Völvan og dollan ...

Forsíðustúlka völvublaðsins ...Völvan okkar á Vikunni var búin að spá því að FH-ingar yrðu ekki Íslandsmeistarar en hún gat ekki séð hvaða lið hampaði titlinum 2007. Ég get upplýst hér og nú að það voru Valsmenn. Magga mín, innilega til hamingju! Ó, þeir eru svo glaðir, enda ekkert skrýtið, 20 ár síðan þeir fengu dolluna síðast.

Við (ÍA) höfnuðum í 3. sæti, gæti verið verra, í fyrra vorum við í svipuðum sporum og KR núna ... næstum fallin.

Mótokrossið búið og hálfeinmanalegt að sitja við gluggann og sjá bara gröfur að taka til og svona. Þröstur minn þarf ekki að óttast varanlegar skemmdir á sandinum ... sjórinn lagar allt á næstu klukkutímum, þessi elska.

Guðmundur var að hringja og c.a. klukkutími í hann. Þá er bara að skella kökunni í ofninn, ég er búin að hræra deigið. Nú ættu bara Þröstur og Edda að skella sér í nýbakaða köku, eplaköku með vanillu- og súkkulaðifyllingu ... þetta yrði þá óvænt og bragðgott bloggvinamót. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Óskum okkur til hamingju með það 3ja. En verð að eiga inni hjá þér heimboð í eplaköku að sinni, því miður. Ætla ekki einu sinni að reyna að útskýra af hverju, en ef þú sér drulluskítugan, rall hálfan kall, skjögrandi upp Skagabrautina, einhvertíma í nótt, þá hefur sá hinn sami gefist upp á viðgerðum og tekið ranga beygju heim fyrr um kvöldið.

Þá á ég inni tvö heimboð, ehaggi?

Þröstur Unnar, 29.9.2007 kl. 17:05

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðríður Haraldsdóttir, 29.9.2007 kl. 18:52

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Heyrðu.... ég kem þá bara seinna

Jóna Á. Gísladóttir, 29.9.2007 kl. 19:07

4 Smámynd: krossgata

Það er leiði þarna uppfrá sem ég þarf að sinna, kannski maður renni á eplakökulykt þegar það gerist. 

... ég þyrfti þá líklega að vera klædd í sunnudagsmorgunblað, krossgátusíðuna.  Hmmm.

krossgata, 29.9.2007 kl. 19:49

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jóna!!! Ég var nú bara að tala um Skagamenn ... fannst ekki líklegt að neinn nennti að keyra í þessu veðri frá Reykjavík. Það er nóg eftir að eplasúkkulaðivanillutertunni ef þú vilt ... og þú líka Krossgata ... og Benedikt og bara alle sammen ...

Guðríður Haraldsdóttir, 29.9.2007 kl. 21:03

6 Smámynd: Guðný Jóhannesdóttir

Uppksrift takk ;)

Guðný Jóhannesdóttir, 29.9.2007 kl. 21:46

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Halló Gurrí, einn sem aldrei kemur þó þráður sé hérna hehe!

Hvað er Benedikt að gefa í skyn með "þetta fyrir 20 árum, en enn betri nú"? Dularfullt!

Til lukku með "Barnaliðið" glæsilegur árangur að ná þriðja sætinu!

SVo dettur mér eitt í hug, væri Ellý ekki bara fínn kvennkostur fyrir soninn, hún sannnkallaður glæsikvennkostur og enn á fínum barneignaaldri!?

Magnús Geir Guðmundsson, 29.9.2007 kl. 22:13

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er of sein til að láta þig ganga á eftir mér að skella mér í heimsókn.  Muhaha, namminamm kaka, annars er ég að springa úr seddu.  Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.9.2007 kl. 22:20

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Af ástæðum sem eru mér algjörlega ókunnugar hafa Valsarar verið að æða hérna fram og tilbaka á Bergþórugötunni syngjandi og trallandi. Þar með hætti ég að samgleðjast þeim... þeir trufluðu mig nefnilega við lestur á Mao. Það fyrirgef ég seint
Ætlaði bara rétt að glugga í bókina áður en ég færi í sturtu og heimboð. Sit ennþá með nefið oní bókinni. Mæli með henni

Heiða B. Heiðars, 29.9.2007 kl. 22:47

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Magnús, hún Ellý er fjórum árum yngri en ég ... er það kannski nóg til að hún geti orðið tengdadóttir mín? Við Benedikt þekktumst nú í gamla daga ... múahhahaha

Guðný, uppskriftin kemur þegar ég er búin að fullbreyta henni ... er svolítið að prófa mig áfram.

Best að kíkja í Maó, Heiða, og Jenný, plís komdu í heimsókn NÚNA!!! (segðu svo að ég hafi ekki gengið á eftir þér) 

Guðríður Haraldsdóttir, 29.9.2007 kl. 23:00

11 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

nú nú, eplakakan sennilega búin núna undir miðnættiðog líklega of seint að detta óvart inn hehehehehe.

Guðrún Jóhannesdóttir, 29.9.2007 kl. 23:34

12 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Hrikalega er ég ánægður að við náðum 3 sætinu,ég komst ekki á leikinn í dag þar sem ég var að keppa í ralli og ég lenti í 3 sæti þar,áfram Skagamenn...

Heimir og Halldór Jónssynir, 30.9.2007 kl. 00:55

13 Smámynd: www.zordis.com

Tengdadætur eru á öllum aldri  þú tekur þér sið sem tíðkast um hálfan heim og velur syni þínum veraldarvana konu sem þú kannt vel við veist að eldar og tekur til svo unganum þínum eigi eftir að líða vel!

Til hamingju með sigurinn Gurrí þú átt þar hlut í máli, lagðir það á þig að horfa ekki  væri til í eina sneið!

www.zordis.com, 30.9.2007 kl. 09:06

14 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Úps, að ég skildi missa af köku og útsýninu yfir motorkrossið - ég sem var bara að láta mér leiðast í dumbungnum í gær. Takk samt fyrir boðið.

Edda Agnarsdóttir, 30.9.2007 kl. 09:43

15 identicon

Gaf ekki 3ja sætið þátttökurétt í einhverjum Evrópumótum? Það ER flottur árangur - til hamingju ´sskan  En vantar ekki konuna heimilisfang á Akureyri til að senda nýjustu Vikuna á (þessa með ammælisbarninu)????  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 12:26

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sko Páll. Ég tók viðtalið við völvuna í fyrra og spurði hana út í þetta, sætti mig illa við hvað hún var greinilega lítt áhugasöm um fótbolta, spurði m.a. Sigra FH-ingar aftur. Hún svaraði því neitandi. Svona spádómar eru skemmtilegur samkvæmisleikur, ekkert annað, en ótrúlega margt sem hefur komið fram. Hún sagði m.a. að Kristinn H. Gunnarsson færi yfir í Frjálslynda flokkinn og gengi vel þar!

Jú, konuna vantar heimilisfang, en gæti mögulega fundið það í simaskra.is á morgun, þarf að senda blöð á morgun, er seinni en vanalega, sorrí. 

Eplakakan er ekki enn búin ... en lítið eftir. Hún er svo saðsöm, ein sneið á tveggja tíma fresti ... hehehhe 

Guðríður Haraldsdóttir, 30.9.2007 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 602
  • Sl. viku: 2451
  • Frá upphafi: 1457320

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2037
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Elsku Tommi
  • Elsku Tommi
  • Mamma hjúkka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband