófa annan stól, kannski koll. Þetta er ferlega gaman.
Myndin átakanlega, þessi neðsta, var tekin inn í kósíhornið í gær, þegar ég var að byrja lætin. Fyrir miðri mynd er semsagt hillan sem er komin niður á pall, guli innkaupapokinn var farinn að fyllast af bókum sem tóku síðan bara hálfa hilluna niðri. Já, og ég finn eitthvað þarna í staðinn, kannski stóran kistil sem er inni hjá stráksa. Kommer í ljós.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 122
- Sl. sólarhring: 135
- Sl. viku: 760
- Frá upphafi: 1525653
Annað
- Innlit í dag: 111
- Innlit sl. viku: 680
- Gestir í dag: 107
- IP-tölur í dag: 103
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni