28.9.2007 | 08:38
Fyrirhuguð fullvissuferð og mögulegt morð á strætó ...
Allt féll eitthvað í svo réttar skorður í morgun. Strætó í stað einkabíls í bæinn og labbað upp kúlurassbrekkuna (áður súkkulaðibrekkuna) með Sigþóru. Vantaði bara Ástu til að fullkomna þetta. Karlarnir mínir á stoppistöðinni voru ekki bara huggulegir í morgun, heldur líka afar áhyggjufullir og viðruðu þá skoðun sína að verið væri að drepa strætó Rvík-Akranes-Rvík hægt og bítandi. Slæmir bílar og strjálar ferðir, sögðu þeir. Gat ekki annað en tekið undir með þeim, sérstaklega þegar ég lenti aftar en á fyrsta bekk í morgun og fæturnir fóru í algjöra kremju. Nú hefði komið sér vel að vera með stuttar lappir. Góði strætóinn (elskan hans Tomma) er bilaður, vantar varastykki til að hægt sé að nota framdyrnar ... allir þurfa að koma inn í hann að aftan. Í honum er pláss fyrir fæturna sama hvar setið er í vagninum. Já, ferðir eru líka of strjálar, síesta bílstjóranna stendur í fjóra klukkutíma á dag, frá tæplega hádegi til tæplega fjögur. Þetta dregur úr fólki að nota strætó, það er öruggt.
EN, ég elska samt strætó og bílstjórana og það allt ... og vona að samstoppistöðvarkarlarnir mínir verði ekki sannspáir með hægfara morðið á strætóferðum til og frá Skaga.
Á skrifborðinu beið mín gjöf frá starfsmannafélagi Birtíngs, sápukúlubox, sundkútur, appelsína og fleira sniðugt ... spennandi óvissuferð er fram undan. Ég er meira fyrir fullvissuferðir, verð að viðurkenna það. Allar svona óvissuferðir fela í sér fallhlífarstökk, ferð í sundlaug eða heitan pott sem mér finnst viðbjóður! Þannig að í huga mínum er þetta fullvissuferð um slíka sundlaugarferð eða eitthvað. Ekki biðja mig um að rökstyðja þetta. Svo lýkur henni ekki fyrr en um miðnætti og þá er strætó löngu hættur að ganga. Vissulega gæti ég sofið í vinnunni, Mannlíf á rauðan leðursófa, soldið gærulegan, en svefnhæfan.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 2
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 626
- Frá upphafi: 1506025
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 512
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Æi, var búinn að ákveða að hlæja ekkert í dag, sveik það hér og nú.
Þröstur Unnar, 28.9.2007 kl. 08:44
Ertu að meina klámsófann? Ég gat nú aldrei sest í hann án þess að mér dyttu ákveðnar myndir í hug ...
Vissuferðir eru miklu skemmtilegri. Ég fór í eina svoleiðis í gær.
Nanna Rögnvaldardóttir, 28.9.2007 kl. 08:53
Nanna, já, ég er að tala um klámsófann. Vissuferðir eru betri en óvissuferðir .. fullvissuferðir enn betri ... hehehe!
Góðan daginn, sömuleiðis, Þröstur minn!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.9.2007 kl. 09:14
sápukúlur og appelsína ???
Bara góður dagur, og vonandi á fallhlífarstökks hehehehe
Guðrún Jóhannesdóttir, 28.9.2007 kl. 09:24
Eru þetta hjálpartæki?
Már Högnason (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 09:25
Góðan dag Guðríður. Náði ekki að skrifa meira, sá ekki á skjáinn fyrir frussi yfir seinni málsgreininni.
Þröstur Unnar, 28.9.2007 kl. 09:26
Gvuð, Már ... mér datt það ekki í hug. Líklega fer ég bara í þessa fullvissuumsundlaugarferð ef það er eitthvað dónatengt ... jesssss!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.9.2007 kl. 09:42
Ohh þu ert svo mikil dóni Gurrí
Ólöf Anna (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 09:49
Af hverju farið þið ekki fram á það við Akranesbæ að fjölka ferðum. Það er bæjarstjórnin sem ákveður hversu margar ferðir eru farnar.
Sigurbjörn H (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 09:53
Og ætlarðu út í óvissuna? Ég er eins og þú með svona ferðir en ég tek ekki þátt. Hata að láta koma mér á óvart. Líka með gjöfum. Vill tilkynningar um allt sem útaf vananum breytir með FYRIRVARA. Er klámsófinn til sölu? Er ekki óveður í aðsigi? Svara. Takk fyrir mig og ég hló upphátt. Við Þröstur erum hlægjandi aular (þorrí Þrölli).
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2007 kl. 10:16
Góð hugmynd, Sigurbjörn! Sting þessu að körlunum mínum á mánudaginn, svo getum við öll marserað niður á bæjarskrifstofur og grátbeðið um fleiri ferðir.
Uppáhaldsbókin mín í gamla daga hét Út í óvissuna (Desmond Bagley) og gerðist á Íslandi. Morð á Krýsuvíkurveginum og myrkur í Ásbyrgi (um miðjan júní ... aha!) og eftir það vil ég bara vissu, svo sammmmmmála, Jennýin mín. Hlakka svo til að sjá Guðmundinn minn á morgun.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.9.2007 kl. 10:30
Elsku stóra systir.
Þú ert ekki heimilislaus á Höfuðborgarsvæðinu Það er rúm og sófi á lausu hjá mér..... Dríbba sig bara í óvissuferð Ég móðgast samt eeki þó svo að þú kjósir þennan umtalaða sófa
Hilda systir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 11:03
Ussss, Hilda, ekki skemma fyrir mér góða afsökun fyrir að fara ekki í vanvissuferð ... :
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.9.2007 kl. 11:59
Heyrðu´fröken Guðríður, ertu að gefa í skyn að þú sért feit og forljót í sundbol?
Ekki fræðilegur möguleiki að svo sé!
Mikið er annars ykkur yngismeyjunum klám ofarlega í huga, ein sér myndir í sófa, önnur getur ekki beðið eftir að leggjast í hann og sú þriðja skilur greinilega við hvað er átt og vill æst og ólm komast yfir sófan!
ég veit ekkert um klám, nema að ég hélt að þar væri blái liturinn ráðandi en ekki rauður,s sem aftur vísar frekar til ákveðins fótboltaliðs fyrst og síðast!
Hvað á svo við Guðmund að gera,
gef´onum undir fót?
kannski í hann barasta bera,
bjór og annað "dót"?
Spyr nú bara sísvona!
Magnús Geir Guðmundsson, 28.9.2007 kl. 13:31
Hvernig í ósköpunum færðu það út, Magnús minn, að ég efist um fegurð mína þótt mér finnist leiðinlegt í sundi og hafi alltaf þótt? Guðmundur kemur í virðulega heimsókn, loksins, og tekur væntanlega/vonandi virðulega eiginkonu sína með. Í boði verður kaffi og heimabökuð kaka, a la erfðaprins og móðir. Mikið hvað þú getur lesið á milli línanna, þarna Norðlendingurinn þinn ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.9.2007 kl. 13:53
Veit fólk ekki að annað fólk kúkar í sundlaugar? Sundlaugar eru klárlega stórhættulegar.
Ég myndi nú samt frekar láta mér detta í hug einhvern paraleik, sbr appelsína og sápukúlur. Kúturinn getur líka vel dugað á vel heppnuðu deiti ;)
Hrefna S. Reynisdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 21:19
Ég hef farið í svona óvissuferðir, látið mig hafa það. Þá endar maður í stórfiskaleik í rigningu, tekur sig kannski upp gamalt keppnisskap sem maður hélt maður væri búinn að drepa og maður endar út í skurði við að verja borgina. *Dæsir-mæðulega-kall*
krossgata, 29.9.2007 kl. 00:02
Sástu Boldið í dag?
Það féll ein, algjörlega óborganleg setning í Boldinu í dag - SEM ÉG GLEYMDI JAFNÓÐUM - en verður örugglega ein af þessum ógleymanlegu (ef einhver man hana, það er að segja). Hjálp, allir Boldvinir! Það hafði eitthvað með fyrirsjáanlegt fósturát að gera ...
Vilborg Valgarðsdóttir, 29.9.2007 kl. 01:22
Góða skemmtun í óvissuferðinni... sem er kannski bara búin núna... en þú hefur þá vonandi skemmt þér vel !
Rannveig Lena Gísladóttir, 29.9.2007 kl. 01:27
Reynir kona svona sófa, óreynt ?
S.
Steingrímur Helgason, 29.9.2007 kl. 01:27
Hann Magnús krúttmoli passar upp á sína! Þessi elska. Þannig að ég býst við þér seinnipartinn, elsku Guðmundur. Þá förum við erfðaprins aðeins í bíltúr á eftir og hömumst svo við að undirbúa komu þína. Það hefði nú verið gaman að hitta frúna líka, eins og þú hefur talað fallega um hana, það verður bara næst.
Óvissuferðin verður 13. október, það var bara verið að hita mannskapinn aðeins upp. Þetta er stórskemmtilegt starfsmannafélag.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 29.9.2007 kl. 11:01
Æ, þetta voru nú bara svona spurningar, hef svo gaman af þeim og að hafa þær í stríðnistón! Jájá, en get þess á milli verið ósköpð svona krúttlegur kvistur!Bestu kveðjur í bjórpartíið!
Magnús Geir Guðmundsson, 29.9.2007 kl. 15:01
Bjórpartíinu??? Hann Guðmundur er bílstjóri í kvöld og ég er meira fyrir kaffi ... Þú heldur aldeilis að við séum sukkarar hér á syðri hluta landsins. Magnús þó!!! Jú, þú getur verið ansi krúttlegur kvistur, stundum því er ekki að neita.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 29.9.2007 kl. 15:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.