22.1.2022 | 22:59
Fertugt hið nýja níræða og stórkostlegt snarræði
Drengurinn að heiman þessa helgi og ég gargaði af gleði þegar ég var orðin ein ... dinglaði ryksugunni, sveiflaði tuskum og fór í luftguitar með þveglinum. Villt vinnuhelgi fram undan og þá er gott að hafa allt fínt í kringum sig. Settist niður í stofusófa eftir mat í gærkvöldi og las smávegis (vinnutengt) og fussaði jafnframt yfir myrkrinu úti sem kom í veg fyrir að ég nyti þess að horfa á brjálað veður, hafið mitt í ham, í suðvestanátt en áttin sú býður oft upp á glæsileg sjávartengd skemmtiatriði. Mér fannst heyrast óvenjulega hátt í rigningunni, eins og hún væri inni í Himnaríki - og hún reyndist vera það. Lárétt rigning í afar miklu magni og vindi upp á 20 metra á sekúndu varð einum glugga stofunnar ofviða og einnig herbergisglugga drengsins - það lak við litlu opnanlegu gluggana. Fínustu gluggar og bara nokkurra ára gamlir, en þarf að láta þétta þessar elskur enn betur þótt svona veður séu sjaldgæf.
Mynd: Í sjokki á Snapchat á Skaganum.
Þegar ekkert er sunnanmegin nema sjór og svo Reykjanesskaginn sem stendur sig ömurlega sem skjólgarður, getur allt gerst. Esjan gerir oft góða hluti fyrir Reykvíkinga og nærsveitir en Keilir ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir Skagamenn í sunnanátt, hvað þá Þorbjörn í suðvestan, hann sést ekki einu sinni héðan. Ég sem vann í fiski í Grindavík þegar ég var 15 ára og hjálpaði við að bjarga verðmætum. Ég bjó mig undir nótt hinna þúsund handklæða í gær en varðist samt fimlega með plastpoka, Costco-eldhúsrúllu, nokkur handklæði og dagblöð að vopni og fljótlega upp úr því hrósaði ég sigri því rigningin gafst upp og hætti.
Ekkert lak niður á gólf, þökk sé snarræði mínu, sjálfstjórn og hugrekki, en þetta læt ég laga sem allra fyrst. Þessi mánuður hefur verið harður í horn að taka þegar kemur að veðri sem ég nýt samt itil hins ýtrasta ÞEGAR gluggar halda og óveðrið sýnir sitt fegursta í DAGSbirtu.
Nú þarf ég að taka allt aftur sem ég hef sagt um aldursfordóma ónefnds krabbameinsfélags á sv-horninu, fertug kölluð kona á þínum aldri, munið, sem mér fannst betur eiga við konur um áttrætt. Nú hefur komið á daginn að þau hjá Krabbó höfðu rétt fyrir sér allan tímann. Í gær opnuðust loks augu mín. Ég hef samt fengið svo fjölmargar vísbendingar í lífinu, öll hintin sem ég náði ekki ... dreymdi t.d. 11-12 ára að guð hefði sagt mér að ég myndi deyja í hárri elli 38 ára, og rétt um fertugt þegar allt sem amaði að mér og jafnöldum mínum var kallað breytingaskeið (líka fótbrot) þegar meðalaldur þess skeiðs er í raun 51 árs en það var ekki verið að reyna að drepa okkur með því, heldur voru þetta bara sterkar vísbendingar. Ég mun alla tíð fyrirverða mig fyrir að hafa borið mig saman við manneskju sem var ekkert annað en gamalmenni, Madonnu sem hélt tónleika fram eftir öllu - pottþétt með ungum klónum af sjálfri sér sem líka fæddu fyrir hana börnin sem hún hlóð niður eftir að hún varð senior (40).
Ég er ekki sérlega sigld sem útskýrir en afsakar ekki fávisku mína, ég mætti líka vera betri í útlensku og hef svo sem alltaf verið fyrir tilviljun í vernduðu umhverfi þegar ég fer utan (au pair í London - með Kór Langholtskirkju víða um Evrópu - hjá Elfu og Tom í Bandaríkjunum og Hildu og co í Karíbahafinu) þar sem aldur barst aldrei í tal. Nú held ég mig til hlés og geri viðeigandi ráðstafanir af auðmýkt. Ég ætla að taka þessu, vera þakklát fyrir þessa aukaáratugi sem eldri borgari.
Róðravélin sem mig langar svo að kaupa mér mun víkja fyrir göngugrind. Eldum rétt-maturinn fyrir sveskjugraut. Ég kaupi mér sokkaífæru og hætti þessu brölti við að finna góða hreyfingu heima (ég get stundað róleg húsverk og gengið í hægðum mínum upp og niður stigana) sem ég var að leita eftir þegar ég fór fyrir mistök inn í megrunarauglýsingu (bjakk) sem þó opnaði augu mín. Ég heiti Gurrí og er eldri borgari! Endilega ekki segja heldri borgari, nema þá helst að opnist fyrir að við almúgafólkið megum bera ættarnöfn.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 2
- Sl. sólarhring: 82
- Sl. viku: 855
- Frá upphafi: 1524844
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 722
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Ef þú breytir nafninu þínu í Guðríður Svíndal eða Gurrí Flatey í símaskránni myndir þú ekki lengur tilheyra sauðsvörtum almúganum, Gurrí.

Drengurinn á heimilinu gæti einnig tekið upp ættarnafnið Svíndal og allir hans afkomendur, enda þótt nafnið fengist ekki skráð í Þjóðskrá.
Í símaskránni eru nöfnin Sigga Kling og Sigríður Klingenberg en enginn heitir þeim nöfnum, samkvæmt Íslendingabók og Þjóðskrá.
Þar að auki er nafnið Guðríður Svíndal miklu merkilegra og flottara en til dæmis Guðríður Líndal.
Svínadalur
Lög um mannanöfn nr 45/1996
Lög um skráningu einstaklinga nr. 140/2019
Þorsteinn Briem, 23.1.2022 kl. 11:21
Þjóðskrá eða ekkert ... en þetta er agalegt ættarnafn, takk samt.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.1.2022 kl. 11:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.