Svarið er alltaf fótbolti

TrumpismiMamma hringdi í mig og var ekki sérlega ánægð með nýjustu færslur mínar (karlamálin). Þótt hún hafi mestan áhuga á krossgátum les hún líka djörf blogg, í raun Moggabloggið nánast eins og það leggur sig, nema hún nennir ekki að lesa langsóttar samsæriskenningarnar, segir hún, fyrrum hjúkkan. En hún hringdi sannarlega ekki til að tala um þær, heldur skamma mig, virðulega næstelstu dótturina. „Við höfum ekkert að gera við að fá veðurfræðing í fjölskylduna,“ sagði hún hreinskilin og vísaði með því í Vilmund Vatnajökul eins og öll ættin mín er farin að kalla hann. „Þeir eru einskis nýtir og geta aldrei spáð rétt, heilu lítrarnir af sólarolíu hafa farið í súginn þeirra vegna. Mun betra, eins og þú hlýtur að skilja, er að þú finnir þér jarðfræðing, eldfjallafræðing, jarðskjálftafræðing, forseta, lækni, smið, pípara, rafvirkja ...“ taldi hún hugsandi upp áður en hún stoppaði sig af. „Þessu fólki er nefnilega bjargað fyrst af öllum ef allt fer til fjandans, og það má þá taka fjölskylduna með í þyrluna og þú býrð nú við hliðina á þyrlupalli.“

„Vó ... Varstu að horfa á bandaríska stórslysa-geimveru-hamfaramynd?“ spurði ég áhugasöm, langaði að sjá þessa mynd en ákvað að verja Vilmund: „Ofsaveður getur nú samt gert allt vitlaust eins og jarðskjálftar og eldgos.“ Lengri urðu samræður okkar ekki, mamma skellir alltaf á mig þegar ég ríf kjaft, kveður sem sagt hratt þegar fréttirnar byrja, en þetta fékk mig nú samt til umhugsunar. Eru svona bíómyndir þar sem forsetum og hæfum fræðingum og snillingum af öllum kynjum er bjargað fyrst, kannski byggðar á sannsögulegu eins og mér skilst að sé tilfellið með Kötlu á Netflix? (búin með þrjá þætti) Á ég að láta hjartað ráða eða hlýða mömmu? Auðvitað er ég löngu búin að steingleyma Vatnajöklinum, eins og ég hef oft sagt. En hvort gerir  mig hamingjusama, væri kannski rétt að spyrja:

Svarið er fótbolti. Alltaf fótbolti.

Ég nenni nánast engu fyrr en eftir 11. júlí, og miðað við nýjustu bólófréttir verð ég orðin fullbólusett þegar ég fer í „veiðiferðina“ norður með Hildu og þarf ekki að horfa upp á hana taka karla á löpp á meðan ég sit inni í bíl með bók í annarri og kaffi í hinni - sem er samt ekkert hræðilegt. Alls ekki, ég geri það þegar hún fer í sund og við skemmtum okkur báðar frábærlega vel.

 

Lausaganga fuglaMunið, þegar kom upp þessi neikvæða umræða um ketti (ég held með ungum, en umræðan var ansi ljót frá sumum, ósanngjörn og röng í garð katta). Ég alla vega óttaðist að ýmsis óféti kæmu upp á yfirborðið og gerðu atlögu að kisum og það hefur komið á daginn, það er eins og einhver ógeð haldi að umræðan hafi gefið þeim samþykki til að drepa ketti, eitra fyrir þeim eða jafnvel ræna þeim og keyra í önnur hverfi eða upp í sveit og skilja eftir ... Vona að „freki karlinn“ fyrir norðan skammist sín, og finnist ekki bara líf sumra dýra dýrmæt.

Eins gott að ég rekist ekki á hann á ferðalagi mínu eftir mánuð. Það væri samt svo gott á hann ef gullfalleg kona af Akranesi horfði nístingsköldu fyrirlitningaraugnaráði á hann og fussaði, eða mjálmaði, ég er ekki búin að ákveða það. Kannski nýt ég bara lífsins, gleymi svona fordómapungum, (já, ég er með fordóma fyrir svona fólki og má kasta stórgrýti úr gróðurhýsi á mínu bloggi) ... og drekk gott kaffi í Listasafninu í Gilinu ... og hjá Fríðu á Siglufirði. Fullbólusett. Húrra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahahahahaha.............

Tomas Runar Andresson (IP-tala skráð) 22.6.2021 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 19
  • Sl. sólarhring: 485
  • Sl. viku: 2425
  • Frá upphafi: 1458090

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 2023
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Siegfriedungjoy
  • Ótrúleg kvittun
  • Sjöundi maí 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband