23.7.2007 | 09:22
Fögur og fljótsnyrt
Vaknað 6.23 og andvarpað, aðeins 18 mínútur í brottför strætó frá Skrúðgarðinum. Hrein, falleg en nokkuð gömul fötin tilbúin á stól við rúmið (sett þannig að kettirnir geti ekki lagst á þau), sokkar enn í þurrkaranum, þeir sóttir. Horft á kaffikönnuna, einhver tími? ... nei. Strætó náð og það án þess að hlaupa eða stressa sig á nokkurn hátt, aðeins þetta kvenlega andvarp við vöknun. Mikið er gott að vera svona fljótsnyrt á morgnana!
Undanfarið hef ég verið að pæla í því að það væri kannski mögulega svolítið sniðugt að ganga út, jafnvel bara skrambi hentugt, sérstaklega ef maðurinn er handlaginn því að þótt smiðurinn minn hugsi mikið til mín lagast svalaumbúnaðurinn ekki neitt og ég kann EKKERT á svona smíðadrasl. Það styttist líka í veturinn og það er nú ögn hlýlegra að hafa karl í fanginu en kött. Það styttist líka fáránlega í að ég verði 49 ára, eða 12. ágúst nk., og það vill enginn 49 ára gamla konu, eins og allir vita. Ég hef því lagst í ýmsar handbækur undanfarið um árangursríkar karlaveiðar, meira að segja las ég Handbók piparsveinsins, sem ég fann uppi í hillu, en hún reyndist bara vera fyrir stráka, eins og nafnið gefur til kynna. Handbók einstæðra mæðra: Íslenskir milljarðamæringar, var lítið skárri. Þá datt ég ofan í gamla Viku þar sem mátti finna veiðiaðferðir á frelsaða karlmenn. Ég hló subbulega í upphafi en svo fór ég að hugsa alvarlega um þetta ... Ég bý líka í næsta húsi við KFUM-húsið á Skaganum og hæg heimatökin. Ætla að prófa að negla einhvern með einhverri af þessum setningum: 1) Flott biblía! 2) Meiddir þú þig þegar þú féllst af himnum ofan? 3) Ertu syndugur maður vegna þess að þú STALST hjarta mínu? 4) Ég er að fara að mála mynd af Jesú, viltu sitja fyrir?
Æ, annars, ég held að ég nenni þessu ekki. Það mátti vissulega velta þessu upp í morgunsárið! Takk fyrir að hlusta. Argggg!
Megi dagurinn ykkar, bloggvinir góðir, verða FRÁBÆR!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Gáfuhjal, Lífstíll, Trúmál og siðferði, Vinir og fjölskylda, Væmni | Facebook
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.4.): 95
- Sl. sólarhring: 170
- Sl. viku: 662
- Frá upphafi: 1524293
Annað
- Innlit í dag: 88
- Innlit sl. viku: 566
- Gestir í dag: 85
- IP-tölur í dag: 83
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Amen. Nú pissaði ég á mig af hlátri í andlegum skilningi. OMG þú drepur mig einhvern daginn. Af hverju hugkvæmdist mér ekki að ná mér í mann með því að biðja hann að sitja fyrir á mynd sem Jesús? Of seint, of seint, húsbandið er Ásatrúar. Svona getur manni mistekist hrapalega í lífinu.
Smjúts og njóttu dagsins í botn ormurinn þinn
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 09:30
Hahaha ég á hálfgerðan Jesú, hann var allavega beðin um að leika Jesú forðum daga þegar Leikfélag í Eyjafirði setti upp Jesús Súperstar af Kolbrúnu Halldórsdóttur en hann átti þá ekki heimangengt.
Ég get þó huggað mig við það að hann kemst nálægt þessu þótt hann hafi ekki dottið ofan af himnum í eiginlegri merkingu að þá hefur hann margdottið í óeiginlegri!
Edda Agnarsdóttir, 23.7.2007 kl. 09:46
Hmmm, Ragna vinkona hennar litlu systur fann einn úr þessum markhópi. Þetta getur verið tvíbent, fjölskylda hennar er enn með dálítið ítarlegan undrunarsvip. En brúðkaupið var víst mjög glatt, sungið og spilað á gítar og fleiri hljóðfæri.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.7.2007 kl. 10:17
Hahahah, vil gjarnan setja krónískan undrunarsvip á vini mína, bara upp á djókið!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 10:19
HaHaHa þú ert nú meiri djókarin en eigðu góðan dag mín kæra.
Kristín Katla Árnadóttir, 23.7.2007 kl. 10:25
Ég er alltaf að ganga út....
....opna bara hurðina.... et voila...
Hrönn Sigurðardóttir, 23.7.2007 kl. 10:45
Þetta eru flottar pikkUplínur fyrir þá í Krossinum, skyldi Gunnar vita af þessu?
Bragi Einarsson, 23.7.2007 kl. 11:18
Ef þú safnar þjóðbúningadúkkum .............. talaðu þá við stuðmenn hvort þeir auglýsi ekki fyrir þig
................... "Hver vill elska 49 ára konu sem safnar þjóðbúningadúkku."
Þóroddur (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 11:38
Megirðu sömuleiðis eiga frábæran dag.
Brynja Hjaltadóttir, 23.7.2007 kl. 11:47
Eigðu góðan dag líka, mín kæra. Já, það er alveg spurning með þessa frelsuðu herra...
SigrúnSveitó, 23.7.2007 kl. 11:53
Hérna ertu nokkuð farin að lesa Ditu of mikið?
S. Lúther Gestsson, 23.7.2007 kl. 13:39
Heheheh, hvaða Ditu?
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 14:15
Aha, fann Ditu á síðunni þinni, Lúther. Kannski er hvorug okkar að stæla hina ... pældu í því!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 14:29
Ég hef nú bara aldrei heyrt það fyrr, að engin vilji 49 ára gamla konu! Í hvaða bók stendur það, í "Harry Potter og Viskusteininum" kannski!? hehe!
Og kæra Hrönn, gerðu mér stóran greiða, opnaðu fyrir mig dyrnar en ekki hurðina!
Magnús Geir Guðmundsson, 23.7.2007 kl. 15:04
Magnús minn, hvernig væri að fara að hlusta á Stuðmenn!!! Þá myndir þú vita þetta.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 16:51
Hahahó! ERu bullumsullumbögur Stuðmanna nú orðnar "Þinn vísdómur um sannleikan og lífið"? Hahahahaha, þá skaltu sko til dæmis "Taka til við að twista" og "Gera allt fyrir frægðina til að slá í gegn" (næstum því!) án þess að koma nakin fram!
Magnús Geir Guðmundsson, 23.7.2007 kl. 18:06
Huggulega fljótsnyrt kona sem á þurrkara ..... Nú styttist í Veislu aldarinnar í nafla alheimsins, Himnaríki! Hlakka til
www.zordis.com, 23.7.2007 kl. 18:32
".........Þegar við opnum og lokum hurðum beitum við þess vegna nafnskiptum af sama toga og í fasta orðasambandinu ‘að drepa á dyr’. Orðið hurð kemur í stað dyra. Í sjálfu sér er þess vegna ekkert rangt við það að opna eða loka hurðum alveg eins og það er ekkert rangt við það að ‘drepa á dyr’.........."
Þess vegna opna ég hurðir og nota talfrelsið í bankamannahúsinu
Hrönn Sigurðardóttir, 23.7.2007 kl. 21:49
Mín elskulega, yndislega, æðislega og kæra Hrönn!
Hver hefur eiginlega verið að plata þig með þessari vitleysu?
"Að drepa á dyr" er einfaldlega það sem við köllum örðatiltæki, ekki fast orðasamband, síðast þegar ég vissi og kemur málinu ekkert við.
EF þú segir "opna hurð" þá er það bara einfaldlega RANGT MÁL!
Get bara ekkert gert að því, þannig er það bara!
SEgi þetta í mestu vinsemd.
es. Fyrirgefðu fröken Guðríður, á reyndar ekkert með að vera með svona "Messur" hjá þér, en stalst núna, skal aldrei gera það aftur!
Magnús Geir Guðmundsson, 24.7.2007 kl. 00:05
Þetta er nú fengið á ekki ómerkari lygavef en Vísindavef HÍ enda legg ég bara lag mitt við ómerkilega svikavefi!!
Fyrirgefðu Gurrí mín, varð bara að fá að svara þessum manni!
Hrönn Sigurðardóttir, 24.7.2007 kl. 00:21
Enn sko Jenný sem er bloggvinkona ykkar allra, hún sko skellir hurðum enn ég má ekki sega það á síðunni hennar því þá tekur hún færslurnar mínar burtu, og það vill maður náttúrulega ekki.
S. Lúther Gestsson, 24.7.2007 kl. 03:29
.............Bíddu er ég á síðunni hennar....?? Nei ég hélt ekki. OK.
S. Lúther Gestsson, 24.7.2007 kl. 03:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.