Dularfulla After Eight-ið og sögulegur samningur við strætóbílstjóra

Hlaupið upp lúmsku brekkunaHef ekki komið í Ártún í lengri tíma. Það var ósköp gaman að rifja upp gamlar minningar með því að hoppa út úr leið 18 þar, hlaupa niður milljóntröppurnar, fara undir brúna og þjóta upp lúmsku brekkuna. Fór létt með þetta allt saman, enda lítill snjór núna, bara rigning. Skrýtið að standa síðan í tíu mínútur á algjörlega mannlausri stoppistöð sem er yfirleitt full af fólki.

Bílstjórinn sem ók fjögur-strætó frá Mosó var hress að vanda. Sagði mér að ég hefði misst af Slade-lagi, C´mon feel the Noise, og fleiri góðum í útvarpinu, jú, við höfum sama tónlistarsmekkinn. Hann bað mig um að gera sér greiða. Hann nennir ekki að lesa Harry Potter sjálfur og spurði hvort ég væri ekki til í að segja honum hvað hefði gerst á þessum fyrstu 200 blaðsíðum sem ég er búin með. Frá Kollafirði og að Kjalarnesi sagði ég honum það helsta í stuttu máli. Hann er sem sagt kominn á samning, fær að vita allt jafnóðum alveg til enda. Sat beint fyrir aftan hann og gat talað frekar lágt. Ásta er gjörsamlega áhugalaus um Potter og afplánaði þetta með mæðusvip en ég veit ekki um strákinn sem sat við hlið okkar hinum megin við ganginn. Hann hélt alla vega ekki fyrir eyrun. Bílstjórinn keyrði eins og engill alla leiðina, með hunangsblíða rödd mína í eyrunum mestallan tímann!

Við Ásta verðlaunuðum okkur fyrir ... uuuu, góða frammistöðu í vinnunni ... og fengum okkur kaffi og köku í Skrúðgarðinum, sátum úti og nutum sólarinnar, það er nefnilega sól á Skaganum. Stelpurnar á kaffihúsinu vita orðið nákvæmlega hvernig ég vil hafa latte-inn minn; ekki sjóðheitan og enga froðu, takk! Kaffið var líka fullkomið! Keypti græna kortið en þegar ég ætlaði að kippa því með voru svona milljón útlendingar sem biðu eftir afgreiðslu svo að ég sæki það bara á morgun.

After EightMía systir og Sigþór vildu endilega verðlauna mig fyrir að passa Bjart svona vel. Þau færðu mér After Eight ... og ég sem er hætt að borða sælgæti fram að afmæli ... AE-pakkinn lá heillengi (alla vega í tíu mín.) við hliðina á Harry Potter-bókinni eftir að Bjartur var farinn og ég vissi ekki fyrr til en allt í einu var búið að opna hann og troða nokkrum aftereitum upp í mig. Ég þorði ekki að berjast á móti. Sólin bræddi súkkulaðirestina í dag og ég mátti horfa á pakkann fljúga inn í ísskáp þegar ég kom heim úr vinnunni. Mikið verður gott að klára þessa galdrabók, þá verður lífið eðlilegt á nýjan leik og skemmtilegt meinlætalífið hefst í himnaríki.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Gaaaargaaaaandi snilldarfærsla. Vil læra galdra. Nennirðu að senda mér hug-galdraskeyti.

Þröstur Unnar, 23.7.2007 kl. 19:02

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kl. 19.11 færðu svakalegt galdrahugskeyti ...

Guðríður Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 19:06

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Shit, virkar ekki, reyndi það á óþekktarkrökkunum á neðrihæðinni, verð örugglega að lesa fjandans Potterinn.

Þröstur Unnar, 23.7.2007 kl. 19:29

4 Smámynd: mongoqueen

Ég kannast við þessa veiki í sambandi við AE

mongoqueen, 23.7.2007 kl. 20:01

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko hann Þröstur er hraðlygin Gurrí en þetta hefur loðað við Rein-hyskið síðan á dögum Jóns Hreggviðssonar.  Á minni síður eru það nefnilega pottormarnir á efri hæðinni sem standa honum fyrir þrifum.  HVERJU Á MAÐUR EIGINLEGA AÐ TRÚA?

Þú ert snilli í færslum anddna "slowrídarinn þinn".  Hún Stína í Kanada las Harry Potter á 15 mínútum flötum. En hún býr nottla in útslands.

Stína vill hinsvegar ekki deila með sér af endanum þannig að ég verð bara að vera almennileg við þig þangað til þú ert búin með Potterinn ´sskan.  Love u 2 píses.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 20:23

6 Smámynd: Þröstur Unnar

hux-hux-hux,,jenný skil ekki múkk af þessu þrasi um hann Jón heitinn Hreggvisson og Rein-hyskið. Er hann eitthvað að ásækja þig, kallinn sá? Ef svo er fáðu bara galdrahugskeyti frá galdranorninni í Himnaríki, og beittu því á ´ann.

Annars virkaði þetta skeyti frá henni ekki rassgat hjá mér. Hún hefur örugglega sent Tomma það óvart.

Þröstur Unnar, 23.7.2007 kl. 21:03

7 Smámynd: www.zordis.com

Þú hlýtur að fá FRÍTT í strætó með svona miðlandi seiðandi röddu.  Þú ert sko dúlla mín kæra!  Væri til í latte og súkkulaðitertusneið með AE sneiðum!

www.zordis.com, 23.7.2007 kl. 21:05

8 identicon

Hvernig tókst þér að hafa pakkann óopnaðan í heilar 10 mínútur?

Maja Solla (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 21:36

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

... líklega tók það galdurinn heilar 10 mínútur að virka ...

Já, ég fæ "frítt" í strætó ... sýni ekki græna kortið nema stundum í Skagastrætó, þeir vita bílstjórarnir að það rennur út eftir rúma tvo tíma! Nýja græna kortið sem ég er búin að borga bíður mín í Skrúðgarðinum. 

Þröstur, skeytið virkar annað kvöld kl. 19.11, gleymdi að segja þér það. Vertu viðbúinn! Og Jennslan mín, þú færð endinn og allt ævintýrið í tölvupósti þegar ég er búin með bókina. Bannað að blogga um það samt, það grætir aðra aðdáendur. ER AÐ VERÐA BRJÁLUÐ Á ÞVÍ AÐ GETA EKKI KOMMENTAÐ NEMA MEÐ MIKLUM HARMKVÆLUM. EKKERT SVAR KOMIÐ FRÁ STJÓRNENDUM MOGGABLOGGS. Ég verð óþolandi í kommentum þegar þetta verður komið í lag! 

Guðríður Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 21:45

10 Smámynd: Elín Arnar

Hmmm er eitthvað búið að vera bilað?????

Elín Arnar, 23.7.2007 kl. 23:24

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí mín, veit að þú ert hjá mér í hugsun og anda.  Það dugir í bili.  Þeir hljóta að kippa þessu í liðinn, nema að þessi handstigni tölvurokkur þinn sé að gefa upp öndina.  Muhahahaha

Annars er ég með hvíta karla, á besta aldri og vel fjáða á HÁLSINUM eftir að ég fór að blogga um Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Pólverjana vondu og illa þokkuðu við ár landsins.  OMG

Smjúts bíð eftir emil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 23:40

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, Elín, ég get ekki kommentað nema skrá mig tvisvar eða þrisvar inn (dett alltaf út) og þótt ég sé með þolinmóðari manneskjum þá er ég farin að rífa í hár mitt og skegg eftir að kommenta hjá einum eða tveimur bloggvinum. Þá er ég búin að gefast upp. Næst þegar einhver tölvuklárari en ég kemur í heimsókn verður hann/hún sett/ur í að kíkja á málið. Skil ekki af hverju Moggamenn svara mér ekki ...

Já, Jenný, ég er sko hjá þér í hugsun og anda.

Guðríður Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 23:49

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sofðu rótt engill...ég hef svo til alveg gefist upp á blogginu þar sem það virkar næstum ekkert hjá mér...en ég get þó stundum athugasemdast hjá öðrum og það dugar mér í bili.

Night night!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.7.2007 kl. 00:38

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég á eftir að velja bókstafinn, Anna. Kannski bara eitthvað sem byrjar á B? Bátur, baðbomba, brim, ballkjóll, bók, bréfaklemmur, bindindissemi, bjöllu ...

Guðríður Haraldsdóttir, 24.7.2007 kl. 09:14

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já það er ekki amalegt að láta lesa fyrir sig í strætó humm.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.7.2007 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 383
  • Sl. sólarhring: 384
  • Sl. viku: 2345
  • Frá upphafi: 1456048

Annað

  • Innlit í dag: 338
  • Innlit sl. viku: 1939
  • Gestir í dag: 318
  • IP-tölur í dag: 310

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband