25.3.2021 | 12:49
Góðar fréttir - slæmar fréttir
Þegar fóstursonurinn kom heim seinnipartinn í gær vissi ég að hann hafði ekkert heyrt um atburði dagsins, eða að öllu hefði verið skellt í lás. Ég kallaði á hann og sagðist hafa bæði góðar fréttir og slæmar fréttir að færa.
Það verður enginn skóli á morgun, byrjaði ég. Þú ert kominn í páskafrí tveimur dögum of snemma vegna COVID-19, hélt ég áfram.
Ég var svo alvarleg á svipinn að hann varð óöruggur. Eru þetta góðu fréttirnar? Ég horfði hneyksluð á hann: Nei, þetta eru slæmu fréttirnar, ég veit að þér finnst svo gaman í skólanum.
Svo sagði ég honum góðu fréttirnar, sem hann gladdist yfir. Hann var samt svolítið ringlaður á svip og ég heyrði tautið í honum þegar hann var kominn fram: Jess, jess, páskafrí! Ég get sofið út, frábært
Ég veit ekki hvenær ég breyttist svona. Það er svo stutt síðan ég gladdist sjálf heilmikið yfir óvæntu fríi í skólanum í kjölfar eldgoss í Vestmannaeyjum. Hvað gerðist?
Þegar ég fékk greindarlegt komment við bloggfærslu nýlega: OG HVAÐ áttaði ég mig á því að í raun var verið að minna mig góðlátlega á að bolda sem ég hef allt of lítið gert af frá því ég hóf að skrifa á nýjan leik innihaldsríkar, tilgangsmiklar og æsandi (strætóferðirnar) bloggfærslur um líf mitt sem er allt annað en hversdagslegt - já, og boldið. OG HVAÐ MEÐ BOLDIÐ?
Ég kíkti eitt augnablik á þáttinn (Bold and the Beautiful) í gær og sá að fátt hafði gerst síðan í janúar ... Aumingja Hope fær enn þá næstum því að vita að ættleidd dóttir Steffíar sé í raun dóttir aumingja Hope - en alltaf kemur eitthvað eða einhver í veg fyrir að hún fái að heyra sannleikann, held ég, það gerðist í gær og það gerðist líka síðast þegar ég kíkti. En ég lofa að bæta mig. Horfi kannski í dag eða á morgun og gef skýrslu.
MYNDIN er af (f.v.) Hope, Liam og Steffí. Liam var giftur Steffí og hún ólétt. Samt tók hún til öryggis faðernispróf af því að hún hafði lent í að sofa hjá tengdapabba (Bill) en Liam átti nú barnið. Verst að hann sá faðernisprófið óvart sem eyðilagði hjónabandið og hann fór til gömlu kærustunnar Hope og giftist henni eftir að hafa gert hana ólétta. Hann er frábær faðir og hlakkar til að eignast aðra dóttur. Barnið fæðist þar sem Hope er alein (Liam seinkaði) en læknirinn sem tekur á móti barninu er spilasjúklingur og búið að hóta honum því að drepa dóttur hans, hann rænir barninu og selur mömmu Steffíar, Taylor, geðlækninum með varirnar, það, en hún hafði verið að svipast um eftir barni sem Steffí dóttir hennar gæti ættleitt svo dótturdóttirin gæti alist upp með systkini. Væn fjárhæð átti að fara til móðurinnar sem gæfi barnið en auðvitað hirti staurblankur læknirinn peninginn. Sú sem fæddi andvana barnið sem er notað til að sannfæra Hope, er fengin til að þykjast gefa Steffí barn Hope og Liams ... þannig að nú alast upp litlar hálfsystur án þess að nokkur viti nema læknirinn, dóttir læknisins og konan sem þóttist vera móðirin sem gaf barn sitt. Hope laðast óeðlilega mikið að barninu sem hún á í raun. Sennilega þurfum við að bíða fram í maí með að þetta komist upp. Mögulega maí á næsta ári.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.5.): 140
- Sl. sólarhring: 142
- Sl. viku: 621
- Frá upphafi: 1526647
Annað
- Innlit í dag: 122
- Innlit sl. viku: 531
- Gestir í dag: 111
- IP-tölur í dag: 110
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Sem sagt dæmigerð bandarísk fjölskylda, eins og fjölskylda Hómers Simpsons og Donalds Trumps.
Þorsteinn Briem, 25.3.2021 kl. 14:28
Hahahaha, greinilega.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 25.3.2021 kl. 14:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.