Rafmögnuð færsla

RafmagnRafmagnið fór af á mjög slæmum tíma í dag hér á Skaga. Freistandi er að segjast hafa verið að ryksuga eða baka eða myndarskapast eitthvað fyrir afmælið en ég var að blogga. Búin að skrifa afar áhrifamikla tímamótafærslu sem hefði samstundis skellt mér upp í 1. sætið í vinsældakeppninni hjá Kalla Tomm en Jóna hefur greinilega mútað vélstýrunni sem kippti Vesturlandi úr sambandi um stund. Held að Jóna hafi líka þegið hjálp frá breska miðlinum sem ég talaði illa um nýverið og hefur þá væntanlega einhverja hæfileika fyrst hún sá að færslan mín var að detta inn.
Sjónvarpið er óvirkt, væntanlega vegna rafmagnstruflunarinnar, og ég sem ætlaði að segja frá því helsta úr boldinu. Reyndi að hringja í Stöð 2 en þar hringdi bara út! Frábært.

Síminn í Brauða- og kökugerðinni er stanslaust á tali, eins og hann sé bilaður. Ekkert smá sem líf manns snýst í kringum rafmagn. Ekki get ég pantað afmælistertuna núna, eins og ég ætlaði að gera, en kaffið, góða kaffið, ég hringdi eftir því fyrir bilun. Nú tala ég bara um fyrir bilun og eftir bilun. Náði reyndar að gera heilmargt fyrir bilun, m.a. fara í sjúkraþjálfun, fá mér kaffi í Skrúðgarðinum og þurrka þvott í þurrkaranum. Síðan hefur allt verið meira og minna lamað þótt rafmagnið sé komið á.

Á meðan bilunin stóð yfir lamaðist ég, lagðist upp í rúm og náði að ljúka við bókina Móðurlaus Brooklyn. Hún er mikil snilld, mæli með henni!
Er akkúrat núna að bíða eftir tækniþjónustu Stöðvar 2 í símanum ... ég drep þá ef þeir svara strax því að lagið Babe I´m gonna leave you með Led Zeppelin hljómar í símanum. ... Vá, nú er American Pie, ekki með Madonnu ... heldur Don MacLean. Vona að það verði ekki svarað næstum því strax! Þetta er gaman!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Sammála með Móðurlaust Brooklyn sem nú er farinn í skiptibókamarkað kennaradeildarinnar. Kveðjur að norðan

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 7.8.2007 kl. 17:24

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það hefur nú ekki allt verið bilað þú ert komin með 430 IP tölur og alltaf á uppleið. Ég er að hugsa um að eyða afmælisdegi þínum í að hringja í ALLA vini mína og biðja þá að skrá sig inn á þitt blogg svo þú toppir á afmælisdaginn.    er stóllinn kominn.*???

Ásdís Sigurðardóttir, 7.8.2007 kl. 17:53

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, stóllinn var að koma fyrir korteri, Ásís, get varla skrifað fyrir verkjum í höndunum, er að reyna að dúndra bakinu ofan í stólinn, tókst það öðrum megin og ákvað að taka mér pásu. Nú vantar hina sterku Ingu til að redda málum! Verst að hún býr í Reykjavík.

Kveðja norður, Ingólfur. Ætla að eiga mína Móðurlaus Brooklyn, væri til í að grípa í hana síðar. Get auðveldlega endurlesið bækur. 

Guðríður Haraldsdóttir, 7.8.2007 kl. 18:13

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við sem eigum þá ósk heitasta og stærsta að toppa á Moggablogginu, þurfum að gera það blóðrisa á höndum, fótum og andliti.  Frægðin (hm) kostar.  Það er bara eðlilegt að fók taki rafmagnið af í heilum landshluta til að varna þér aðgengis að toppsætinu, þar sem þú átt auðvitað heima.

Ég hef ekkert kosið hjá Kalla Tomm síðan í morgun.  Er farin að bæta úr því. (ákveðiníaðhafaáhrifákosninguhjákallatommkall)

Til hamingju með görlið.  Þó löt sé.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2007 kl. 18:24

5 Smámynd: Elín Arnar

ÓNEI! Ég vona að þú þurfir ekki að fresta afmælinu Gurrí mín! Er þetta ekki full langt gengið hjá henni Jónuu, nú verður þú bara að svara í sömu mynt

Elín Arnar, 7.8.2007 kl. 18:32

6 Smámynd: Hugarfluga

Ég var á "klóstinu" þegar rafmagnið fór af. Tók skjótt af, þannig að það hafði sem betur fer engin áhrif á frammistöðu mína.

Hugarfluga, 7.8.2007 kl. 19:17

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe. Ég hélt um tíma að rafmagnið hefði farið af hluta af íbúðinni   í dag en sá svo að Gelgjan hafði kippt einhverju úr sambandi til að koma að hleðslutæki fyrir Game boy. Meira var það nú ekki. Þetta er þörf áminning, kannski að maður fari að nýta kosningaréttinn sinn hjá Kalla kallinum.

Jóna Á. Gísladóttir, 7.8.2007 kl. 19:17

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Var að senda þér ímeil, Anna, það tengist kaffikönnu og afmæli. Vona að þú getir kíkt á það og sagt já eða nei!

Guðríður Haraldsdóttir, 7.8.2007 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 377
  • Sl. sólarhring: 467
  • Sl. viku: 2494
  • Frá upphafi: 1456444

Annað

  • Innlit í dag: 325
  • Innlit sl. viku: 2083
  • Gestir í dag: 318
  • IP-tölur í dag: 311

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband