25.2.2021 | 16:55
Óþolandi breytingar
Allir vita að hjúkrunarfræðingar komast vart í föt sín á morgnana fyrir vængjum. Og öll elskum við þessa stétt en sér í lagi strætóbílstjórar. Það er mín reynsla.
Við fluttum í bæinn 1971 frá Akranesi og fórum þá að taka strætó. Mamma aftur - en hún er Reykjavíkurmær sem hafði unnið á spítalanum á Akranesi í nokkur ár og við búið þar. Í æsku bjó hún við Laugaveg 91 (síðar kom Domus þar, enn síðar Sautján) á móti Stjörnubíói ... og gerði þau mistök að segja okkur systkinunum frá því að hún hafi stundum farið í bíó allt upp í þrisvar á dag þegar mest þurfti að sjá. Hún gat því aldrei bannað okkur að fara í bíó.
Fyrstu árin bjuggum á Bollagötunni og notuðum oftast leið 1, Gunnarsbraut - Lækjartorg, en stundum sexuna á Miklubraut.
Mamma vann við hjúkrun á Landakoti, á barnadeildinni - í huga fólks nánast eins og að vera hjartaskurðlæknir ... Ef hún missti af sexunni sem gekk fram hjá Landakoti, tók hún ásinn og þurfti þá að ganga Austurstræti, Aðalstræti og upp Túngötu að Landakoti. Það fannst einhverjum bilstjórum óhugsandi. Svo þeir fóru að skutla henni í vinnuna ... á strætó sem með endastöð á Lækjartorgi. Hinir farþegarnir urðu margir brjálaðir yfir þessu og görguðu en bílstjórinn ók mömmu sem leið lá upp á Landakot (Túngötubrekkan er erfiðari en hún virðist) og ók svo aftur niður á torg, fór Hverfisgötu, Klapparstíg, Njálsgötu, Gunnarsbraut, Flókagötu ... og svo framvegis.
(Ég á því miður enga hjúkkumynd af henni, en þessi af okkur mæðgum er frá 1980)
Við systkinin stórgræddum á að eiga mömmu sem mömmu. Einn bílstjórinn leyfði okkur að borga súkkulaðikúlur í fargjald eða ekkert, annar gaf mér heilt strætómiðakort sem hann borgaði sjálfur fyrir - í þakkætisskyni fyrir að mamma hafði hugsað svo vel um barnabarnið hans. Systir mín segir að að þeir hafi bara verið skotnir í henni ... tengist ekkert starfinu.
Margt hefur breytst. Bílstjóri (ekki strætó-) sem keyrði mömmu í myndatöku um daginn ætlaði að vera voða kammó við hana (86) og systur mína (60+) sem var með í för: Eruð þið úr sveit, stelpur? Hún horfði rmjög pirruð á hann og sagði: Nei, ég er Reykvíkingur. Orðið sveitó var notað talsvert í hennar ungdæmi og ekki sem hrós. Allir forfeður hennar voru reyndar úr sveit, móðurætt frá Skagafirði (Hegranesi) og föðurætt Rangárvöllum (Helluvað), svo það komi nú fram.
Ég myndi aldrei kvarta yfir bílstjórunum mínum á leið 57 en þeir skutla mér þó aldrei upp að dyrum eða gefa mér strætómiða.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 13
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 152
- Frá upphafi: 1527921
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 117
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Þú ættir nú að fá sérstök umhverfisverðlaun, búin að ferðast með strætó í sex áratugi, Gurrí.

Annað en Ómar Ragnarsson, sem á stóran þátt í bráðnun Snæfellsjökuls.
Þorsteinn Briem, 25.2.2021 kl. 19:56
Hmmm, 49 ár, ÞB, ekki sex áratugir. Býst við gullúri frá umhverfisráðuneyti. ;)
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 25.2.2021 kl. 21:15
Ég reiknaði með að þú hefðir eitthvað ferðast með strætó í Reykjavik fyrir árið 1971, enda þótt þú hafir búið í Stykkishólmi og á Skaganum, þar sem þú hefur áreiðanlega einnig verið mjög umhverfisvæn.
Þorsteinn Briem, 25.2.2021 kl. 21:39
Það var lítið ferðast, ekkert í strætó - ég fór t.d. í fyrsta skipti til Þingvalla á þrítugsafmælinu mínu!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 25.2.2021 kl. 21:48
Móðurafi minn átti aldrei bíl og ferðaðist enn með strætó í Reykjavík þegar hann var 100 ára gamall.

Mæður okkar eru fæddar sama árið og hafa trúlega ferðast saman í strætó, fegurðardísirnar.
Þorsteinn Briem, 25.2.2021 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.