7.12.2007 | 11:22
Annir og huldufólk
Sömu annirnar og í gær, nema kannski enn meira stress. Núna er ég hálffúl yfir því að hafa lofað Míu að fara út með henni í kvöld ... en samt hlakka ég til að komast út á meðal manna ... og fá eitthvað gott að borða í góðum félagsskap. Já, það verður örugglega gaman með Lions-fólkinu. Ég er nú einu sinni Ljón!
Puntaði aðeins í himnaríki í gær, setti m.a. jóladúk á borðstofuborðið og annan í stíl á kringlótta skákborðið í horninu við hliðina á rauða antíksófanum. Dúkarnir komu frá mömmu, sérsending sem kom í gær. Þótt ég sé orðin rúmlega fertug ... eða 49 ára, laumar mamma enn að mér litlum gjöfum, jafnvel pening ... já, og gefur mér alltaf páskaegg. Það er frekar sætt, er það ekki?
Var að lesa nýju bókina hennar Unnar Jökulsdóttur um álfa og huldufólk. Einlæg, vel skrifuð og skemmtileg. Í fyrsta viðtalinu hennar um huldufólk voru nú náfrænkur mínar á Svanavatni spurðar og þær töluðu svolítið um afa sinn, Jónas frá Hróarsdal, langalangafa minn. Kom skemmtilega á óvart, sitt af hverju sem ég vissi ekki. Ætti að kaupa þessa bók handa mömmu í jólagjöf. (Ættartréð er svona: Jónas, Jósteinn, Mínerva, Bryndís, Gurrí.) Hef aldrei hitt þessar frænkur mínar en langar nú mikið til þess. Dóttir Jónasar (systir Jósteins langafa míns) er nýdáin, hún Sigurlaug, konan sem las í garnir og spáði fyrir um veðrið. Ég veit alveg hvaðan ég hef veðuráhugann.
Myndinni stal ég á Netinu, frá ástkærri frænku minni (sem ég hef aldrei hitt, held ég) en hún er af Hróarsdal í Skagafirði, þaðan sem ræturnar liggja. Var það á ættarmóti 1985 og kynntist fjöldanum öllum að ÆÐISLEGU fólki, m.a. Höllu frænku, sem er tveimur árum eldri en ég en samt dóttir Páls, sonar Jónasar. Ég ætti að vera jafngömul barnabörnum Höllu ... en þau eru nú ekki einu sinni komin til sögunnar og ég alveg að komast á ömmualdur sjálf. Jamm, þetta er nú meira ættarbloggið!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 212
- Sl. sólarhring: 284
- Sl. viku: 835
- Frá upphafi: 1524667
Annað
- Innlit í dag: 192
- Innlit sl. viku: 715
- Gestir í dag: 188
- IP-tölur í dag: 187
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Það er fallegt í Skagafirði. Mikil ósköp. Það gera meðal annars allir þessir hólar og hæðir sem setja svo skemmtilegan svip á landslagið.
Jens Guð, 7.12.2007 kl. 11:52
Hef ég ekki sagt þér frá því þegar frænkur mínar tvær í Hegranesinu komust á unglingsár og faðir þeirra var spurður hvort hann væri búinn að leggja dætrum sínum lífsreglurnar?
Hann hélt það nú; hann væri búinn að segja þeim það sem þær þyrftu að vita: Að þær mættu ekki giftast Sjálfstæðismanni, ekki kommúnista og engum af Hróarsdalsættinni ...
Nanna Rögnvaldardóttir, 7.12.2007 kl. 11:59
Hæ. krúttlegt þetta með páskaeginn og smágjafirnar. Ég er langlangyngst af sex systkinum og þau eiga það ennþá til að kaupa nammi handa mér í fríhöfninni þegar þau fara til útlanda, sem er ósjaldan, og er ég þó fjórum árum eldri en þú.
Svo er annað, getur þú útvegað mér gamla Viku þar sem er viðtal við Kristjönu Skagfjörð Williams i London, hún er systurdóttir mín og ég var ekki á landinu þegar blaðið kom út. Láttu mig vita af eða á, netfangið mitt er helgam@dv.is. Alltaf gaman að lesa bloggið þitt, þú ert hreinn snillingur og algjör lobbýisti fyrir strætó og Jónasa.
Helga Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 12:29
Sendi þér meil, Helga mín ...
Nanna, jú, ég hef heyrt þetta og er enn vægast sagt enn steinhissa á þessum manni, eins og það er fallegt og hæfileikaríkt fólk í þessarri ætt
Já, Jens, Skagafjörðurinn er mjög fallegur.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 7.12.2007 kl. 13:10
Skemmtu þér vel í kvöld og um helgina skvisa, vonandi með álfum og huldumönnum.
Ásdís Sigurðardóttir, 7.12.2007 kl. 15:12
Skemmtu þér rosalega vel í kvöld hlakka til að lesa næstu færslu
Brynja blogg.central.is/skordal_1 (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 16:32
hæ skvís, alltaf er nú gott að eiga mömmu sem lumar á ýmsu í pokahorninu, t.d smákökum og lagkökum sem maður nennir ekki að gera sjálfur(sjálf) en páskaegg fæ ég ekki, ætli mömmu finnist ég ekki vera með fáein aukakíló mér til travala. Njóttu nú kvöldsins og skemmtu þér nú vel, alltaf gott að brjóta upp hversdagsleikan ekki satt, en er ekki svona Jólaglögg í vinnuni þinni eins og var í húsó er í denn?
bestu kv
siggi
siggi (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 17:35
Jájá, bara krúttlegt að mamma þín gauki að þér pening og páskaeggjum. Ekkert að því, ég ætla aldrei að hætta að gefa mínum börnum sollis.
Góða skemmtun
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.12.2007 kl. 18:10
Goda skemmtun i kvold.Eg hef nu ekki fengid Islensk paskaegg sidan eg flutti hingad ut.Og aldrey hafa yngstu 3,bornin smakkad thaug.Konan hans pabba er voda dugleg ad senda gladning a jolunum.t,d.Hardfisk og islenkt hannadar gjafir sem alltaf er gaman.
Ásta Björk Solis, 7.12.2007 kl. 18:22
Er himnaríkiskonan ennþá sofandi eftir veislu gærkveldsins
Eða ennþá að skemmta sér
bíð eftir skemmtilegu bloggi vantar eitthvað að lesa með kaffibollanum
Brynja blogg.central.is/skordal_1 (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 11:16
Hmmmm, ertu í slagtogi með Lions fólki?
Var það ekki Lions sem stóð á bakvið morðið á John Lennon?
Kannski þessvegna sem þetta var í gær en ekki á dánardægri Lennons, svona til að grunur falli ekki á ykkur.
....er ekki kominn tími til að þú segir sannleikann um Lions og Lennonmorðið?
Breiðholtshatarinn (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 12:01
Það vill svo til að maðurinn minn kannast vel við fólkið þitt í Skagafirði knús á þig.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.12.2007 kl. 12:21
Hann langafi þinn var feikna kall,og hefði átt að verða læknir.....þá meina ég snjall læknir. Hann tók á móti einum 300-400 börnum í Skagafirði átti allmörg sjálfur. Hafði djúpan skilnig á guðfræði samdi leikrit og margt fleira. En fátæktin og aðstöðuleysið já fjandans fátæktin (skorturinn) setti strik í reikninginn. það er gaman að lesa bloggið þitt. Kveðja M
Margrét Sig (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.