23.3.2021 | 13:21
Harry og hringurinn dýri
Ég legg til nafnið Andvökuhraun - það skýrir sig sjálft. Sat með tveimur bráðskemmtilegum konum frá Grindavík í fermingarveislu um helgina. Spennandi en hrollvekjandi lýsingar af því að eiga jafnvel von á gosi við bæjardyrnar og fá stóra skjálfta með upptök sín örstutt frá. Og mjög oft andvaka - eins og ég og margir sem biðu stundum fram á nótt til að fá skjálftann sinn og gátu þá farið að sofa.
(Eins og sést á myndinni skrapp ég eitt kvöldið á inniskónum og peysunni á gosstöðvarnar - en mundi eftir húfu.)
Hefði sennilega ekki hitt þessar skemmtilegu konur, ekki mætt í veisluna, ef yfirvöld hefðu gefið upp í fréttum í hádeginu á sunnudaginn hvað hefði í raun gengið á um helgina varðandi smit, m.a. í fermingarveislum. Ég hlæ kuldalega og harðneskjulega innra með mér þegar ég hugsa um spjallið þarna í veislunni, alla bjartsýnina, um hvað allt væri orðið gott í þessum málum, hvað sumarið yrði mikið æði, bara engin smit. Einmitt. Beiskj, beiskj.
Ég er mjög heilbrigð, hætti að auki að reykja fyrir bráðum ári og það allt, en mig langar allllls ekki að fá þetta ógeð - sem sumir kalla nú samt smáflensu: vopn í baráttu Bill Gates til að ná að bólusetja alla heimsbyggðina með staðsetingarbúnaði. Katrín Jakobs flækt í þetta líka og öll ríkisstjórnin okkar ... Ofsalega verður gaman hjá Bill Gates að fylgjast með öllum í heiminum. Þarna er John að fara í Walmart, já, Gurrí uppi á Íslandi að fara í ræktina, Anna bara heima í þetta góðu veðri. Mikið er þetta gaman. Já, svo auðvitað græðir hann ofboðslega á bóluefninu. Var ekki Dolly evil Parton flækt í þetta líka?
Nú eru fréttir af bresku konungsfjölskyldunni orðnar ögn jákvæðari. Samkvæmt einni nýlegri er Harry prins ekkert annað en dýrlingur, gjafmildur og góður bróðir ... Hann erfði dýrmætan hring eftir móður sína, Díönu prinsessu, algjört góss, og þegar Vilhjálmur var kominn á biðilsbuxurnar, alveg að fara að biðja Katrínar á hnjánum, bauð Harry honum að fá þennan fína hring Díönu, hann mætti bara eiga hann! Kannski varð þessi hringur svo til þess að Katrín sagði já! Nógu lengi hafði hún hugsað sig um.
Af hverju eru Íslendingar svona allt öðruvísi? Það hefur aldrei neinn kropið niður og beðið mín, hvað þá með hring í hönd. Ég hef alltaf þurft að kaupa mína hringa sjálf. Skástu bónorðin hafa komið bréfleiðis í ljóðaformi sem er alveg flott fyrst en verður leiðigjarnt þegar ljóðin eru bara þýddir textar úr dægurlögum. Já, eða: Þetta var skemmtileg og rómantísk bíómynd sem við sáum hér í Stjörnubíói, en hvernig væri að við létum pússa okkur saman, Guðríður mín? Ég svara alltaf: Hei, við vorum að kynnast, rólegur, kúreki! (Ekkert að þakka, Bríet.)
Ég þori reyndar ekki á Tinder vegna klaufaskapar míns í tölvu- og símamálum (Hver pókar óvart látinn mann á Facebook þegar dóttir hans er að búa til minningarsíðu um hann? Ég.). Ég myndi svo innilega óvart henda prinsum og hertogum á brott af síðunni og samþykkja alls konar froska ... en ég hef svo sem slakað á kröfunum eftir sextugt.
Gömul vinkona fór tvisvar eða þrisvar á stefnumót með mönnum sem hún hafði kynnst á einkamal.is. Síðasta deitið var með manni sem vildi endilega fá hana með í bíltúr þar sem þau gætu spjallað saman og kynnst. Hún samþykkti það, hann hafði virkað ósköp vinalegur í spjallinu á netinu en þau höfðu aldrei hist í eigin persónu. Svona ísbíltúr hljómaði bara vel, fannst henni.
Hann mætti stundvíslega fyrir utan hjá henni, myndarmaður með fallegt bros og blik í augum. Vinkona mín settist inn og svo var ekið af stað. Maðurinn fór að tala um leið og hann ók af stað, tala um guð og Jesú, og notaði hverja einustu mínútu vel svo hún komst ekki að. Til að ekkert truflaði var hvergi stoppað til að kaupa ís eða eitthvað að drekka sem hefði gert þetta léttbærara. Í hátt í tvo klukkutíma mátti hún hlusta á þetta og var eiginlega of smeyk til að biðja hann um að skutla sér heim strax, blikið í augum hans var orðið að undarlegum glampa og brosið ekki lengur jafnfallegt. Ekkert hafði bent til þess að maðurinn væri svona ... sérstakur. Loks var hann orðinn nógu þreyttur í talfærunum til að hún kæmist að og þá bað hún hann að skutla sér heim. Hún væri orðin þreytt.
Eigum við ekki að hittast aftur? spurði hann glaðlega í kveðjuskyni þegar hún var að fara út úr bílnum.
Nei.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.5.): 9
- Sl. sólarhring: 50
- Sl. viku: 490
- Frá upphafi: 1526884
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 414
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Það væri nú harla einkennilegt ef Íslendingar væru ekki skrítnir, flestallir náskyldir hver öðrum.

Helga Rafnsdóttir á um 99 þúsund afkomendur
Útlendingar hafa hins vegar bjargað því sem bjargað verður í þeim efnum, til að mynda þeir sem veiddu hér við Ísland fyrr á öldum, Englendingar, Frakkar og Baskar, og íslenskar konur sváfu hjá þegar þær seldu þeim ullarsokka og vettlinga.
Svo og breski og bandaríski herinn og nú síðustu áratugina til dæmis Pólverjar og flóttamenn, sem Halldór Jónsson hatast við, enda þótt þeir hafi hér góðan starfa og haldi því karlinum uppi í hatursskrifum sínum gegn flóttamönnum.
Langar til að gera Kurdo Kebab að þekktu vörumerki
Þorsteinn Briem, 23.3.2021 kl. 15:20
Veit að það er franskt blóð í ættinni minni, svo margir í móðurætt með dökkt hár og brún augu. :)
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 24.3.2021 kl. 01:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.