Kuldavandamál leyst, myndarskapur og fleira

Men in TreesÉg hef alls ekki gaman af væmna konuþættinum Men in Trees, beið bara spennt eftir nýja lögguþættinum, Amazing Grace. Sá á eftir að taka áhorf frá Omega.
Þrjár afar girnilegar kiljur bíða eftir athygli og fá hana ... eftir CSI New York á SkjáEinum plús ef ég nenni að standa upp til að skipta um stöð ...

Ansi áhugaverð álit komu fram í kvöld í Íslandi í dag um efnahagsmál og heimsendi í þeim efnum mögulega, kannski, jafnvel, líklega bráðlega. Saknaði þess að engin kona sagði álit sitt, hélt reyndar að þær væru í meirihluta í viðskiptafræðinni og hefðu haslað sér völl í þessum geira.
Nú er það er hreinlega spurning um að hugsa sig rosavel um áður en ég veð út í framkvæmdir í himnaríki þar sem ég á ekki digra sjóði á reikningi, ekki frekar en flestir. Verst er að nýju svalirnar leka og parkettið liggur undir skemmdum. Veit ekki hvort ég á að hringja í smiðinn minn, hann er alla vega ekki búinn að segja mér upp og hefur enn lykla að himnaríki, eða aðilana sem settu upp svaladyrnar. Ef smiður bæði mín í dag myndi ég líklega játast honum þótt ég sé alls ekki í giftingarstuði. Gerir maður ekki allt fyrir gamla, slitna parkettið sitt?  

Inga stoppaði stutt í dag en fékk að sjá ofurmennið Jónas butler ryksuga himnaríki. Nú hefur Inga öðlast tilgang í lífinu og stefnir á eitt svona krútt. Hún hefði átt að sjá til mín þegar ég bjó mér til latte með öllu tilheyrandi með butler í stuði við að þrífa eldhúsgólfið. Nú veit ég með vissu að ég kann enn að hoppa og er ansi efnileg í ballett. Vil ekki breyta heilabúi Jónasar þar sem hann er búinn að læra himnaríki utanbókar ... ef hann rekst í löpp sem er fyrir honum gæti hann forritað það inn á minnið. Held ég.

Myndarskapurinn var geysimikill í himnaríki í kvöld. Rótargrænmeti, laukur, chili og fleira skellt í ofninn og kjötbiti steiktur. Það sem gerði þetta enn frekar óhugnanlega skrýtið var að Jamie Oliver var akkúrat að elda og spjalla í sjónvarpinu um leið.
Eitthvað varð að gera þegar kuldinn var allt að drepa, snilldarhugmyndin um að skrúfa frá ofnunum eftir sumarfríið virkaði líka vel. Það blæs nefnilega og rignir frá Ameríkunni, mjög líklega hefur lítill fellibylur fokið hingað. Nú er vel hlýtt og notalegt. Stutt í háttatíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Finnst þér haustið ekki yndislegt? Umm svo kósí hjá þér.  Hér var sukkað ótæpilega og borðaðar brunarústir frá KFC vegna blóðleti undirritaðrar. Æmasjeimd.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.9.2007 kl. 22:57

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, ég er hrifin af haustinu og finnst það kósí. Fékkstu brunarústir frá KFC, veit fólk ekki að það er fangelsissök? Eða er það að ofsalta hamborgara? Hohohohoh! Gott hjá þér að vera löt!

Guðríður Haraldsdóttir, 10.9.2007 kl. 23:01

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

En ef þú lætur þig hafa það að horfa á Men in Trees taktu þá eftir umhverfinu. Þættirnir eru teknir upp hér í Vancouver og í Squamish hér aðeins fyrir norðan. Þangað fer ég í fjallgöngur og klifur. ef þú horfir vel á þættina þá kannski sést ég labba fyrir horn. Annars horfi ég aldrei á þá Finnst Anne Heche leiðinleg og hún fór illa með bæði Steve Martin og Ellen.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 10.9.2007 kl. 23:28

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

O hvað er kósí í Himnaríki, með Jamie og butlerinn á fullu.  Vona nú samt að það hætti að leka hjá þér, alltaf leiðinleg svona bleytuvandamál.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.9.2007 kl. 23:54

5 Smámynd: krossgata

Mig er farið að gruna að þú rekir hjónabandsmiðlun fyrir Jónasa-iRobota.  *rannskandi-augnatillit-kall*.  En ef þetta hleypir upp póstbrúðkaupum við slíka herramenn ættirðu kannski að fá prósentur hjá fyrirtækinu. 

krossgata, 11.9.2007 kl. 01:06

6 Smámynd: Svava S. Steinars

Hmmm, mér líst ekkert á þetta vatnsveður þarna inni hjá þér.  Kallaðu strax á kallana sem gengu ekki nægjanlega vel frá nýju svölunum.  Þeir eiga að laga þetta, þér að kostnaðarlausu.  Mrrrrrd !

Svava S. Steinars, 11.9.2007 kl. 01:53

7 Smámynd: Jens Guð

 Haustið er yndislegt.  Geitungar hverfa eins og dögg fyrir sólu.  Ferskt fjallaloft tekur við. 

Jens Guð, 11.9.2007 kl. 03:05

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Fúsk er þetta Guðríður góð í græðgiskapphlaupinu, flaustursleg vinnubrögð og oftar en ekki hjá vinnukrafti sem kann ekki til verka! Sástu ekki drenginn minn hann Hákon í Sjónóinu í sl. viku út af þessum málum í Kópavogi? Hann og elsta bróðurdóttir min hafa íllilega orðið fyrir barðinu á svona fúski!

SEisei karlinn hann Jens, eitthvað farin að ruglast greyið, finnur "Fjallaloft" úr Hjaltadalnum þarna innan um reykspðuandi dísel og bensínskrímslin í Múlahverfi!?

Magnús Geir Guðmundsson, 11.9.2007 kl. 11:11

9 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Men in trees eru reyndar mjög skemmtilegir þættir og ég er búin að sjá alla fyrstu seríuna. Ég er líka búin að sjá fyrstu 5 þættina af SAVING Grace og það eru frekar klénir þættir verð ég að segja. En svo sem í lagi að glápa á þá.

Brynja Hjaltadóttir, 11.9.2007 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 204
  • Sl. sólarhring: 279
  • Sl. viku: 1746
  • Frá upphafi: 1460679

Annað

  • Innlit í dag: 189
  • Innlit sl. viku: 1413
  • Gestir í dag: 182
  • IP-tölur í dag: 182

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband