Fjúkandi hugmyndir í morgunstorminum ...

Námskeiðið Skínandi bros á 5 sekúndumÞað var bókstaflega sársaukafullt að draga sig frá gluggunum í morgun, öldunum sem börðust í klettana við Langasandinn. Vindátt orðin suðlæg, mikið rok, kjöraðstæður ... Sem betur fer er ekki orðið almyrkt á morgnana þannig að ég naut nokkurra sekúndna við gláp þar sem ég hafði heilar 10 mínútur til að klæða og það allt og koma mér út á stoppistöð. Er heilmikið að hugsa um að fara að halda námskeið: „Að ná eiturfegurð á fimm mínútum!“ „Að bursta tennur og flóa mjólk um leið og farið er í sokka.“ „Hoppað í brækur af tveggja metra færi“ ... æ, eitthvað svona. Svo gæti ég útfært það í stundvísi á stefnumót, komið tímanlega í bíó eða matarboð ... já, ég gæti orðið rík á þessu. Þ.e.a.s. ef fólk langar til að verða stundvíst. Þarf að hugsa þetta aðeins. Tek fram að ég lít óhugnanlega vel út núna þótt ég hafi bara burstað tennur og skellt Móu-dagkremi framan í mig.

Strákarnir á stoppistöðinniHjartkær stoppistöðin við Garðabraut var stappfull af strákum, well, huggulegum mönnum, sem sannfærði mig um að ég er stálheppin manneskja. Aðrir viðburðir í morgun fullvissuðu mig síðan um það. Ekkert bólaði á strætó, við vorum farin að tvístíga ... en þá ók aukabíllinn fram hjá okkur öfugu megin við götuna, sneri við hjá spælegginu (stóra hringtorginu), kom til baka og bauð okkur far! Veit ekki hvort aðalbíllinn bilaði (eða bílstjórinn (ekki Tommi)). Þegar ég ætlaði að fara að hlamma mér í sætið hjá einhverri kéddlíngu sagði Birkir, sem stóð fyrir aftan mig. „Viltu kannski far með einkabíl?“ Við þutum út og rétt sluppum en Hafþór var búinn að ýta á takkann til að loka dyrunum á strætó. Þetta var eins og í tryllingslega spennandi glæpamynd ... ja, eða gamanmynd ... Sekúndubroti síðar var ég komin niður á gangstétt og strætóhurðin skelltist geðillskulega ... næstum því á Birki.

Við hlupum í trylltu roki í Skaganesti (Shell-Nesti) og smástund síðar kom Kristján, elskulegur bróðir Birkis, og elskulegur vinur hans og hirtu okkur upp í. Birkir settist undir stýri og strákarnir lögðu sig aftur í. Við Birkir töluðum um hvað Hafþór væri nú annars góður bílstjóri að geta ekið strætó í þessu hrikalega roki sem beið okkar sunnan við göngin ... við ókum fram úr strætó rétt hjá nýja hringtorginu í Mosó þar sem Hafþór stoppaði í Lopabrekkunni til að taka upp elskuna hana Karítas. Ég fékk skutl upp að dyrum í vinnunni og mögulega heim í dag ef verður ófært fyrir strætó. Þriðjudeginum var frestað til fimmtudags í lífi mínu að þessu sinni og meira að segja sjúkraþjálfunin færð þangað ... Erfðaprinsinn kemur nefnilega akandi um hádegisbil á morgun til mammasín og flytur formlega heim á meðan hann finnur sér vinnu og húsnæði á besta stað á jarðríki, Akranesi.

Mæður á Akranesi, haldið dætrum ykkar inni! Múahaha! Sölumenn, löggur, Vottar Jehóva, Mormónar, smiðir og aðrir aðdáendur,  ekki reyna neitt á næstunni, nú verður passað vel upp á þá gömlu ... ef ég þekki erfðaprinsinn rétt. Hélt að ég ofverndaði hann ... nei, það er öfugt! Hjálp!!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Það alltaf spennandi að fylgjast með hvaða hætti ferðirnar til höfuðborgarinnar eru.  Mér finnst eðlilegt að þú farir á launaskrá hjá Akranesbæ - þú ert búin að gera staðinn ótrúlega spennandi kost til búsetu.....   Þú mátt líka teljast heppin með ofverndandi erfðaprinsinn - mér sýnist á öllu að þarna sé góður drengurinn hennar mömmu sinnar á ferðinni........

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 26.9.2007 kl. 10:08

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hann er svo góður, þessi elska. Í fyrra kom útlenskur sölumaður með flottar, litlar og ódýrar myndir sem hann sýndi mér. Ég þurfti næstum að berja drenginn til að fá að kaupa eina myndina, hann var sko að passa mömmu sína fyrir svikara, ræningja og útlendingi. Benti drengnum á að ég væri töffari, að auki fullorðin og fjárráða. Ég sagði honum að ég væri fullfær um að kalla á hjálp ef þyrfti ... við hlæjum bæði að þessu núna en mér var ekki skemmt í fyrra. Við erum bæði of gömul til að láta ala okkur upp!!! Þetta er samt umhyggja og ást.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 10:26

3 identicon

"Akranes spennandi kostur til búsetu fyrir þá sem starfa í Rvk." segir Ingibjörg. Já, getur verið það fyrir spennufíkla og þá sem nenna að fylgjast með veðurfréttum tvisvar á dag. Þeir sem nota strætó þyrftu að leigja herbergi í Rvk. 

Meira segja kona sem komst í DV fyrir ást sína á strætó heldur hiklaust fram hjá honum ef far býðst með einkabíl í betri félagsskap en hjá keddlíngum. 

Glúmur Gylfason (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:28

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hmmm, þetta var sko rangtúlkað, tekið úr sambandi, mér lögð orð í munn, bara helberg lygi, smekklausar blekkingar ... heheheheh Æ, ég þigg sko alltaf far hjá Ástu minni upp að dyrum í vinnunni eða heim, enda er hún á algjörri drossíu. EN mér finnst samt mjög gaman í strætó og elska bílstjórana mína heitt!

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 10:39

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Spurningar: Hvað er Móu-dagkrem, Lopabrekka?

Hef ég ekki verið að fylgjast með?

Hef læst báðar dætur mínar inni, aðra í vesturbæ og hina í miðbæ (höfuðborg), ef sonur líkist móður, er aldrei að vita hvert áhirf hans ná. 

Annars langar mig að knúsa þig í kremju, þú ert svo mikið KRÚTT

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.9.2007 kl. 11:00

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Lopabrekkan er víst brekkan sem liggur niður að Mosó, heitir Ullarselsbrekka í raunheimum, ef ég man þetta rétt. Móu-dagkrem er suddalega gott fyrir þurru húðina mína og ég lít ekki út fyrir að vera degi eldri en 18 ára plús síðan ég fór að nota það. Þetta er grænt dagkrem úr lífrænt ræktuðum jurtum, búið til af Þuríði Guðmundsdóttir snillingi, kremið hefur fengist í Heilsuhúsinu ... Hef notað það í tíu ár. Það kostar 20% af andvirði Dior-kremsins sem ég notaði áður og er mun betra að mínu mati þótt mér finnist nú Dior-vörur algjört æði.

Sko, þarna Jennslusnúlla, þú ert krúttið í blogg-fjölskyldunni!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 11:24

7 identicon

Pólverjarnir þyrftu að fá sér strætóbílstjórabúning.

Glúmur Gylfason (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 12:02

8 Smámynd: Ester Júlía

Þetta blogg bjargaði deginum!!  Ég sver það!  Er í hláturskasti ..er að horfa á strákana á stoppustöðinni..ef .þetta er ekki bara lygi,  þá ertu ekkert smá heppin! 

Ester Júlía, 26.9.2007 kl. 12:08

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Iss, Glúmur, við þurfum enga búninga ...  Bílstjórarnir í Skagastrætó eru meira að segja stundum í flíspeysum, algjört törn-off ... en samt!!!

Já, Ester, strákarnir mínir líta næstum því svona út ... eru á aldrinum 25 - 60 ára og bara mjög mikil krútt ...

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 12:13

10 Smámynd: krossgata

Þetta eru afar spennandi bækur þarna sem þú verður milljóneri á.  Ég bíð spennt.    Sérstaklega eftir Hoppað í brækur af tveggja metra færi, sem ég sé í hendi mér að muni falla sérstaklega vel að mínum hæfileikum.... til forna alla vega.

krossgata, 26.9.2007 kl. 13:20

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Okkur dettur eitthvað skemmtilegt í hug, mister Guðmundur. Hér verður alla vega til kaffi og meððððí.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 16:14

12 identicon

Les oft þetta frábæra blogg þitt en kvitta aldrei....já sjórinn var ansi úfin í morgun og er enn enda sé ég vel til allra átta út um stofugluggan minn hér á Innesveginum heyrðu já Læsti allar mínar 5 stelpur inni í geymslu spurning hvenar má ég hleypa þeim út en held að Hróinn sé búinn að loka með komu Dóminós!

Brynja (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 16:50

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hæ, Brynja, nágranni! Brimið er voða flott núna og gott að fleiri njóta en Jaðarsbrautargengið. Gott hjá þér að læsa stelpurnar inni og takk fyrir upplýsingarnar um Hróa, held samt að ég fari ekki á Domino´s ... er hætt að borða pítsur (grátkarl), alla vega í bili. 

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 17:16

14 Smámynd: Þröstur Unnar

Sko þarna brimrótarkjellíng, þú ferð náttúrulega með gæjann á Galito, ekki spurning, og kaffi í Skrúðinn á eftir. Og á heimleiðinni einn öllara á Mörkinni. Svona túr getur ekki klikkað.

Þröstur Unnar, 26.9.2007 kl. 17:27

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Svo má ekki gleyma erfðaprinsinum, varla sting ég hann af, ég gef bara Guðmundi og frú eitthvað gott í gogginn í himnaríki og svo er hægt að sjá til. Kannski dettur í okkur að plata alla akurneska bloggara til að mæta í Skrúðgarðinn á eftir ... það er ekki amalegt kaffið þar heldur!

Guðríður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 17
  • Sl. sólarhring: 291
  • Sl. viku: 2344
  • Frá upphafi: 1457614

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 1939
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Íslendingar í útlöndum
  • Titanic
  • Elsku Tommi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband